
Miðflokkurinn

„Ég sé bara íhaldssemi hérna“
Stofnandi Lýðræðisflokksins hafnar því að vera bendlaður við öfgahyggju, og formaður Miðflokksins segir Sjálfstæðisflokkinn vera að færast til vinstri. Þá þykir formanni Viðreisnar fróðlegt að hlusta á málfutning flokkanna sem best megi lýsa sem „Litla- og Stóra-Miðflokki.“

Kosningar og knattspyrna
Alþingispólitíkin dregur æ meira dám af knattspyrnu og kosningar eru stórmót þar sem keppt er í atkvæðasöfnun.

Flestir treysta Miðflokknum best fyrir málefnum hælisleitenda
Samfylkingin nýtur mest trausts í flestum málaflokkum, nema í málefnum hælisleitenda þar sem flestir treysta Miðflokknum. Fleiri treysta Sjálftstæðisflokknum fyrir nokkrum málaflokkum en myndu kjósa hann.

Sammála um að of langt hafi verið gengið á Covid-tímum
Fréttastofa Vísis og Stöðvar 2 freistaði þess að fá oddvita þeirra flokka við Pallborðið sem sækja fylgi sitt á hægri væng stjórnmálanna til að skerpa á því hvað það væri sem sameinaði þá og um hvað þeir væru ósammála.

Kosningapallborðið: Formenn flokka sem bítast um fylgi frá hægri
Í dag er mánuður til alþingiskosninga sem fara fram þann 30. nóvember. Fréttastofa Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis heldur áfram að fá til sín góða gesti í Kosningapallborðið og nú er komið að fyrsta pallborðinu með formönnum stjórnmálaflokka sem bjóða fram til Alþingis.

„Við erum ekki slaufunarflokkur“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir flokkinn standa fyrir skynsemishyggju og innihaldi umfram umbúðum. Hann segir Klausturmálið ekki koma flokknum illa. Það sé þvert á móti traustvekjandi ef það sé eina málið sem fólk geti dregið upp til að draga úr trúverðugleika þeirra.

Þau skipa lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum
Snorri Másson leiðir lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og Sigríður Andersen í Reykjavíkurkjördæmi norður. Jakob Frímann Magnússon er í öðru sæti í Reykjavík norður og Þorsteinn Sæmundsson í öðru sæti í Reykjavík suður.

Jakob Frímann til liðs við Miðflokkinn
Miðflokknum hefur borist góður liðsauki því nú rétt í þessu var gengið frá því að Jakob Frímann Magnússon, sem áður var í Flokki fólksins, hefur gengið til liðs hann.

Bergþór, Nanna og Eiríkur leiða í Suðvestur
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, er oddviti á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir viðskiptafræðingur er í öðru sæti og Eiríkur S. Svavarsson lögmaður í því þriðja.

Klaustursveinar allir mættir sex árum síðar
Klausturmálið er enn og aftur að lauma sér í umræðuna og ekki að ófyrirsynju. Allir þeir karlar sem þá voru í deiglunni, þeir sem fyrir sex árum höfðu setið að sumbli og sagt eitt og annað sem betur hefði verið látið ósagt, eru komnir í framboð. Það virðist vera gaman á Alþingi. Og þeir líta svo á að það mál sé afgreitt og horfið í gleymskunnar dá.

Karl Gauti og Ólafur Ísleifsson snúa aftur
Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum og fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, mun leiða lista flokksins í Suðurkjördæmi. Í kvöld samþykkti félagsfundur Miðflokksins tillögu uppstillingarnefndar um framboðslitann í kjördæminu

Þau eru í framboði til Alþingis 2024
Alþingiskosningar fara fram þann 30. nóvember næstkomandi og rennur framboðsfrestur úr á hádegi 31. október.

