UMF Njarðvík

Teitur Örlygsson kosinn í stjórn hjá Njarðvík og Gunnar Örlygs líka
Bræðurnir Teitur og Gunnar Örlygssynir eru báðir nýir í stjórn Körfuknattleiksdeildar UMFN en ný stjórn var kosin á aðalfundi deildarinnar í gær.

Keflvíkingar láta allan ágóða af leiknum á morgun renna í Minningarsjóð Ölla
Njarðvíkingurinn Örlygur Aron Sturluson hefði haldið upp á fertugsafmælið sitt í dag ef hann hefði lifað en hann lést af slysförum fyrir rúmu 21 ári síðan. Nágrannarnir úr Keflavík minnast hans um helgina með rausnarlegum hætti.

„Skurðlæknirinn“ Logi mun áfram skera upp andstæðingana
„Þetta verður 25. tímabilið mitt í röð í meistaraflokki og það er mikið afrek fyrir íþróttamann. Ég hef lagt mikið á mig til þess,“ segir körfuboltagoðsögnin Logi Gunnarsson sem mun spila 40 ára að aldri í Dominos-deildinni á næstu leiktíð.

„Á ekki von á því að vera áfram í Njarðvík“
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur býst ekki við því að vera áfram þjálfari Njarðvíkur á næsta tímabili.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 88-73 | Njarðvíkingar sleppa við fall
Njarðvíkingar sluppu við fall en voru á sama tíma hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppnina þegar uppi var staðið.

Hatrið ekki slíkt að menn vilji láta Njarðvík falla
Keflvíkingar gætu komist í þá stöðu í kvöld að geta sent erkifjendur sína í Njarðvík niður í 1. deild, með því að tapa gegn Hetti á Egilsstöðum. Þeir hafa hins vegar meiri áhuga á því Njarðvík haldi sér uppi og að liðin mætist í úrslitakeppninni.

„Að sjálfsögðu eru allir mígandi stressaðir“
Sævar Sævarsson, einn af spekingum Domino's Körfuboltakvölds, segir að Njarðvík sé stórhættulegt lið í úrslitakeppninni, komist þeir þangað. Benedikt Guðmundsson, annar spekingur, bætti við að fallbaráttan væri erfiðust fyrir harða Njarðvíkinga sem þjálfa liðið.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Njarðvík 99-106 | Gestirnir flugu upp töfluna eftir ótrúlegan sigur
Leikur ÍR og Njarðvíkur var hreint út sagt frábær skemmtun. Bæði lið voru fyrir leik í fallhættu en að sama skapi áttu bæði góða möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Lokatölur 106-99 Njarðvík í vil.

Einn stærsti leikur í sögu Njarðvíkur
Njarðvík unnu lífsnauðsynlegan sigur á ÍR í kvöld. Leikurinn var kaflaskiptur sem gerðu lokamínútur leiksins æsispennandi en Njarðvík hafði betur að lokum og unnu 99-106 og var Loga Gunnarssyni leikmanni Njarðvíkur afar létt eftir leikinn.

Sextán stig gætu á sama tíma dugað inn í úrslitakeppnina en ekki til að bjarga liði frá falli
Lokaumferðir Domino´s deildar karla í körfubolta eiga örugglega eftir að bjóða upp á mikla dramatík enda eru lið á sama tíma á barmi þess að komast í úrslitakeppnina og að falla úr deildinni.

„Maður vill vera í betra standi en þetta en samt gott að vera kominn aftur“
Júlíus Orri Ágústsson, leikmaður Þór Akureyri, spilaði sinn fyrsta leik í langan tíma eftir erfið meiðsli. Júlíus spilaði í heildina 8 og hálfa mínútu gegn Njarðvík í kvöld en náði þó ekki að setja nein stig á töfluna.

Umfjöllun: Stjarnan - Njarðvík 82-70 | Njarðvíkingar sitja á botninum
Njarðvík situr á botni Dominos-deildar karla í körfubolta eftir 82-70 tap gegn Stjörnunni í Garðabæ í kvöld á meðan að Höttur og Haukar fögnuðu bæði sigri.

