Reykjavík

Hælisleitendur í rakaskemmdu húsnæði
Barnafjölskyldur sem hafa óskað eftir alþjóðlegri vernd búa í húsnæði á vegum Reykjavíkurborgar sem ungbarnaleikskóli flúði úr vegna rakaskemmda fyrir fjórum árum. Reykjavíkurborg segist vera búin að endurnýja húsnæðið. Víða sjást þó mygla og raki á húsnæðinu.

Neituðu að virða grímuskyldu úti í búð
Töluvert margar tilkynningar bárust lögreglu um brot á sóttvarnalögum í dag.

Ráðgáta um ólykt af heitavatni í Vesturbæ gæti verið leyst
Vísbendingar eru um að óvenjuleg lykt af heitu vatni í Vesturbæ Reykjavíkur, sem íbúar hafa m.a. kvartað undan á samfélagsmiðlum síðustu daga, komi úr borholum hitaveitu í Laugarnesi.

Einangraði sig í hljóðveri í Reykjavík fyrir plötuna sem kom út í dag
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds gaf í dag út sína fimmtu breiðskífu, some kind of peace. Platan er sögð vera hans persónulegasta til þessa. Platan er nú komin á allar helstu efnisveitur.

Gáttuð á hræsni borgaryfirvalda
Í gærkvöldi kom út þáttur hjá Kveik á Rúv um rakaskemmdir, myglu og heilsufarslegar afleiðingar sem það getur haft í för með sér.

Innlit inn í þýfisgeymsluna á Vínlandsleið
Lögregla lagði hald á mikið af þýfi í tveimur húsum í stórri aðgerð í Mosfellsbæ í gær. Einn var handtekinn í aðgerðunum.

Skaðabætur frá borginni færi honum ekki barnsárin aftur
Reykjavíkurborg hefur hafið samningaviðræður um skaðabætur við ungan mann sem varð fyrir grófu kynferðisofbeldi af hálfu stuðningsfulltrúa sem starfaði hjá Barnavernd Reykjavíkur. Ungi maðurinn fagnar því að þurfa ekki að ganga í gegnum annað dómsmál.

Straumhvörf í umönnun sjúklinga á hjúkrunarheimilum sem fá Covid-19
Sérstök Covid-19 einangrunardeild fyrir íbúa sem smitast á hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum hefur verið opnuð á Eir í Grafarvogi. Þetta er fyrsta deild sinnar tegundar hér á landi og mun valda straumhvörfum í umönnun íbúa hjúkrunarheimila sem þurfa ekki á hátækniþjónustu að halda á Landspítala.

Einn til viðbótar smitaður í Hvassaleiti
Einn íbúi greindist með Covid-19 í skimun hjá 50 íbúum Hvassaleitis 56-58 í fyrradag. Ráðist var í skimunina eftir að átta einstaklingar, sex íbúar og tveir starfsmenn, smituðust í hópsýkingu í húsinu.

Tilkynnt um fjórar líkamsárásir
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna fjögurra líkamsárása í umdæmi sínu í gærkvöldi.

Vinnuslys í miðbænum
Vinnuslys varð við nýbyggingu í miðbæ Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan tvö í dag.

Knúðu dyra og stálu síma og 600 þúsund krónum
Innbrotahrina hefur verið í nokkrum hverfum höfuðborgarinnar að undanförnu og dæmi eru um að fólk hafi orðið fyrir stórtjóni.

Covid-19 smit á sambýli fyrir konur með heilabilun
Einn starfsmaður og einn íbúi á Foldabæ, sem er sambýli fyrir konur með heilabilun, hafa greinst með Covid-19. Sjö starfsmenn velferðarsviðs og allir íbúar heimilisins eru í sóttkví.

Hvers vegna skiptir þétting byggðar máli?
Húsnæðisáætlun Reykjavíkur sem kynnt hefur verið í borgarstjórn sýnir fyrst og fremst metnaðarfull og græn áform meirihlutans um uppbyggingu fyrir framtíðina.

Slökkviliðið barðist við eld á Engjateig
Allt tiltækt slökkvilið var kallað til þegar eldur kom upp við Engjateig í Reykjavík um klukkan hálf fimm í morgun.

