Innlent
300 301 302 303 304 305 306 307 308 … 334 ›
RARIK hf. tekur formlega við á morgun Hlutafélagið RARIK hf. tekur formlega við allri starfsemi Rafmagnsveitna ríkisins á morgun, fyrsta ágúst. Á stofnfundi hlutafélagsins í dag var kjörið í fimm manna stjórn og ákveðið ganga til samninga við Tryggja Þór Haraldsson í stöðu forstjóra RARIK hf. Tryggvi Þór hefur verið settur rafmagnsveitustjóri undanfarin misseri. Innlent 31.7.2006 17:52
Jarðhitinn sparar okkur 30 milljarða árlega í hitakostnað Jarðhitinn á Íslandi sparar þjóðarbúinu 30 milljarða árlega í upphitun húsa. Brenna þyrfi 800 þúsund tonnum af jarðeldsneyti á ári, ef kynda ætti allan húsakost landsmanna upp með olíu. Jarðvarminn á Íslandi er þannig jafnvel verðmætari en fólk gerir sér grein fyrir að mati Sigurðar Friðleifssonar hjá Orkusetri. Innlent 31.7.2006 17:42
Leiðsegir fólki um Kárahnúkasvæðið Ómar Ragnarsson fréttamaður segir ferðamenn um Kárahnúkasvæðið marga hverja vera undrandi á umfangi miðlunarlónsins sem senn verður fyllt. Hann mun verja sumarfríi sínu á Kárahnjúkum í sumar til að fræða ferðamenn um svæðið. Innlent 31.7.2006 17:32
Fundur um varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna Næsti fundur samninganefnda Íslands og Bandaríkjanna um varnarsamstarf ríkjanna verður haldinn í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, dagana 3. og 4. ágúst n.k. Albert Jónsson, sendiherra, fer fyrir íslensku samninganefndinni en hún er skipuð fulltrúum úr forsætis-, utanríkis-, fjármála- og dómsmálaráðuneyti. Innlent 31.7.2006 16:11
Fíkniefni finnast á Sauðárkróki Rúmlega tvítugur maður var handtekinn á Sauðárkróki aðfaranótt sunnudags fyrir vörslu fíkniefna. Maðurinn var tekinn í teiti í heimahúsi og fundust á honum rúm sex grömm af hassi og tæplega þrjú grömm af amfetamíni sem hann ætlaði til sölu. Málið telst upplýst. Innlent 31.7.2006 15:14
Umræðufundur um ástandið í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs Ástandið, í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs, verður tekið fyrir á opnum umræðufundi í Valhöll á morgunn. Innlent 31.7.2006 14:46
Malbikunarframkvæmdir á Suðurlandsvegi Malbikunarframkvæmdir hefjast í kvöld á Suðurlandsvegi í Hveradalabrekku. Gert er ráð fyrir að verkið taki einn og hálfan sólarhring og mega vegfarendur búast við umferðartöfum á meðan á því stendur. Innlent 31.7.2006 14:40
Vélarvana bátur úti fyrir Rifi Um klukkan tvö fékk Neyðarlínan tilkynningu um vélarvana bát eina sjómílu norður af Rifi á Snæfellsnesi. Björgunarskipið Björg var komið að bátnum tuttugu mínútum seinna og dró hann í land. Báturinn er 8 metra langur línu- og handfærabátur og var einn maður um borð. Innlent 31.7.2006 14:24
Ingólfur Hartvigsson ráðinn sóknarprestur í Kirkjubæjarklausturprestakalli Ingólfur Hartvigsson hefur verið ráðinn í embætti sóknarprests í Kirkjubæjarklausturprestakalli frá og með 1. ágúst. Innlent 31.7.2006 13:51
Rán í Hafnarfirði Rán var framið um eitt leitið í dag á skrifstofum Bónusvídeó í Hafnarfirði. Tveir menn eru taldir koma við sögu. Einn hefur verið handtekinn en annar komst undan á bíl. Innlent 31.7.2006 13:34
