Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 3. júní 2026 15:35 Hópurinn taki til starfa á næstunni. Vísir/Vilhelm Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hyggst stofna starfshóp til að móta áætlun til lengri tíma fyrir ferjusiglingar á Íslandi. Honum verði einnig falið að útbúa viðbragðsáætlun við skerðingu á siglingum til og frá Vestmannaeyjum sem muni liggja fyrir í vetur.
Eyjamenn hafa lent í sannkölluðum bálki hrakfalla í vetur hvað siglingar milli lands og Eyja varðar. Önnur vél Herjólfs bilaði, dýpkun Landeyjahafnar tafðist þegar sanddælingarskips bilaði og veðurfar hefur verið óhagstætt í ofanálag. Í gærkvöldi stóð Vegagerðin og Vestmannaeyjabær fyrir fundi í Höllinni sem innviðaráðherra sótti. Þar kynnti hann að ferjurnar Baldur og Herjólfur myndu báðar sigla til og frá Eyjum frá og með mánudeginum 8. júní. Þetta fyrirkomulag yrði við lýði þar til lokið yrði við viðgerðir á annarri vél Herjólfs sem bilaði í vetur. Sambærilegt systurskip langtímalausn Eyjólfur segir það hafa komið sér á óvart að vélarnar sem knýja Herjólf séu sérsmíðaðar. Það torveldi málin þegar upp kemur bilun. Langtímalausn feldist þó í að Herjólfur eignaðist sambærilegt systurskip með eins vélum sem hægt væri þá að nota kæmi upp bilun. Þannig gæti skipið með eina vél í lagi tekið að sér siglingar um Breiðafjörðinn þar sem sjógangur er minni á meðan varaskipið sigldi milli lands og Eyja. Slíkt segir hann þó ekki vera á teikniborðinu. Eyjólfur undirstrikar að um langtímalausn sé að ræða. Áætlun tilbúin í haust Eins og fyrr segir stefnir Eyjólfur að því að tilnefna starfshóp sem tæki til starfa á næstunni við að vinna áætlun fyrir ferjusiglingar. „Mikilvægt er að skoða endurnýjun ferjuflotans, þarfagreiningu, samninga um varaskip, orkuskipti og margt fleira,“ segir hann „Ég mun óska eftir því að þessi hópur komi með viðbraðgsáætlun um það sem þarf að gera ef Landeyjahöfn lokar og ef Herjólfur bilar. Ég vil hafa viðbragðsáætlun tilbúna í haust fyrir næsta vetur,“ segir hann svo. Varðandi dýpkun Landeyjahafnar segir Eyjólfur að samningar hafi náðst við belgískan verktaka um að taka yfir dælingu. Fyrirtækið Jan de Nul eigi fjölda öflugra skipa til að taka við ef eitt bilar.
Vestmannaeyjar Ferjan Baldur Herjólfur Landeyjahöfn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgöngumál Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Sjá meira