
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Tilfellum kórónuveiru fjölgar í Peking
Metfjöldi kórónuveirutilfella greindist í Peking á mánudag, annan daginn í röð og hefur verið kallað eftir því að takmarkanir verði settar aftur í gildi.

Brutu sóttvarnalög til að láta vita af breyttum dvalarstað
Fimm erlendir aðilar brutu um klukkan tvö í nótt sóttvarnalög þegar þeir mættu í tveimur leigubílum á lögreglustöð til að tilkynna um breyttan dvalarstað. Aðilarnir áttu allir að vera í sóttkví þar til síðar í mánuðinum samkvæmt dagbók lögreglu.

Frakkar létta verulega á takmörkunum
Emmanuel Macron Frakklandsforseti kynnti í gærkvöldi tilslakanir vegna kórónuveirufaraldursins sem hann segir þær mestu í Evrópu en í dag mega kaffihús og veitingastaðir í París opna auk þess sem ferðalög til annarra Evrópulanda verða leyfð.

Frekari afléttingar samkomubanns og skimun hefst á Keflavíkurflugvelli
Nú á miðnætti tóku gildi frekari tilslakanir á samkomubanni hér á landi. Nú mega 500 manns koma saman, en eftir síðustu tilslakanir var leyfileg tala 200. Skimun fyrir kórónuveirunni hjá farþegum á Keflavíkurflugvelli hefst í dag.

Þrjár stunguárásir, nauðgun og andlát á ólöglegum samkomum
Tvítugur maður lést, einni konu var nauðgað og minnst þrír hafa lent í stunguárás á tveimur ólöglegum samkomum á stór-Manchester svæðinu í Englandi. Alls sóttu sex þúsund manns samkomurnar, sem fram fóru í gær.

Segir Rúmena á Íslandi óttast aukna fordóma vegna umfjöllunar síðustu daga
Mirabela Aurelia Blaga, rúmenskutúlkur, landamæravörður og laganemi við Háskólann í Reykjavík, segist hafa skynjað auknar áhyggjur meðal Rúmena hér á landi af fordómum í sinn garð. Ástæðan eru viðbrögð við umfjöllun um þá rúmensku menn sem greindust með kórónuveiruna eftir að hafa verið handteknir á Suðurlandi á föstudag.

Mikið magn nytjamuna fellur til á hverjum degi
Það er greinilegt að þjóðin notaði tímann í kórónuveirufaraldrinum til að taka til í geymslum og bílskúrum. Þá má greina á framboði húsgagna hjá Góða hirðinum að margar íbúðir hafi dottið úr skammtímaleigu og húsmunir verið hreinsaðir út úr þeim.

Verð á ávöxtum og grænmeti hækkað um allt að tíu prósent í kórónuveirufaraldrinum
Verð á ávöxtum og grænmeti hefur hækkað um allt að tíu prósent í kórónuveirufaraldrinum. Seðlabankinn hefur ítrekað gripið inn í gjaldeyrismarkaðinn á liðnum vikum.

Lýsa mögulega eftir mönnunum sex í kvöld eða á morgun
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, segir að mögulega verði lýst eftir sex mönnum sem lögregla reynir nú að hafa uppi á, til viðbótar við þá sex Rúmena sem komið verður í sóttkví eða einangrun í sóttvarnarhúsinu við Rauðarárstíg. Það komi í ljós í kvöld eða á morgun.

Þriðji maðurinn fundinn en sex leitað til viðbótar
Lögreglan leitar nú að sex mönnum til viðbótar í tengslum við mál Rúmenanna sem handteknir voru á föstudag.

Mennirnir tveir ekki smitaðir
Rúmensku mennirnir tveir sem fundust á hótelum á höfuðborgarsvæðinu eftir að lögregla lýsti eftir þeim reyndust ekki vera smitaðir af kórónuveirunni samkvæmt niðurstöðu úr sýnatöku. Þetta segir Rögnvaldur Ólafsson, verkefnastjóri hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Önnur lönd fylgjast grannt með þróun mála á Íslandi þegar landið verður opnað
Sóttvarnalæknir segir að hérlendis hafi skapast mikil þekking á kórónuveirunni sem nýtist heimsbyggðinni allri. Þar hafi Íslensk erfðagreining farið fremst í flokki.

