Lífið

Gerir myndbönd og lærir á gítar
Ólafur Matti Matthíasson er tíu ára. Hann langar að verða heimsfræg rokkstjarna og nógu ríkur til að hjálpa þeim sem eiga bágt í heiminum.

Skapar list með sögulegum blæ
Lesblinda gerði Kristjönu S. Williams erfitt fyrir í grunnskólanum á Seltjarnarnesi en greindist ekki fyrr en í listaháskólanum Central Saint Martin í London. Nú hafa listmunir og fatnaður með ævintýramyndum hennar vakið athygli heimsins og

Þegar ísinn fer þá breytist allt
Í þrjátíu ár hefur Ragnar Axelsson fengist við að ljósmynda líf og andlit fólksins á norðurslóðum. Á því ferðalagi rann upp fyrir honum að hann er ekki aðeins að mynda þetta lífi, heldur er hann að skrásetja algjöra umpólun lífsins á norðurslóðum af völdum hlýnunar jarðar. En á Íslandi munu jöklarnir hverfa á næstu 150 til 200 árum.

Baráttukonan Heiða fjalldalabóndi
Bókin Heiða – fjalldalabóndinn – er skrifuð af Steinunni Sigurðardóttur rithöfundi í orðastað Heiðu Guðnýjar Ásgeirsdóttur á Ljótarstöðum í Skaftártungu og er einstakt innlit í líf hlédrægrar baráttukonu.

Dagur gegn einelti í dag
Árlegur dagur gegn einelti er í dag, 8. nóvember. Af því tilefni er opið hús hjá Erindi, samtökum um samskipti og skólamál, í Spönginni 37 í Grafarvogi síðdegis.

Hefur sinnt fimm kynslóðum í sumum fjölskyldum
Katrín Fjeldsted, læknir og fyrrverandi borgarfulltrúi og þingmaður, fagnar sjötugsafmæli sínu á morgun. Hún ætlar að bjóða fjölskyldunni í mat og hafa hann grískan.

Íþróttirnar árið 2000
Það er erfitt að spá, einkum um framtíðina,“ sagði danski eðlisfræðingurinn Níels Bohr og þótti hnyttið. Auðvitað var þetta hárrétt hjá karlinum.

Gleðja bágstödd börn í Úkraínu
Sjálfboðaliðar verða í höfuðstöðvum KFUM og K við Holtaveg í Reykjavík í eina viku að ganga frá gjöfum til munaðarlausra, veikra og fátækra barna í Úrkaínu. Verkefnið nefnist Jól í skókassa. Gríma Katrín Ólafsdóttir veit meira.

Óslökkvandi þrá sem jókst með árunum
Listfengi setur svip á heimili Kristínar Jónsdóttur frá Munkaþverá og atburðir lifna við í frásögnum hennar, hvort sem þeir eru nýliðnir eða frá 19. öld. Nú hefur hún gefið út listaverkabók í eigin nafni.

Elskaði hana frá fyrsta degi
Brynja Dan er ættleidd frá Srí Lanka. Hún stóð uppi foreldralaus átján ára gömul á Íslandi. Líf hennar breyttist með ævintýralegum hætti í sumar þegar hún fann blóðmóður sína og stórfjölskyldu. Að gefa barnið sitt til betra lífs finnst henni vera eitthvað það óeigingjarnasta og fallegasta sem hún getur hugsað sér.

Stórafmæli, plata og mynd hjá Ólafi Arnalds
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds fagnar þrítugsafmæli í dag og getur líka glaðst yfir glænýrri plötu sem heitir Island Songs. Í farvatninu er kvikmynd með sama nafni.

Orðinn allra karla elstur
Rögnvaldur Gunnarsson hjá Vegagerðinni hóf feril sinn sem tæknifræðingur 1971 þegar þrjár stórbrýr á Skeiðarársandi voru á teikniborðinu. Nú kíkti hann á nýju Morsárbrúna.

Dimma er æðisleg og mig langar líka í hund
Aðaláhugamál Sögu Þórsdóttur eru fimleikar og dans, en hún elskar líka dýr og á eina kisu sem heitir Dimma og er í uppáhaldi.

Það er gefandi að starfa í þessum aldna helgidómi
Í Dómkirkjunni verður hátíðaguðsþjónusta á morgun þegar 220 ár eru liðin frá vígslu hennar. Á eftir bjóða konur upp á messukaffi. Laufey Böðvarsdóttir er kirkjuhaldari.

