Ástin og lífið

Kourtney og Travis gift: Dolce & Gabbana styrktaraðili þriðja brúðkaupsins á Ítalíu
Um helgina átti sér stað þriðja og síðasta brúðkaup Kourtney Kardashian og Travis Barker. Þema dagsins virðist hafa verið gothic-glam og klæddist Kourtney stuttum Dolce & Gabbana korselett kjól og voru dætur þeirra blómameyjar.

Nýr Friðrik kominn í fjölskylduna
Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson og Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir eignuðust sitt fjórða barn á dögunum en fyrir áttu þau einn son og tvær dætur.

„Ég er ekki á leiðinni í neitt samband“
Listahjónin Edda Björg Eyjólfsdóttir og Stefán Magnússon hafa verið gift í tæp tuttugu ár eftir rómantískt bónorð á Ítalíu. Stebbi var samt alls ekki á leiðinni í samband þegar leiðir þeirra lágu upphaflega saman en ástin tók völdin og er mikið um grín og glens hjá parinu.

Klippti gat á samfestinginn til þess að stunda kynlíf
Leikkonan Megan Fox birti skilaboð sem hún sendi á stílistann sinn eftir að bráð nauðsyn bar að garði sem varð til þess að hún þurfti að klippa gat á samfestinginn sinn, nauðsynin var að njóta ásta með unnusta sínum Machine Gun Kelly.

Gifti sig í Dolce & Gabbana kjól
Kourtney Kardashian hefur nú birt myndir frá því hún giftist Travis Barker aftur um helgina. Eins og við fjölluðum um í gær giftu þau sig löglega í Santa Barbara í lítilli athöfn í ráðhúsinu.

Anna Fríða á von á öðru barni
Anna Fríða Gísladóttir forstöðumaður markaðsmála hjá Play og kærasti hennar, Sverrir Falur Björnsson, eiga von á barni. Anna Fríða deildi þessum gleðifréttum á samfélagsmiðlum rétt í þessu.


Kourtney Kardashian og Travis Barker giftu sig í alvörunni
Eftir að hafa tekið æfingarbrúðkaup í síðasta mánuði eru Kourtney Kardashian og Travis Barker, einnig þekkt undir paranafninus Kravis, búin að ganga í það heilaga. Í þetta skiptið er það í alvörunni, lagalega séð.

Stjörnulífið: Kosningar, Eurovision og tónleikahald
Það var nóg um að vera þessa helgina þar sem sveitarstjórnarkosningar og Eurovision börðust um athygli landsmanna. Það var samt sem áður mikið um annarskonar skemmtanahald í gangi eins og tónleika, leikhússýningar og útlandaferðir.

Kristjón og Sunna enn í sambandi
Kristjón Kormákur Guðjónsson blaðamaður og Sunna Rós Víðisdóttir lögfræðingur eru enn saman. Vísir greindi frá því mánudaginn 16. maí að upp úr sambandi þeirra hefði slitnað og vísaði til upplýsinga um sambandsstöðu Kristjóns á Facebook þar sem hann var skráður einhleypur. Það átti eftir að breytast og ljóst að ástin lifir.

Færðu hrós fyrir líkamann frá makanum?
Í síðustu viku spurðu Makamál lesendur Vísis hvort að þeir upplifi sig kynþokkafulla í sambandinu sínu. Núna spyrjum við um hrós frá maka.

Egill og Thelma eignuðust lítinn dreng
Útvarpsmaðurinn Egill Ploder Ottósson og Thelma Gunnarsdóttir eignuðust sitt fyrsta barn þann 10. maí og eru foreldrarnir í skýjunum með nýja hlutverkið.

Hittust í fyrsta sinn á flugvellinum í L.A.: „Það var svakalegt móment sem við munum alltaf eiga“
Elli hafði séð Steinunni þegar hún var í stúlknasveitinni Nylon og hafði honum alltaf þótt hún afar sæt. Það var þó ekki fyrr en mörgum árum síðar sem hann sá viðtal við hana í blaðinu og ákvað að senda henni vinabeiðni á Facebook. Það reyndist honum mikið gæfuspor, því í dag eru þau trúlofuð og eiga von á sínu öðru barni.

Rebel Wilson hefur fundið ástina á ný
Leikkonan Rebel Wilson hefur fundið ástina á ný. Hún segir sameiginlegan vin hafa komið þeim saman og greindi frá aðdragandanum þegar hún var gestur í hlaðvarpinu U up? Hún er þessa dagana að kynna nýju myndina sína, Senior Year.

