Kjaramál

Stjórnmálamenn líti í eigin barm
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, telur að stjórnmálamenn þurfi að líta í eigin barm í yfirstandandi kjaraviðræðum.

Tjá sig ekki um bréf ráðherrans
Stjórnarformaður Íslandsbanka, Friðrik Sophusson, ætlar að svo stöddu ekki að tjá sig um harðort bréf Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra til Bankasýslu ríkisins á fimmtudag.

Markmið aðgerðanna er að ná samningum
Formaður VR segir meginmarkmið aðgerðaáætlunar um frekari verkföll að þrýsta á um samninga. Atkvæðagreiðsla hefst í næstu viku. Formaður Eflingar segir það eina af stóru lygunum í samfélaginu að enginn vilji fara í verkfall.

Hræðast áhrif yfirvofandi verkfallsaðgerða
Ferðaþjónustuaðilar óttast að yfirvofandi verkfallsaðgerðir skaði samkeppnishæfni Íslands á alþjóðlegum markaði. Þegar hafa borist afbókanir á hótel og spurst út til ferðamanna að hætta sé á verkföllum á næstunni.

Starfsemi stærstu hótela og rútufyrirtækja myndi lamast
Starfsemi allra stærstu hótela landsins mun meira og minna lamast komi röð verkfalla starfsmanna Eflingar og VR sem félögin greindu frá í dag til framkvæmda.

Sólveig segir ekkert geta kramið þær konur sem nú hafi fengið rödd í samfélaginu
Formaður Eflingar segir engan geta kramið þær konur sem nú hafi í fyrsta skipti eignast rödd í íslensku samfélagi með boðun verkfalls í næstu viku.

SA stefnir Eflingu fyrir Félagsdóm
Telja atkvæðagreiðsluna um vinnustöðvun andstæða lögum og vilja að stéttarfélagið verði dæmt til sektar.

Formaður VR segir verkalýðsfélög nauðbeygð í aðgerðir
Formaður VR segir verkalýðsfélögunum nauðugur sá kostur að boða til verkfalla til að þrýsta á körfur sínar gagnvart Samtökum atvinnulífsins.

Sólveig segir atkvæðagreiðslu um verkfall gilda
Formaður Eflingar segir atkvæðagreiðslu félagsins vegna eins dags verkfallsboðunar á föstudag í næstu viku löglega en hún skilaði tilkynningu um verkfallið til Samtaka atvinnulífsins og ríkissáttasemjara í morgun.

Efling stendur öðruvísi að næstu atkvæðagreiðslu um verkfall
Samninganefnd Eflingar-stéttarfélags samþykkti á fundi sínum í gær 28. febrúar 2019 að boða til atkvæðagreiðslu um verkfall hjá hópbifreiðafyrirtækjum og á 40 hótelum á félagssvæði Eflingar á tilteknum dagsetningum.

Kosið um allsherjarverkfall á Skaganum
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness hefur ákveðið að láta fara fram allsherjaatkvæðagreiðslu um verkfallsboðun meðal félagsmanna sinna sem heyra undir kjarasamning sem félagið á við Samtök atvinnulífsins vegna veitinga-, gisti-, þjónustu og greiðasölustaða, afþreyingarfyrirtækja og hliðstæðrar starfsemi.

VR stefnir á fimmtán verkfallsdaga og svo allsherjarstopp þann 1. maí
Stjórn VR samþykkti á fundi sínum þann 25. febrúar 2019, að boða til leynilegrar atkvæðagreiðslu um verkfall hjá hópbifreiðafyrirtækjum á félagssvæði VR og í gistiþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði. Aðeins starfsmenn fyrirtækja, sem verkfallið mun taka til, munu greiða atkvæði um verkfall.

„Bara hin besta kjörsókn“
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra félagsmanna Eflingar sem greiddu atkvæði féllust á að hefja verkfall meðal hreingerningafólks á hótelum þann 8. mars.

Einhuga vegna launahækkana bankastjóra
Fjármálaráðherra segir stjórnendur Íslandsbanka og Landsbankans ekki hafa virt tilmæli um hófsemi og varfærni við launahækkanir og boðar aðgerðir. Forsætisráðherra og samgönguráðherra taka undir í samtali við Fréttablaðið.

