Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
184 185 186 187 188 189 190 191 192 … 334 ›
Fyrsti sjúklingurinn sem lagður er inn á sjúkrahús vegna Covid-19 Í fyrsta sinn frá upphafi heimsfaraldurs kórónuveirunnar hefur nú þurft að leggja Covid-smitaðan einstakling inn á sjúkrahús á Grænlandi. Landlæknir Grænlands segir ástand sjúklingsins ekki vera alvarlegt, heldur sé um að ræða varúðarráðstöfun vegna undirliggjandi sjúkdóms viðkomandi. Erlent 3.1.2021 14:23
Larry King á sjúkrahúsi vegna Covid-19 Bandaríski sjónvarpsmaðurinn Larry King, hefur greinst með kórónuveiruna og hefur verið lagður in á sjúkrahús í Los Angeles. Bandarískir fjölmiðlar hafa eftir heimildarmönnum að hinn 87 ára King hafi verið lagður inn á Cedars-Sinai Medical Centre vegna einkenna Covid-19 fyrir rúmri viku. Erlent 3.1.2021 13:02
Telur líklegt að búið verði að bólusetja meirihluta þjóðarinnar á fyrri helmingi árs Líklegt er að búið verði að bólusetja meirihluta þjóðarinnar á fyrri helmingi árs. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sem telur það hafa verið rétt ákvörðun að fylgja Evrópusambandinu í bóluefnamálum. Innlent 3.1.2021 13:01
65 prósent Íslendinga segja öruggt að þeir muni þiggja bólusetningu Hátt í 92 prósent Íslendinga segja líklegt að þeir muni þiggja bólusetningu gegn covid-19. Ríflega 5 prósent segja það ólíklegt og um 3 prósent segja það hvorkilíklegt né ólíklegt. Þetta eru niðurstöður nýs þjóðarpúls Gallup. Af þeim sem sögðu ekki líklegt að þeir myndu þiggja bólusetningu sögðu flestir ástæðuna vera að þeir vildu bíða eftir að komin væri meiri reynsla á bólusetninguna og mögulegar aukaverkanir. Innlent 3.1.2021 12:31
Segir bólusetninguna hafa gríðarlega þýðingu fyrir bráðamóttökuna Yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans segir það mjög ánægjulegt og hafa gríðarlega þýðingu fyrir deildina að byrjað sé að bólusetja starfsmenn. Hann segir starfsmenn varla hafa fundið fyrir nokkrum aukaverkunum af fyrri bólusetningunni. Innlent 3.1.2021 12:31
„Það kemur margt gott út úr Covid,“ segir Elliði bæjarstjóri Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi segir að Íslendingar hafi lært mikið af Covid og að heimsfaraldurinn hafi kennt þjóðinni margt. Innlent 3.1.2021 12:30
Fleiri leikmenn á Englandi í vandræðum: Mendy hélt nýárspartí Manchester City segir í yfirlýsingu sinni að þeir séu vonsviknir með framkomu varnarmannsins Benjamin Mendy en hann hélt nýárspartí, þrátt fyrir strangar reglur í Englandi. Enski boltinn 3.1.2021 12:01
„Óhjákvæmilegt“ að margir greinist á landamærum Fjórir greindust með covid-19 innanlands í gær og þar af voru allir í sóttkví. Mun fleiri, eða alls fjórtán greindust á landamærum. Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörnum segir fjölda smitaðra sem greindust á landamærum ekki koma á óvart, enda séu margir að snúa heim eftir að hafa varið jólunum í útlöndum. Innlent 3.1.2021 11:38
Fjögur smit innanlands og fjórtán á landamærum Fjórir greindust með covid-19 innanlands í gær og voru allir í sóttkví. Vel yfir þúsund sýni voru tekin innanlands í gær. Mun fleiri, eða alls fjórtán greindust á landamærum. Þetta staðfestir Rögnvaldur Ólafsson yfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu. Innlent 3.1.2021 11:03
