Grænland

Snúið hjá Ístaki að hefja smíði skóla á Grænlandi
Ístaksmenn standa frammi fyrir óvæntri áskorun að hefjast handa við smíði skólabyggingar í Nuuk á Grænlandi vegna ferðatakmarkana sem fylgja kórónu-faraldrinum.

Fyrsta tilfellið staðfest á Grænlandi
Yfirvöld Grænlands hafa greint fyrsta tilfelli Covid-19, sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur, þar í landi.

Bráðnun á báðum hvelum sexfalt meiri en undir lok síðustu aldar
Saman hafa Grænland og Suðurskautslandið tapað um 475 milljörðum tonnum af ís á hverju ári á þessum áratug sem er að líða. Það er margfalt meira en á 10. áratug síðustu aldar.

Heimamenn auka hlut sinn í gullnámum Elds á Grænlandi
Ríkisreknu fjárfestingarsjóðirnir Greenland Venture Fund og Danish Growth Fund hafa tvöfaldað hlut sinn í kanadíska gullnámufélaginu AEX Gold, sem Íslendingurinn Eldur Ólafsson fer fyrir.

Kielsen kynnti olíukóngum Texas útboð Grænlendinga
Grænlensk stjórnvöld hafa kynnt áætlun um að bjóða út olíuleit á fimm svæðum á næstu tveimur árum, þar á meðal á tveimur við Austur-Grænland, þeirri hlið sem snýr að Íslandi.

Ístak í hópi verktaka sem fá að bjóða í nýjan aðalflugvöll Suður-Grænlands
Gerð nýs flugvallar er að hefjast á Suður-Grænlandi og verður það þriðja stóra flugvallarverkefnið sem Grænlendingar setja í gang um þessar mundir.

Fyrsta sprenging í Ilulissat að nýjum alþjóðaflugvelli
Grænlendingar eru byrjaðir á gerð 2.200 metra langrar flugbrautar við bæinn Ilulissat, sem verður alþjóðaflugvöllur númer tvö á eftir Nuuk í uppbyggingunni.

Vilja skoða niðurgreiðslu flugferða ungs fólks milli Íslands, Grænlands og Færeyja
Þingsályktunartillaga þess efnis liggur fyrir Alþingi.

Sjófarendur varist hafís sem nálgast landið
Hafí er nú rúmar 40 sjómílur frá Straumsnesi.

Telja Grænlendinga hafa fengið mikinn afslátt af Airbus-þotunni
Air Greenland er sagt hafa fengið 14 milljarða króna afslátt frá Airbus við kaup á nýju breiðþotunni. Miðað við yfir 32 milljarða króna listaverð evrópska flugvélaframleiðandans þýðir þetta vel yfir fjörutíu prósenta afslátt.

Grænlendingar kaupa nýja Airbus-breiðþotu
Ráðamenn grænlenska flugfélagsins Air Greenland tilkynntu á föstudag um kaup á nýrri breiðþotu af gerðinni Airbus A330-800neo. Þetta er stærsta fjárfesting í sögu félagsins.

Telja ofveiði rostunga hafa átt þátt í hvarfi norrænna byggða á Grænlandi
Vísbendingar eru um að norrænir menn á Grænlandi hafi gengið nærri rostungastofninum þar um það leyti sem fílabein frá Afríku byrjaði að streyma til Evrópu.

Mikil tækifæri framundan á Grænlandi fyrir verktaka
Spennandi tímar fara í hönd á Grænlandi með mikilli uppbyggingu. Framkvæmdastjóri Ístaks segir að þar séu framundan stór verkefni, sem fyrirtækið vilji taka þátt í.

22 ára karlmaður handtekinn vegna morðanna á Grænlandi
Lögreglan í Maniitsoq á Grænlandi hefur handtekið 22 ára karlmann og er hann grunaður um að hafa myrt karl og konu, sem fundust látin í íbúð í bænum í fyrrinótt.

Gefa grænt ljós á bandaríska ræðismannsskrifstofu á Grænlandi
Danska utanríkisráðuneytið hefur gefið grænt ljós á opnun bandarískrar ræðismannsskrifstofu í Nuuk.

Ístak undirritar verksamning um smíði stærsta skóla Grænlands
Ístak skrifaði nú síðdegis í Nuuk undir ellefu milljarða króna samning um smíði stærsta skóla Grænlands. Þetta er einn stærsti verksamningur í sögu fyrirtækisins.

