

Árásirnar á Gaza eru fordæmalausar að umfangi og ákefð. Almennir borgarar á Gaza, þar á meðal börn, konur, aldraðir og einstaklingar með fötlun eiga hvergi öruggt skjól. Enginn er óhultur. Flest hafa þurft að flýja hvert sjúkrahúsið eða áningarstaðinn á fætur öðrum vegna endurtekinna sprengjuárása og vita ekki hvort þau lifi fram á næsta dag.
Hörmungarnar sem við höfum orðið vitni að í Ísrael og á Gaza undanfarnar fjórar vikur eru ólýsanlegar. Yfir tíu þúsund almennir borgarar hafa verið drepnir, fregnir herma að yfir fjögur þúsund börn séu þar á meðal og fjölmörg önnur sitja eftir foreldralaus. Ekkert réttlætir átök sem hafa í för með sér slíkt mannfall.
Í upphafi árs hófu íslensk stjórnvöld að synja barnafjölskyldum á flótta um efnislega meðferð umsókn sinna en ákvarða þess í stað að endursenda þær til Grikklands, þrátt fyrir að hafa metið aðstæður þar óviðunandi aðeins nokkrum mánuðum áður. Rauði krossinn, Barnaheill og UNICEF á Íslandi telja að hagsmunir barna séu ekki metnir á heildstæðan hátt og að ákvarðanir um endursendingar til Grikklands skapi börnum hættu sem íslensk stjórnvöld beri ábyrgð á.
Á erfiðum tímum er mikilvægt að styðja sig við ættingja, vini og vinnufélaga, en þetta á aðeins við um þá sem eiga slíkt tengslanet. Fjöldi fólks býr ekki svo vel, á ekki fjölskyldu og situr eitt, hrætt og einmana – jafnvel á stofnun, í fangelsi eða í ótryggu húsnæði og jafnvel á á götunni.
Rauði krossinn á Íslandi er grasrótarhreyfing sem er borin upp á sjálfboðaliðum og er sjálfstæð í störfum sínum.
Rauði krossinn á Íslandi og systurfélög okkar um heim allan taka þátt í baráttunni gegn hamfarahlýnun. Í dag ætlum við að taka þátt í loftslagsverkfalli með unga fólkinu og krefjast þess að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi.
Í dag, á alþjóðadegi flóttafólks, minnum við á þá skelfilegu staðreynd, að í mannkynsögunni hafa aldrei fleiri verið á flótta.
Rauði krossinn á Íslandi hefur hafið neyðarsöfnun vegna yfirvofandi hungursneyðar í Jemen sem er fyrst og fremst til komin vegna vopnaðra átaka í landinu.
Upphaf þróunarsamvinnu má rekja aftur til eftirstríðsára seinni heimsstyrjaldar þegar byggja þurfti Evrópu upp að nýju.
Um áratugaskeið hafa íslensk stjórnvöld stutt markmið Sameinuðu þjóðanna um að velmegunarríki verji sem samsvarar 0,7% af vergum þjóðartekjum til að styðja við fátæk og óstöðug ríki. Á síðasta ári vörðu íslensk stjórnvöld hins vegar 0,24% af vergum þjóðartekjum til málaflokksins og 0,23% árið 2014.
Í dag er Alþjóðlegur dagur flóttafólks, 20. júní. Aldrei í mannkynssögunni hefur fjöldi flóttafólks verið meiri en einmitt nú.
Í dag 21. mars, á alþjóðadegi gegn kynþáttamisrétti, er ár liðið síðan Vertu næs átaki Rauða krossins gegn fordómum var hleypt af stokkunum.
Í Reykjavík er starfrækt fjölmennasta deild Rauða krossins á Íslandi. Starfsemi hennar er hlekkur í stórri keðju deilda og landsfélaga sem starfa um allan heim. Rauði krossinn er mannúðarhreyfing sem vinnur að því að skapa betra samfélag.