Dagur braut ekki persónuverndarlög með birtingu athugasemdar
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri braut ekki persónuverndarlög með því að birta persónuupplýsingar, sem áður höfðu birst á vef Reykjavíkurborgar, á vefsíðu sinni árið 2018.

Fyrrverandi yfirmaður senegalsks fjölskylduföður segir málið hrikalegt
Fyrrverandi yfirmaður fjölskylduföður frá Senegal, sem á að vísa úr landi ásamt eiginkonu og börnum, segir málið hrikalegt. Dómsmálaráðherra segir óboðlegt að fjölskyldan skuli hafa beðið í sex ár eftir niðurstöðu í málinu sínu.

Bassirou er kristinn og það breytir öllu til hins verra
Sindri Guðjónsson þýðandi segir fjölskylduna allt eins eiga yfir höfði sér ofsóknir og útskúfun í Senegal

Átta smitaðir í hópsýkingu í Hvassaleiti
Átta hafa greinst með Covid-19 í hópsýkingu sem kom upp í íbúðum fyrir eldri borgara í Hvassaleiti í síðustu viku. Tekin verða sýni hjá öllum íbúum á morgun.

Vísað út eftir að hafa neitað að bera grímu
Starfsmenn Nexus í Glæsibæ þurftu á laugardaginn að neita viðskiptavini um inngöngu vegna annars en óláta, ölvunar eða vímu eða þá fyrri stuldar í fyrsta sinn í 28 ár.

Biðst lausnar eftir brottvikningu sem skiptastjóri
Lárus Sigurður Lárusson, lögmaður og oddviti Framsóknar í Reykjavíkurkjördæmi í komandi alþingiskosningum, hefur beðist lausnar sem formaður Menntasjóðs námsmanna. Hann segir brýnt að friður ríki um stjórn og starfsemi sjóðsins.

Sögufrægt hús eftir Högnu sett á sölu
Arkitektinn Högna Sigurðardóttir er án efa einn merkasti arkitekt sem Ísland hefur alið og teiknaði hún sögufrægt hús við Brekkugerði 19 sem er nú komið á sölu.

Geðheilbrigði
Á síðustu mánuðum hafa orðið miklar breytingar á okkar samfélagi. Við erum nánast öll í stöðugri aðlögun, nýjar reglur og ný viðmið sem taka stöðugum breytingum.

Skiptastjóranum vikið úr starfi vegna brots á skyldum
Lárusi Sigurði Lárussyni, lögmanni og stjórnarformanni Menntasjóðs námsmanna, hefur verið vikið úr starfi skiptastjóra þrotabús fasteignafélagsins Þórodds ehf vegna brots á starfs- og trúnaðarskyldum.

Ók á móti umferð á Laugavegi og átti að vera í einangrun
Maðurinn má eiga von á sekt fyrir að brjóta sóttvarnalög.

Merkilegt hvernig talan 64 markar örlög Fischers
Skákmeistarinn Bobby Fischer var rangfeðraður og talan 64 reyndist undarleg örlagatala í öllu lífi hans. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri bók um skákeinvígið 1972, sem kom Reykjavík á spjöld sögunnar.

Heimilismaður smitaðist á hjúkrunarheimilinu Mörk
Að höfðu samráði við smitsjúkdómalækna hefur viðkomandi verið lagður inn á Landspítala og viðbúnaðarstig virkjað á hjúkrunarheimilinu.

Bresk eftirlitsflugvél nefnd Andi Reykjavíkur
Ný eftirlitsflugvél konunglega breska flughersins hefur verið nefnd Andi Reykjavíkur, eða Spirit of Reykjavík. Vélin er af gerðinni Poseidon MRA 1.

Takk, framvarðarsveit Reykjavíkur
Í morgun bárust okkur fréttir um sextánda andlátið að völdum Covid, þar af hafa sex látist í þessari þriðju bylgju. Vil ég votta aðstandendum þeirra mína innilegustu samúð.

Greiðir hálfa milljóna í bætur fyrir kynferðislega áreitni á Hressó
44 ára karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða konu sem hann áreitti kynferðislega hálfa milljón króna í miskabætur. Maðurinn hafði áður verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir tilraun til nauðgunar.