Hallgrímur, málið snýst því miður ekki bara um kebab
Ég fann fyrir hlýjum stuðningsstraumum þegar Hallgrímur Helgason bað fyrir mér í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu á föstudaginn. Skáldið hefur vissulega greint frá því að hann stefni (enn sem komið er!) á að kjósa Samfylkinguna en ekki okkur í Miðflokknum.

Virðist sem D hafi náð að hægja á blæðingunni til M
Glæný könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka sýnir að Viðreisn rís umtalsvert. Á milli kannanna fer hún úr 13,8 prósentum upp í 16,2% og þar með er flokkurinn kominn upp fyrir Miðflokkinn og mælist næststærsti flokkur landsins. Könnunin er splunkuný og var tekin dagana 22. - 28 október.

Ný könnun: Viðreisn og Flokkur fólksins í hæstu hæðum
Viðreisn og Flokkur fólksins eru í sókn samkvæmt nýjustu könnun Maskínu og Píratar virðast á fallanda fæti. Fylgi Viðreisnar hefur aldrei mælst hærra í Maskínukönnun og Flokkur fólksins hefur reist við fylgi sitt umfram það sem flokkurinn fékk í kosningunum 2021. Píratar tapa rúmum tveimur prósentum og mælast út af þingi.

„Það var ekkert eftir nema dauðinn sem kom á ógnarhraða“
Anton Sveinn McKee segir dauða föður síns hafa gjörbreytt lífi sínu og sýn sinni á tilveruna. Anton, sem er gestur í nýjasta þætti podcasts Sölva Tryggvasonar, segist hafa þurft að kafa djúpt til að finna aftur vonarneistann, en hann er sannfærður um að það sé undir okkur sjálfum komið að finna fegurðina í tilverunnni, sama hvað bjátar á.

Loksins, Gunnar Bragi!
Mörgum hefur eflaust þótt eitthvað um að sjá Gunnar Braga í framboði fyrir Miðflokkinn í Norðvesturkjördæmi. Hvers vegna? Jú m.a. af þeirri einföldu ástæðu að Gunnar Bragi var hluti af þeim þingmönnum sem sátu að sumbli á bar og samræður þeirra sem engir utanaðkomandi áttu að heyra voru teknar upp. Einkasamræður á milli fárra einstaklinga. Sem síðar voru birtar í fjölmiðlum, sjónvarpi og að auki fluttar óbreyttar í Borgarleikhúsinu, leikhúsi Reykvíkinga. Til hvers? Jú, til að meiða og kóróna það svo með sýningu í leikhúsi borgarbúa?

Menntakerfið í öfuga átt við atvinnulífið: Hvers vegna eykst álag á nemendur á meðan vinnuvikan styttist?
Hvernig stendur á því að menntakerfið fari í öfuga átt við atvinnulífið? Það er merkilegt að sjá hvernig tvær af mikilvægustu stoðum samfélagsins virðast stefna í öfuga átt við hvor aðra þegar kemur að vinnuálagi.

Kílómetragjald: Gjöf fyrir marga, refsiskattur fyrir aðra
Það var með ólíkindum að hlusta á umræður á Alþingi þann 24. október síðastliðinn um áform álagningar nýs kílómetragjalds og þau fjarstæðukenndu rök sem fyrrverandi innviðaráðherra og núverandi fjármálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson heldur fram í þeim efnum.

Sigmundur og Þorgrímur leiða í Norðausturkjördæmi
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður og formaður Miðflokksins og Þorgrímur Sigmundsson, verktaki skipa efstu sæti á lista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Næst á lista eru Ágústa Ágústsdóttir, verktaki og ferðaþjónustubóndi og Inga Dís Sigurðardóttir, kennari og meistaranemi í náms og starfsráðgjöf.

Ingibjörg kemur í stað Bergþórs
Ingibjörg Davíðsdóttir, stjórnarformaður Íslenska fæðuklasans og sendiherra í leyfi, mun leiða lista Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi og kemur þar með í stað Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, sem skipaði fyrsta sæti í kjördæminu áður. Bergþór hefur þegar tilkynnt að hann ætli ser að bjóða sig fram í Suðvesturkjördæmi.

