Lög og regla

Fréttamynd

Dæmd fyrir að stinga sambýlismann

Rúmlega þrítug kona var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmd í fimmtán mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði óskilorðsbundið, fyrir að stinga sambýlismann sinn í bakið þannig að hnífurinn gekk inn í lunga.

Innlent
Fréttamynd

Hugsanlega hert gæsla

Lögregluyfirvöld og Útlendingastofnun hafa verið að skoða hugsanlegan viðbúnað vegna fyrirhugaðrar komu atvinnumótmælenda sem hyggjast dvelja í tjaldbúðum við Kárahnjúkavirkjun nú í sumar. Þetta segir Hildur Dungal forstjóri Útlendingastofnunar.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í bústað í Tálknafirði

Eldur kviknaði í sumarbústað í Tálknafirði á fimmta tímanum í nótt. Fjöldi fólks var í bústaðnum þegar eldurinn kom upp. Þrír voru fluttir á heilsugæslu Patreksfjarðar til frekari rannsóknar vegna gruns um reykeitrun að sögn lögreglunnar. Slökkviliðinu á Tálknafirði gekk vel að slökkva eldinn en bústaðurinn skemmdist mikið.

Innlent
Fréttamynd

Erill hjá lögreglu í Reykjanesbæ

Lögreglumenn í Reykjanesbæ höfðu nokkuð að gera í gærkvöld og nótt þar sem töluvert var um slagsmál og ryskingar við skemmtistaðinn Traffic í Hafnargötu í Keflavík. Þá var maður laminn fyrir utan Vitann í Sandgerði með þeim afleiðingum að nokkrar tennur í honum brotnuðu, hann fékk skurði í andliti og þá kvartaði hann undan eymslum í brjóstkassa.

Innlent
Fréttamynd

Rólegt hjá lögreglunni í borginni

Mikill mannfjöldi var saman kominn í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi og í nótt og virðist sem fólkið hafi að mestu leyti skemmt sér í sátt og samlyndi. Að sögn lögreglunnar er sárafátt sem stendur upp úr eftir nóttina, tvö minni háttar fíkniefnamál en fátt annað frásagnarvert. Klukkan sjö í morgun þegar vaktaskipti urðu á lögreglustöðinni var enn töluverður fjöldi á ferli í miðbænum.

Innlent
Fréttamynd

Helgin með besta móti

Þó víða hefði verið erill hjá lögreglu um land allt voru lögreglumenn almennt afar ánægðir með helgina. Dansleikir voru víða eins og ávallt fyrir Sjómannadaginn en það er af sem áður var að kvíði væri í mönnum vegna þess enda þessi helgi undanfarin ár verið með besta móti.

Innlent
Fréttamynd

Eldur og eiturlyf í Grindavík

Eitt fíkniefnamál upp í Grindavík á sjómannadagshátíðinni þar í bæ í nótt. Þá var lögregla og slökkvilið kölluð að heimahúsi í Grindavík vegna reyks sem lagði frá íbúð á jarðhæð. Þar reyndist eldur vera laus á eldavél en húsráðandinn, eldri kona, hafði brugðið sér úr húsi en gleymt að slökkva á eldavélinni. Víkurfréttir greina frá þessu.

Innlent
Fréttamynd

Handtekin í kjölfar húsleitar

Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók fimm manns í nótt eftir að nokkurt magn af hassi fannst við húsleit í bænum en lögregla leitaði að fíkniefnum í þremur húsum. Við leitina fundust einnig áhöld til neyslu fíkniefna.

Innlent
Fréttamynd

Sjö handteknir vegna fíkniefnamáls

Sjö hafa verið handteknir á Raufarhöfn í dag vegna fíkniefnamáls. Við aðgerðina haldlagði lögregla nokkuð magn meintra fíkniefna, svo og tóla og tækja til fíkniefnaneyslu. Um það bil 25-30 grömm af hvítum efnum voru haldlögð og um 50 töflur sem líklegt þykir að séu e-töflur.

Innlent
Fréttamynd

Töluverður erill hjá lögreglu

Töluverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt en ölvun var talsverð í miðborginni langt fram eftir morgni. Er það ekki síst rakið til þess að veður var með besta móti auk þess sem skólastarfi er nýlokið.

Innlent
Fréttamynd

Fíkniefnafundur á Raufarhöfn

Sjö voru handteknir eftir að talsvert magn fíkniefna fannst við húsleit lögreglu á Raufarhöfn í gærmorgun. Var um að ræða tæp 50 grömm af hvítum efnum og um 50 töflur sem líkur þóttu á að væru e-töflur en það hafði þó ekki verið staðfest.

Innlent
Fréttamynd

Reykjanesbær greiði 5 milljónir

Hæstiréttur dæmdi í gær Reykjanesbæ til að greiða fyrrverandi starfsmanni bæjarins tæpar fimm milljónir króna. Maðurinn vann hjá Vatnsveitu Suðurnesja en þegar sú starfsemi færðist undir Hitaveitu Suðurnesja hf. rýrnuðu lífeyrisréttindi mannsins og tókst Reykjanesbæ ekki að sýna fram á að starfið sem hann fékk við breytingarnar væri sambærilegt fyrra starfi hvað ráðningarkjör varðar.

