

Ein af frumskyldum kjörinna fulltrúa er að tryggja rekstrargrundvöll atvinnulífsins. Heimilin í landinu eiga afkomu sína og atvinnu undir því að fyrirtækin gangi og atvinnulífið skapi þau verðmæti sem standa undir öryggisneti samfélagsins, menntun og heilbrigðiskerfi. Sé þetta fjöregg í hættu verða stjórnmálamenn að meta afleiðingar mismunandi aðgerða eða aðgerðaleysis og taka svo ákvörðun þótt erfið sé. Setja verður velferð heimila og fyrirtækja framar bæði persónum og flokkslínum.
Nemendur í framhaldsskólum fái stuðning til kaupa á námsgögnum.“ Þessa setningu er að finna í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sem samþykkt var af báðum þessum flokkum nú í vor. Þessi stjórnarsáttmáli er mjög merkilegur. Eiginlega merkilegri en stjórnarsáttmálar sem við höfum séð lengi – finnst mér, því hann einkennist af miklum metnaði og framsýni.
Nýr iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson hefur slegið afar áhugaverðan tón í umræðunni um nýtingu okkar Íslendinga á orkuauðlindum.