Ingibjörg leiði Miðflokkinn í Norðvesturkjördæmi
Uppstillinganefnd Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi hefur lagt til að Ingibjörg Davíðsdóttir leiði lista flokksins í kosningunum í næsta mánuði. Ingibjörg er 53 ára Borgfirðingur, frá Arnbjargarlæk í Þverárhlíð. Hún er stjórnmálafræðingur (BA) frá HÍ og með MA í alþjóðasamskiptum frá Háskólanum í Kantaraborg í Bretlandi.

Raunheimar Suðurnesja
Ég er fæddur og uppalinn Sandgerðingur og hef búið hérna alla mína ævi, að háskólaárum undanskildum. Sem ungur fjölskyldufaðir þriggja orkumikilla stráka þrái ég fátt meira en að framtíð þeirra sé að fá að alast upp í því umhverfi sem ég naut svo góðs af á mínum eigin uppvaxtarárum.

Dyggðaskreytingar og grænþvottur kapítalismans
Framboðslistar stjórnmálaflokkanna eru jafnt og þétt að taka á sig mynd fyrir komandi alþingiskosningar. Pallborð Vísis tók stikkprufu á hinu svokallaða „frægðarfólki“ sem er nú í framboði og þar var ýmislegt látið flakka sem í frásögur er færandi. Hér fóru greinilega ekki atvinnumenn í pólitík sem vöfðu mál sitt í margfaldan umbúðapappír.

Vilja „epískt“ samfélag, minna væl og meiri jákvæðni
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og frambjóðandi Sósíalistaflokksins segist tilbúin að gera málamiðlanir og vinna með hverjum þeim flokki sem sé tilbúinn að setja hagsmuni vinnandi fólks í fyrsta sæti, meira að segja Sjálfstæðisflokki ef flokkurinn geti sýnt fram á að flokkurinn uppfylli það skilyrði. Ólafur Adolfsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi segir fullreynt með samstarf flokka lengst frá vinstri til hægri en fagnar því að fólk geti talað saman.

Spennulosun á laugardag
Jón Gnarr fær ekki fyrsta sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík eins og hann hafði óskað eftir. Mikil spenna ríkir fyrir laugardeginum þegar fjölmargir framboðslistar verða kynntir, þar á meðal allir listar flokksins sem mælist með mest fylgi í könnunum.

Kosningapallborð: Nýliðar í landsmálapólitík mætast
Framboðslistar stjórnmálaflokkanna eru jafnt og þétt að taka á sig mynd fyrir komandi alþingiskosningar. Fjölmargir þjóðkunnir einstaklingar hafa þegar stigið fram og lýst áhuga á að taka sæti á Alþingi og kosningamaskínur flokkanna komnar í fullan gang.

Oddný gleymir aldrei símtali Bjarna Ben
Oddný Harðardóttir minnist símtals frá Bjarna Benediktssyni eftir að Samfylkingin beið afhroð í þingkosningunum árið 2016. Brynjar Níelsson segist alls ekki hafa gefist upp á Jóni Gunnarssyni. Þetta var meðal þess sem fram kom í Kosningapallborði á Vísi þar sem gestir fóru um víðan völl.

Passi ekki að vera saksóknari og í pólitík á sama tíma
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir í samtali við Vísi að komið hafi verið að máli við hann varðandi hugsanlegt framboð til Alþingis. Hann kveðst vilja halda trúnað um það hver var þar á ferð.

Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk
Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðaherra og varaformaður Framsóknarflokksins segir það afar stór tíðindi á hægri væng stjórnmála að Sigríður Andersen fyrrverandi ráðherra sé gengið til liðs við Miðflokkinn. Þó svo að Sigríður segist ekki vera að flýja Sjálfstæðisflokkinn þá sé hún að gera það.