Innlent Vill ekki eyða ellinni í golfi Stjórn British Petroleum, BP, hefur þrýst á forstjóra félagsins, Browne lávarð, að hann láti sjálfviljugur af störfum árið 2008 þegar hann verður sextugur. Í reglum félagsins er kveðið á um að lykilstjórnendur eigi að láta af störfum við sextugsaldur en það sama gildir ekki um stjórnarmenn eða almenna starfsmenn. Innlent 24.7.2006 21:34 Haglabyssan enn ófundin Haglabyssan sem notuð var við skotárás á raðhús við Burknavelli í Hafnarfirði í síðasta mánuði er enn ófundin, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar þar í bæ. Innlent 24.7.2006 21:34 Búið að fella 27 tarfa Hreindýraveiði hófst 15. júlí síðastliðinn. Átta tarfar voru felldir fyrsta veiðidaginn og þóttu dýrin þokkalega á sig komin. Í gær höfðu 27 tarfar verið felldir. Innlent 24.7.2006 21:34 Fjórar nýjar plöntur í Surtsey Fjórar nýjar háplöntutegundir fundust í leiðangri líffræðinga til Surtseyjar sem farinn var 17. til 20. júlí síðastliðinn á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands og Surtseyjarfélagsins. Innlent 24.7.2006 21:34 Tuttugu ökumenn kærðir Innlent 24.7.2006 21:34 Lögregla handtók þrjá með eiturlyf Þrír menn voru handteknir á Siglufirði á föstudagskvöldið grunaðir um eiturlyfjasölu þar í bæ. Innlent 24.7.2006 21:34 Verktakar gæti eigna NATO Utanríkisráðuneytið hefur auglýst eftir verktökum, fyrir hönd Bandaríkjahers, til að annast viðhald og eftirlit með eignum Atlantshafsbandalagsins á Keflavíkurflugvelli, eftir að herlið Bandaríkjanna fer frá landinu í haust. Þó hefur ekki verið óskað eftir eftirliti með eigum sjálfs herliðsins. Innlent 24.7.2006 21:34 Maður sleginn í rot í Hrísey Innlent 24.7.2006 21:34 Grunuð um að selja fíkniefni Tvennt var handtekið á Akureyri í fyrrinótt, maður á þrítugsaldri og kona rúmlega átján ára, og fíkniefni sem þau höfðu í vörslu sinni gerð upptæk. Lögreglu var gert viðvart rétt fyrir hálf þrjú leytið um nóttina, vegna óláta á gistiheimili í bænum. Næturverði á gistiheimilinu hafði verið hótað líkamsmeiðingum þegar hann reyndi að vísa fjórum gestum út vegna óláta. Innlent 24.7.2006 21:34 Stálu bíómyndum og sælgæti
310 311 312 313 314 315 316 317 318 … 334 ›
Vill ekki eyða ellinni í golfi Stjórn British Petroleum, BP, hefur þrýst á forstjóra félagsins, Browne lávarð, að hann láti sjálfviljugur af störfum árið 2008 þegar hann verður sextugur. Í reglum félagsins er kveðið á um að lykilstjórnendur eigi að láta af störfum við sextugsaldur en það sama gildir ekki um stjórnarmenn eða almenna starfsmenn. Innlent 24.7.2006 21:34
Haglabyssan enn ófundin Haglabyssan sem notuð var við skotárás á raðhús við Burknavelli í Hafnarfirði í síðasta mánuði er enn ófundin, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar þar í bæ. Innlent 24.7.2006 21:34
Búið að fella 27 tarfa Hreindýraveiði hófst 15. júlí síðastliðinn. Átta tarfar voru felldir fyrsta veiðidaginn og þóttu dýrin þokkalega á sig komin. Í gær höfðu 27 tarfar verið felldir. Innlent 24.7.2006 21:34
Fjórar nýjar plöntur í Surtsey Fjórar nýjar háplöntutegundir fundust í leiðangri líffræðinga til Surtseyjar sem farinn var 17. til 20. júlí síðastliðinn á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands og Surtseyjarfélagsins. Innlent 24.7.2006 21:34
Lögregla handtók þrjá með eiturlyf Þrír menn voru handteknir á Siglufirði á föstudagskvöldið grunaðir um eiturlyfjasölu þar í bæ. Innlent 24.7.2006 21:34
Verktakar gæti eigna NATO Utanríkisráðuneytið hefur auglýst eftir verktökum, fyrir hönd Bandaríkjahers, til að annast viðhald og eftirlit með eignum Atlantshafsbandalagsins á Keflavíkurflugvelli, eftir að herlið Bandaríkjanna fer frá landinu í haust. Þó hefur ekki verið óskað eftir eftirliti með eigum sjálfs herliðsins. Innlent 24.7.2006 21:34
