
Erlent

Notaði rafmagns hundaól við að nauðga dætrum sínum
Heimilisfaðir í Tennessee hefur verið handtekinn fyrir að nota rafmagnaðar hundaólar við að nauðga tveim táningsdætrum sínum um margra ára skeið.

Samdráttur hjá J. C. Penny
Hagnaður bandarísku verslanakeðjunnar J.C. Penny nam 261 milljón dala, jafnvirði 15,6 milljörðum íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi samanborið við 287 milljónir dala á sama tíma í fyrra. Þetta er níu prósenta samdráttur á milli ára. Stjórnendur verslunarinnar segja sölu hafa dregist saman á fjórðungnum og séu horfur á að efnahagurinn muni versna frekar á yfirstandandi fjórðungi þar sem ljóst þyki að neytendur haldi að sér höndum þessa dagana.

Morðið á Dando endurskoðað - Jakob Frímann fagnar
Þrír æðstu dómarar Bretlands hafa fallist á að taka aftur upp málið gegn Barry George sem var fangelsaður fyrir morðið á Jill Dando, kynni hjá BBC sjónvarpsstöðinni.

Komdu Skjalda, flýjum
Hvað gera bandarískar kýr þegar gripaflutningabíllinn þeirra stoppar fyrir framan McDonalds veitingastað við þjóðveginn.

Vísa samrunaviðræðum á bug
Orðrómur hefur verið uppi um að bandarísku flugfélögin Delta og United Airlines eigi í viðræðum sem geti leitt til samruna þeirra. Gengi það eftir yrði til stærsta flugfélag í heimi. Forstjórar flugfélaganna vísa því hins vegar á bug að samrunaviðræður eigi sér stað.

Sprakk og brann til kaldra kola
Hús í Limhamn - í útjaðri Malmö - brann til kaldra kola í gær eftir mikla sprengingu. Konu og hundi hennar sem í húsinu voru tókst að forða sér og komust ómeidd frá eldinum.

Lindgren 100 ára
Sænska skáldkonan Astrid Lindgren hefði orðið 100 ár í gær ef hún hefði lifað. Af því tilefni var slegið til veislu í Smálöndum þar sem höfundur bókanna um Línu Langsokk og Emil í Kattholti fæddist og var alin upp.

Leitar víðtæks stuðnings
Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, leitar eftir stuðningi allra flokka á danska þinginu í mikilvægum málaflokkum nú þegar þriðja ríkisstjórn hans er í burðarliðnum. Meirihlutinn er naumur - stendur og fellur með Færeyingi og sýrlenskum innflytjanda.

Umferðaröngþveiti um allt Frakkland
Samgöngukerfi Frakklands er lamað annan daginn í röð vegna verkfalls hjá starfsmönnum almenningssamgöngufyrirtækja. Umferðaröngþveiti er mikið og kannanir sýna að meirihluti Frakka hefur enga samúð með þeim sem lagt hafa niður vinnu.

Japanar hunsa Dalai Lama
Enginn japanskur embættismaður mun hitta Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta, sem er kominn til landsins í níu daga heimsókn.

Dýrkeypt gæludýr
Einn maður lét lífið og annar slasaðist alvarlega þegar þeir reyndu að ná kakadúa niður úr tré í Ástralíu.

Verðbólga eykst á evrusvæðinu
Verðbólga mældist 2,6 prósent á evrusvæðinu í síðasta mánuði samanborið við 2,1 prósent í september, samkvæmt útreikningum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Helstu liðir til hækkunar liggja í hærra eldsneytis- og matvælaverði, ekki síst á mjólkur- og kornvörum sem hefur hækkað mjög í verði víða um heim.

Macy's spáir minni einkaneyslu
Gengi hlutabréfa tók að lækka skyndilega í Bandaríkjunum í gær eftir að bandaríska verslanakeðjan Macy's skilaði inn uppgjörstölum sínum fyrir þriðja ársfjórðung. Verslunin skilaði 33 milljóna dala hagnaði, sem jafngildir tæpum tveimur milljörðum íslenskra króna, á tímabilinu. Þetta er á pari við væntingar markaðsaðila.

John Thain í forstjórastól Merrill Lynch
Talsverðar líkur eru taldar á því að John Thain, forstjóri NYSE Euronext, hinnar tiltölulega nýsameinuðu kauphallar New York í Bandaríkjunum og samevrópsku kauphallarsamstæðunnar Euronext, verði veittur forstjórastóllinn hjá bandaríska fjárfestingabankanum Merrill Lynch.

