Sænski boltinn

Ingibjörg á skotskónum og Cecilía Rán varði víti og hélt hreinu
Það var nóg um að vera hjá íslensku knattspyrnufólki í hinum og þessum deildum í Evrópu.

Barnið þriggja vikna þegar mamman kom inn á og varð sænskur meistari
Íslenska landsliðskonan Guðrún Arnardóttir og félagar hennar í Rosengård tóku á móti sænska meistaratitlinum eftir lokaleik sinn í gær og í hópi þeirra var Emma Berglund sem varð móðir fyrir aðeins þremur vikum.

Sigdís Eva opnaði markareikninginn og Hlín skoraði tvö
Hin sautján ára gamla Sigdís Eva Bárðardóttir nýtti vel tækifærið í byrjunarliðinu í sænsku kvennadeildinni í dag. Hlín Eiríksdóttir skoraði tvö mörk í stórsigri Kristianstad þar sem landa hennar Katla Tryggvadóttir gaf tvær stoðsendingar.

Valgeir laus í Svíþjóð og gæti verið á heimleið
Valgeir Valgeirsson er á leið frá sænska B-deildarfélaginu Örebro þegar samningur hans rennur út við lok tímabils. Hann er orðaður við lið í Bestu deild karla.

Ljótt brot á Arnóri: „Enginn annar hefði spilað með þessa verki“
Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason meiddist í ökkla eftir fólskulegt brot Alexanders Milosevic í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Þjálfari hans segir engan annan í deildinni svo harðan af sér að halda áfram leik eins og Arnór gerði.

Áslaug og Katla féllu en Arnór og Ísak óhultir
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir og Katla María Þórðardóttir þurftu í kvöld að sætta sig við fall með Örebro úr sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Norrköping, lið Arnórs Ingva Traustasonar og Ísaks Andra Sigurgeirssonar, bjargaði sér hins vegar frá falli.

Skoraði furðulegt sjálfsmark í stað þess að bjarga marki: „Hvað ertu að gera?“
Eskilstuna vann 5-4 sigur á Stocksund í sænska fótboltanum um helgina en þrjú sjálfsmörk voru skoruð í leiknum. Eitt þessara sjálfsmarka vakti þó meiri athygli en hin.

Gísli og Birnir komnir úr fallsæti og Jón Daði í fyrsta sinn með Wrexham
Gísli Eyjólfsson var í byrjunarliði Halmstad í dag þegar liðið vann sinn þriðja leik í röð í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Halmstad er þar með komið upp úr fallsætunum og í góð mál fyrir lokaumferð deildarinnar.

Rosengård aftur á beinu brautinni eftir misstig í síðustu umferð
Rosengård er komið aftur á sigurbraut í sænsku úrvalsdeildinni eftir tap gegn Hammarby í síðustu umferð. 2-0 sigur vannst þegar Linköping kom í heimsókn í dag, Guðrún Arnardóttir stóð í miðri vörn Rosengård að vana.

Kolbeinn skoraði í síðasta heimaleik tímabilsins
Kolbeinn Þórðarson skoraði mark Göteborg í 1-1 jafntefli gegn Kalmar í næstsíðustu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar.

Diljá skoraði í bikar og Daníel lék fyrir meistarana
Hinn 18 ára gamli Daníel Tristan Guðjohnsen lék í dag sínar fyrstu mínútur á þessari leiktíð fyrir nýkrýnda meistara Malmö, í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sjáðu frábært mark Hlínar sem berst um gullskó
Landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir hefur raðað inn mörkum fyrir Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í ár og hún skoraði frábært mark gegn Djurgården í dag.

Haaland skrópaði líka og fór frekar á leik í Svíþjóð
Það voru ekki bara Real Madrid leikmennirnir Vinícius Júnior og Jude Bellingham sem skrópuðu á verðlaunahátíð Ballon d'Or í gær.

Arnór Ingvi með mikilvægt mark í langþráðum sigri Norrköping
Eftir níu leiki í röð án sigurs vann Norrköping loksins leik þegar liðið lagði Värnamo að velli í dag, 1-2. Arnór Ingvi Traustason skoraði annað mark gestanna.

Arnór og Birkir fengu kveðju frá Svíþjóð: „Takk fyrir allt“
Sænska knattspyrnufélagið Hammarby birtir í dag myndskeið til heiðurs þeim Birki Má Sævarssyni og Arnóri Smárasyni, vegna tímamótanna í þeirra lífi á morgun.