Tónleikar Sigur Rósar í kvikmyndahúsi í London Tónleikar Sigur Rósar á Miklatúni í gærkvöldi voru ekki bara vel sóttir hér á landi heldur var fullt hús í kvikmyndahúsinu National Film Theatre í London þar sem tónleikunum var sjónvarpað beint á kvikmyndatjald. Innlent 31.7.2006 13:12
Sjávarleður skilar hagnaði Fyrirtækið Sjávarleður á Sauðárkróki er farið að skila hagnaði, í fyrsta sinn frá stofnun þess árið 1995 og forsvarsmaður þess segir að reksturinn gangi jafnvel betur nú en í fyrra, þegar gerður var samningur við hinn þekkta íþróttavöruframleiðanda NIKE. Innlent 31.7.2006 13:08
Siv í formann eða varaformann? Spenna fer vaxandi meðal framsóknarmanna fyrir flokksþingið eftir þrjár vikur, vegna óvissu um framboð Sivjar Friðleifsdóttur til formanns eða varaformanns. Innlent 31.7.2006 13:01
Laun stjórnenda fjármálafyrirtækja hækka meira en annarra Laun stjórnenda fjármálafyrirtækja hækka mun meira en laun annarra stjórnenda í þjóðfélaginu, samkvæmt samantekt Frjálsrar verslunar, og höfðu fimm tekjuhæstu mennirnir í þeim flokki á bilinu tíu til tuttugu og tvær milljónir króna á mánuði. Innlent 31.7.2006 12:55
Fimm í haldi í strippbúllustríði Fimm voru handteknir á skemmtistaðnum Bóhem í Reykjavík laust eftir miðnætti í gærkvöldi. Þeir héldu starfsfólki staðarins í gíslingu. Lögreglan auk sérsveitarmanna handtók mennina sem eru enn í haldi. Innlent 31.7.2006 12:06
Borgarráð í viðræðum um hverfislöggæslu Borgarráð hefur samþykkt að taka upp viðræður við dómsmálaráðuneytið og Lögregluna í Reykjavík um að koma á fót sýnilegri hverfislöggæslu í öllum hverfum borgarinnar. Dagur B. Eggertsson segir í yfirlýsingu, sem hann sendi frá sér í dag, að í ljósi þess hversu mikið ofbeldi hefur átt sér stað í miðborginni undanfarið ætti einnig að athuga grundvöll fyrir aukinni miðborgarvakt lögreglu. Innlent 31.7.2006 12:03
Straumur-Burðarás kaupir hlut í ráðgjafafyrirtæki Straumur-Burðarás hefur keypt 50% hlut í breska ráðgjafafyrirtækinu Stamford Partners og gert kaupréttarsamning um annað hlutafé félagsins. Þetta kemur fram í morgunkorni Glitnis. Innlent 31.7.2006 11:44
Bíll alelda Bíll stóð í ljósum logum og mikinn reyk lagði frá honum á Suðurlandsbraut rétt fyrir klukkan tíu í morgun. Slökkviliðið var kallað á svæðið og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Bíllinn var yfirgefinn og ekki á númerum. Ekki er vitað hver upptök eldsins voru. Innlent 31.7.2006 11:23
Um fimmtán þúsund manns á Sigur Rós Lögregla telur að um fimmtán þúsund manns hafi verið á hljómleikum Sigur Rósar og Aminu á Klambratúni, eða Miklatúni í gærkvöldi. Innlent 31.7.2006 09:55
Smáskjálftar út frá Gjögurtá Hrina smáskjálfta varð út frá Gjögurtá, út af austanverðu mynni Eyjafjarðar í gær. Alls mældust 69 skjálftar og voru þeir sterkustu 1,7 á Richter. Jarðvísindamenn á Veðurstofunni segja hrynur sem þessar algengar út af Norðurlandi og að hrinan í gær viti ekki á frekari tíðindi. Innlent 31.7.2006 09:53
