
Viðskipti

Mistök við pökkun greiðsluseðla
Við útskrift og pökkun greiðsluseðla VISA-reikninga í síðustu viku urðu þau mistök að íbúar í sama stigagangi fengu í sumum tilfellum greiðsluseðla annarra. Ekki er um sundurliðaða reikninga að ræða, aðeins heildarupphæð reikningsins. Í bréfi til korthafa biðst VISA innilegrar afsökunar og harmar mistökin sem eru sögð hafa orðið vegna breytinga á tækni og verklagi.

KB banki hækkar vexti
KB banki hefur ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra lána frá og með morgundeginum um allt að 0,3 prósentustig. Vaxtabreytingin er gerð í kjölfar tilkynningar Seðlabankans um hækkun stýrivaxta.

Magasin í Álaborg lokað
Ákveðið hefur verið að loka Magasin-vöruhúsinu í Álaborg en fyrirtækið er í meirihlutaeigu íslenskra fjárfesta. Afkoma verslunarinnar hefur verið slök.

Baugi ekki vandaðar kveðjurnar
65 starfsmönnum Magasínverslunarinnar í Álaborg í Danmörku hefur verið sagt upp í kjölfar þess að ákveðið hefur verið að loka versluninni þann 31. júlí næstkomandi. Danskir fjölmiðlar fara ekki fögrum orðum um hina nýju íslensku eigendur í dag og segja þá ekki fylgja eftir gömlum hefðum í rekstri sínum á Magasín-keðjunni en hún hafði verið í eigu Dana í 136 ár.

Víkingar í jakkafötum
Íslenskir kaupsýslumenn og innrás þeirra í breskt viðskipalíf er umfjöllunarefnið í langri grein Lundúnablaðsins <em>Sunday Times</em> í dag og því velt upp hvernig þeir fari að þessu. Titill greinarinnar er „Víkingar í jakkafötum“.

Olíuverð hækkar vegna vetrarhörku
Olíuverð stefnir í 52 dollara fatið á heimsmarkaði en hæst fór verðið í 55 dollara á síðasta ári. Vetrarharka í Bandaríkjunum er meginástæða þess að verðið hækkar auk þess sem leiðtogar OPEC-olíuframleiðsluríkjanna virðast sáttir við verðið og vilja ekki slá á það.

3,6 milljarða sveifla vöruskipta
3,6 milljarða munur er á hagnaði á vöruskiptum við útlönd í janúar í ár og í sama mánuði í fyrra. Í sl. mánuði voru fluttar út vörur fyrir 14 milljarða króna og inn fyrir 17,3 milljarða króna. Vöruskiptin í janúar voru því óhagstæð um 3,3 milljarða en í janúar 2004 voru þau hagstæð um 0,3 milljarða á föstu gengi.

Icelandair pantar nýjar vélar
Icelandair hefur pantað tvær nýjar Boeing-787 Dreamliner þotur sem verða teknar í notkun á leiðum félagsins eftir fimm ár. Enn er verið vinna að lokahönnun þessarar flugvélagerðar sem spáð er miklum vinsældum, enda verður hærra til lofts og víðar til veggja en í nútímaþotum og þægindi því öllu meiri en farþegar hafa átt að venjast.

Eimskip og Faroe Ship sameinast
Eimskip og Faroe Ship í Danmörku hafa ákveðið að sameina félögin Eimskip Denmark A/S og Faroe Ship A/S undir nafninu Eimskip - Faroe Ship Denmark A/S. Breytingin er liður í þeirri þróun og stefnumótum hjá Eimskip á Norðurlöndunum að auka hagkvæmni í rekstri ásamt því að veita viðskiptavinum skilvirkari og betri þjónustu.

Hefur selt 30 þúsund bíla um ævina
Guðfinnur Halldórsson hefur selt bíla í 35 ár. Hann segir að bílasalar séu almennt heiðarleg stétt en vandar verðbréfamiðlurum og lögfræðingum ekki kveðjurnar. Guðfinnur rekur líka bílaþvottastöð og hefur lent í ýmsu. Dolli, hundurinn hans, nýtur trausts í bankanum. </font /></b />

Góður hagnaður hjá Eimskipi
Hagnaður Eimskips nam samtals 991 milljón króna í fyrr og jókst um 85 prósent miðað við árið á undan. Í fréttatilkynningu segir að góð afkoma endurspegli breytingar á skipulagi og rekstri Eimskips sem hafa að markmiði að bæta arðsemi félagsins, auka verðmæti þess og efla þjónustu við viðskiptavini.
Hagnaður Burðaráss 9,3 milljarðar
Burðarás hagnaðist um rúma 9,3 milljarða á síðasta ári. Þar af nam hagnaður af fjárfestingarstarfsemi 8.461 milljónum króna og segir í fréttatilkynningu að hann megi rekja til sölu á sjávarútvegsarmi félagsins í dótturfélögum Brims og mikillar hækkunar á innlendum hlutabréfamarkaði í fyrra. Innleystur hagnaður dótturfélagsins Eimskipafélags Íslands var 990 milljónir.

Avion opnar nýjar höfuðstöðvar
Íslenska fyrirtækið Avion Group er orðið stærst í rekstrarleigu flugvéla á heimsvísu en grunnur fyrirtækisins var lagður með sölu þjóðarþotunnar árið 1989. Nýjar höfuðstöðvar fyrirtækisins voru opnaðar í Bretlandi í dag.

Methagnaður hjá Flugleiðum
Hagnaður Flugleiða á síðasta ári nam 3,4 milljörðum króna og ríflega þrefaldaðist frá árinu á undan. Er þetta er besta afkoma í sögu félagsins. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að heildarveltan hafi verið 43 í fyrra en það er fimm milljarða króna veltuaukning frá árinu áður.

