Samkomubann á Íslandi

Vara við töfum hjá Sorpu og biðja fólk um að nýta virka daga
Búast má við því að Sorpuferðir íbúa höfuðborgarsvæðisins taki lengri tíma en venjulegt þykir meðan hertar samkomutakmarkanir eru í gildi á höfuðborgarsvæðinu.

„Ekki sama stemningin í samfélaginu að hlíta fyrirmælunum“
Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans, segir að allt eins sé búist við því að þessi þriðja bylgja kórónuveirufaraldursins sem nú gangi yfir verði stærri en sú fyrsta.

Aðgerðir verði hertar ef útbreiðsla farsóttarinnar eykst
Sóttvarnalæknir segir að aðgerðir vegna kórónuveirunnar verði hertar ef útbreiðsla farsóttarinnar eykst.

Hvetur höfuðborgarbúa til að sýna skynsemi
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum hvetur höfuðborgarbúa til að sýna skynsemi og ferðast ekki út fyrir höfuðborgarsvæðið að óþörfu.

Þórólfur trúir því ekki að læknar vilji láta veiruna ganga yfir sig
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að allar þjóðir heims séu langt frá því að hafa hjarðónæmi fyrir kórónuveirunni sem veldur sjúkdómnum Covid-19.

Búist við að tölur um fjölda smita verði háar næstu daga
Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra ítreka tilmæli sín vegna aukins fjölda kórónuveirusmita.

Töldu mikilvægt að banna ekki alla heilsurækt og hreyfingu
Heilbrigðisráðuneytið taldi mikilvægt að leggja ekki bann við allri heilsurækt og hreyfingu þegar tekin var ákvörðun um hertar kórónuveiruaðgerðir á höfuðborgarsvæðinu sem tóku gildi í dag.

„Mig langar til að lifa lengur“
Sigurður G. Tómasson segist í áhættuhópi en Brynjar Níelsson segir þetta ekki eingöngu snúast um hans heilsufar.

Gagnrýnir undanþágu fótboltans: Hlaupi ekki á eftir þeim sem hafi hæst
Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, gagnrýnir þá ákvörðun heilbrigðisráðherra að fara gegn tillögu sóttvarnalæknis og leyfa íþróttir utanhúss.

Mælast enn til þess að öllu íþróttastarfi verði frestað þrátt fyrir reglugerð ráðherra
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, og almannavarnir mælast enn til þess að öllu íþróttastarfi á höfuðborgarsvæðinu verði slegið á frest næstu tvær vikurnar.

Mælist til að opið helgihald falli niður í október
Í staðinn er hvatt til þess að streyma efni til fólks.

Forsetinn hvetur landsmenn til að standa saman: „Sýnum hvað í okkur býr“
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hvatti landsmenn til að standa saman í baráttunni gegn kórónuveirunni í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.

Þessar hertu reglur taka gildi á höfuðborgarsvæðinu í dag
Hertar reglur um samkomutakmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins taka gildi á höfuðborgarsvæðinu í dag.

Sundlaugum verði lokað á höfuðborgarsvæðinu
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggur til við heilbrigðisráðherra að sundlaugum verði lokað á höfuðborgarsvæðinu næstu vikur á meðan verið sé að ná tökum á kórónuveirufaraldurinn hér á landi.

Eins metra reglan hafi orðið að eins sentímetra reglu
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir það ekki endilega hafa verið mistök að breyta úr tveggja metra reglu í eins metra reglu. Líftölfræðingur telur marga ekki virða eins metra fjarlægðarmörk.

Tveggja metra regla, veitingastaðir loka fyrr og hert á grímuskyldu
Tekin verður aftur upp tveggja metra fjarlægðarregla á höfuðborgarsvæðinu, ýmis starfsemi verður stöðvuð og hert verður á grímuskyldu í tillögum sem Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, sendir heilbrigðisráðherra í dag.

Slitu borgarstjórnarfundi vegna ástandsins
Borgarstjórnarfundi var slitið rétt í þessu þar sem borgarstjóri fór yfir stöðu mála vegna nýjustu þróunar í COVID-19 smitum á höfuðborgarsvæðinu.

Svona var 121. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi.

Kári hefði viljað taka landsbyggðina með
Kári Stefánsson segir veiruna það dreifða á höfuðborgarsvæðinu að líkur séu á að smituðum fari fjölgandi úti á landi miðað hversu mikil umferð er á milli borgarinnar og landsbyggðarinnar.

Boðar hertar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hyggst leggja til við Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, að aðgerðir vegna kórónuveirufarldursins verði hertar á höfuðborgarsvæðinu frá því sem nú er.

Telur það koma sterklega til álita að grípa til enn harðari aðgerða
Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans, segir það einsýnt að róðurinn á spítalanum vegna Covid-19 verði enn þyngri á næstunni en hann er núna.

99 greindust með veiruna innanlands
99 greindust innanlands með kórónuveiruna í gær. Þar af voru 59 í sóttkví.

Hvað er ólíkt með tuttugu manna samkomubanni þá og nú?
Nú mega aðeins tuttugu manns koma saman, með undantekningum þó, en tuttugu manna samkomubann vegna kórónuveirufaraldursins var fyrst sett á þann 24. mars.

Hefði mátt grípa til harðari aðgerða strax í síðustu viku
Sóttvarnalæknir segir að vissulega hefði mátt grípa til hertra kórónuveiruaðgerða strax fyrir helgi eða jafnvel fyrir viku síðan.

„Rauð flögg“ um alvarlegri faraldur ef ekkert hefði verið að gert
Sóttvarnalæknir segir kórónuveirufaraldurinn nú í talsverðum vexti.

Útlit fyrir að heldur fleiri hafi greinst með kórónuveiruna í gær en á laugardag
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir að eins og tölurnar hafi litið út í gærkvöldi þá voru heldur fleiri að greinast með kórónuveiruna í gær heldur en á laugardag þegar 47 manns greindust innanlands.

Tuttugu manna samkomubann hefur tekið gildi
Á miðnætti tóku gildi verulega hertar samkomutakmarkanir frá því sem verið hefur undanfarið.

Grímuskylda í Strætó tekur gildi á mánudag
Frá og meðan morgundeginum þurfa þeir sem ferðast með strætisvögnum að nota andlitsgrímur á meðan ferðinni stendur.

Lesrýmum lokað í Háskóla Íslands
Í ljósi hertra samkomutakmarkana innanlands og fjölgunar smita í samfélaginu hefur verið ákveðið að loka lesrýmum grunn- og meistaranema í Háskóla Íslands.

Telur meiri áhættu af áhorfendum kappleikja en leiksýninga
Segir áhorfendur leiksýninga eldri einstaklinga sem sitji með grímur í númeruðum sætum. Áhorfendur kappleikja séu á meiri hreyfingu og láti frekar í sér heyra.