Ferðirnar hafa lengst og fjöllin hækkað
Leifur Örn Svavarsson fjallaleiðsögumaður lifir ævintýralegu lífi. Hann hefur gengið á heimskautin bæði, hæsta tind jarðar og á efstu fjöll í öllum álfum. Nú er hann á leið í grunnbúðir Everest.

Kemur upp úr skúffunni
Sigríður Hagalín Björnsdóttir fréttamaður er að gefa út sína fyrstu bók. Eyland, heitir hún og er ástar-og spennusaga með sagnfræðilegu ívafi, samkvæmt höfundinum.

Landið, náttúran og sveitarómantíkin
Norðlenskar tónlistarkonur spila og syngja í Hlöðunni í Litla Garði á Akureyri í kvöld og flytja lög tengd landinu, náttúrunni og sveitarómantíkinni.

Eigum öll jörðina saman
Flökkusaga er frumraun Láru Garðarsdóttur myndskreytis í bókarskrifum. Sagan hentar vel börnum á aldrinum þriggja til sjö ára og hefur margar skírskotanir í samtímann.

Langar að eiga kanínu en á tvö fiðrildi
Gauti Einarsson hefur áhuga á mörgu en skemmtilegst finnst honum að spila á píanóið, spila körfubolta og spila á spil.

Heilög Sesselja heiðruð
Nemendur Söngskólans í Reykjavík gleðja kirkjugesti á höfuðborgarsvæðinu við guðsþjónustur á morgun með söng sínum. Þeirra á meðal er Marta Kristín Friðriksdóttir.

Listamenn leigðu sér pláss þó veggi og hurðir vantaði
Vinnustofur listamanna verða opnar á Seljavegi 32 síðdegis í dag, veitingar á borðum, ávörp, útgáfa og tónlist í tilefni af tíu ára afmæli húsakynnanna undir merkjum SÍM.

Bubbi Morhtens hlaut Gullnöglina
Það var Bubbi Morthens sem hlaut Gullnöglina, gítarverðlaun Björns Thoroddsen, í ár fyrir áhrif sín á íslenskan gítarleik.

Söngur er okkar gjaldmiðill
Samkór Kópavogs fagnar því með tvennum tónleikum í Hjallakirkju í dag að 50 ár eru liðin frá stofnun hans. Erla Alexandersdóttir hefur sungið með honum í 38 ár.

Gerðum það sem okkur datt í hug
Skólapilturinn Óli Gunnar Gunnarsson er á æfingu í Gaflaraleikhúsinu. Hann er 17 ára og skrifaði leikritið sjálfur, ásamt Arnóri Björnssyni. Það heitir Stefán Rís. Höfundarnir leika báðir ásamt fleirum.

Afmælissýning á Hótel Höfn
Sýningin Þannig týnist tíminn sem Hornfirska skemmtifélagið frumsýnir á Hótel Höfn í kvöld er tileinkuð fimmtíu ára afmæli hótelsins. Haukur Þorvalds veit meira.

Samtök postulanna tólf
Opið hús verður í meðferðarheimilinu Krýsuvík í dag. Tilefnið er 30 ára afmæli Krýsuvíkursamtakanna sem stofnuðu heimilið og eru bakhjarl þess.

Var sagt að ég gæti ekkert lært
Sigríður Halldórsdóttir frá Gljúfrasteini hefur lifað litríku lífi, allt frá því hún tók fyrstu skrefin til þessa dags. Frásagnargáfan er henni í blóð borin og það skilar sér í nýrri bók með minningum hennar.

Felli vísindin inn í listina
Menntaskólanum við Hamrahlíð barst gjöf vegna 50 ára afmælisins nýlega frá starfsfólki og gömlum nemendum. Það er málverk eftir Georg Douglas, fyrrum kennara skólans.

Líkaminn er hljóðfæri
Söngkonan Sólrún Bragadóttir hefur sett á stofn nýjan skóla, Söngskólann Allelúja. Hann er í Tónskóla Sigursveins og er opinn lagvissum og laglausum og öllum þar á milli.

Aldarfjórðungur liðinn frá Bermúdaskálinni
Íslendingar náðu þeim einstæða árangri fyrir 25 árum að verða heimsmeistarar í bridds úti í Japan. Björn Eysteinsson ferðaskrifstofustjóri var fyrirliði sveitarinnar.