

Veggjöld gætu staðið undir kostnaði við Vestmannaeyjagöng. Þörf er á ítarlegri jarðfræðirannsóknum áður en hægt verður að kveða upp úr með það hvort slík göng séu fýsileg. Þetta eru helstu niðurstöður starfshóps sem skilaði skýrslu um málið til innviðaráðherra í dag.
Starfshópur um könnun á fýsileika jarðgangna milli lands og Vestmannaeyja kynnir skýrslu sína fyrir Sigurði Inga Jóhannssyni innviðaráðherra á opnum kynningarfundi í ráðuneytinu í dag klukkan 13. Sjá má kynninguna í beinni útsendingu hér að neðan.
Séra Ólafur Jóhann Borgþórsson, sem þjónað hefur Seljakirkju og Lindakirkju, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Herjólfs ohf..
Starfsfólk Herjólfs hefur ekki þurft að kvarta undan verkefnaleysi í sumar því það er nóg að gera alla daga við að flytja fólk á milli lands og eyja, ekki síst ferðamenn. Skipið fer átta ferðir á dag og er meira og minna alltaf fullt af fólki og bílum.
Færeyingar búa sig núna undir stærstu ákvörðun færeyskrar mannvirkjagerðar, hvort grafa eigi 26 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar. Þeir stefna að ákvörðun eftir hálft ár og vonast til að framkvæmdir hefjist innan þriggja ára.
Vestmannaeyjabær gerir alvarlegar athugasemdir við áform þýsks fyrirtækis um efnisvinnslu úti fyrir Landeyjahöfn. Bæjarstjóri segir alla innviði bæjarfélagsins undir; neysluvatn, rafmagn og samgöngur.
Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum gera alvarlegar athugasemdir við áform HeidelbergCement Pozzolanic Materials ehf. um efnisvinnslu í sjó úti fyrir Landeyjahöfn.
Íbúafundi um samgöngur við Vestmannaeyjar, sem fyrirhugaður var í kvöld, hefur verið aflýst. Ástæðan er sú að flugi innviðaráðherra var aflýst. Bæjarstjórinn lætur kaldhæðnina í því ekki fram hjá sér fara.
Rafmagnslaust varð í Vestmannaeyjum, Landeyjum og Vík eftir að Rimakotslína 1 leysti út skömmu eftir klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti er svæðið nú keyrt með varaafli og ættu því flestir að vera komnir aftur með rafmagn. Bilunin er líklega vegna veðurs.
Bæjarstjóri Vestmannaeyja furðar sig á því að bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar telji Vestmannaeyinga geta siglt með Herjólfi til og frá Þorlákshöfn svo flýta megi dýpkun hafnar Ísfirðinga fyrir komu skemmtiferðaskipa.
Farþegar Herjólfs mega nú fara með gæludýr í búrum upp á útisvæði ferjunnar á meðan á siglingu stendur. Áður þurftu þurfti gæludýraeigendur að geyma gæludýr sín í bílnum eða þá í sérstöku herbergi á bíladekki.
Mistur sem er yfir höfuðborgarsvæðinu og víðar á Suðurlandi hefur vakið athygli margra. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í loftgæðamálum hjá Umhverfisstofnun, segir um að ræða sandstorm eða jarðvegsfok.
Sigurgeir Svanbergsson kom í land í gærkvöldi eftir sjósund frá Vestmannaeyjum til Landeyjasanda. Synti Sigurgeir til styrktar börnum sem búa á átakasvæðum.
Ríkisendurskoðun hefur lokið úttekt á framkvæmda- og rekstrarkostnaði Landeyjahafnar. Kostnaður við dýpkun hafnarinnar reyndist vera mikið hærri en gert var ráð fyrir.
Nýi Herjólfur hefur 45 prósentum oftar getað nýtt Landeyjahöfn undanfarna tvo vetur heldur en sá gamli. Tilkoma nýja skipsins á siglingaleiðinni til og frá Vestmannaeyjum hefur þannig aukið nýtingu Landeyjahafnar úr 57 prósentum upp í 83 prósent.
Tillaga mín byggir á þeim forsendum að vandinn stafi tvíþætt af sandi og ösku sem berst með Markarfljóti niður til sjávar þar sem annarsvegar sjávarföll og hins vegar hegðun sjávar bera þessi efni inn í höfnina.
Ófært er orðið til Landeyjahafnar frá Vestmannaeyjum og verða því breytingar á ferjusiglingum til og frá Eyjum.
Bilun varð á búnaði sem stýrir hlera skipsins.
Lögreglan á Suðurlandi mun kanna ástand allra ökumanna sem koma akandi frá Landeyjahöfn í dag. Sjö ökumenn á leið frá höfninni hafa verið kærðir fyrir akstur undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna frá því klukkan þrjú í nótt.
Mun aka 21 aukaferð vegna Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum dagana 1-5. ágúst.
Ferjurnar nýi og gamli Herjólfur munu báðar sigla milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja yfir verslunarmannahelgina.
Nýr Herjólfur hélt í jómfrúarsiglinguna á milli lands og Vestmannaeyja í gærkvöldi.
Ráðist í framkvæmdir í haust.
Þetta staðfestir Guðbjartur Ellert Jónasson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., í samtali við Vísi.
Vonir eru bundnar við að hægt verði að taka nýjan Herjólf í gagnið fyrr en talið var. Stór dekk hafa verið flutt til Vestmannaeyja svo nýja ferjan geti lagst að bryggju þar. Þjóðhátíðarnefnd ÍBV hefur samið við ferðaþjónustufyrirtæki í Eyjum um að sigla ásamt Herjólfi milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja.
Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, segist vona að nýr Herjólfur hefji siglingar sem fyrst.
Mjaldrarnir nú komnir í sóttkví og verða þar næstu tvo mánuði.
Mjaldrasysturnar Litla-Hvít og Litla-Grár komu heim til Vestmannaeyja með Herjólfi á ellefta tímanum í kvöld. Ferðalagið frá Kína til Vestmannaeyja var langt og strangt, alls um nítján klukkustundir.
Von er á nýjum Herjólfi til Vestmannaeyja þann 15. júní og að skipið hefji siglingar milli lands og Eyja um mánaðarmótin.
Stefnt er að því að nýi Herjólfur komi til Vestmannaeyja frá Póllandi þann 15. júní næstkomandi og að hann hefji siglingar á milli lands og eyja fyrir mánaðamótin júní/júlí.