Umferðaröryggi

Nýtt hringtorg við Biskupstungnabraut tekið í notkun
Nýr kafli Suðurlandsvegar og hringtorg við Biskupstungnabraut verða tekin í notkun á morgun. Framkvæmdir hófust í apríl árið 2020 og er verkefnið annar áfangi breikkunar Suðurlandsvegar.

„Af hverju er ekki búið að gera eitthvað?“
Móðir stúlku sem varð fyrir bíl á rafmagnshlaupahjóli kallar eftir hjálmum á Hopp-hlaupahjól og bættu umferðaröryggi á hættulegustu gatnamótum landsins. Stúlkan mjaðmabrotnaði en hún kveðst þakklát fyrir að ekki hafi farið verr.

Markviss endurskoðun ökuprófa og ökunáms skilar sér í auknu umferðaröryggi
Á liðnum dögum hefur skólahald hafist að nýju eftir sumarleyfi. Því fylgir aukin umferð, gangandi, hjólandi og akandi vegfarenda og þar á meðal skólabarna sem eru að stíga sín fyrstu skref ein út í umferðinni.

Átt þú framrúðuplástur?
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni stefnir í að umferðin í ár verði jafnmikil og metárið 2018. Umferðin virðist vera að ná fyrri styrk frá því fyrir Covid-19, árin 2020 og 2021, og mældist umferðin í júní síðastliðnum tæpum 6% meiri en í sama mánuði á síðasta ári.

Ekið á ungan dreng við gangbraut á leið í skólann
Ungur drengur í Grindavík hlaut opið beinbrot á fæti þegar ekið var á hann þar sem hjólaði á leið í skólann í gærmorgun. Lögreglumaður minnir ökumenn á að hafa augun á veginum nú þegar börn um allt land streymi í skólana.

Fjögurra bíla árekstur við álverið í Straumsvík
Árekstur fjögurra bíla varð til móts við álver Rio Tinto Alcan í Straumsvík rétt fyrir klukkan átta í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var ekki tilkynnt um slys á fólki.

Telur að stórefla þurfi öryggi vegfarenda í miðborginni
Stórefla þarf öryggi gangandi vegfarenda við stóra viðburði eins og Menningarnótt í miðbænum að mati sérfræðings í öryggismálum. Tvö tilvik þar sem ofurölvi ökumenn óku inn í mannmergð þar sem götulokanir voru í gildi sýni nauðsyn þess.

Þegar embættismenn fara ekki að lögum
Fyrir nokkru fékk ég inn á borð til mín mál einstaklings sem sviptur var ökuréttindum. Hann var tekinn fyrir ölvunarakstur árið 2018 en málinu lauk ekki fyrr en með sektargerð í janúar 2020 vegna tafa málsins í höndum lögreglu. Þegar kom svo að því að viðkomandi ætlaði að sækja um ökuréttindi að nýju er honum tjáð að hann þurfi fyrst að ljúka sérstöku námskeiði hjá Samgöngustofu. Þannig var mál með vexti að 1. janúar 2020 höfðu ný umferðarlög tekið gildi sem gerðu það að skilyrði fyrir því að fá að ökuprófið aftur að setið væri sérstakt námskeið hjá Samgöngustofu, en slíkt var ekki skilyrði eldri laga sem í gildi voru þegar viðkomandi brot átti sér stað.

Býst við að umferðin verði þyngst í átt að góða veðrinu
Hatíðarhöld fara fram víða um land um helgina með tilheyrandi umferðarþunga. Lögregla á von á að umferðin fari að þyngjast eftir hádegi og verði hvað þyngst um Suðurlandsveg á leið austur.

Opið bréf til Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Nýlega samþykktu borgaryfirvöld nýja Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar, sem lýsir framtíðinni innan borgarinnar og tekur til þau atriði og þær framkvæmdir sem borgaryfirvöld geta sett af stað til að hvetja fólk til að nota reiðhjól í ríkari mæli, sérstaklega til styttri ferða.

