Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Lovísa Arnardóttir skrifar 17. september 2026 07:36 Berglind Ósk tók við sem bæjarstjóri á Akureyri eftir kosnignar í vor. Vísir/Viktor Freyr Berglind Ósk Guðmundsdóttir segir Akureyrarbæ til í að ræða það að nýr Tækniskóli verði byggður á Akureyri. Samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans um uppbyggingu í Hafnarfirði fór um þúfur og er óvissa um það hvar skólinn verður í framtíðinni.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur áður lýst því yfir að hún vilji halda skólanum í Reykjavík og þá hefur bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Hilmar Gunnarsson, sagt að starfsemi skólans myndi falla vel að framtíðarsýn Mosfellsbæjar. Í færslu á Facebook-síðu sinni fjallar Berglind Ósk um þetta mál og tengir það við tillögu starfshóps á vegum dómsmálaráðuneytisins sem leggur til að þingmannadreifing verði önnur. Samkvæmt tillögu þeirra fengi Suðvesturkjördæmi fjóra þingmenn til viðbótar, Norðausturkjördæmi missti þrjá og Norðvesturkjördæmi einn samkvæmt tillögum starfshóps dómsmálaráðherra. Hópurinn vill líka fjölga jöfnunarsætum úr níu í 27. Þingmenn yrðu áfram 63. Stjórnsýslan á höfuðborgarsvæðinu Berglind Ósk segir að þegar stjórnsýslan er að mestu í Reykjavík, stofnanir ríkisins þar, þjónustan þar og sífellt fleiri störf þar, þá sé það ekki alveg augljóst að næsta skref í eflingu byggðar um allt land sé að auka enn vægi höfuðborgarsvæðisins á Alþingi. En hún segir hægt að snúa umræðunni við og að ef ríkisstjórnin vilji sýna í verki að hún sé ekki eingöngu ríkisstjórn höfuðborgarsvæðisins, heldur landsins alls, þá séu víða tækifæri. „Til dæmis: Af hverju ekki að byggja upp Tækniskólann á Akureyri og skapa öflugan vettvang fyrir tæknimenntun á háskólastigi á landsbyggðinni? Eitthvað sem lengi hefur verið kallað eftir. Það myndi færa menntun, þekkingu, störf og tækifæri út á land. Alvöru byggðastefna í einni sterkri aðgerð,“ segir Berglind Ósk og að á Akureyri séu þau til í það samtal. „Við hér í Akureyrarbæ erum alveg til í það samtal og ég veit að við myndum finna Tækniskólanum góðan stað í okkar öfluga sveitarfélagi.“
Hafnarfjörður Framhaldsskólar Akureyri Reykjavík Mosfellsbær Skóla- og menntamál Sveitarstjórnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Borgarstjóri vill finna Tækniskólanum lóð í Reykjavík eftir að samkomulag skólans og Hafnarfjarðarbæjar fór út um þúfur. Skólinn gæti risið í Úlfarsárdal og segir borgarstjóri að það yrði lyftistöng fyrir efri byggðir Reykjavíkur að fá skólann þangað. 15. september 2026 06:17 Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Nýbygging Tækniskólans verður ekki í Hafnarfirði líkt og stóð til eftir að bænum tókst ekki að afhenda skólanum lóðina sem fyrirhuguð var undir skólann í tæka tíð. 14. september 2026 17:55 Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira
Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Borgarstjóri vill finna Tækniskólanum lóð í Reykjavík eftir að samkomulag skólans og Hafnarfjarðarbæjar fór út um þúfur. Skólinn gæti risið í Úlfarsárdal og segir borgarstjóri að það yrði lyftistöng fyrir efri byggðir Reykjavíkur að fá skólann þangað. 15. september 2026 06:17
Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Nýbygging Tækniskólans verður ekki í Hafnarfirði líkt og stóð til eftir að bænum tókst ekki að afhenda skólanum lóðina sem fyrirhuguð var undir skólann í tæka tíð. 14. september 2026 17:55