Úrvalsvísitalan farin að lækka
Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni er skyndilega farin að lækka eftir stöðuga hækkun frá áramótum, sem nemur ellefu prósentum. Í gær og í fyrradag lækkaði hún hins vegar um tæp fjögur prósent og í gær var mun meira af sölutilboðum en kauptilboðum í umferð sem bendir til að margir vilji losa sig við íslensk hlutabréf.
Bauhaus til Íslands
Þýska lágvöruverslanakeðjan Bauhaus, sem verslar með byggingavörur, ætlar að opna stórverslun hér á landi eftir rúmt ár. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur Bauhaus þegar tryggt sér lóð í Kópavogi fyrir um það bil 20 þúsund fermetra verslunarhús. Keðjan rekur 180 verslanir víða í Evrópu.

Olíuverð hækkar enn
Heimsmarkaðsverð á olíu náði þriggja mánaða hámarki í gær þegar verðið á tunnunni fór vel yfir 51 dollara. Ástæður hækkunarinnar eru sagðar kalt veður og hugsanlegur samdráttur í framleiðslu á olíu. Olíuverð er fimmtíu prósentum hærra nú en fyrir ári og sömu sögu er að segja um nær allar afurðir olíu.

Söluþrýstingur í Kauphöll
Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni er skyndilega farin að lækka ört eftir að hafa hækkað um ellefu prósent frá áramótum og hefur nú myndast söluþrýstingur.

Litli hluthafinn í aðalhlutverki
Davíð tókst á við Golíat á aðalfundi Símans í gær og hafði verr. Fjármálaráðherra ræður 99 prósenta hlut í Símanum, en hávær minnihluti í birtingarmynd Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hélt uppi meirihluta umræðna á fundinum.

Sóttvarnalæknir verðlaunaður
IcePro, samstarfsvettvangur um eflingu rafrænna samskipta, hefur ákveðið að sóttvarnalæknir hljóti IcePro-verðlaunin 2005 fyrir innleiðingu rafrænna skráninga bólusetninga frá heilsugæslustöðvum.

Olíuverð hækkar vegna kuldans
Olíuverð hefur mjakast upp á við á heimsmarkaði í dag og er verðið á olíufatinu nú komið rétt yfir fimmtíu dollara á fatið. Hæst varð verðið í fyrra rúmir 55 dollarar. Hækkunin er rakin til kuldatíðar í Evrópu og Bandaríkjunum en fyrir vikið hefur fólk þurft að kynda meira.

Launavísitalan hækkað um 6,6%
Launavísitalan í janúar hækkaði um 2,2% frá fyrra mánuðiog var 261,1 stig. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan því hækkað um 6,6%. Launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána í mars er 5710 stig.

Bréf Actavis lækkuðu um 9%
Gengi bréfa í lyfjafyrirtækinu Actavis hefur lækkað um tæp 9% í Kauphöllinni í dag eftir að fyrirtækið kynnti ársuppgjör fyrir árið 2004. Niðurstöðurnar voru undir væntingum og ollu því vonbrigðum.

Skeljungur hættir verslunarrekstri
Verslunarrekstur Skeljungs færist yfir til 10-11 verslanakeðjunnar frá og með 1. mars næstkomandi. Skeljungur hefur rekið svokallaðar Select-verslanir á sumum þjónustustöðvum sínum.

Meiður kaupir 16% í VÍS
Sterkur einkafjárfestir bættist í hóp samvinnufyrirtækja í eigendahópi VÍS með kaupum Meiðs á sextán prósenta hlut í félaginu </font /></b />

Hlutfall vanskila lækkar
Hlutfall vanskila af útlánum hjá innlánsstofnunum hefur lækkað úr 2,4 prósentum í lok þriðja ársfjórðungs ársins 2004 í 1,6 prósent í lok ársins. Í lok ársins á undan var hlutfallið 3,1 prósent.
Sagði sig úr stjórn Nýherja
Hannes Guðmundsson hefur sagt sig úr stjórn Nýherja. Hann tók í síðustu viku við starfi útibússtjóra hjá Íslandsbanka og hefur samkvæmt reglum bankans ekki heimild til setu í stjórn Nýherja. Guðmundur Jóhann Jónsson tekur sæti aðalmanns í stjórninni í stað Hannesar.

Edda PP kaupir Prentmet
Fyrirtækið Edda Printing and Publishing hefur fyrir hönd óstofnaðs eignarhaldsfélags keypt Prentmet ehf. Fyrir á Edda PP allt hlutafé í Edda Printing LLC sem rekur eina stærstu og fullkomnustu prentsmiðju í Pétursborg í Rússlandi. Áætluð sameiginleg velta prentsmiðjanna á Íslandi og í Rússlandi á yfirstandandi ári er vel á fjórða milljarð króna.

Mikill hiti á fasteignamarkaði
Mikill hiti er nú á fasteignamarkaði að því er fram kemur í hálffimmfréttum KB banka. Samkvæmt Fasteignamati ríksins hækkaði verð á fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu um 5,5% í janúar frá fyrri mánuði en fjölbýli hefur hækkað um rúm 25% á síðastliðnum tólf mánuðum.

Landsbankinn hækkar vexti
Landsbankinn hefur ákveðið að hækka vexti á óverðtryggðum innlánum og útlánum þann 1. mars nk. Með hækkuninni er Landsbankinn að bregðast við vaxtahækkun Seðlabankans að því er segir í tilkynningu frá bankanum.