Grunuð um að selja fíkniefni Tvennt var handtekið á Akureyri í fyrrinótt, maður á þrítugsaldri og kona rúmlega átján ára, og fíkniefni sem þau höfðu í vörslu sinni gerð upptæk. Lögreglu var gert viðvart rétt fyrir hálf þrjú leytið um nóttina, vegna óláta á gistiheimili í bænum. Næturverði á gistiheimilinu hafði verið hótað líkamsmeiðingum þegar hann reyndi að vísa fjórum gestum út vegna óláta. Innlent 24.7.2006 21:34
Vinnur að nýtingu jarðvarma í Slóvakíu Íslenska orkufyrirtækið Enex vinnur að arðsemismati á jarðvarmavirkjun í Austur-Slóvakíu. Þrjú sveitarfélög í Slóvakíu koma að rannsóknunum. Vonast er eftir jákvæðum niðurstöðum úr rannsóknunum, segir framkvæmdastjóri Enex. Innlent 24.7.2006 21:34
Neytendasamtökin óánægð Neytendasamtökin eru óánægð með viðbrögð ráðherra við hugmyndum matvælaverðsnefndar. Þau segja fulla ástæðu til að velta fyrir sér til hvers þessi nefnd hafi yfir höfuð verið skipuð og telja landbúnaðarráðherra standa í vegi fyrir aðgerðum til lækkunar á matvælaverði. Innlent 24.7.2006 22:32
Milljónatjón af völdum veggjakrots Skemmdir af völdum veggjakrots nema tugum milljóna króna á ári. Borgarstjóri segir að ekki verði lengur við þetta unað og ætla hann að grípa til aðgerða. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur verið í miklum hreingerningum um borgina að undaförnu og segir hann að nú verði veggjakrot ekki liðið lengur. Hann segir íbúa um alla borg þurfa að greiða milljónir í hreinsun á eigum sínum og tekur sem dæmi að kostnaður Orkuveitunnar einnar nemi um 25 milljónum króna á ári. Innlent 24.7.2006 22:21
Myspace lá niðri Bandaríska heimasíðan Myspace lá niðri og var óaðgengileg í hálfan sólarhring í dag eftir að rafmagnslaust varð í höfuðstöðvum netfyrirtækisins vegna mikillar hitabylgju í Kaliforníu. Innlent 24.7.2006 22:20
Á Kayak hringinn í kringum landið Ísraelsk kona lýkur brátt ferð sinni á Kayak hringinn í kringum landið. Hún kom til Reykjavíkur í dag en þetta er í fyrsta skipti sem einstaklingur rær einn síns í liðs í kringum landið á Kayak . Innlent 24.7.2006 20:01
Óvænt heimsókn Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hóf ferð sína um Mið-Austurlönd óvænt í Beirút, höfuðborg Líbanons, í dag. Þar ræddi hún við ráðamenn. Rice heldur síðan til Ísraels. Óvíst er hver árangurinn af ferð hennar verður en ljóst er að stjórnvöld í Washington gera ekki kröfu um vopnahlé strax. Erlent 24.7.2006 19:03
Áttu ekki krónu en keyptu fyrir milljónir Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja átti ekki krónu þegar ákvörðun var tekin um að kaupa Íslensk matvæli fyrir eitthundrað og þrjátíu milljónir. Stofnfjáreigendur félagsins borguðu ekki krónu fyrr en rúmum mánuði seinna og helmingur stofnfjárins skilaði sér aldrei. Innlent 24.7.2006 18:57
Nærri fimm hundruð með endurvinnslutunnu Á fimmta hundrað endurvinnslutunna frá Gámaþjónustunni eru í notkun á höfuðborgarsvæðinu en farið var að bjóða upp á þessa þjónustu í desember. Það sem fer í tunnurnar er ekki grafið í jörð heldur selt til Hollands. Innlent 24.7.2006 18:34
Þrír hafa látist í bifhjólaslysum í ár Þrír hafa látist í bifhjólaslysum á árinu. Mótorhjólalögreglumaður telur aukna vélhjólaeign, vaxandi umferð og slæma vegi eiga sinn þátt í slysunum. Hjólafólk ætlar að hittast á fundi í vikunni og fara yfir umferðaröryggismál. Innlent 24.7.2006 18:31
