Innlent
268 269 270 271 272 273 274 275 276 … 334 ›
Starfshópur um norðurslóðamál Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í dag ákvörðun sína um að setja á laggirnar starfshóp um norðurslóðamál. Viðfangsefni starfshópsins verða að undirbúa alþjóðlega ráðstefnu um norðurslóðamál í Reykjavík í mars 2007 og leggja fram greinargerð í kjölfar hennar um stefnumið Íslands og forgangsröðun verkefna í norðurslóðastarfi. Innlent 29.8.2006 15:20
Kaupmáttur mun lækka tímabundið Búast má við tímabundinni lækkun kaupmáttar, eignaverðs og fjölgun gjaldþrota þegar um hægist í efnahagslífinu, að mati Greiningar Glitnis. Innlent 29.8.2006 14:11
Minni hagnaður hjá Sorpu Hagnaður Sorpu b.s. nam 11,3 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins sem er rúmlega 35 milljóna króna samdráttur á milli ára. Viðskipti innlent 29.8.2006 14:09
Forstjóraskipti hjá Dagsbrún Gunnar Smári Egilsson hefur látið af störfum sem forstjóri Dagsbrúnar og mun veita nýjum sjóði forstöðu, Dagsbrún Mediafund, sem tekur við uppbyggingu og útgáfu Nyhedsavisen í Danmörku og undirbýr frekari útgáfu fríblaða í öðrum löndum. Árni Pétur Jónsson tekur við starfi forstjóra Dagsbrúnar og gengir því starfi samhliða starfi sínu sem forstjóri Og Vodafone. Innlent 29.8.2006 12:19
Tillaga um flýtingu útboða felld Meirihluti samgöngunefndar Alþingis felldi í morgun tillögu fulltrúa minnihluta þess efnis að ríkisstjórnin dragi nú þegar til baka ákvörðun um að skera niður framkvæmdir á tilgreindum vegaköflum úti á landi og að útboðum verði flýtt til að vinna upp glataðan tíma. Fulltrúar minnihlutans bentu á að vegaáætlun er samþykkt af Alþingi og studd samþykktum fjárlögum og enginn nema Alþingi sjálft geti fellt slíkt úr gildi. Eins og áður segir var tillagan felld með 5 atkvæðum stjórnarþingmanna gegn 4 atkvæðum minnihlutans í samgöngunefnd. Innlent 29.8.2006 11:03
Hagnaður KEA minnkar milli ára Kaupfélag Eyfirðinga (KEA) skilaði 133 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er tæplega 64,8 milljónum minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra. Viðskipti innlent 29.8.2006 10:44
Samfylkingin vill fjölga stúdentaíbúðum Samfylkingin vill að Reykjavíkurborg gangi til viðræðna við byggingafélög námsmanna um uppbyggingu allt að 800 stúdentaíbúða. Innlent 29.8.2006 10:29
Alcan í Straumsvík býður þjóðinni í heimsókn Í tilefni af 40 ára afmæli Alcan í Straumsvík verða dyrnar að álverinu opnaðar almenningi sunnudaginn 3. september. Innlent 29.8.2006 09:58
Verðbólgan næstmest á Íslandi Vísitala neysluverðs mældist 3,1 prósent innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar í júlí. Þetta er 0,1 prósentustigi minna en á sama tíma í fyrra. Verðbólgan er næstmest á Íslandi. Viðskipti innlent 29.8.2006 09:51
Neyðarhjálp úr norðri styrkir elliheimili og grunnskóla í Tékklandi Góðgerðarfélagið "Neyðarhjálp úr norðri" hefur gefið eina milljón króna til elliheimils í bænum Valasske Mexirici og grunnskóla í borginni Vsetin í Tékklandi. Félagið efndi til söfnunar í vor í kjölfar flóða sem urðu í Tékklandi Innlent 29.8.2006 09:43