Morðingja leitað eftir að karl og kona fundust myrt í Maniitsoq á Grænlandi
Tveir einstaklingar fundust myrtir síðastliðna nótt í íbúð í bænum Maniitsoq á Grænlandi. Hin látnu voru karlmaður á sjötugsaldri og liðlega fimmtug kona og höfðu þau verið stungin með hníf.

Hættir við hótel í hjarta Nuuk vegna mótmæla
Aðaleigandi Icelandair Hotels, malasíska hótelkeðjan Berjaya Corporation Berhad, hefur fallið frá áformum sínum um að reisa lúxushótel víð Nýlenduhöfn í Nuuk. Ástæðan er hávær mótmæli gegn staðsetningunni.

Leit á atvinnumissinn sem tækifæri til að láta draumana rætast
Íris Ösp Heiðrúnardóttir var ósátt og fordómafull gagnvart því að flytja til Grænlands sem unglingur en endaði á að finna ástina þar. Henni líður best á ferðalögum og finnst að allir ættu að gefa sér tíma í jóga og slökun.

Eldur sagður kveikja gullæði á Grænlandi
Gullæði á Grænlandi. Þannig hljómar fyrirsögn eins grænlensku fjölmiðlanna eftir að fréttir bárust um stóran gullfund fyrirtækis, sem Íslendingurinn Eldur Ólafsson stendur að.

Gullfundur Íslendinga á Grænlandi talinn fimmtíu milljarða króna virði
Gullnámur á Grænlandi, sem Íslendingar eiga þriðjung í, hafa reynst mun gullríkari en búist var við. Gullæðar, sem þegar hafa fundist, eru taldar um fimmtíu milljarða króna virði.

Eigandi Icelandair Hotels vill reisa lúxushótel í hjarta Nuuk
Aðaleigandi Icelandair-Hotels, malasíski auðkýfingurinn Vincent Tan, hefur kynnt áform um að reisa lúxushótel í hjarta Nuuk, höfuðstaðar Grænlands.

Kynna heilsárs skíðamiðstöð í Nuuk við hlið flugvallarins
Metnaðarfullar hugmyndir hafa verið kynntar um uppbyggingu skíðamiðstöðvar í Nuuk í tengslum við gerð nýs alþjóðaflugvallar fyrir höfuðstað Grænlands.

Erpur á Grænlandi
Rapparinn Blaz Roca lagði land undir fót nú í haust og fór til Grænlands, þar sem hann skemmti. Með honum í för var veitingamaðurinn Atli Snær, sem rekur staðinn KO.RE í Mathöllinni á Granda.

Grænlenska þingið samþykkti fjárveitingu í fyrsta þjóðveginn
Grænlenska þingið hefur í fyrsta sinn samþykkt fjárveitingu til þjóðvegagerðar í þessu næsta nágrannalandi Íslands.

Sjávarútvegsráðherra segir aðrar þjóðir ekki segja Íslendingum fyrir verkum
Sjávarútvegsráðherra segir Evrópusambandið, Norðmenn og Færeyinga ekki segja Íslendingum fyrir verkum varðandi makrílveiðar, en sambandið og þessar þjóðir hafi haldið Íslendingum, Grænlendingum og Rússum utan við samninga um veiðiheimildir á makríl í mörg ár.

Kílóið af sykri hækkar um tæpar 200 krónur á Grænlandi
Sykurskattur og hækkun áfengis- og tóbaksgjalds er meðal þess sem tók gildi á Grænlandi í nótt.

Báðu Samherja um ráð til að blekkja veiðiheimildir út úr Grænlendingum
Framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar bað félaga sína í Samherja um ráðleggingar varðandi það hvernig beita mætti blekkingum á Grænlandi til að komast mætti yfir veiðiheimildir og afla velvildar heimamanna.

Standa fyrir Vetrarhátíð í Tasiilaq og Kulusuk
Vetrarhátíð á vegum Hróksins og Kalak, vinafélags Grænlands og Íslands, hefst í Tasiilaq og Kulusuk á Austur-Grænlandi í dag og stendur í viku.

Grænlendingar leggja drög að smíði veglegs þjóðarleikvangs
Hugmyndin er að mannvirkið þjóni jafnt sem íþróttaleikvangur, sýningarhöll og tónleikastaður og verði þannig allt í senn; íþrótta-, viðskipta- og menningarmiðstöð.