Danski Tobias á leiðinni til landsins: Bókaði um leið og Mette Frederiksen sagði „gó“
Hinn danski Tobias Kabat er einn þeirra sem kemur til landsins frá Kaupmannahöfn á morgun. Hann segist hlakka til að kynnast landi og þjóð.

Tveir náðu bata en tvö smit bættust við
Tvö ný smit greindust milli sólarhringa hér á landi og eru því fjögur virk smit.

430 einstaklingar fengið undanþágu frá hefðbundinni sóttkví
Ekki hafa verið afgreiddar margar undanþágur vegna kvikmyndaframleiðslu.

Staðan í Kína áminning um mikilvægi einstaklingsbundinna smitvarna
Fimmtíu og sjö ný kórónuveirusmit hafa verið greind í Kína á síðasta sólarhring og tengist meirihluti þeirra, eða 36 matarmarkaði í Peking.

Lýsa enn eftir Pioaru Alexandru Ionut
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir rúmenskum karlmanni, Pioaru Alexandru Ionut, sem kom til landsins fyrripart síðustu viku í sex manna hópi.

Lögregla búin að finna tvo þeirra Rúmena sem lýst var eftir
Lögregla er búin að finna tvo af þeim þremur Rúmenum sem lýst var eftir í gær vegna gruns um að þeir séu smitaðir af kórónuveirunni. Sá þriðji er enn ófundinn.

Tveir í ensku úrvalsdeildinni greindust með veiruna
Það eru aðeins nokkrir dagar í endurkomu ensku úrvalsdeildarinnar en tveir einstaklingar til viðbótar innan hennar hafa nú greinst með veiruna.

Sóttvarnarhús opnuð á þremur stöðum vegna opnunar landamæra
Stöðvarnar verða opnaðar í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum.

Svona fer skimun fram á Keflavíkurflugvelli
Undirbúningur fyrir skimun á Keflavíkurflugvelli er á lokastigi. Settir hafa verið upp tíu sýnatökubásar og munu um 60 manns koma með beinum hætti að sýnatöku. Farþegum sem neita að fara í skimun eða sóttkví á landamærum Íslands verður vísað úr landi.

Mennirnir tveir sem voru handteknir eru með virk smit
Mennirnir tveir sem voru handteknir á Suðurlandi vegna búðarhnupls í gær og greindust með kórónuveiruna í dag verða fluttir í farsóttarhúsið við Rauðarárstíg á morgun. Þeir reyndust ekki vera með mótefni við veirunni og eru því með virk smit og geta smitað aðra

Kórónuveiran víða enn í sókn
Þótt faraldurinn virðist nú í rénun í Evrópu heldur kórónuveiran áfram að dreifast víðs vegar um heiminn. Heildarfjöldi tilfella nálgast átta milljónir og fjögur hundruð þúsund hafa látist.

Sóttvarnalæknir hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir hinum smituðu
Sóttvarnalæknir hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir hinum smituðu sem handteknir voru fyrir þjófnað á Selfossi á grundvelli sóttvarnalaga.

Fjórtán lögreglumenn í sóttkví vegna tveggja smitaðra þjófa
Við rannsókn málsins kom í ljós að hinir handteknu áttu að vera í sóttkví.

Óttast að fyrirhugað verkfall hjúkrunarfræðinga hægi á árangri
Fjöldi þeirra sem dvelja í meira en sólarhring á Bráðamóttöku Landspítalans þrefaldaðist á milli áranna 2018 og 2019.

Svona er skimunaraðstaðan á Keflavíkurflugvelli
Verið er að leggja lokahönd á uppsetningu skimunaraðstöðunnar á Keflavíkurflugvelli.

Eitt nýtt smit síðasta sólarhring
Fjögur virk smit kórónuveirunnar eru nú hér á landi samkvæmt nýjustu tölum á Covid.is.

Von á nokkur hundruð farþegum
Von er á nokkur hundruð farþegum í sjö flugvélum á mánudag þegar nýjar reglur vegna komu ferðamanna taka gildi og skimun vegna kórónuveirunnar hefst í Keflavík. Flestir koma frá Kaupmannahöfn og þá helst Íslendingar að koma heim í frí.

Von á sjö vélum til Keflavíkur á mánudag
Samkvæmt flugáætlun er von á sjö flugvélum til Keflavíkur á mánudag.