Fjölskyldurnar mættar út til Tórínó
Íslenski keppnishópurinn fór út að borða í gærkvöldi í Tórínó. Hópurinn í kringum Systur hérna úti hefur stækkað töluvert frá því að þau mættu til Ítalíu.

Michelle Williams á von á sínu þriðja barni
Stórleikkonan Michelle Williams á von á sínu þriðja barni með eiginmanni sínum Thomas Kail en fyrir eiga þau tveggja ára son saman og einnig á hún sextán ára dóttur með Heath Ledger heitnum.

Ein undir pari: Heldur fyrsta golfmót einhleypra
„Það er bara oft þannig að pör gleyma að hugsa um þá sem eru einhleypir og bjóða frekar öðrum pörum með sér í svona hobbí,“ segir Hrafnhildur Arnardóttir í samtali við Vísi.

Hvetja foreldra til að elska börnin sín skilyrðislaust
Systurnar Elín, Beta og Sigga Eyþórsdætur stóðu sig með mikilli prýði á blaðamannafundinum eftir keppnina. Hvert atriði sem komst áfram fékk tvær spurningar og svöruðu stelpurnar af miklu öryggi og yfirvegun.

Halda hvort í sína áttina
Leikarinn Árni Beinteinn og tónskáldið Íris Rós Ragnhildardóttir hafa ákveðið að halda hvort í sína áttina í lífinu samkvæmt heimildum Smartlands sem greindi fyrst frá.

„Ég verð að segja að umhverfið hér er með því fallegasta sem ég hef séð“
Sænska Eurovision stjarnan Robin Bengtsson var staddur á Íslandi um helgina þar sem hann kom fram á árshátíð Arion banka sem haldin var í Kórnum. Hann nýtti ferðina til þess að kíkja í Bláa lónið með konunni sinni, dansaranum Sigrid Bernson.

Spurning vikunnar: Upplifir þú þig sexí með makanum þínum?
Þegar okkur líður vel er oft sagt að við lítum betur út, geislum af hamingju og vellíðan. En hvernig ætli þetta virki með kynþokkann og kynlöngunina?

Fyrsta blikið: „Heyrðu keiluspilari! Kannski nærðu fellu í kvöld!“
Hin ungu og skemmtilegu Elías og Þórunn voru annað tveggja para sem leidd voru saman á blint stefnumót í fimmta þætti Fyrsta bliksins. Þáttur sex verður svo á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld klukkan 18:55.

„Ég er hægt og rólega að draga manninn minn til baka“
Leikkonan Sophie Turner segist vilja flytja til Englands með Joe Jonas, eiginmanni sínum, til þess að huga að geðheilsunni og ala upp börnin.

Kaley Cuoco staðfestir nýja sambandið
Leikkonan Kaley Cuoco hefur fundið ástina á ný. Hún birti myndir á Instagram af sér og Ozark leikaranum Tom Pelphrey.

Fyrsta blikið: Blint stefnumót sem varð eins og sena úr Fóstbræðrum
„Fékkstu eitthvað fallegt í afmælisgjöf? .... Kannski risa múffu?“ Blint stefnumót Guðmundar og Þórunnar í fimmta þætti Fyrsta bliksins var vægast sagt líflegt.

Júlí Heiðar og Þórdís Björk trúlofuð
Leikararnir Júlí Heiðar og Þórdís Björk eru trúlofuð. Þau greindu frá því í sameiginlegri færslu á Instagram og bað hann hennar í uppáhalds byggingunni þeirra, Samkomuhúsinu á Akureyri.

Ingó tilkynnti í dómsal að hann ætti von á barni
Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, sagði frá því í dómsal í morgun að hann ætti von á barni.

Ævinlega þakklát heilbrigðisstarfsfólki eftir „mesta tilfinningarússíbanakokteil“ lífsins
Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og oddviti Pírata í Reykjavík, fæddi dreng á þriðjudag. Barnið, sem hún á með Sævari Ólafssyni íþróttafræðingi, var 16,5 merkur og 52 sentímetrar að lengd.

Annar hver segist hafa reynslu af viðhaldi í ástarsambandi
Mikil þátttaka var í síðust könnun Makamála sem vakti töluverða athygli en tæplega fimmþúsund manns svöruðu könnuninni sem fjallaði um framhjáhald.

Olivia Wilde fékk stefnu frá barnsföður sínum Jason Sudeikis uppi á sviði
Lögmaður Jason Sudeikis stefndi fyrrverandi unnustu hans og barnsmóður Oliviu Wilde þar sem hún stóð uppi á sviði á CinemaCon. Olivia var stödd í Las Vegas til þess að kynna nýju myndina sína Don't Worry Darling sem hún leikstýrir.