Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Smári og Kári karpa: Mannskaðanálgun við rekstur samfélagsins
Smári McCarthy telur samskiptin við Íslenska erfðagreiningu opinbera grafalvarlega bresti í samfélagsgerðinni.

Ekkert vandamál að ná í ferðamennina sem eru með veiruna
Vel hefur gengið að ná í ferðamenn sem fá jákvæða niðurstöðu úr skimun við landamærin.

„Augljós sóun á almannafé“ að Landspítalinn verji milljörðum í skimanir
Yfirlæknir á Covid-göngudeild Landspítalans telur óþarfi að skima erlenda ferðamenn og segir að mestur árangur næðist með stuttri sóttkví og skimun að henni lokinni.

Kári fór á fund Katrínar í morgun
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar kom á fund Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Stjórnarráðinu skömmu fyrir klukkan ellefu í morgun.

Faraldurinn hafði áhrif á allan tónlistariðnaðinn
Skýrsla um áhrif Covid-19 á íslenskan tónlistariðnað kom út á dögunum.

Lýsir undrun og furðu eftir að hafa sótt um lækkun en fengið hækkun
Jón Gunnar Benjamínsson, eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Iceland Unlimited, telur að vinnubrögð Ferðamálastofu við útreikninga á upphæð tryggingar sem fyrirtæki hans þarf að reiða af hendi séu bæði „forkastanleg“ og „fáránleg“.

Fjölgar um fjóra í einangrun
Sjö greindust með kórónuveiruna við landamærin síðasta sólarhringinn.

Serbneskir mótmælendur brjótast inn í þinghúsið vegna fyrirhugaðs útgöngubanns
Hópur stuðningsmanna stjórnarandstöðunnar braust inn í serbneska þinghúsið í Belgrad í kvöld. Hópurinn var að mótmæla útgöngubanni í höfuðborginni sem tekur í gildi um næstu helgi til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar.

Mikil óvissa meðal nemenda sem stefna á nám í útlöndum
Stjórnarmaður í Sambandi íslenskra námsmanna erlendis ráðleggur fólki að fara ekki út í nám nema tryggt sé að skólarnir taki á móti nemendum. Námsmaður sem stundar nám í Bandaríkjunum segir mikla óvissu einkenna næsta skólaár og óvíst hvort hann kemst aftur út í haust.

Bandaríkin tilkynna WHO um úrsögn sína
Ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur tilkynnt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) formlega um úrsögn sína.

Mikill samdráttur í ferðaþjónustu í borginni
Farþegafjöldi á Keflavíkurflugvelli dróst saman um 96% í júní samanborið við sama tíma í fyrra. Samdrátturinn hefur haft gríðarleg áhrif á ýmsa ferðamannatengda afþreyingu í borginni allt niður í 95% samdrátt.

Gæti þurft að takmarka fjölda farþega
Sýkla- og veirufræðideild Landspítalans tekur alfarið yfir töku og greiningu sýna á landamærum Íslands eftir helgi. Forstjóri spítalans segir að dæmið ætti að geta gengið upp með breyttum vinnubrögðum.

Landspítalinn ætti að ráða við verkefnið
Með því að sameina sýni verður hægt að greina fleiri hjá sýkla- og veirufræðadeild Landspítalans strax eftir helgi.

WHO viðurkennir möguleika á að smit berist með lofti
Opið bréf hóps vísindamanna hefur orðið Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) tilefni til að viðurkenna að frekari vísbendingar komi nú fram um að nýtt afbrigði kórónuveiru gæti smitast með lofti.

Hótel Saga óskar eftir greiðsluskjóli
Hótel Saga hefur bæst í hóp þeirra ferðaþjónustufyrirtækja sem hafa sótt um greiðsluskjól á síðustu dögum og vikum.

Forseti Brasilíu með kórónuveiruna
Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, hefur greinst með kórónuveiruna.

Enginn skriflegur samningur heldur handsalað samkomulag
Enginn skriflegur samningur var gerður milli Íslenskrar erfðagreiningar og stjórnvalda um skimun fyrir kórónuveirunni. Það þykir óvenjulegt en ekki var endilega tilefni til samningsgerðar – og það jafnframt ekki staðið til boða.