Generalprufa fyrir Verslunarmannahelgina
Búist er við mikilli umferð út úr bænum nú síðdegis, en álag hefur verið á vegum landsins síðustu tvær til þrjár helgar, að sögn Árna Friðleifssonar aðalvarðstjóra umferðadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Fjöldi nýrra skilta verði tekin í notkun
Starfshópur á vegum innviðaráðuneytisins hefur gert drög af reglugerð um umferðamerki og notkun þeirra. Hópurinn leggur meðal annars til að tekin verði upp rúmlega fimmtíu ný umferðarmerki, tæplega tuttugu nýjar yfirborðsmerkingar og tvenn ný umferðarljós.

Fór á rúnt með ölvuðum ökumanni og verður af sjötíu milljónum króna
Vátryggingarfélag Íslands var á dögunum sýknað af kröfu manns um greiðslu 142 milljóna króna, að frádregnum 38 milljónum króna sem þegar höfðu verið greiddar og 32 milljónum vegna eingreiðsluverðmætis örorkulífeyris, vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð árið 2017. Dómurinn taldi að maðurinn hefði sjálfur borið ábyrgð á líkamstjóni sínu með því að hafa farið á rúnt með ölvuðum ökumanni og þyrfti því að bera tvo þriðju hluta tjóns síns sjálfur.

Mikill stuðningur við færslu hringvegar út úr Borgarnesi
Verulegur stuðningur er við þá tillögu að hringvegurinn um Borgarnes verður færður út á vegfyllingu utan við byggðina, samkvæmt könnun sem Samgöngufélagið lét gera. Þá er allnokkur stuðningur við að hringvegurinn milli Akraness og Borgarness liggi í framtíðinni yfir mynni Grunnafjarðar norðan Akrafjalls.

Suðurverk átti lægsta boð í næsta áfanga vegarins yfir Dynjandisheiði
Suðurverk hf. í Kópavogi átti lægsta tilboð í nýbyggingu Vestfjarðavegar á 12,6 kílómetra kafla á Dynjandisheiði. Tilboð Suðurverks hljóðar upp á 2.455 milljónir króna sem var 1,8 prósent, eða 42 milljónum króna, yfir áætluðum verktakakostnaði upp á 2.412 milljónir króna.

Steinkast stútar sumrinu
Slitlagsviðgerðir á vegum landsins eru framkvæmdar með þeim hætti að harpaðri möl er dreift yfir olíu sem ökumenn og umferð eru látin vinna við að þjappa og veldur þannig gríðarlegu tjóni á ökutækjum sökum steinkasts.

Nýbakaðir hjólhýsaeigendur ana út í umferðina án hliðarspegla
Samkvæmt Samgöngustofu hafa 381 hjólhýsi verið nýskráð í ár. Hvort fólk hafi réttindi til að aka með þyngri eftirvagna getur velt á því hvenær maður fékk fyrst ökuréttindi. Að sögn lögreglu gerist það einstaka sinnum að fólk keyri réttindalaust en það sé hins vegar farið að gerast í auknum mæli að fólk aki án hliðarspegla.

Reykjavíkurborg og börnin í Vogabyggð – Þegar yfirvald tapar tilverurétti sínum
Hvers vegna erum við með opinbert yfirvald? Stutta svarið er að yfirvaldinu er ætlað að tryggja öryggi einstaklinga, sem undir það heyra. Ein grunnstoða lýðræðisins er sú tilhögun að einstaklingar framselji takmarkaðan hluta af frelsi sínu í skiptum fyrir meira öryggi, til að auka velferð sína.

Hvalfjarðargöngum lokað tvisvar með stuttu millibili vegna umferðaróhappa
Hvalfjarðargöngum var lokað tvisvar síðdegis með stuttu millibili vegna umferðaróhappa. Í fyrra skiptið voru þau lokuð í yfir klukkustund en í það seinna í 40 mínútur. Ökumenn fóru út úr bílum sínum til að kaupa ís af ísbílnum sem sat einnig fastur.

