Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

„Það er verið að ræna þjóðareign“
Í dag fóru fram fjölmenn mótmæli á Austurvelli vegna sölu ríkisins á Íslandsbanka. Mun fleiri mættu á þessi mótmæli en hin tvö sem hafa farið fram síðustu laugardaga. Veðurblíðan á landinu gæti hafa spilað inn í fjölgunina.

Fjölmenn mótmæli á Austurvelli
Fjölmenn mótmæli fóru fram á Austurvelli í dag vegna sölunnar á Íslandsbanka. Mótmælin hófust klukkan 14.00 en um tvö þúsund manns höfðu boðað komu sína á Facebook.

Segir ráðherra og ríkisstjórn vera að plata almenning
Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir yfirlýsingu sína um að Bankasýsla ríkisins verði lögð niður og segir að verið sé að plata almenning.

Ekki að firra sig ábyrgð með því að leggja Bankasýsluna niður
Fjármálaráðherra er ánægður með heildarútkomu útboðsins á Íslandsbanka en viðurkennir að staðan sem nú er komin upp sé engin óskastaða. Hann hafnar því að með ákvörðun um að leggja niður bankasýslu ríkisins sé verið að firra hann sjálfan ábyrgð á söluferlinu.

„Ég hef ekkert umburðarlyndi fyrir blekkingum“
Theodóra S. Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi segir ljóst að íslenskur almenningur geti ekki látið bjóða sér það óréttlæti sem hún segir birtast í útboðinu á hluta ríkisins í Íslandsbanka.

Jóhanna til aðstoðar Lilju
Jóhanna Hreiðarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra, og hefur þegar hafið störf.

Segir heildarniðurstöðu sölunnar vera prýðilega
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra játar að bera pólitíska ábyrgð á nýafstaðinni sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka en segist þrátt fyrir allt vera þokkalega sáttur við hvernig til tókst.

Tekið á móti allt að 140 úkraínskum flóttamönnum úr viðkvæmum hópum
Samþykkt var á ríkisstjórnarfundi í morgun að fallast á útfærslu flóttamannanefndar um móttöku viðkvæmra hópa flóttafólks frá Úkraínu. Tekið verður á móti allt að 140 manns úr þeim hópum.

Einn mótmælandi handtekinn fyrir utan ríkisstjórnarfund
Fámenn mótmæli voru fyrir utan Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu þar sem ríkisstjórnin kom saman til fundar í dag. Einn mótmælandi var handtekinn.

Framsóknarflokkurinn sniðgengur börn af erlendum uppruna í borginni
Öll sveitarfélög landsins fá framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna barna af erlendum uppruna - nema Reykjavík. Borgin hefur stefnt ríkinu vegna þessa og stefnir allt í að þessi framlög verði útkljáð fyrir dómstólum. Öll börn í Garðabæ af erlendum uppruna fá fjármagn frá Jöfnunarsjóði, öll börn í Kópavogi, öll börn í Hafnarfirði - öll börn nema í Reykjavík.

Lögmaður Bankasýslunnar segir bankasöluna hafa verið löglega
Þórólfur Heiðar Þorsteinsson, lögmaður Bankasýslu ríkisins, telur ljóst að framkvæmd á sölu á 22,5 prósent hlut ríkisins í Íslandsbanka hafi verið samkvæmt lögum. Fjármálaráðherra hafi ekki borið að samþykkja hvert og eitt tilboð sem barst.

Dómsmálaráðherra fékk far með þyrlu Landhelgisgæslunnar
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra fékk far með þyrlu Landhelgisgæslunnar frá Bíldudal yfir í Stykkishólm í gær. Hann kveðst hafa verið að heimækja embætti dómsmálaráðuneytis á Vestfjörðum og farið yfir á Snæfellsnes í sömu erindagjörðum.

Telur að Bjarni hafi brotið lög og segir að hann þurfi að víkja
Fyrrum fjármálaráðherra telur að Bjarni Benediktsson hafi ekki farið að lögum við söluna á Íslandsbanka og þurfi að víkja. Fjármálaráðherra vísar því alfarið á bug og sér enga ástæðu til þess. Þegar mesti bylurinn vegna sölunnar verði yfirstaðinn muni Íslandsbankamálið sjást í öðru ljósi.

Fjármálaráðherra vísar alfarið á bug að hafa brotið lög
Fyrrverandi fjármálaráðherra telur að fjármálaráðherra hafi brotið lög við söluna á Íslandsbanka. Hann þurfi að víkja, salan sýni spillingu og einkavinavæðingu. Fjármálaráðherra vísar þessu algjörlega á bug og ætlar hvergi að víkja.

Ríkisstjórnin hunsaði viðvörunarorð stjórnarandstöðunnar
Hvers vegna hunsuðu Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir ekki aðeins viðvörunarorð stjórnarandstöðunnar á Alþingi heldur einnig viðvörunarorð Lilju Alfreðsdóttur samráðherra í ríkisstjórn þegar fimmtungshlutur í Íslandsbanka var seldur núna í mars?

Innganga Finna geti breytt öryggisstrúktúrnum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að ef Finnar ganga í Atlantshafsbandalagið geti það að einhverju leyti breytt öryggisstrúktúrnum í Evrópu. Finnska þingið hefur umræðu í dag um hvort að sótt verði um inngöngu í Atlantshafsbandalagið.

