Leikjavélar

Rockstar eru sekir
Hot Coffee hneykslið hefur náð suðupunkti nú þegar allur vafi hefur verið fjarlægður varðandi það hver ber ábyrgð á kynlífsleikjunum sem uppgötvuðust í GTA: San Andreas. Þetta mál hefur vakið gífurlegt umtal í Bandaríkjunum, enda hafa GTA leikirnir alltaf valdið miklum deilum.

Geist kemur loksins út á GameCube
Draugaleikurinn Geist átti upprunalega að koma út haustið 2004, en líkt og Half Life 2, hefur hann þurft að þola sífelldar frestanir, og margir leikmenn hafa ekki verið sáttir. Núna hefur þróandi leiksins n-Space loksins gefið út fastan útgáfudag, og núna segjast þeir vera búnir að klára leikinn og honum verði ekki frestað lengur.

Legend of Heroes á PSP
Notendur PSP tölvunnar í Bandaríkjunum hafa kvartað mikið yfir skorti á RPG leikjum fyrir vélina, en sú bið er brátt á enda. Tölvuleikjafyrirtækið Bandai hefur tilkynnnt að þeir ætli að gefa út RPG leik í sumar sem á að standast allar kröfur hörðustu aðdáenda RPG leikja.

Netslagurinn er hafinn
Teiknimyndafyrirtækið Marvel Comics hefur tilkynnt að þeir hafi gert samning við Microsoft sem geftur Microsoft einkarétt á öllum Multiplayer Online leikjum sem byggðir eru á persónum í eigu Marvel Comics.

GTA San Andreas aftur í fréttum
Grand Theft Auto serían er komin aftur í fréttirnar, nú fyrir svokallaðan Hot Coffee kóða sem opnar fyrir kynlífsleiki í leiknum. Nú getur Carl heimsótt vinkonur sínar og notið ástarleikja með tilheyrandi stellingum og tækni.

Doom frumsýnd á Íslandi í oktober
Kvikmyndin sem gerð er eftir hinum ofurvinsæla tölvuleik Doom er nú á loka vinnslustigi. Myndin verður frumsýnd 21. október í Bandaríkjunum. Myndin var tekin upp í Prag 2004, leikstýrð af hinum pólska Andrzej Bartkowiak (Romeo Must Die, Exit Wounds).

Sin City sms leikur
Þeir sem vilja eignast miða á hina svakalega flottu Sin City ættu að smella <a title="Smelltu hér til að taka þátt!" href="http://www.btnet.is/myndefni/SMSLeikur/sin/visir/" target="_blank">hér</a> til að fá upplýsingar um hvernig má taka þátt í léttum SMS leik og þar með eiga séns á að næla sér í eins og eitt stykki.

Singstar serían seld í 2 milljónum
Nú hefur SingStar serían selst í meira en 2 milljónum eintaka, og þar með hefur Sony Computer Entertainment Europe (SCEE) náð að koma á markað enn einni vinsælli nýjung fyrir PlayStation 2. Leikurinn er gerður af London Studio, sem er í eigu SCEE, og var SingStar stærsta nýjungin í tölvuleikjageiranum í Evrópu árið 2004, og fetar þar með í fótspor metsöluleikja á borð við EyeToy seríuna (stærsta nýjung árið 2003) og The Getawa (stærsta nýjung árið 2002).

Quake kemur í næstu kynslóð síma
Seinna á þessu ári mun hinn þrælgóði Quake sem gefin var út 1996 mæta í farsíma. Útgáfan sem birtist í farsímum er fyrir næstu kynslóð síma sem ráða við þrívíddarumhverfi.

Max Payne á hvíta tjaldið
Kvikmyndafyrirtækin í Hollywood eru í miklum ham þessa daganna með nýjar tilkynningar fyrir kvikmyndum sem eru framleiddar eftir tölvuleikjum. Nýjasta fregnin úr borg englanna er sú að 20th Century Fox hefur hafið samstarf við Collision Entertainment til að gera mynd eftir hinum frábæra Max Payne sem kom út árið 2001.

Nintendo selja milljón DS í Evrópu
Nintendo hefur nú selt milljón DS vélar í Evrópu samkvæmt nýjustu tölum frá fyrirtækinu. 250.000 stykki hafa selst eingöngu í Bretlandi. Nintendo fór ágætlega af stað með 500.000 seld eintök á fyrstu þrem sölumánuðunum.

BF2 tætir upp söluna á Íslandi
Battlefield 2 kom í verslanir núna fyrir helgina og hreinlega rauk úr hillunum enda beðið með mikilli eftirvæntingu. Í samtali við Óla í Senu sem flytur leikinn inn. Fóru öll tvöþúsund stykkin sem komu til landsins í verslanir. Fjögur hundruð stykki voru í boði í forsölu en rúmlega þúsund stykki voru seld á fyrstu tveim dögum sem telst virkilega gott hérna á Íslandi.

Frír War Of The Worlds netleikur
kvikmyndin War Of The Worlds verður frumsýnd á næstunni hér á landi. Þeir sem vilja gíra sig upp fyrir myndina geta spilað netleiki á heimasíðu myndarinnar. Slóðin er <a href="http://www.waroftheworlds.com/">www.waroftheworlds.com</a>

Kvikmyndir fyrir PSP vinsælar
Sala á kvikmyndum fyrir Sony PSP handtölvuna fer vel af stað í Bandaríkjunum. Myndirnar sem eru á sérstökum UMD diskum hafa náð vel yfir 200.000 í sölu og reikna má með að salan sé komin í hálfa milljón stykkja.

