Erlent

Tyrkir gera stórskotaliðsárás á Írak
Tyrkenski herinn hóf stórskotaliðsárás á Kúrdahéruð í Norður-Írak í morgun.

Gorbachev orðinn krati -stofnar flokk
Mikael Gorbachev setti í dag stofnfund nýrrrar hreyfingar Sambands jafnaðarmanna í Rússlandi.

Fullur túristi stökk á krókódíl -ógurleg slagsmál
Eftir tólf bjóra þótti Matt Martin tími til kominn að fá sér sundsprett. Matt er frá Newcastle í Bretlandi, en var í sumarfríi í Queensland í Ástralíu.

Íranar hóta eldflaugaregni
Íranar segjast munu skjóta 11 þúsund eldflaugum á óvinaskotmörk á fyrstu mínútunni eftir að ráðist verður á landið.

Vilja útrýma nektardansstöðum í Reykjavík
Svo gæti farið að nektarstöðum verði útrýmt úr borginni en nýr meirihluti hyggst taka fastar á málum þeirra en gert hefur verið.

Óttast stjórnarskipti
Ráðamenn í Washington fylgjast uggandi með pólsku þingkosningunum á morgun. Verði sitjandi stjórn felld gætu áætlanir um eldflaugavarnarkefi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu verið í uppnámi.

Blóðugt fjöldamorð í Kanada
Kanadamenn eru sem þrumu lostnir eftir að sex blóðug og illa farin lík fundust í íbúð í háhýsi í bænum Surrey í Bresku Kólumbíu. Það er skammt frá Vancouver.

Pavarotti skuldaði á annan milljarð þegar hann lést
Óperusöngvarinn ástsæli Luciano Pavarotti var stórskuldugur þegar hann lést.

Ég er ekki barnaníðingur
Kanadamaðurinn Christopher Neil segist saklaus af því að hafa níðst á börnum.

Börn McCann hjónanna fengu aldrei svefnlyf
Ný rannsókn hefur leitt í ljós að tvíburasystkinum Madeleine McCann var ekki gefið svefnlyf daginn sem hún hvarf í Portúgal.

Harðir baardagar Palestínumanna
Að minnsta kosti tveir Palestínumenn biðu bana og yfir 20 særðust í innbyrðis átökum á Gaza ströndinni í dag.
Vonir um konunglegt brúðkaup í Svíþjóð
Sænskir miðlar gera því skóna að Viktoría krónprinsessa Svía ætli að ganga í það heilaga með kærasta sínum, Daniel Westling, á næsta ári.

Kjarnorku-Írani segir af sér
Ari Larijani, aðal samningamaður Írana í kjarnorkudeilunni við vesturveldin, sagði af sér í morgun.

Vill að Bandaríkjamenn berji á kúrdum
Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, krefst þess að Bandaríkjamenn grípi þegar til aðgerða gegn kúrdískum skæruliðum í norðurhluta Íraks.

Kjarnorkusprengjur yfir Bandaríkjunum
Bandaríski flugherinn hefur rekið sjötíu liðsmenn flugsveitar - þar af fjóra háttsetta foringja- eftir að B-52 sprengjuflugvél var flogið með sex kjarnorkusprengjur yfir bandarískt landsvæði í lok ágúst.

Verkfall stöðvar ekki ferð þeirra
Breskir rúgbí áhugamenn láta verkfall starfsmanna almenningssamgöngufyrirtækja í Frakklandi ekki stöðva sig og flykkjast til Parísar. Þar keppa Englendingar til úrslita á heimsmeistaramótinu í rúgbí á morgun.

Grunaður níðingur handtekinn
Grunaður barnaníðingur sem eftirlýstur hefur verið um allan heim í þrjú ár var handtekinn í Taílandi í dag. Það var aðstoð almennings um allan heim sem réð því að hægt var að hafa hendur í hári hans.

Aðeins Írar fá þjóðaratkvæðagreiðslu
Aðeins Írar fá að greiða atkvæði um nýjan sáttmála Evrópusambandsins sem samþykktur var í nótt og kemur í stað umdeildrar stjórnarskrár. Ekki þarf að bera hann undir þjóðaratkvæði í öðrum ríkjum.

Föðurmorðingjar aftur á ferð
Benazir Bhúttó, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, segir forna fjendur fjölskyldu sinnar hafa reynt að ráða sig af dögum í gærkvöldi. Minnst 130 manns týndu lífi í tveimur sprengingum nærri bílalest Bhúttó í Karachi.

Verkfall heldur áfram í París
Búist er við miklum töfum á lestarsamgöngum í Frakklandi í dag vegna verkfalls starfsmanna almenningssamgöngufyrirtækja sem hófst í gær. Upphaflega var um um sólahringsverkfall að ræða um allt land. Verkalýðsfélög í París hafa hins vegar ákveðið að framlengja það.

Dómur fyrir vikulokin
Dómarinn í máli Gísla Þorkelssonar, sem var myrtur í Suður-Afríku sumarið 2005, gagnrýnir lögreglu í Jóhannesarborg fyrir handvömm. Dóm á að kveða upp yfir meintum morðingjum Gísla fyrir vikulokin.

Hráolíuverð yfir 90 dali á tunnu í fyrsta sinn
Hráolíuverð í framvirkum samningum fór yfir níutíu bandaríkjadali á tunnu til skamms tíma á fjármálamörkuðum í gærkvöldi en það er hæsta verð sem tunnan hefur nokkru sinni farið í.

Fílar finna lykt af hættu
Fílar finna bókstaflega lykt af hættu, samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð var í Kenya.

Lítið undir ökuníðingum ?
Ástralir hafa hrundið af stað herferð gegn hraðakstri, sem virðist virka á unga menn. Stúlkur eru hvattar til að gefa þeim litla fingurinn, og er þar verið að vísa til fjölskyldudjásna þeirra.

Hlutabréf lækka í Bandaríkjunum
Gengi hlutabréfa lækkaði almennt á fjármálamörkuðum í Bandaríkjunum í dag í kjölfar lélegs uppgjörs bandaríska risabankans Bank of America á þriðja ársfjórðungi. Hlutabréfavísitölur er víða á niðurleið í dag, þar á meðal hér á landi.

Skellur hjá Bank of America
Bank of America, næststærsti banki Bandaríkjanna, varð fyrir skelli á þriðja ársfjórðungi en hagnaður bankans dróst saman um rúm þrjátíu prósent vegna vandræða á bandarískum fasteignalánamarkaði sem leitt hefur af sér óróleika á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.

Gengi Nokia rauk upp eftir afkomutölur
Gengi hlutabréfa í finnska farsímaframleiðandanum Nokia stökk upp um 7,5 prósent á hlutabréfamörkuðum í dag eftir að fyrirtækið birti afkomutölur sínar fyrir þriðja ársfjórðung.

Frakklandsforseti skilur við konu sína
Nicolas Sarkozy forseti Frakklands og eiginkona hans Cecilia hafa ákveðið að skilja.

Feitir farþegar ógna flugöryggi
SAS flugfélagið hefur beðið öryggisyfirvöld í Skandinavíu að breyta viðmiðunarreglum um þyngd flugfarþega.

Norskir biskupar skera upp herör gegn samkynhneigðum
Níu af ellefu biskupum Noregs hafa hótað að hætta að gifta fólk í kirkjum landsins ef ný lög um vígslu samkynhneigðra verða samþykkt.