
Viðskipti

Gagnvirkt sjónvarp Símans
Síminn hefur ákveðið að ganga til samstarfs við Thales Broadcast & Multimedia og IBM um tæknilausn til dreifingar á stafrænu gagnvirku sjónvarpi yfir ADSL-kerfið.
Hagvöxtur án atvinnu
Störfum hefur farið fækkandi og mikil framleiðniaukning er í hagkerfinu, segja Samtök atvinnulífsins. Áætlaður vöxtur landsframleiðslu á hvern starfandi einstakling á Íslandi er sex prósent samkvæmt áætlun SA.
Nýr netvafri og hraðari
Norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software og hugbúnaðarfyrirtækið SlipStream Data kynntu í gær fyrirætlanir sínar um að sameina netvafratækni Opera vef- og tölvupóstshröðunartækni SlipStream.

Hagnaður Kaldbaks 1,7 milljarðar
Hagnaður Kaldbaks nam 1.737 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi samkvæmt greiningardeild Landsbankans. Hagnaður félagsins skiptist þannig að óinnleystur hagnaður nemur 1.149 milljónum króna en innleystur hagnaður nemur 587 milljónum.
Lyfja eignast 66% í Litís
Lyfja hf. hefur eignast 66% hlut í Litís hf. en það félag rekur tvær keðjur apóteka í Litháen undir merkjum Farma. Með kaupunum er stigið fyrsta skrefið í útrás Lyfju, að því er segir í tilkynningu frá félaginu, en markmiðið er að víkka út tekjugrunn félagsins með því að sækja á erlenda markaði.

KB haslar sér völl í Noregi
KB banki ætlar að hasla sér völl í norska fjármálaheiminum, líkt og hann hefur þegar gert í Svíþjóð og Danmörku, og stefnir að því að verða stærsti fjárfestingabanki á Norðurlöndum, hefur norska blaðið <em>Aftenposten</em> eftir Hreiðari Má Sigurðssyni, forstjóra bankans.

Rótgróinn risi fetar nýja braut
mestum fjármunum. Gamalreynd flaggskip íslenskrar útrásar. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að þessi fyrirtæki voru ásamt Flugleiðum einu fyrirtækin sem ráku umfangsmikla erlenda starfsemi. SÍF stendur nú á tímamótum.

Breytingar innan Norðurljósa
Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður lét af störfum framkvæmdastjóra Norðurljósa og útvarpsstjóra Íslenska útvarpsfélagsins eftir stjórnarfund í Norðurljósum í gær. Marinó Guðmundsson, fjármálastjóri félagsins, hefur líka ákveðið að láta af störfum og tilkynntu þeir þetta í innanhússpósti til starfsmanna seint í gærkvöldi.

11,7 milljarða hagnaður KB banka
Hagnaður KB banka fyrstu níu mánuði ársins, eftir skatta, var 11,7 milljarðar króna. Það er rúmlega hundrað og þrjátíu prósenta aukning miðað við sama tíma í fyrra. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 32,5 prósent en var rúmlega 21 prósent á sama tíma í fyrra.
Úrvalsvísitalan lækkar áfram
Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni hélt áfram að lækka í gær og hefur þá lækkað um samtals 10% á einni viku, þar af um 8,6% síðustu þrjá dagana. Verðbréf féllu um allt að 5% fyrst eftir opnun markaðarins í gær en fór svo að sveiflast upp á við hjá ýmsum fyrirtækjum undir hádegi og endaði lækkunin í 1,6%.

Sami hagnaður og hjá KB banka
Hagnaður Landsbanka Íslands fyrstu níu mánuði ársins var 11,7 milljarðar króna eftir skatta eða jafnmikill og hjá KB banka sem greint var frá fyrr í dag. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður Landsbankans 2,5 milljarðar.

Úrvalsvísitalan lækkar áfram
Úrvalsvísitalan hélt áfram að lækka í Kauphöll Íslands í morgun í miklum viðskiptum. Flest bendir til að margir smærri hlutafjáreigendur séu að innleysa hagnað undanfarinna missera af ótta við enn frekari lækkun.

Hagnaður Burðaráss aldrei meiri
Hagnaður Burðaráss hf. og dótturfélaga á fyrstu níu mánuðum ársins hefur aldrei verið meiri, eða 11,7 milljarðar króna . Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi var 11.124 milljónir en hagnaður dótturfélags Burðaráss, Eimskipafélag Íslands, var 607 milljónir króna. Arðsemi eigin fjár á fyrstu níu mánuðum ársins var 78% á ársgrundvelli.

Hlutabréfamarkaðurinn hrynur ekki
Ágúst Einarsson, prófessor í viðskiptafræði, segir að lækkun á hlutabréfamarkaði síðustu daga bendi til þess að markaðurinn sé að svara varnaðarorðum sérfræðinga um að ekki hafi verið innistæða fyrir miklum hækkunum síðustu tvö ár. Hann segir að ekkert bendi til þess að markaðurinn hrynji.

Hagnaður Bakkavarar 1,5 milljarðar
Hagnaður Bakkavarar fyrstu níu mánuði ársins var 1.470 milljónir króna fyrir skatta, eða 522 milljónir króna eftir skatta, og er það bati upp á 43% frá síðasta ári. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 768 milljónum króna á móti 671 milljón króna á sama tímabili í fyrra. Veltufé frá rekstri var 537 milljónir króna.