Fengu aldrei á sig mark en unnu samt ekki deildina
Sænska kvennaliðið Ängelholm hefur vakið umtalsverða athygli eftir það ótrúlega afrek sitt að spila heila leiktíð, átján leiki, án þess að fá á sig eitt einasta mark. Markvörður liðsins skoraði fleiri mörk en hún fékk á sig á leiktíðinni.

Valur eyddi færslu um stærstu söluna
Valsmenn hafa tekið úr birtingu færslu sem ekki stóð til að færi strax í loftið, um sölu á landsliðsmarkverðinum Fanneyju Ingu Birkisdóttur til Häcken í Svíþjóð.

Arnór Ingvi skoraði eitt og annað dæmt af
Arnór Ingvi Traustason átti virkilega góðan leik þegar Norrköping gerði 1-1 jafntefli við Brommapojkarna í efstu deild sænsku knattspyrnunnar í kvöld. Arnór Ingvi skoraði mark sinna manna og bætti öðru við sem var því miður dæmt af vegna rangstöðu.

Hlín heldur áfram að skora en fyrsta tapið hjá Guðrúnu
Íslendingaliðin Kristianstad og Rosengard voru í eldlínunni í sænsku kvennadeildinni í dag en þeim gekk misvel. Rosengard endar ekki tímabilið með fullt hús.

Fanney seld fyrir upphæð sem „ekki hefur sést“ og Tinna kemur í staðinn
Valsmenn hafa nú staðfest söluna á landsliðsmarkverðinum Fanneyju Ingu Birkisdóttur til sænska úrvalsdeildarfélagsins Häcken, og hafa aldrei selt knattspyrnukonu fyrir hærri upphæð. Tinna Brá Magnúsdóttir kemur frá Fylki og fyllir í hennar skarð.

Fanney sögð á leið til Svíþjóðar
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir er sögð hafa samið við lið Häcken í Svíþjóð.

Lið Adams Inga gæti farið á hausinn í dag
Sænska knattspyrnufélagið Östersunds FK er í kapphlaupi við klukkuna í dag þar sem stjórnarmenn reyna allt til að forða félaginu frá gjaldþroti.

Sænskir fjölmiðlar greina frá gagnrýni Eggerts Arons
Eggert Aron Guðmundsson segir þjálfara sinn hjá Elfsborg ósanngjarnan gagnvart sér og Andra Fannari Baldurssyni sem einnig leikur með sænska liðinu. Nú hafa sænskir fjölmiðlar greint frá málinu.

Guðrún nálgast fullkomnun
Fjöldi íslenskra fótboltakvenna er á ferðinni í dag og var leikjum að ljúka í Svíþjóð, Noregi og á Ítalíu. Guðrún Arnardóttir nálgast fullkomið tímabil í Svíþjóð.

Guðný lagði tvö upp í afar skrautlegum Íslendingaslag
Katla Tryggvadóttir þurfti að fara af velli fyrir markmann og Guðný Árnadóttir lagði upp mark, í skrautlegum Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Æfir hjá gamla félagi föður síns
Gabríel Snær Gunnarsson er staddur í Svíþjóð þessa dagana þar sem hann æfir með sænska félaginu Norrköping.

Lið Cecilíu jafnaði undir lokin og er enn taplaust
Inter, sem landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir leikur með, gerði 1-1 jafntefli við Roma á heimavelli í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.

Guðrún sænskur meistari eftir sigur í Íslendingaslag
Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Rosengård eru Svíþjóðarmeistarar kvenna í knattspyrnu eftir ótrúlegt tímabil.

Sonur Zlatans í fyrsta sinn í landslið
Maximilian Seger Ibrahimovic, hinn 18 ára sonur sænsku goðsagnarinnar Zlatan Ibrahimovic, fær nú sitt fyrsta tækifæri í gulu landsliðstreyjunni eftir að hafa verið valinn í U18-landslið Svíþjóðar í fótbolta.

Gáfu skít í yfirmann sem hreykti sér af þeirra afrekum
Landsliðskonan Guðrún Arnardóttir og liðsfélagar hennar í Rosengård eru lítt hrifnar af tilraunum Roger Palmgren, yfirmanns knattspyrnumála hjá félaginu, til að eigna sér heiður að gríðarlegri velgengni liðsins í ár. Segja má að þær gefi skít í ummæli hans.