Braut reglurnar viljandi til að leyfa viðskiptavinum að skipta jólagjöfum Fataverslunin Laura Thomsen Luxury í Silkeborg í Danmörku var opnuð í gær svo viðskiptavinir gætu skipt og skilað jólagjöfum. Þetta gerðu eigendur verslunarinnar, þrátt fyrir núgildandi reglur danskra stjórnvalda vegna sóttvarnaaðgerða sem kveða á um að verslanir skuli vera lokaðar til að minnsta kosti 17. janúar. Viðskipti erlent 3.1.2021 10:43
Áskoranir á nýju ári Nýtt ár er runnið upp með fyrirheitum og vonum um batnandi tíð. Við blasir að kveða niður veiruna með fjöldabólusetningum og koma atvinnulífinu í fullan gang. Skoðun 3.1.2021 10:01
Forstjóri almannavarna Svíþjóðar taldi jólaferð til Kanaríeyja nauðsynlega Dan Eliasson, framkvæmdastjóri almannavarna í Svíþjóð, hefur verið harðlega gagnrýndur í heimalandinu fyrir ferð sína til Las Palmas um jólin. Sjálfur segir hann ferðina hafa verið nauðsynlega. Erlent 2.1.2021 20:18
Hvergi fleiri verið bólusettir en í Ísrael Hlutfallslega hafa hvergi verið eins margir bólusettir gegn covid-19 en í Ísrael þar sem um 12% þjóðarinnar hefur þegar fengið fyrsta skammt bóluefnis. Rúmlega milljón íbúar hafa þegar verið bólusettir eða sem jafngildir 11,55 íbúum af hverjum hundrað. Það er sem stendur hæsta hlutfall bólusettra íbúa á heimsvísu samkvæmt frétt BBC. Erlent 2.1.2021 14:16
Bólusetti kærastann og fékk bónorð í leiðinni Robby Vargas-Cortes, sem starfar sem yfirmaður sjúkraflutninga, kom kærasta sínum, hjúkrunarfræðinginum Eric Vanderlee, heldur betur á óvart þegar hann mætti til hans til að fá bóluefni gegn covid-19. Vargas-Cortes mætti í bólusetningu á Þorláksmessu til Vanderlee, sem starfar sem hjúkrunarfræðingur í Canton í Suður-Dakóta í Bandaríkjunum. Erlent 2.1.2021 13:04
Frestað hjá Fulham og Burnley Leik Fulham og Burnley í ensku úrvalsdeildinni, sem átti að fara fram á morgun, hefur verið frestað vegna kórónuveirusmita í herbúðum Fulham. Enski boltinn 2.1.2021 12:23
„Hillir undir það að þetta muni klárast“ Þótt það hilli undir endalok kórónuveirufaraldursins með tilkomu bóluefnis er mikilvægt að sýna þolinmæði. Þetta segir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Áfram sé mikilvægt að fara varlega til að koma í veg fyrir að veiran fari á flug. Hann segir að almennt virðist hafa gengið vel að hefta útbreiðslu veirunnar um jólin. Innlent 2.1.2021 12:12
Bóluefni Moderna verði samþykkt í Evrópu á mánudaginn Richard Bergström, bóluefnastjóri Svíþjóðar, segir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins muni veita samþykki fyrir bóluefni Moderna gegn covid-19 á mánudaginn og að fyrstu skammtarnir verði komnir til Svíþjóðar innan tveggja vikna að því er SVT greinir frá. Ísland hefur gert samning um kaup á 128 þúsund skömmtum af bóluefni frá Moderna, í gegnum Svíþjóð, en það ætti að duga til að bólusetja 64 þúsund manns á Íslandi. Erlent 2.1.2021 11:56
Enginn greindist með veiruna í gær Enginn greindist með covid-19 innanlands síðasta sólarhringinn enda var engin skipulögð sýnataka í gær, nýársdag. Enginn greindist heldur með veiruna á landamærum samkvæmt bráðabirgðatölum. Viðbúið er að nýjar tölur yfir fjölda smitaðra muni liggja fyrir á morgun. Innlent 2.1.2021 10:56
Fór í frí og kom til baka kórónuveirusmitaður Nígeríski framherjinn Victor Osimhen leikur með Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni. Hann hefur nú greinst með kórónuveiruna. Fótbolti 2.1.2021 09:31