Verkfall samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta
Verfallsboðunin var samþykkt með 89% atkvæða.

Tilkynna „skammarlistann“ til Persónuverndar og saka forsvarsmenn hótelsins um rangfærslur
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu.

Bjarni fer fram á tafarlausa endurskoðun launa bankastjóra
Segir launahækkanirnar senda ósættanleg skilaboð inn í yfirstandandi kjaraviðræður.

Skammast sín ekki fyrir að enduróma málflutning félagsmanna
Forseti Alþýðusambans Íslands segir það hlutverk sitt að enduróma málflutning félagsmanna og standa með þeim. Forsetinn hefur fengið aðvörun um málshöfðun frá starfsmannaleigunni Menn í vinnu vegna ummæla í máli rúmenskra verkamanna.

Skattgreiðslur verði sundurliðaðar á launaseðlum
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur eðlilegt að fram komi á launaseðlum fólks hvert skattgreiðslur þess fara og leggur fram þingsályktun í dag um að ríkið breyti nú þegar uppsetningu launaseðla.

Pólun samfélagsins
Í ljósi átakanna sem nú ríkja á vinnumarkaði og þeirrar pólunar sem hún lýsir er fróðlegt að staldra við og velta fyrir sér hvað það er sem veldur.

Áslaug vill að sveitarfélögin hugi líka að skattalækkunum
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill að ríkið greini frá því á launaseðlum sínum hvernig tekjuskattur skiptist milli þess og sveitarfélaga. Þegar komi að skattatillögum í tengslum við kjarasamninga sé ekki bara hægt að horfa á ríkið

Menn í vinnu vilja milljón frá Viðari auk afsökunarbeiðni
Starfsmannaleigan Menn í vinnu hefur krafið Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóra Eflingar, um afsökunarbeiðni og greiðslu einnar milljónar vegna ummæla hans um starfsemi fyrirtækisins, ella standi hann frammi fyrir málshöfðun.

Samanburður á kröfum verkalýðsfélaga og tilboði SA
Enn er tekist á um hvað kröfur verkalýðsfélaganna fela í sér miklar launahækkanir.

Biður deiluaðila um að tjá sig ekki við fjölmiðla til að skapa vinnufrið
Bryndís Hlöðversdóttir, ríkissáttasemjari, hefur biðlað til aðila í tveimur kjaradeilum sem nú eru á borði hennar að tjá sig ekki við fjölmiðla um gang viðræðna.

Eins og hamstur á hjóli þegar reynt er að samræma vinnu og fjölskyldulíf
Niðurstöður rannsóknar sem gerð var í Háskólanum á Akureyri sýna að stytting vinnuvikunnar sé lykilatriði í því að minnka álag og lífsgæði fjölskyldufólks.

Nafnlaus áróður skýtur aftur upp kollinum í tengslum við kjaradeilu
Hulduhópur kaupir auglýsingu á Facebook þar sem gefið er í skyn í að verkalýðsleiðtogar séu strengjabrúður stofnanda Sósíalistaflokksins.

„Ólíkt harðar slegist um íslenska stjórnendur erlendis en norska“
Misjafnt er eftir forsendunum hve há meðallaun norskra stjórnenda eru talin vera.

Fundað hjá ríkissáttasemjara í kjaradeilu SGS og SA
Nú klukkan 10 hófst fundur í húsakynnum ríkissáttasemjara í kjaradeilu Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins.

Ljóst að hækkunum verði velt út í verðlag
Hagfræðideild Landsbankans metur gengi hlutabréfa í Högum á 45,1 krónu á hlut í nýju verðmati og hefur lækkað mat sitt um ríflega 13 prósent frá síðasta verðmati í júlí í fyrra.

Á sjötta tug missa vinnuna hjá Ístaki
Verktakafyrirtækið Ístak hefur sagt upp 31 fastráðnum starfsmanni og þá verða samningar við 25 starfsmenn sem starfað hafa fyrir fyrirtækið í gegnum starfsmannaleigu ekki endurnýjaðir.