Taekwondo

Sautján ára Íslendingur vann brons í fullorðinsflokki
Guðmundur Flóki Sigurjónsson keppti fyrir Íslands hönd í taekwondo og vann brons á opnu alþjóðlegu stigamóti í Lúxemborg um helgina. Leo Anthony Speight keppti einnig fyrir Íslands hönd og hafnaði í fimmta sæti í sínum flokki.

Leo vann brons í Svíþjóð
Þrír Íslendingar tóku þátt á Swedish Open, sterku alþjóðlegu stigamóti í ólympísku taekwondo. Leo Anthony Speight vann brons í sínum flokki.

Ólympíumeistari í taekwondo ætlar að verða heimsmeistari í boxi
Jade Jones, tvöfaldur Ólympíumeistari í taekwondo, hefur ákveðið að venda kvæði sínu í kross og er byrjuð að æfa hnefaleika.

Með stóra drauma og svarta beltið í taekwondo
„Ég byrja að taka þessu mjög alvarlega í níunda bekk, þegar allir fóru að spyrja hvað ég ætlaði að gera þegar ég yrði stór,“ segir leikkonan Ísadóra Bjarkardóttir Barney. Ísadóra fer með aðalhlutverkið í íslensku kvikmyndinni Fjallið. Hún á ekki langt að sækja listræna hæfileika sína en hún er dóttir Bjarkar Guðmundsdóttur tónlistarkonu og listamannsins Matthew Barney. Blaðamaður ræddi við Ísadóru um lífið og listina.

Sló átta ára dóttur sína eftir tap
Faðir og þjálfari hinnar átta ára gömlu Valinu Fetiu beitti hana ofbeldi eftir að hún tapaði úrslitabardaga á Evrópumóti barna í taekwondo í Tirana í Albaníu. Hann hefur nú verið úrskurðaður í hálfs árs bann.

Skellti dönskum EM-bronshafa og náði sögulegum árangri
Íslenski landsliðsmaðurinn Leo Anthony Speight gerði sér lítið fyrir og vann til silfurverðlauna um helgina á alþjóðlegu stigamóti World Taekwondo, í Riga í Lettlandi.

Ísland eignast tvo Evrópumeistara smáþjóða í taekwondo
Guðmundur Flóki Sigurjónsson úr KR og Leo Anthony Speight úr Björk urðu báðir Evrópumeistarar smáþjóða í bardaga á taekwondomóti í Tallinn í Eistlandi.

Tíu gullverðlaun og samtals 32 íslensk verðlaun á Norðurlandamóti
Íslenskir Taekwondo-kappar gerðu það gott á Norðurlandamóti sem haldið var í greininni hér á landi fyrir rúmri viku síðan.

Leo Speight breskur meistari í Taekwondo
Íslenski Taekwondo-kappinn Leo Speight verð um seinustu helgi breskur meistari í íþróttinni í Senior A -68 kg flokki eftir að sigra í fjórum bardögum.

Pútín missir svarta beltið sitt
Íþróttaheimurinn keppist nú við að loka á Rússland eftir innrás Rússa í Úkraínu. Það hefur líka áhrif á Vladimírs Pútín og svo kölluð íþróttaafrek hans.

Íslenskur strákur fékk boð í eitt sterkasta Taekwondo-landslið heims
Íslenski Taekwondo-kappinn Leo Speight hefur fengið boð um að flytja til Manchester á Englandi og vera þar partur af breska landsliðinu í íþróttinni.

Olíuborni Tongverjinn á sínum stað á setningarhátíðinni
Þriðju Ólympíuleikana í röð gekk taekwondo-kappinn Pita Taufatofua inn á með fána Tonga á setningarhátíðinni.

Stærri bardagahöll í Reykjanesbæ styttir biðlista í bardagaíþróttum
Nýja aðstaðan skiptir miklu máli segir ungur Taekwondo keppandi sem er á leið á sitt fyrsta heimsmeistaramót í íþróttinni.

Gleðitíðindi fyrir Breiðholtið
Aðstæður til íþróttaiðkunar á félagssvæði ÍR munu breytast svo um munar til batnaðar á næstu árum.

Spiluðu óvart þjóðsönginn sem var tekinn úr notkun fyrir 40 árum
Íranir fögnuðu flottum sigri á HM í tækvondó á Taipei á dögunum en fengu síðan algjör sjokk í verðlaunaafhendingunni.