Foreldrar taka ekki mark á ELSPA
Samkvæmt nýlegri rannsókn sem Svissneska fyrirtækið Modulum gerði fyrir ELSPA sýnir að foreldrar taka ekki mark á merkingum sem banna leiki. Foreldrar eru meðvitaðir um merkingarnar en nota þær frekar til hliðsjónar en ekki sem viðvörun um innihald leikja sem eru bannaðir börnum.

Vangaveltur um útgáfudag PS3
Sony hefur ekki gefið fasta dagsetningu hvenær Playstation 3 kemur á markað í Evrópu. Forstjóri Sony Computer Entertainment Europe, David Reeves sagði að fólk gæti orðið fyrir óvæntum glaðning.

Þingmaður reynir að banna leik
Öldungadeildar þingmaðurinn Charles Schumer frá New York er að reyna að banna leikinn 25 To Life frá Eidos Interactive. Schumer segir leikinn lækka siðgæðismörkin með því að spilarar geti drepið lögreglumenn í leiknum og notað vegfarendur sem mannlega skildi.

Silent Hill á hvíta tjaldið
Leikjaserían Silent Hill hefur hrætt margan spilaran í gegnum tíðina enda mikil hrollvekja þar á ferð. Nú hefur Hollywood tekið við sér og er fyrsta Silent Hill kvikmyndin í framleiðslu.

Fyrsta Singstar keppnin haldin
Á fimmtudaginn 16. júní var fyrsta Singstar keppnin haldin á veitingastaðnum Glaumbar. Færri komust að en vildu og myndaðist góð stemming í salnum þegar keppnin hófst. Jafnt kynjahlutfall var í keppendahópnum og voru rokklög vinsæl hjá keppendum.

Agent 47 mætir til Hollywood
Kvikmyndaútfærsla er nú í bígerð af Hitman seríunni vinsælu sem er framleidd af Eidos Interactive. 20th Century Fox mun framleiða myndina sem mun koma hinum sterka Agent 47 upp á hvíta tjaldið.

EA og BTNet semja um BF2 netþjóna
Eins og kom fram í frétt hér á Geim í gær mun BTNet hýsa "Official" leikjaþjónum fyrir Battlefield 2 Electronic Arts og BTNet hafa undirritað samkomulag þess efnis að BTNet setji upp og reki 2 “officially ranked” leikjaþjóna sem rúma 64 leikmenn hvor. Leikjaþjónarnir munu keyra á besta mögulega vélbúnaði frá HP sem nauðsynlegur er til að keyra leiki á borð við Battlefield 2. BTNet kaus að nota HP Proliant ML350 netþjón til að uppfylla kröfur sem spilarar gera til hraðvirkni og öryggi.

Destroy All Humans með hörkudóm
Destroy all Humans! leikurinn frá THQ fær 9 af 10 og “Silver Award” í Official Playstation 2 Magazine

BTnet með "Official" BF2 netþjón
Geim hefur eftir heimildarmönnum sínum að BTnet muni vera með "Official" leikjaþjón fyrir Battlefield 2

Hlutverkaspilari dæmdur fyrir morð
Í Kína eru hlutverkaleikir að verða gríðarlega vinsælir og sumir spilarar taka leikina aðeins of alvarlega. Rifrildi um eignarhald á sverði í tölvuleik leiddi til þess að einn leikmaður stakk annan til bana.

GTA SA mættur á Xbox og PC
Einn vinsælasti og umdeildasti leikur síðasta árs er nú loks kominn út á PC og Xbox. Grand Theft Auto gerði allt vitlaust hjá Íslenskum PS2 spilurum með 7000 seldum eintökum. PC og Xbox útgáfurnar bjóða upp á flottari grafík og fleiri spilunar möguleika.

Destroy All Humans Mini-Leikur
THQ fyrirtækið sett upp mini leik fyrir PlayStation 2 leikinn, Destroy All Humans, sem er væntanlegur á næstu vikum. Í leiknum fara leikmenn í hlutverk geimveru sem hefur það markmið eitt að rústa jörðinni og íbúum hennar.

John Terry í Pro Evolution Soccer
John Terry, leikmaður Chelsea og enska landsliðsins verður einn af þeim leikmönnum sem munu styðja og kynna nýjasta leikinn í Pro Evolution Soccer seríunni frá Konami.

Stórstjörnur í Batman leiknum
Electronic Arts og Warner Bros. Interactive Entertainment hafa tilkynnt að stórstjörnur myndarinnar Batman Begins muni taka þátt í gerð leiksins. Leikurinn mun innihalda raddir og andlit Christian Bale (Bruce Wayne/Batman), Michael Caine (Alfred Pennyworth), Liam Neeson (Henri Ducard), Katie Holmes (Rachel Dawes), Cillian Murphy (Dr. Jonathan Crane), Tom Wilkinson (Carmine Falcone) og Morgan Freeman (Lucius Fox), en öll munu þau leika þær persónur sem þau léku í myndinni sem er væntanleg 17.júní og er leikstýrt af Christopher Nolan.

Cold Winter kominn út
Vivendi Universal Games (VU Games) hafa gefið út hinn grófa og harða fyrstu-persónu skotleik Cold Winter . Leikurinn er gerður aðeins fyrir PlayStation 2, en þessi spennandi fyrstu-persónu skotleikur er spennutryllir sem gerist í nútímanum og inniheldur öflugan söguþráð þar sem fjallað er um heim njósnara.

GTA LIBERTY CITY STORIES
Rockstar fyrirtækið, sem framleitt hefur Grand Theft Auto leikina, hefur tilkynnt um útgáfu á nýjum Grand Theft Auto leik fyrir nýju PSP leikjavélina frá Sony Computer. Leikurinn mun verða gefinn út 1.september eða sama dag og PSP tölvan verður gefin út í Evrópu.