Létust í umferðarslysum Maður lést af áverkum sínum aðfaranótt sunnudags eftir að hafa orðið fyrir bíl á Strandvegi skammt frá Hólmavík, á laugardagskvöld. Hann hét Þórður Björnsson til heimilis að Skólabraut 5 Seltjarnarnesi. Þórður var fæddur árið 1922. Hann lætur eftir sig sex uppkomin börn. Á sjöunda tímanum í gær lést ungur maður þegar hann missti stjórn á vélhjóli sínu á Suðurlandsvegi við brúnna yfir Eystri- Rangá. Hann hét Birkir Hafberg Jónsson til heimilis að Öldubakka 19 á Hvolsvelli. Birkir var 26 ára gamall, ókvæntur og barnlaus. Innlent 24.7.2006 18:29
Litbyssumenn fremja skemmdarverk Skemmdarverk voru unnin á útivistarsvæðinu í Sólbrekkuskógi við Seltjörn á Reykjanesi um helgina. Búið er að brenna útikamar til kaldra kola, og skjóta úr litboltabyssum á eignir svo litaklessur og taumar eru um allt. Innlent 24.7.2006 17:22
Tafir á flugi Tafir urðu á flugi til og frá landinu um helgina þegar flugumferðastjórar tilkynntu sig veika og enginn fékkst til að koma á aukavakt. Deilan vegna óánægju flugumferðarstjóra með nýtt vaktaplan er enn óleyst. Innlent 24.7.2006 16:39
Gert að sveigja reglur um áhættudreifingu Fyrrverandi stjórnarformaður Byggðastofnunar segir ríkisstjórnina hafa fyrirskipað að sveigja reglurnar um áhættudreifingu, þegar Eignarhaldsfélag Vestmanneyja var keypt. Og endurskoðunarfyrirtækið Deloitte og Touche staðfesti á stofnskjali Eignarhaldsfélagsins að allt stofnfé hefði verið greitt. En helmingur fjárins skilaði sér ekki. Innlent 24.7.2006 15:33
Sænsk ræðisskrifstofa í Húsavík Utanríkisráðuneyti Svíþjóðar hefur ákveðið að stofna sænska ræðisskrifstofu í Húsavík. Þórunn Harðardóttir leiðsögumaður hefur verið skipuð heiðursræðismaður fyrir sveitarfélögin Norðurþing og Akureyri. Útnefning Þórunnar verður kunngerð af sænska sendiherranum Madeleine Ströje Wilkens á Húsavík í dag um leið og Sænskum dögum verður hleypt af stokkunum. Innlent 24.7.2006 15:23
Velta í dagvöruverslun jókst um 5,3 prósent Velta í dagvöruverslun var 5,3 prósentum meiri í júní en á sama tíma í fyrra miðað við fast verðlag. Á hlaupandi verðlagi nam hækkunin 17,5 prósentum á milli ára, samkvæmt útreikningum Rannsóknaseturs verslunarinnar við Bifröst fyrir Samtök verslunar og þjónustu. Viðskipti innlent 24.7.2006 15:14
Kátir biskupar Hólabiskupar til forna voru höfðingjar heim að sækja, miðað við veislusal sem kom úr kafinu, rétt í þann mund sem fornleifafræðingar voru að ljúka uppgrefti á hinu forna biskupssetri þetta sumar. Innlent 24.7.2006 14:50
Áfengissala eykst Velta í dagvöruverslun var fimm komma þremur prósentum meiri í júní síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra, miðað við fast verðlag. Þetta kemur fram í smásöluvísitölu sem reiknuð er af rannsóknarsetri verslunarinnar við Viðskiptaháskólann á Bifröst. Innlent 24.7.2006 14:47
Truflanir á vefþjónustu Truflun verður á vefþjónustu Veðurstofu Íslands vegna vinnu við raflagnir í kvöld klukkan 18:30. Í fréttatilkynningu frá Veðurstofunni segir að ætlunin sé að vinnu verði lokið í síðasta lagi klukkan 22:00 og vefþjónustan verði þá komin í samt horf. Beðist er er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur í för með sér. Innlent 24.7.2006 12:59
Óvíst með nýtingu olíutanka í Helguvík Mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins NATO hafði ný fallist á að íslensk olíufélög fengju afnot af olíumannvirkjunum í Helguvík, til að þurfa ekki að aka öllu flugvélaeldsneyti frá Reykjavík, þegar Varnarliðið tilkynnti um brottför sína og málið fór í uppnám. Innlent 24.7.2006 11:45
Eftirlit verður haft með eignum Varnarliðsins Utanríkisráðuneytið hefur, fyrir hönd Varnarliðsins, auglýst eftir verktökum til að annast viðhald og eftirlit með eignum Atlantshafsbandalagsins á Keflavíkurflugvelli, eftir að Varnarliðið fer í haust. Varnarlilðið sjálft hefur hins vegar ekki óskað eftir eftirliti með sínum eignum. Innlent 24.7.2006 11:36
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent