Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Lögreglumaður á höfuðborgarsvæðinu greindur með Covid-19
Þrettán lögreglumenn hafa verið sendir í sóttkví vegna þessa.

Andstyggðarvandi
Það fara fáir ef nokkrir í gegnum lífið án þess að standa frammi fyrir margs konar vanda.

Faraldurinn nær nýjum hæðum á heimsvísu
Heimsfaraldur nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19, hefur náð nýjum hæðum víða um heim. Svo virðist sem að smituðum fari fjölgandi víða en Johns Hopkins háskólinn segir 19,1 milljón manna nú hafa smitast.

Betra að vinna ekki þegar að við eigum að vera í fríi
Hvíld frá vinnu er allra hagur en eins sýna rannsóknir að það getur haft áhrif á viðhorf okkar til vinnunnar og vinnustaðarins ef við vinnum mikið þegar við eigum að vera í fríi.

Ellefu sektir fyrir brot á sóttvarnareglum
Alls hafa ellefu fengið sekt fyrir brot á sóttvarnareglum á þessu ári. Lögregla hefur fengið 31 slíkt inn á sitt borð.

Fámenn kertafleytingarathöfn sýnd á netinu
Sjötíu og fimm ár eru liðin í dag frá því að Bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengju á japönsku borgina Híróshíma.

„Ástæðan fyrir því að Covid er komið aftur“
Almannavarnir hafa fengið fjölda tilkynninga frá áhyggjufullum borgurum sem kvarta undan samferðafólki sem fer ekki eftir tveggja metra reglunni. Svo virðist sem fólk hafi gleymt sér um stund en sé að gera sér grein fyrir alvörunni nú þegar smituðum fjölgar.

Endurskoða orðalag tveggja metra reglunnar í fyrramálið
Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir eðlilegt að fólk sem hittist reglulega hafi minna en tveggja metra fjarlægð á milli sín.

Skólastjórnendur útfæra skólahald: Áhersla lögð á móttöku nýnema
Útlit er fyrir að kennsla í framhalds- og háskólum verði að stórum hluta með rafrænum hætti í vetur. Rektor Háskóla Íslands leggur áherslu á aukinn fjárstuðning frá ríkinu ef breyttu skólahaldi fylgir aukinn kostnaður.

Dætur sóttvarnasérfræðings hafa orðið fyrir áreiti
Anthony Fauci, helsti sóttvarnasérfræðingur Bandaríkjastjórnar, segir að dætur hans hafi orðið fyrir áreitni gagnrýnenda hans. Hann segist hafa þurft að ráða sé öryggisverði til að gæta fjölskyldunnar eftir að honum bárust líflátshótanir.

Þórólfur hefði viljað draga úr aðgengi ferðamanna að landinu hefði Íslensk erfðagreining ekki komið til hjálpar
Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir stöðu faraldursins ógnvekjandi.

Ísland yfir mörkum en fer samt ekki á rauða lista Norðmanna
Þrátt fyrir að nýgengi kórónuveirusmita hér á landi sé yfir mörkum sem Norðmenn miða við verður Ísland ekki á rauðum lista ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirunnar. Íslendingar munu því ekki þurfa að fara í 10 daga sóttkví við komuna til gömlu herraþjóðarinnar.

Veikindi Víðis reyndust ekki vera Covid
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn sótti ekki upplýsingafund almannavarna í dag vegna veikinda.

Fjórfalt fleiri farþegar milli mánaða en 87 prósent færri en í fyrra
Þó svo að farþegaflutningar Icelandair í nýliðnum júlímánuði hafi dregist saman milli ára jukust þeir engu að síður umtalsvert milli mánaða, ef marka má mánaðarlegar flutningatölur félagsins.

Orðalagið „kannski ekki alveg nógu heppilegt“
Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að orðalagið sem notað er í útlistun á tveggja metra reglunni í auglýsingu heilbrigðisráðuneytisins sé ef til vill ekki nógu heppilegt.

Íslensk erfðagreining léttir álagið við landamæraskimun
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggur til við ráðherra að skimun á landamærunum við kórónuveirunni haldi áfram.

Ítalir hóta að banna Ryanair vegna meintra brota á sóttvarnareglum
Ítölsk flugmálayfirvöld, ENAC, hafa hótað að banna flugvélum Ryanair að fljúga um ítalska lofthelgi og segja írska flugfélagið þráast við að fylgja reglum sem settar voru til að takast á við faraldur kórónuveirunnar.

Svona var 96. upplýsingafundur almannavarna
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boðuðu til upplýsingafundar fyrir fjölmiðla klukkan 14 í dag í húsakynnum landlæknisembættisins að Katrínartúni í Reykjavík.

COVID-19: Afleiðingarnar alvarlegri en sjúkdómurinn fyrir börn
Þótt börn séu ekki mörg meðal þeirra rúmlega 700 þúsund einstaklinga sem látist hafa af völdum COVID-19 deyja þúsundir barna vegna óbeinna afleiðinga faraldursins og milljónir barna eru í lífshættu, einkum vegna vannæringar í fátækjum ríkjum.

Ritstjórn DV send heim eftir kórónuveirusmit
Ritstjórn DV, að frátöldum einum starfsmanni, hefur verið gert að sæta sóttkví eftir að upp kom smit á ritstjórninni.

Lögreglumenn sem sinntu hálendiseftirliti komnir í sóttkví
Lögreglumennirnir voru við hálendiseftirlit norðan Vatnajökuls.

Útlit fyrir að kennsla verði að stórum hluta rafræn í vetur
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, telur líklegt að fjarkennsla verði við skólann í haust miðað við aðstæður í dag. Ólíklegt sé að engin fjarkennsla verði við skólann í vetur.

Sóttvarnastofnun varar við neyslu handsótthreinsis
Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) hefur gefið frá sér sérstaka viðvörun um hættur þess að drekka handsótthreinsi.

„Ef fjarlægðartakmörkunum er viðhaldið eru grímur í raun belti með axlaböndum“
Ávinningur er af því að nota grímur út í samfélaginu ef grímurnar eru rétt notaðar en ef fjarlægðartakmörkunum er viðhaldið eru grímur í raun belti með axlaböndum að sögn Jóns Magnúsar Jóhannessonar deildarlæknis á Landspítalanum.

Fjórir greindust með veiruna innanlands
Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, tveir á sýkla- og veirufræðideild Landspítala og tveir í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Þitt eigið flugsæta-áklæði
Í kjölfar kórónufaraldurs: Mun fólk nota sín eigin áklæði í flugi, í bíó eða leikhúsum?

Hertar aðgerðir í Norður-Kóreu vekja áhyggjur um faraldur
Einræðisstjórn Norður-Kóreu hefur sett þúsundir íbúa í sóttkví og flutt matvæli til borgar sem hefur verið lokað vegna áhyggja af útbreiðslu Covid-19 þar.

Góðar viðtökur við samstarfi Hinsegin daga og Kauphallarinnar
Magnús Harðarson forstjóri Kauphallarinnar segir íslenskt atvinnulíf áhugasamt um þær leiðbeiningar sem gefnar verða út í haust í samstarfi Kauphallar, Hinsegin daganna og Samtakanna 78. Leiðbeiningunum er ætlað að nýtast bæði fyrirtækjum og stofnunum.

Samfélagsmiðlar slá á fingur Trump
Samfélagsmiðlarnir Facebook og Twitter hafa ávítt Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, fyrir að dreifa lygum á miðlunum en málið varðar viðtal sem Fox-sjónvarpsstöðin tók við Trump þar sem hann fullyrðir að börn séu næstum ónæm fyrir kórónuveirunni.

Fráleit hugmynd að hverfa frá sóttvarnaraðgerðum
Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdóma á Landspítalanum, segir ljóst að samfélagið sé að glíma við alvarlegan veirusjúkdóm.