Svona væri hægt að bregðast við ákvörðun Kára
Stefnt er að því að halda skimun óbreyttri út júlímánuð. Eftir að Íslensk erfðagreining tilkynnti að fyrirtækið myndi ekki taka þátt í skimun þarf að leita annarra leiða.

Allur heimurinn að sækjast eftir sömu tækjunum
Mikil eftirspurn á heimsvísu eftir nýjum tækjum til skimunar veldur því að Landspítalinn er á biðlista eftir slíkum tækjum. Sóttvarnarlæknir segir afkastagetu sýkla- og veirufræðudeild Landspítala vera brotalöm í viðbúnaði Íslands gegn heimsfaraldri.

Stefna á óbreytta skimun út júlímánuð: „Íslenskt samfélag stendur í þakkarskuld við Íslenska erfðagreiningu“
Þórólfur Guðnason þakkaði Íslenskri erfðagreiningu fyrir sinn þátt í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn hér á landi á upplýsingafundi almannavarna í dag.

Svona var 83. upplýsingafundur almannavarna
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar í dag klukkan 14:00 í húsakynnum Landlæknisembættisins í Katrínartúni.

Þórólfur: Eigum ekki von á hinum nýju og afkastameiri tækjum fyrr en í október
Sóttvarnalæknir mætti á fund forsætisráðherra í Stjórnarráðshúsinu í hádeginu til að ræða nýtt fyrirkomulag varðandi skimun á landamærum eftir að Íslensk erfðagreining grendi frá því í gær að skimun hjá þeim yrði hætt innan fárra daga.

Fyrrverandi landlæknir segir ástæðu til að hætta skimun á landamærunum
Sigurður Guðmundsson smitsjúkdómalæknir og fyrrverandi landlæknir segir tilefni til þess að endurskoða skimun á landamærum og jafnvel hætta henni með öllu, sérstaklega í ljósi þess að Íslensk erfðagreining hefur dregið sig út úr verkefninu.

Fá ekki að spila eftir að tíu leikmenn greindust með kórónuveiruna
FC Dallas verður ekki með í MLS-deildinni þetta tímabilið eftir að tíu leikmenn og einn meðlimur þjálfarateymisins greindust með kórónuveirusmit.

Starfsfólk veirufræðideildar fundar um hina óvæntu stöðu
Yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans segir deildina ekki í stakk búna til að taka, óvænt, við keflinu af Íslenskri erfðagreiningu í byrjun næstu viku. Hann segir ákvörðun forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar hafa komið sér í opna skjöldu en mun eftir hádegi funda með starfsfólki veirufræðideildar um stöðuna sem upp er komin og næstu skref.

Upplýsingafundur mitt í skimunaróvissu
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn í dag klukkan 14:00 í húsakynnum Landlæknisembættisins í Katrínartúni.

Sjö smit greindust við skimun á landamærum
Einn greindist með virkt smit, fjórir með mótefni og er beðið eftir niðurstöðu úr mótefnamælingu í tilviki tveggja.

„Maður hefur aldrei séð það síðasta af Kára Stefánssyni“
Forsætisráðherra mun funda með sóttvarnalækni í dag þar sem rætt verður um framhald skimunar í landinu í kjölfar þess að Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskri erfðagreiningu, tilkynnti að fyrirtækið hugðist hætta skimunum.

Útgöngubann í Melbourne
Útgöngubanni hefur verið komið á í áströlsku borginni Melbourne og í nágrenni hennar eftir að 191 einstaklingur greindist með kórónuveiruna á einum degi í Viktoríu, einu fjölmennasta fylki Ástralíu.

Heildarfarþegafjöldinn 18 þúsund í júní
Heildarfjöldi farþega hjá Icelandair í júní var rúmlega 18 þúsund samanborið við um 553 þúsund á sama tíma í fyrra. Er því um að ræða 97 prósent samdrátt á milli ára.