BioNTech í kapphlaupi til að fylla upp í ESB-gatið Stjórnendur þýska lyfjafyrirtækisins BioNTech gagnrýna Evrópusambandið fyrir seinagang í pöntunum á bóluefni fyrirtækisins og Pfizer. Þeir segja fyrirtækin nú leggja allt kapp á að auka framleiðsluna til að brúa bilið sem seinagangurinn, og of mikið traust ESB til annarra framleiðenda, hafi búið til. Erlent 1.1.2021 21:06
„Bara smá tilfinning og búið“ Stefán Þorleifsson, 104 ára og elsti núlifandi karlmaður á Íslandi, var bólusettur fyrir kórónuveirunni í Neskaupstað fyrr í vikunni. Hann segir sprautuna ekki hafa verið neitt mál og hefur ekki fundið fyrir eftirköstum. Innlent 1.1.2021 20:31
Vísbendingar um að fólk hafi verið að gleyma sér Yfirlögregluþjónn segir annríki hjá lögreglu og á bráðamóttöku í nótt áhyggjuefni þegar kemur að útbreiðslu kórónuveirunnar. Það gefi vísbendingu um að fólk hafi aðeins verið að gleyma sér sem gæti skilað sér í að fleiri smitist af veirunni. Innlent 1.1.2021 19:30
Hópamyndun við Hallgrímskirkju í nótt tilkynnt til lögreglu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um hópamyndun við Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti í Reykjavík um klukkan eitt í nótt. Innlent 1.1.2021 14:02
Koma þarf bóluefni til landsins með öllum tiltækum ráðum Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir að koma þurfi bóluefni gegn kórónuveirunni hingað til lans með öllum tiltækum ráðum. Þetta sagði hann í nýársávarpi sínu til þjóðarinnar. Innlent 1.1.2021 13:40
Ekki heyrt af stórum brotum á samkomutakmörkunum í gærkvöldi Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, segist ekki vita til þess að í gærkvöldi hafi verið mikið um brot á samkomutakmörkunum. Innlent 1.1.2021 12:01
Þrír greindust innanlands Þrír greindust með kórónuveiruna hér á landi í gær, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavörnum. Tveir hinna smituðu voru í sóttkví. Þá greindust þrír á landamærunum. Innlent 1.1.2021 11:17
Handtekinn grunaður um að spilla bóluefni viljandi Lyfjafræðingur í Wisconsin í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn fyrir að eyðileggja hundruð skammta af bóluefni Moderna við Covid-19, með því að geyma þá við stofuhita í tvær nætur. Erlent 1.1.2021 10:40
„Við förum bara þegar þú kemur næst“ Ragnar Axelsson ljósmyndari hitti fyrst Halldór Agnar Jónasson á sjúkrahúsinu á Akureyri. Halldór, betur þekktur sem Dóri, var þá með Covid-19 og barðist fyrir lífi sínu. Hann sagði við RAX að hann hafði valið að fara ekki í öndunarvél, taldi að hann myndi ekki lifa það af. Menning 1.1.2021 07:00
„Íslenskir stjórnmálamenn ákváðu að láta faraldurinn ekki snúast um sig“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra óskaði landsmönnum öllum ljóss og friðar á nýju ári sem nú fer í hönd í áramótaávarpi sínu í kvöld. Hún stiklaði á stóru yfir fordæmalaust ár, litað af heimsfaraldri, og kvað það „heilbrigðismerki“ að stjórnmálamenn á Íslandi hefðu ekki látið faraldurinn snúast um sig. Innlent 31.12.2020 20:16
Þórólfur Guðnason valinn maður ársins Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er maður ársins að mati fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Margir voru um hituna á viðburðaríku ári en tilkynnt var um valið í þættinum Kryddsíld í dag, þar sem árið 2020 er gert upp. Innlent 31.12.2020 15:21