Tafir á umferð Búast má við töfum á umferð í dag og næstu daga frá kl. 7:30-20:00 á Suðurlandsvegi frá Norðlingaholti upp að Litlu Kaffistofu. Tvístefna verður á annari akrein á köflum en umferð handstýrt annarsstaðar. Innlent 29.8.2006 09:13
Aurflóð féll inn í kjallara Lítið aurflóð féll inn í kjallara húss á Siglufirði um miðnættið í nótt. Ekki er ljóst hversu miklar skemmdirnar eru. Innlent 29.8.2006 08:27
Banaslys á Eiðavegi Ung kona sem lenti í umferðarslysi á Eiðavegi hjá Fossgerði lést í gærkvöldi. Hún var nítján ára. Innlent 29.8.2006 08:26
Tap á rekstri Landsvirkjunar Sex komma fimm milljarða króna tap varð af rekstri Landsvirkjunar á fyrri helmingi þessa árs og skýrist það aðallega af veikingu krónunnar og lánum í erlendri mynt. Innlent 29.8.2006 08:21
Hætta á frekara grjóthruni og aurskriðum í og við Siglufjörð Laust eftir miðnætti kom vatnsflaumur og drulla úr skurði sem fór inn í kjallara húss á Siglufirði. Mikil úrkoma hefur verið s.l. 2 daga og búast má við að hún verði til hádegis á morgun samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu. Innlent 29.8.2006 01:54
Þorgeir Pálsson til Flugstoða ohf. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri hefur ákveðið að taka boði stjórnar Flugstoða ohf. um að verða forstjóri félagsins. Gengið hefur verið frá starfssamningi milli aðila, sem kveður á um að Þorgeir taki við starfinu 1. janúar 2007. Hann mun fram til þess tíma gegna embætti flugmálastjóra, sem hann var skipaður til árið 1992. Innlent 28.8.2006 21:27
Reykjavíkurborg og Strætó BS krefjast skaðabóta Reykjavíkurborg og Strætó bs krefjast skaðabóta frá olíufélögunum upp á 157 milljónir króna vegna samráðs félaganna. Fyrirtaka var í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, þar sem stefnandi og verjendur kröfðust frestunar á málunum tveimur í þrjár vikur sem þeir hyggjast nota til frekari gagnaöflunar. Olíufélögin sem um ræðir eru Esso, Olís og Skeljungur. Innlent 28.8.2006 21:05
Frestun á fyllingu Hálslóns myndi kosta milljarða Frestun á fyllingu Hálslóns, eins og Vinstri grænir leggja til, myndi kosta Landsvirkjun milljarða króna. Steingrímur J. Sigfússon segir það vel sloppið, miðað við milljarðana sem óvandaður undirbúningur hafi kostað. Innlent 28.8.2006 21:00
VG vill að Valgerður segi af sér Formaður Vinstri grænna hvetur Valgerði Sverrisdóttur til að segja af sér ráðherradómi í ljósi þeirrar gagnrýni sem fram hefur komið á þátt hennar í að greinargerð Gríms Björnssonar jarðfræðings var stimpluð sem trúnaðarmál árið 2002. Innlent 28.8.2006 20:55
Hættan innan viðmiðunarmarka Mannvirki Kárahnjúkavirkjunar standast allar kröfur sem til þeirra eru gerðar og hættan sem af þeim stafar er innan viðmiðunarmarka. Þetta kemur fram í endurskoðuðu áhættumati Landsvirkjunar sem kynnt var á stjórnarfundi í dag. Stjórnarmenn eru þó ekki allir sannfærðir um niðurstöðuna. Innlent 28.8.2006 20:54
Smyglaði 300 grömmum af hassi Þrír sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við fíkniefnasmygl fangavarðar á Litla-Hrauni sem handtekinn var á laugardag. Orðrómur er meðal refsifanga á Litla-Hrauni um að fangavörðurinn hafi einnig smyglað farsímum inn í fangelsið. Innlent 28.8.2006 18:39
