Ákæruferli þingsins gegn Trump

Prófessorar segja tilefni til að ákæra Trump
Þrír fræðimenn um stjórnarskrá Bandaríkjanna segja tilefni til að ákæra Donald Trump, forseta, fyrir embættisbrot. Sá fjórði dregur í efa að tilefni sé til staðar.

Segja Trump hafa brotið af sér í starfi
Donald Trump fórnaði öryggishagsmunum Bandaríkjanna í eigin hag og rík ástæða er til að ákæra hann fyrir embættisbrot í starfi forseta.

Trump rangtúlkar orð Zelensky og segist hreinsaður af sök
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, er ekki þeirrar skoðunar að umdeilt símtal hans og Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hafi falið í sér svokallað "kaup kaups“ (e. Quid pro quo). Hann gagnrýndi Bandaríkin þó harðlega fyrir að koma fram við Úkraínu sem peð í pólitískri skák.

Trump mætir ekki fyrir nefndina til að svara fyrir meint embættisbrot
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, og lögfræðingar hans hafa gefið það út að þeir ætli ekki mæta fyrir dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings næstkomandi miðvikudag til þess að gefa skýrslu.

Ummæli Trumps sögð ganga í berhögg við hans eigin orð
Donald Trump Bandaríkjaforseti neitaði því í gær að hafa beðið Rudy Giuliani, persónulegan lögmann sinn, um að fara til Úkraínu í þeim tilgangi að ýta á eftir rannsóknum þar í landi fyrir hönd forsetans.

Trump boðið að mæta fyrir nefndina eftir viku
Formaður dómsmálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur nú boðið Donald Trump forseta að mæta fyrir nefndina þann 4. desember næstkomandi.

Starfsmönnum Hvíta hússins geti verið gert að bera vitni
Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að starfsmenn Hvíta hússins geti verið neyddir til að bera vitni fyrir þingnefndum í tengslum við málarekstur þingsins gegn forsetanum.

Ný gögn sýna fram á samskipti Pompeo og Giuliani
Gögn sem utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur afhent samtökunum American Oversight eftir aðgangsbeiðni þeirra sýna fram á ítrekuð samskipti utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Rudy Giuliani, persónulegs lögmanns Trump.

Vitnisburður síðustu vikna styður ásakanir gegn Trump
Tvær vikur opinberra vitnaleiðslna hafa ekki reynst Hvíta húsinu vel. Umtalsverð sönnunargögn og margir vitnisburðir hafa litið dagsins ljós og skapar það mynd sem erfitt er að draga í efa.

Sammála um að réttarhöldin renni sitt skeið verði Trump ákærður
Háttsettir embættismenn innan Hvíta hússins og öldungardeildarþingmenn Repúblikana eru sagðir vera sammála um það að verði Donald Trump, forseti Bandaríkjana, formlega ákærður fyrir embættisbrot sé æskilegt að réttarhöldunum sem því fylgja verði leyft fram að ganga.

Segir ásakanir um afskipti Úkraínu skáldskap
Fiona Hill, fyrrverandi sérfræðingur Hvíta hússins varðandi Rússlands, skammaði þingmenn Repúblikanaflokksins í upphafsræðu sinni í vitnaleiðslum vegna rannsóknar fulltrúadeildarinnar á meintum embættisbrotum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.

Hefur aldrei barist gegn spillingu í Úkraínu: „Forsetanum er drullusama um Úkraínu“
Bandamenn Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hafa ítrekað haldið því fram að honum sé annt um að berjast gegn kerfisbundinni spillingu í Úkraínu. Með því að halda aftur af tæplega 400 dollara neyðaraðstoð, sem þingið hafði samþykkt, hafi forsetinn verið að kanna vilja yfirvalda Úkraínu til að berjast gegn spillingu. Markmiðið hafi ekki verið að beita Úkraínumenn þrýstingi.

Sagði Trump líklega spilltasta forseta sögunnar
Alls tóku tíu sem sækjast eftir að verða forsetaframbjóðandi bandarískra Demókrata þátt í kappræðum í Atlanta í nótt.

Vitnisburði sendiherrans líkt við tundurskeyti á varnir forsetans
Vitnisburði Gordon Sondland, sendiherra Bandaríkjanna hjá Evrópusambandinu, er líkt við tundurskeyti á varnir Donald Trump, forseta Bandaríkjanna og helstu bandamanna hans gegn rannsókn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á meintum embættisbrotum forsetans.

Tússaðir minnispunktar Trump vekja athygli
Minnispunktar sem tússaðir voru stórum stöfum á minnisblað sem Donald Trump studdist við er hann ávarpaði fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag, á sama tíma og talið er að vitnisburður lykilvitna í dag í rannsókn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á meintum embættisbrotum hans muni koma sér illa fyrir forsetann.

