„Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Smári Jökull Jónsson skrifar 5. september 2026 22:10 Hanna Borg Jónsdótti er verkefnastjóri farsældar á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm/SSH Verkefnastjóri farsældar á höfuðborgarsvæðinu segir markmið með nýjum samræmdum viðmiðum um skólasókn vera að hjálpa börnum að mæta í skólann. Framundan sé vitundarvakning fyrir foreldra um að virðing sé borin fyrir skólaskyldunni.
Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var stofnað í nóvember síðastliðnum en í því ráði sitja fulltrúar frá öllum sveitarfélögum á svæðinu. Verkefni þess ráðs er að forgangsraða aðgerðum í þágu farsældar barna og að sögn verkefnastjóra kom í ljós fljótlega að full ástæða var til að setja í forgang vinnu um sameiginleg viðmið um skólasókn þar sem skólasókn barna hefur verið að dala. Reykjavík, Kópavogur og Garðabær voru á meðal sveitarfélaga sem hafið höfðu vinnu um skólasókn nemenda. Þegar menntamálaráðuneytið skipaði spretthóp í málaflokknum var ákveðið að vinna að sameiginlegum viðmiðum á landsvísu og er litið á komandi skólaár sem prufutímabil. Verkefnastjóri segir vinnuna snúast um að skólarnir styðji við fjölskyldur til að tryggja að börn mætí í skólann og dæmi séu um börn sem glími við alvarlega skólaforðun. „Stundum þarf fjölskyldan einhvern stuðning en stundum þarf skólinn að breyta einhverju hjá sér. Markmiðið með þessu er að mæta barninu þar sem það er og hjálpa því að mæta í skólann,“ segir Hanna Borg Jónsdóttir verkefnastjóri farsældar á höfuðborgarsvæðinu. Hér má sjá viðmið um viðbrögð en þau verða samræmd hjá öllum grunnskólum.Stjórnarráðið „Eins líka að brýna fyrir foreldrum að það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann en þau séu ekki að fara í löng leyfi reglulega.“ Vitundarvakning fyrir foreldra vegna leyfisveitinga Mikilvægt sé að í alvarlegum skólaforðunarmálum sé verklag samræmt og gripið inn í snemma. Unnið er að því að útbúa nokkurs konar verkfærakistu sem sveitarfélög og skólar geti nýtt. Þá er einnig unnið að samræmdri skráningu á leyfum til að sjá heildarmynd um raunmætingu barna. Kennarar hafa meðal annars sagt að tíð leyfi hafi áhrif á færni nemenda. „Við viljum kannski ekki fara í einhverjar harðar aðgerðir eins og tíðkast sums staðar í öðrum löndum. Við erum að reyna að taka utan um þetta, bæði að minnka skólaforðun með því að mæta barninu og eins fara í þessa vitundarvakningu fyrir foreldra að við pössum að börnin mæti í skólann og berum virðingu fyrir skólaskyldunni.“ Nýja samræmda skólasóknarkerfið er ekki komið í fulla framkvæmd. „Við náðum þessari útkomu að sameinast um þessi viðmið sem voru gefin út í sumar. Sum sveitarfélög og sumir skólar munu prófa það í vetur en við erum enn að vinna í því að útbúa þessa verkfærakistu fyrir sveitarfélögin og skólana,“ segir Hanna Borg að lokum.
Grunnskólar Börn og uppeldi Sveitarstjórnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skóla- og menntamál Tengdar fréttir Vísbendingar um að þúsund börn á Íslandi sæki ekki skóla Vísbendingar eru um að um þúsund börn á Íslandi sæki ekki grunnskóla, þrátt fyrir skólaskyldu. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um það hversu víðtækt vandamál er um að ræða en margvíslegar ástæður geta verið fyrir því að börn sæki ekki skóla. 18. febrúar 2026 12:56 Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira
Vísbendingar um að þúsund börn á Íslandi sæki ekki skóla Vísbendingar eru um að um þúsund börn á Íslandi sæki ekki grunnskóla, þrátt fyrir skólaskyldu. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um það hversu víðtækt vandamál er um að ræða en margvíslegar ástæður geta verið fyrir því að börn sæki ekki skóla. 18. febrúar 2026 12:56