Alvarlegt umferðarslys á Eiðavegi Alvarlegt umferðarslys varð á Eiðavegi við Fossgerði í nágrenni Egilsstaða skömmu fyrir fimm í dag. Tveir bílar skullu saman og er annar ökumaðurinn alvarlega slasaður. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Egilsstöðum. Innlent 28.8.2006 17:47
Kjalarvogur hagnaðist um 63 milljónir króna Kjalarvogur ehf., dótturfélag Húsasmiðjunnar hf., skilaði 63 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er tæp tvöföldun á milli ára en á sama tíma í fyrra hagnaðist félagið um 35 milljónir króna. Viðskipti innlent 28.8.2006 17:18
Tap hjá Landsvirkjun Landsvirkjun skilaði tæplega 6,5 milljarða króna taprekstri á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 2 milljörðum króna. Tap fyrir skatta nam tæpum 23 milljörðum króna sem er 25 milljarða króna verri afkoma en á sama tíma fyrir ári. Landsvirkjun greiddi í fyrsta skipti skatt af starfsemi sinni á árinu en tapið skýrist af veikingu krónunnar. Viðskipti innlent 28.8.2006 17:03
Nýr samningur milli Íslensku óperunnar og ríkisins undirritaður Nýr samningur var undirritaður í dag milli Íslensku óperunnar og ríkisins um óperustarfsemi. Samningurinn er til fjögurra ára og í honum er miðað við óbreytt framlag úr ríkissjóði og tilkekinn fjölda á uppfærslum óperusýninga. Gert er ráð fyrir auknu samstarfi við aðila á sviði óperulistarinnar. Ráðgert er að setja upp átta meðalstórar óperur í vetur auk einnar barnaóperu. Þá mun Íslenska óperan taka þátt í átta samstarfsverkefnum á gildistíma samningsins sem rennur út í árslok árið 2009. Innlent 28.8.2006 16:56
Lagabreytingin gjörbreytti fjölmiðlaumhverfinu á Íslandi Þorbjörn Broddasson, prófessor í fjölmiðlafræði, segir að tilkoma einkarekinna sjónvarps- og útvarpsstöðva hafi gjörbreytt fjölmiðlamarkaðinum á Íslandi. Hann talar um Siðaskiptin síðari í sögu Íslendinga. Innlent 28.8.2006 16:42
Tap hjá Síldarvinnslunni Síldarvinnslan í Neskaupstað tapaði 204 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði fyrirtækið 728,4 milljóna króna hagnaði. Í uppgjöri Síldarvinnslunnar segir að útlit sé fyrir að rekstur félagsins verði þokkalegur á síðari hluta árs. Viðskipti innlent 28.8.2006 16:36
Vilja afrit af bréfi orkumálastjóra til ráðherra Formaður þingflokks VG hefur óskað eftir því við iðnaðarráðherra að fá í hendur afrit af bréfi eða greinargerð orkumálastjóra til ráðherra í kjölfar skýrslu Gríms Björnssonar um Kárahnjúka árið 2002. Innlent 28.8.2006 15:55
Staðfestir fyrra mat Stjórn Landsvirkjunar lýsir yfir fyllsta trausti á þá starfsmenn Landsvirkjunar og aðra sem hafa unnið að hönnun og byggingu Kárahnjúkavirkjunar og vill fullvissa landsmenn að alls öryggis hafi verið gætt við hönnun og byggingu mannvirkjanna og að engin hætta steðji að íbúum svæðisins. Stjórnin samþykkti á fundi í dag endurskoðað áhættumat vegna Kárahnjúkavirkjunar. Það staðfestir fyrra mat og verður því haldið áfram með framkvæmdina eins og ráðgert var. Innlent 28.8.2006 15:28
Fleiri vilja vinstristjórn 68 prósent þeirra sem þátt taka í nýrri könnun Fréttablaðsins vilja skipta út flokkum í ríkisstjórninni eftir næstu þingkosningar. Fleiri vilja fá vinstristjórn heldur en áframhaldandi hægri stjórn. Innlent 28.8.2006 15:06