Vann með Giuliani í Úkraínu að skipan Trump
Gordon Sondland, sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Evrópusambandinu, segir að hann, Rudy Guiliani, einkalögmaður Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og aðrir hafi beitt yfirvöld Úkraínu þrýstingi með því markmiði að fá Úkraínumenn til að hefja tvær rannsóknir sem myndu nýtast Trump með pólitískum hætti, vegna þess að Trump hafi skipað þeim að gera það.

Sagði símtalið umdeilda óviðeigandi
Alexander Vindman, meðlimur þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins, segir umdeilt símtal Donald Trump og Volodymir Zelensky, forseta Bandaríkjanna og Úkraínu, hafa verið óviðeigandi. Það hefði ekki verið rétt af Trump að biðja erlendan þjóðarleiðtoga að rannsaka bandarískan borgara og pólitískan andstæðing hans.

Rannsaka hvort Trump hafi logið að Mueller
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings rannsakar nú hvort að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafi logið að rannsakendum í Mueller-rannsókninni svokölluðu.

Bjóða Trump að svara spurningum þingmanna
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, bauð í gær Donald Trump, forseta, að mæta á fund þingmanna og svara spurningum þeirra varðandi rannsókn fulltrúadeildarinnar á mögulegum embættisbrotum forsetans.

Sondland sagðist fara eftir skipunum Trump
Fyrrverandi meðlimur þjóðaröryggisráðs Hvíta hússins viðurkennir að hafa lagt til að hylja gögn um símtal á milli Trump og Zelensky. Þrátt fyrir það sagðist hann ekki hafa heyrt neitt óviðeigandi í símtalinu.

Ætlun Trumps sé að vekja ótta hjá þeim sem hyggjast bera vitni
Opinberar vitnaleiðslur rannsóknar Bandaríkjaþings á mögulegum embættisbrotum Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, standa nú yfir en í dag bar Marie Yovanovitch, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu vitni.

Sendiherra sem var bolað burt ber næst vitni í rannsókn á Trump
Opinber hluti rannsóknar Bandaríkjaþings á mögulegum embættisbrotum Trump forseta heldur áfram með framburði sendiherra sem Trump lét kalla heim í skyndi eftir ófrægingarherferð Rudy Giuliani.

Vitni tengdi Trump við þrýsting á Úkraínu með beinum hætti
Starfandi sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu greindi frá símtali Trump og annars erindreka um rannsóknir á pólitískum andstæðingi Bandaríkjaforseta.

„Allt hvíldi á rannsóknum“
Sérstakur erindreki Donalds Trump Bandaríkjaforseta greindi starfandi sendiherranum í Úkraínu að allt sem úkraínsk stjórnvöld sóttust eftir frá Bandaríkjastjórn hengi á því að þau létu rannsaka pólitíska andstæðinga Trump.

Opinberar vitnaleiðslur í rannsókninni á Trump hefjast í dag
Vitni verða í fyrsta skipti leidd opinberlega fyrir nefndir fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í rannsókn á mögulegum embættisbrotum Trump í dag.

Trump íhugar að reka óháðan eftirlitsmann og starfsmannastjórann
Opinberar vitnaleiðslur í rannsókn Bandaríkjaþings á Trump forseta hefjast í dag. Hann er sagður hafa íhugað að reka óháðan eftirlitsmann sem tilkynnti um kvörtun uppljóstrara sem kom rannsókninni af stað.

Vitnisburður embættismanna gróf undan málsvörn Trump
Varnarmála- og utanríkisembættismenn báru vitni um það þegar Trump Bandaríkjaforseti stöðvaði hernaðaraðstoð til Úkraínu í sumar.

Samstarfsmaður Giuliani segist hafa flutt Úkraínumönnum kröfu hans
Framburður samstarfsmanns Rudy Giuliani, persónulegs lögmanns Trump Bandaríkjaforseta, stangast á við félaga hans, Giuliani sjálfs, og ráðgjafa Úkraínuforseta.

Mulvaney veitti samþykki fyrir fundi gegn því að Biden-feðgar yrðu rannsakaðir
Starfandi starfsmannastjóri Hvíta hússins, Mick Mulvaney, samþykkti að halda skyldi fund á milli Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og Volodimirs Zelenskíj, forseta Úkraínu, í Hvíta húsinu ef og aðeins ef stjórnvöld í Kænugarði hæfu rannsókn á olíufyrirtækinu Burisma.

Sluppu með naumindum við að verða við kröfum Trump
Úkraínumenn sluppu með naumindum við að verða við kröfum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að lýsa opinberlega yfir að þeir ætluðu að hefja rannsókn á pólitískum andstæðingi Trump.