Gaman í vinnunni
Það má ekki teikna mynd af krónprinsi Spánar í samförum við eiginkonu sína.

Játaði kúrdamorð yfir kaffibolla
Þegar Bandaríkjamenn yfirheyrðu Saddam Hussein fóru þeir mjúku leiðina. Alríkislögreglumaðurinn George Piro eyddi fimm klukkustundum á dag í sjö mánuði við að yfirheyra einræðisherrann.

Smásöluverslun jókst lítillega í Bandaríkjunum
Smásöluverslun jókst um 0,2 prósent á milli mánaða í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Til samanburðar jókst verslun um 0,7 prósent á milli mánaða í september. Fjármálaskýrendur segja greinilegt að slæmar aðstæður á fasteignamarkaði í Bandaríkjunum, hátt raforkuverð og erfiðara aðgengi að lánsfé nú um stundir hafi sett mark sitt á einkaneyslu vestanhafs.

Khader áhrifalítill í dönskum stjórnmálum
Danskir stjórnmálaskýrendur segja að hið Nýja Bandalag Nasers Khaders hafi verið kosið út í þingkosningunum í gær.

Móðir látins barns fundin
Það vakti mikinn óhug í Danmörku þegar hálft lík af nýfæddu barni fannst í vörubílsfarmi af gróðurmold í grennd við Álaborg í síðasta mánuði.

Það á að hengja homma
Íranskur ráðherra sagði á einkafundi með breskum þingmönnum í maí síðastliðnum að það ætti að hengja samkynhneigða.

Toyota Hilux aftur í sölu
Toyota umboðið í Noregi er aftur byrjað að selja Toyota Hilux pallbíla. Tilkynnt var um sölustopp í gær eftir að bíllinn hafði næstum oltið í elgsprufu sænska bílablaðsins Teknikens Värld.

Fjárfestar bjartsýnir víða um heim
Gengi helstu hlutabréfavísitalna hafa hækkað talsvert í Asíu og Evrópu í dag eftir mikla hækkun í Bandaríkjunum í gær. Fjárfestar þykja bjartsýnir á að fjármálakrísan sé ekki eins slæm og af var látið þrátt fyrir að fasteignalán hafi sett skarð í afkomu bandarískra og japanskra fjármálastofnana.

Konan mín er tík
Þrjátíu og þriggja ára gamall Indverji hefur gengið að eiga tík. Með því vill hann létta af sér bölvun vegna tveggja hunda sem hann grýtti í hel fyrir fimmtán árum.

12 handteknir vegna gruns um mök við 15 ára stúlku
Tólf manns sem tengjast svissneska fótboltaklúbbnum FC Thun hafa verið handteknir, grunaðir um að hafa haft samfarir við 15 ára stúlku.

Viðurkennir pyntingar á kærustunni
Nítján ára Líbani viðurkenndi í morgun að hafa pyntað jafn gamla danska kærustu sína í níu daga í skúr við Suðurhöfnina í Kaupmannahöfn.

Sölustopp á Toyota Hilux eftir elgspróf
Toyota umboðið í Noregi hefur hætt sölu á Toyota Hilux pallbíl með 16 tommu dekkjum, meðan verksmiðjurnar prófa stöðugleikann.

Óbreyttir stýrivextir í Japan
Japanski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5 prósentum. Í rökstuðningi bankastjórnarinnar koma fram áhyggjur vegna fjármálakrísunnar á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum og hægari hagvöxtur í Bandaríkjunum sem gæti skilað sér í minni útflutningi frá Japan til Bandaríkjanna.

Ekki með skammbyssu í skólann
Kennslukona í Oregon í Bandaríkjunum tapaði máli sem hún höfðaði til þess að fá að bera skammbyssu á sér í skólanum.

Topplaus uppreisn í Svíþjóð
Ungar konur í Svíþjóð hafa gert uppreisn gegn því að fá ekki að fara topplausar í almenningssundlaugar.

Sakfelldur fyrir morðið á Gísla Þorkelssyni
Willie Theron, sem ákærður var fyrir morðið á Gísla Þorkelssyni í Suður-Afríku í maí 2005 var sakfelldur fyrir ódæðið fyrir dómi í Jóhannesarborg í dag.