Sjötíu milljarða lækkun
Úrvalsvísitala hlutabréfa í Kauphöll Íslands féll um 4,23 prósent í gær. Daginn áður lækkaði hún um 2,97 prósent. Aldrei áður hefur vísitalan lækkað jafnhratt á tveimur dögum en samanlögð lækkun er 7,08 prósent.

Hagar kaupa Skeljung
Hagar hf. hafa eignast allt hlutafé í Skeljungi hf. með kaupum á eignarhaldsfélaginu Sólvindum. Ekki stendur til að gera neinar breytingar á rekstrarfyrirkomulagi Skeljungs og verður fyrirtækið áfram rekið sem sjálfstætt hlutafélag.

Rússneskar pönnukökur
Kaup SÍF á franska matvælafyrirtækinu Labeyrie fyrir 29 milljarða króna hafa vakið talsverða athygli. Fyrirtækið framleiðir meðal annars rússneskar pönnukökur en þeim hafa Íslendingar ekki átt að venjast í gegnum tíðina.
Sparisjóðirnir fjármagna mest
Flestar uppgreiðslur á lánum Íbúðalánasjóðs koma frá sparisjóðunum, eða 32,5 prósent allra uppgreiðslna lána. Þetta kemur fram í svari Íbúðalánasjóðs við fyrirspurn sem Jóhanna Sigurðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, lagði fram á Alþingi sjötta þessa mánaðar.
Kaupir franskt matvælafyrirtæki
SÍF er að kaupa franskt matvælafyrirtæki fyrir 29 milljarða króna. Verið er að ganga frá kaupunum. Franska fyrirtækið heitir Labeyrie Group og er að sögn SÍF leiðandi í framleiðslu og dreifingu á kældum matvælum fyrir smásölu.

Kaup fyrir 29 milljarða króna
SÍF er að ljúka kaupum á franska matvælafyrirtækinu Labeyrie Group fyrir 29 milljarða króna. Þetta eru ein stærstu fyrirtækjakaup íslenskrar viðskiptasögu. Þá hefur SÍF selt dóttturfyrirtæki sitt í Bandaríkjunum og hlut sinn í SH.

Kaupverð EasyJet 6,3 milljarðar
Breskir fjölmiðlar og fjármálasérfræðingar velta fyrir sér kaupum Flugleiða á 8,4 prósenta hlut í lággjaldaflugfélaginu EasyJet í gær. Fullyrt er í blaðinu<em> Independent</em> að kaupverðið á hlutnum sé fimmtíu milljónir punda, eða um 6,3 milljarðar króna.

Avion ætlar að kaupa Easy Jet
Nýi íslenski flugrisinn, Avion Group, sem á meðal annars flugfélagið Atlanta, ætlar sér að kaupa eitt þekktasta og stærsta lággjaldaflugfélag Evrópu, Easy Jet. Þetta kemur fram í dagblaðinu <em>Guardian</em> í dag.

Öll íslensku flugfélögin nefnd
Íslenskt flugfélag er orðað við eitt stærsta lágfargjaldaflugfélag Evrópu. Breskir fjölmiðlar segja orðróm um yfirtökutilboð á kreiki. Avion Group, Icelandair og Iceland Express eru öll nefnd sem hugsanlegir kaupendur.

Flugleiðir keyptu í easyJet
Flugleiðir hafa keypt 8,4% hlutabréfa í easyJet sem er annað af tveimur stærstu lággjaldaflugfélögum í Evrópu. Ársvelta félagsins er tæplega 130 milljarðar króna á ári og hagnaður um níu milljarðar króna síðastliðið ár.

Tap upp á 66 milljónir króna
Rekstrartap á Íslenska sjónvarpsfélaginu, sem rekur Skjá einn, var rúmlega 66 milljónir í fyrra samkvæmt ársreikningi. Fyrirtækið hafði tæpar fimm hundruð milljónir króna í auglýsingatekjur á árinu en reksturinn kostaði um 570 milljónir.
Fleiri vélmenni inn á heimilin
Sérfræðingar hjá Sameinuðu þjóðunum búast við því að sala á vélmennum til heimilisnota muni sjöfaldast fyrir árið 2007. Heimili í Bandaríkjunum nýta sér nú í auknum mæli þjónustu vélmenna við ýmis misvinsæl heimilisstörf. Vinsælast er að kaupa vélmenni sem sjá um að slá blettinn.
Kaupa fasteignir í Búlgaríu
Íslenskir kaupsýslumenn hafa áhuga á að kaupa fasteignir í Búlgaríu og að byggja þar bæði upp iðnað og verslun, að því er greint er frá í viðskiptablaðinu <em>Sofia Morning News</em>. Íslensk orkufyrirtæki leita einnig samstarfsaðila í Búlgaríu og hafa áhuga á að byggja þar gufuaflsvirkjanir.

Stórtíðindi fyrir læknavísindin
Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa fengið jákvæðar niðurstöður úr tilraunum með nýtt lyf sem draga á úr líkunum á því að fólk fái hjartaáfall. Kári Stefánsson forstjóri segir þetta stórtíðindi fyrir fyrirtækið jafnt sem læknavísindin.

Hlutabréf í DeCode tóku stökk
Hlutabréf í DeCode Genetics tóku stórt stökk upp á við á Nasdaq-hlutabréfamarkaðnum í dag eftir að fréttir bárust af jákvæðum niðurstöðum tilrauna með þróun lyfs sem draga á úr líkum á hjartaáfalli. Forsvarsmenn Íslenskrar erfðagreiningar segja að þetta séu stórmerkileg tíðindi, ekki eingöngu fyrir fyrirtækið heldur einnig fyrir læknavísindin á heimsvísu.