Airport Direct segir hegðun bílstjórans óásættanlega
Flautuleikaranum Pamelu De Sensi brá heldur í brún um borð í rútu Airport Direct í gær þegar hún sá bílstjórann ítrekað líta niður á síma sinn á meðan akstri stóð. Framkvæmdastjóri Airport Direct segir hegðunina vera óásættanlega og að rætt verði við starfsmanninn.

Kannar hug fólks til breytinga á tveimur köflum hringvegarins
Samgöngufélagið leitar eftir afstöðu almennings til þess hvort breyta eigi legu hringvegarins á tveimur köflum á Vesturlandi. Frestur til að taka þátt í skoðanakönnun félagsins rennur út 10. júní.

„Þetta bara snýst um mannleg samskipti og að við tökum tillit til hvors annars“
Málum hefur fjölgað síðustu ár þar sem árekstrar og núningur á milli gangandi vegfarenda, hjólreiðafólks og ökumanna hafa komið til kasta lögreglu. Tillitssemi getur þó ýmsu breytt til góðs að mati lögreglumanns.

Mál Margeirs sé ekki einsdæmi og hjólreiðafólki ítrekað ógnað
Varaformaður Samtaka um bíllausan lífsstíl kallar eftir aðgerðum til að tryggja öryggi hjólandi og gangandi í umferðinni. Hún segir ógnandi hegðun ökumanna og skaðlega samgöngumenningu hafa leitt til þess að fólk veigri sér við að hjóla.

Hyggjast klára brúargólfið í Þorskafirði fyrir veturinn
Smíði Þorskafjarðarbrúar, sem styttir Vestfjarðaveg um níu kílómetra, er komin vel á veg og er stefnt að því að brúargólfið verði tilbúið í haust. Verktakinn hefur leigt Bjarkalund undir vinnubúðir og verður hótelið lokað ferðamönnum næstu tvö árin.

Vegagerðin býður út langan vegarkafla á Dynjandisheiði
Þrettán kílómetra langur vegarkafli á hæsta hluta Dynjandisheiðar verður boðinn út á morgun. Samtímis er Vegagerðin að skoða málamiðlun að nýju vegstæði við fossinn Dynjanda til að hlífa sem mest bæði landslagi og fornminjum.

Þingmannssonur frá Akureyri sem hóf að ryðja Teigsskóg
Ungur akureyskur þingmannssonur á trjákurlara er í raun sá sem byrjaði á því að ryðja Teigsskóg. Hann er langt kominn með að hreinsa burt allt það skóglendi sem þarf að víkja vegna vegagerðarinnar.

Gröfustjórinn segir að passa verði hverja þúfu í Teigsskógi
Ein umdeildasta vegagerð landsins, lagning vegar um Teigsskóg, hófst í dag, nítján árum eftir að tillaga um þessa veglínu var fyrst kynnt. Þessi ellefu kílómetra vegarkafli á að verða tilbúinn í október á næsta ári.

Fækkum slysum á rafmagnshlaupahjólum
Slysum á rafmagnshlaupahjólum fjölgaði mikið í fyrra en samkvæmt nýlegri skýrslu Samgöngustofu um umferðarslys á Íslandi slasaðist 131 einstaklingur á rafmagnshlaupahjóli árið 2021 samanborið við 35 árið áður.

Verktakinn býr sig undir að hefjast handa í Teigsskógi
Borgarverk er byrjað að flytja tæki sín og tól að væntanlegu vinnusvæði í Teigsskógi. Fyrir helgi mátti sjá að grafa frá verktakanum var komin í Þorskafjörð og gerð klár til að hefja gröftinn í landi Þórisstaða þar sem núliggjandi Vestfjarðavegur hlykkjast upp á Hjallaháls.

Þetta eru tíu hvössustu staðir þjóðveganna
Með svokallaðri hviðuþekju hefur Vegagerðin lokið við kortlagningu tíu hvössustu staða þjóðveganna.