Innlent
Fréttamynd

40 daga fangelsi fyrir úlnliðsbrot

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi fyrir stundu tvítugan karlmann í fjörutíu daga fangelsi, skilorðsbundið, fyrir að ráðast á unga konu á veitingastað í Grindavík með þeim afleiðingum að hún brotnaði á báðum úlnliðum. Atvikið átti sér stað á Sjávarperlunni fyrir rúmu ári.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdir fyrir hass

Fjórir piltar á aldrinum 18 til 19 ára voru í gær dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í sex til tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaðarbrot og brot á fíkniefnalöggjöf.

Innlent
Fréttamynd

Fjögur fíkniefnamál á sólarhring

Kópavogslögreglan hefur komið upp um fjögur fíkniefnamál síðastliðinn sólarhring og hafa níu manns verið ákærðir. Grunur leikur á fíkniefnasölu í einu málanna. Upp komst um málin við reglubundið eftirlit á götum bæjarins en málin teljast öll upplýst.

Innlent
Fréttamynd

Vilja þyngri dóma í mansalsmálum

Kristín Ástgeirsdóttir, sérfræðingur á rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands, segir nauðsynlegt að taka á öllum málum tengdum mansali, þar sem konur um allan heim eru oftar en ekki fórnarlömb, af ákveðni og hörku.

Innlent
Fréttamynd

Rockville brennur

Mikill eldur var í Rockville, gömlu ratsjárstöðinni á Miðnesheiði, í nótt. Samkvæmt Víkurfréttum var fjölmennt slökkvilið sent á staðinn á þriðja tímanum í nótt og logaði þá mikill eldur í byggingu hjá kúluturnunum sem eru eitt helsta kennileiti staðarins.

Innlent
Fréttamynd

Par dæmt í fangelsi

Maður og kona voru í gær dæmd í fangelsi fyrir innbrot og þjófnaði. Þau stálu meðal annars fartölvu úr bifreið og gerðu tilraun til þess að brjótast inn í skóla í Hörgárbyggð en flúðu þegar þjófavarnarkerfi skólans fór í gang.

Innlent
Fréttamynd

Hæstiréttur sneri tveimur dómum

Hæstiréttur sneri í gær við tveimur dómum þar sem ökumenn höfðu verið sakfelldir fyrir að virða ekki hvíldarákvæði EES-samningsins. Í báðum málunum hafði Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmt bílstjórana til sektargreiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Níu ákærðir

Töluverður erill var hjá lögreglunni í Kópavogi í fyrrinótt og komu meðal annars upp fjögur fíkniefnamál.

Innlent
Fréttamynd

Fjórir unglingspiltar fá dóm

Fjórir piltar, fæddir árin 1986 og 1987, voru dæmdir í sex til tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Piltarnir játuðu allir brot sín sem voru nokkur fjöldi innbrota auk minniháttar fíkniefnabrota. Haldi piltarnir skilorð í þrjú ár fellur refsing niður.

Innlent
Fréttamynd

Tveir mikið slasaðir

Alvarlegt umferðarslys varð á Austurvegi í fyrrinótt þegar bifreið keyrði á ljósastaur og valt nokkrar veltur utan vegar. Þrír voru í bílnum og slösuðust þau sem fram í sátu alvarlega.

Innlent
Fréttamynd

Mildaði dóm yfir bankaræningja

Hæstiréttur mildaði í dag dóm yfir manni sem framdi vopnað rán í útbúi Búnaðarbankans við Vesturgötu í nóvember árið 2003. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt manninn í tveggja ára fangelsi en Hæstiréttur lækkaði refsinguna í fimmtán mánaða fangelsi. Ránið framdi maðurinn í slagtogi við annan mann sem ók flóttabílnum.

Innlent
Fréttamynd

Fékk hálfs árs fangelsi

Kínverskur karlmaður var í gær dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að reyna að smygla ungum Kínverjum um Ísland til Bandaríkjanna.

Innlent
Fréttamynd

Tveir teknir á ofsahraða

Lögreglan í Keflavík stöðvaði ökumann á 167 kílómetra hraða á Garðvegi í gærkvöldi þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar. Ökumaðurinn missir skírteinið og fær sekt. Þá var annar ökumaður tekinn á 142 kílómetra hraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi, sá er grunaður um ölvun.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir brot í starfi

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjón í sex mánaða fangelsi, sem er skilorðsbundið til tvegggja ára, fyrir að hafa notað bíl í eigu lögreglunnar í eigin þágu og fyrir að hafa ráðstafað öðrum lögreglubíl til sambýliskonu sinnar án þess að borga nokkuð fyrir hann.

Innlent
Fréttamynd

Yfirheyrðir vegna auðgunarbrota

Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur yfirheyrt sakborninga og vitni í Baugsmálinu svokallaða að undanförnu að því er fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá í gærkvöldi.

Innlent
Fréttamynd

Bankaræningi dæmdur

Maður á þrítugsaldri, Jón Þorri Jónssson, var í gær dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hafa rænt útibú Búnaðarbankans að Vesturgötu 54.

Innlent
Fréttamynd

Reyndi að flýja úr umsjón lögreglu

Maður frá Singapúr var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að smygla fólki á milli landa. Einn þeirra sem með honum voru í för reyndi að flýja úr umsjón lögreglu með því að stökkva út um glugga af annarri hæð.

Innlent