Formaður bæjarráðs Garðabæjar aðstoðar Áslaugu Örnu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur ráðið Áslaugu Huldu Jónsdóttur sem tímabundinn aðstoðarmann í fjarveru Eydísar Örnu Líndal, sem er í fæðingarorlofi.

Bankasýsla ríkisins, ekki meir
Bein útsending heitir það, þegar send er út óklippt útgáfa af atburðum á vettvangi. Við þekkjum slíkar útsendingar t.d. frá eldstöðvum á Reykjanesskaga eða jafnvel afhendingu handritanna fyrir 51 ári. Ég man vel eftir þeirri útsendingu. Hún var hins vegar ekkert sérstaklega spennandi, allir þekktu endinn fyrirfram.

„Ég hef ekki séð neitt enn þá sem að segir mér að lög hafi verið brotin“
Fjármálaráðherra telur að sýna þurfi þolinmæði á meðan rannsókn á sölu Íslandsbanka stendur yfir. Hann gefur lítið fyrir gagnrýni stjórnarandstöðunnar og fullyrðir að málið verði kannað. Hann segir þó ekkert benda til þess á þessum tíma að lög hafi verið brotin og vill ekkert gefa upp um hvort hann myndi segja af sér, kæmi slíkt brot upp.

Gagnrýna ákvörðun formanna stjórnarflokkanna: „Í hæsta máta óeðlileg afgreiðsla“
Þingmaður Samfylkingarinnar gagnrýnir einhliða ákvörðun um að leggja niður heila ríkisstofnun og telur ljóst að lagaleg ábyrgð hvíli á fjármálaráðherra. Varaformaður þingflokks Viðreisnar segir ótækt að ríkisstjórnin reki einfaldlega undirmenn þegar hitna fer í kolunum.

Telur rétt að bíða eftir niðurstöðum úttekta áður en framtíð fjármálaráðherra er rædd
Forsætisráðherra telur ekki að fjármálaráðherra þurfi að víkja vegna sölunnar á Íslandsbanka. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja Bankasýsluna niður og rannsókn er hafin á sölunni. Bankasýslan segir söluna í samræmi við yfirlýst áform og skoðar lagalega stöðu sína gagnvart söluaðilum bankans.

Bankasýslan segir framkvæmd sölunnar í fullu samræmi við ákvörðun ráðherra og ríkisstjórnar
Stjórn og starfsfólk Bankasýslu ríkisins segist hafa unnið að framkvæmd útborðs á hlutabréfum Íslandsbanka í samræmi við forsendur sem þeim voru gefnar með fagmennsku og heiðarleika í fyrirrúmi. Forsvarsmenn stofnunarinnar segja að litið hafi verið svo á að framkvæmdin væri í fullu samræmi við vilja stjórnvalda.

Krefjast að þing komi strax saman vegna nýrra vendinga
Allir stjórnarandstöðuflokkar á Alþingi hafa krafist þess að þing komi saman vegna nýrra vendinga í tengslum við söluna Íslandsbanka. Að óbreyttu verður næsti þingfundur ekki haldinn fyrr en mánudaginn 25. apríl.

Setja 750 milljónir í viðbrögð við félags- og heilsufarsafleiðingum Covid
Stjórnvöld ætla að verja allt að 750 milljónum króna á þessu ári í sértækar aðgerðir til að mæta félags- og heilsufarslegum afleiðingum kórónuveirufaraldursins. Ríkisstjórnin ákvað þetta á síðasta fundi sínum fyrir páska.

Telur ekki nauðsynlegt að fjármálaráðherra víki
Að mati Katrínar Jakobsdóttur fjármálaráðherra er ekki þörf á að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra víki vegna Íslandsbankamálsins.

„Ef það á að leggja niður bankasýsluna þá þarf að leggja niður ráðherra“
Sitt sýnist hverjum um þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja Bankasýslu ríkisins niður í tilraun til að lægja pólitíska storminn sem ríkir um nýafstaðna sölu á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka til valins hóps fjárfesta.

Vilja leggja niður Bankasýsluna og ekki ráðist í frekari sölu á Íslandsbanka að sinni
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja það til við Alþingi að Bankasýsla ríkisins verði lögð niður og innleitt verði nýtt fyrirkomulag til að halda utan um eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

Ríkisstjórnin utan þjónustusvæðis
Það hefur ríkt þögn á stjórnarheimilinu eftir að Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra setti fram pólitíska stríðsyfirlýsingu gagnvart Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra með orðum um að fjármálaráðherrans sé að axla ábyrgð á því hvernig sala á fjórðungseignarhluta ríkisins í Íslandsbanka fór fram.

Katrín Jakobsdóttir er stolt af Katrínu Jakobsdóttur
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segist vera mjög stolt af því að eiga alnöfnu á Íslandi og það gæti óneitanlega verið stundum freistandi að senda hana á ríkisstjórnarfund fyrir sig.

Þjóðarhöll eða þjóðarskömm?
Það var sannarlega frábært að fylgjast með íslenska karlalandsliðinu í handbolta vinna sigur á Austurríki í gær. En á sama tíma var það sorglegt að Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari, þyrfti að nýta augnablikið í sigurreifu viðtali eftir leik til þess að ávíta stjórnvöld fyrir aðstöðuleysi landsliðsins.