Mótmæli við Kárahnjúka Hópur fólks mótmælti virkjanaframkvæmdum við Kárahnjúka í gær með því að fara inn á vinnusvæði og leggjast þar á vegi. Við það stöðaðist umferð. Innlent 31.7.2006 09:44
Húsnæðisveltan dregst saman Húsnæðisveltan á höfuðbörgarsvæðinu dregst enn saman og var aðeins hundrað og fjórum kaupsamningum þinglýst í síðustu viku. Innlent 31.7.2006 09:42
Ekið á sex ára stúlku á reiðhjóli Ekið var á sex ára stúlku á reiðhjóli, á mótum Hofsvallagötu og Hringbrautar, rétt fyrir klukkan níu í morgun. Stúlkan er ekki talin alvarlega slösuð. Hún meiddist þó á vinstri fæti og var flutt á slysadeildina í Fossvogi. Innlent 31.7.2006 09:29
Straumur kaupir ráðgjafa í London Straumur Burðarás hyggst opna útibú í London. Fyrstu skrefin að innkomu á breska markaðinn hafa verið stigin með kaupum á helmingshlut í virtu ráðgjafafyrirtæki. Viðskipti innlent 30.7.2006 23:09
Allur úrgangur endurunninn Moltugerð á Sauðárkróki í tilraunaskyni gaf það góða raun að innan tíðar verður farið að vinna 18 rúmmetra af úrgangi á dag í þremur stórum tromlum. Hlutafélagið Jarðgerð stendur fyrir því að nýta með þessum hætti allan lífrænan úrgang sem til fellur hjá sveitarfélaginu og nágrenni, sem ekki er hægt að nýta í fóðurgerð. Innlent 30.7.2006 20:21
Gætu verið elstu prentuðu bækur landsins Tvær bækur fundust í uppgreftrinum á Skriðuklaustri í einni og sömu gröfinni sem er einsdæmi. Önnur bókanna var hugsanlega prentuð í fyrstu prentsmiðju landsins að Hólum. Margir af helstu fornleifasérfræðingum heims hafa komið hingað til lands að undanförnu til að taka þátt í rannsóknum á þeim munum sem finnast í uppgreftrum fornleifafræðinga víða um land. Innlent 30.7.2006 19:02
Húsfyllir á Belle & Sebastian Góð stemning var á einum mestu tónleikum sem fram hafa farið á Borgarfirði eystra þegar Belle and Sebastian steig á stokk á eftir Emilíönu Torrini. Fólksfjöldi sveitarfélagsins tífaldaðist meðan á tónleikunum stóð. Innlent 30.7.2006 19:04
Laus úr haldi Ingi Tamimi, íslenski drengurinn sem ísraelskir öryggisverðir tóku til yfirheyrslu á flugvellinum í Tel Aviv í morgun, er nú laus. Hann var í rúmar þrettán klukkustundir í gæslu öryggisvarða og fékk hvorki vott né þurrt allan þann tíma. Móðir hans segir að honum hafi verið sleppt nú síðdegis. Síðast þegar fréttist var hann á leið til frænku sinnar, sem býr í Jerúsalem. Ingi er sautján ára. Innlent 30.7.2006 19:04
Fjórar hassplöntur gerðar upptækar Fjórar hassplöntur fundust í heimahúsi í Kópavogi í nótt. Lögreglunni barst tilkynning um hugsanlega fíkniefnaneyslu í íbúðinni og við nánari athugun fundust tæki og tól til fíkniefnaneyslu sem og hassplönturnar fjórar. Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrlsu og plönturnar gerðar upp tækar. Innlent 30.7.2006 12:12
Friðarhlaupi lýkur Hinu alþjóðlega kyndilhlaupi World Harmony Run lýkur í dag. Hlaupnir hafa verið yfir 1500 kílómetrar hringinn í kringum landið. Hlaupararnir hafa lagt mikið á sig við að bera kyndilinn kringum landið. Í morgun hlupu þeir þó ekki heldur syntu yfir sjálfan Hvalfjörðinn. Innlent 30.7.2006 12:44