Njarðvíkingar geta gert nágranna sína í Keflavík að deildarmeisturum í kvöld
Keflvíkingar geta orðið deildarmeistarar í kvöld án þess að spila en þá fara fram fjórir fyrstu leikirnir í nítjándu umferð Domino´s deild karla í körfubolta.

Leið illa eftir að hafa spáð Njarðvík falli
Sævar Sævarsson og Benedikt Guðmundsson telja báðir að Haukar falli úr Domino's deild karla. Þeir eru hins vegar ekki sammála hvaða lið fylgir Haukum niður í 1. deildina.

Grýtti penna í vegg af bræði eftir klúður Glasgows: Ekki hægt að útskýra þetta
Dramatíkin var allsráðandi í lokin á leiknum mikilvæga á milli Njarðvíkur og Hattar í gærkvöld. Sérfræðingarnir í Dominos Körfuboltakvöldi rýndu í lokasóknir liðanna sem óhætt er að segja að hafi verið misvel heppnaðar.

„Ég hef séð Loga setja þetta skot ansi oft“
Sigurði Gunnari Þorsteinssyni var ansi létt þegar hann kom í viðtal í leikslok eftir æsispennandi lokamínútu í leik Njarðvíkur og Hattar í kvöld. Logi Gunnarsson fékk tækifæri til að vinna leikinn fyrir Njarðvík þegar 2,7 sekúndur voru eftir en þriggja stiga tilraun hans fór ekki niður.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Höttur 92-94 | Gestirnir héldu sér á lífi
Með sigri í Njarðvík opnuðu Hattarmenn allt upp á gátt í fallslagnum í sætum sigri Hattar þar sem spennan var rosaleg undir lok leiksins.

Hafa aldrei unnið í Njarðvík en sigur í kvöld setur mikla spennu í fallbaráttuna
Stórleikur kvöldsins er leikur upp á líf eða dauða í Domino´s deild karla í körfubolta í vetur. Úrslitin munu ráða miklu um framhaldið í fallbaráttunni.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Njarðvík 91-94 | Njarðvík sótti gull í greipar Grindvíkinga
Njarðvík vann gríðarlega mikilvægan sigur í Domino´s deild karla í körfuknattleik í kvöld þegar þeir lögðu nágranna sína í Grindavík á útivelli.

Ólafur: Við lögðumst bara niður og töpuðum leiknum
Ólafur Ólafsson var ósáttur eftir tap Grindavíkur á heimavelli gegn Njarðvík í kvöld og vildi að sitt lið myndi byrja að láta verkin tala.

Sjötíu dagar síðan Njarðvíkingar unnu síðast leik
Njarðvíkingar geta endað mjög langa bið eftir sigri í kvöld þegar þeir heimsækja Grindvíkinga í Röstina í fyrsta leik Suðurnesjaliðanna tveggja eftir kórónuveirustopp.

Finnur það alla leið til Reykjavíkur að það nötrar allt í Njarðvík
Í nýjasta Domino´s Körfuboltakvöldi var farið yfir stöðuna á liðunum sem skipa sex neðstu sætum deildarinnar nú þegar Domino´s deild karla er aftur komin í kórónuveiruhlé. Hér má sjá hvað menn höfðu að segja um liðin í níunda og tíunda sæti.

Lengsta taphrina Njarðvíkur í sögu úrvalsdeildarinnar
Njarðvíkingar töpuðu í gær sjötta leik sínum í röð í Domino´s deild karla í körfubolta og hafa aldrei áður tapað svo mörgum leikjum í einum rykk í sögu úrvalsdeildar karla.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Valur 78-80 | Enn tapa Njarðvíkingar
Valur vann afar nauman tveggja stiga sigur á lánlausu liði Njarðvíkur í Ljónagryfjunni í kvöld.

„Það er bara „knockout“ ef við töpum næsta leik“
Þrátt fyrir afar svekkjandi tap gegn Val í kvöld gat Maciek Baginski, leikmaður Njarðvíkur, einbeitt sér á það jákvæða við leikinn en Njarðvík leiddi leikinn nánast allan tímann.

„Það er erfitt að hitta fólkið sitt því maður skammast sín svo mikið“
Jón Arnór Sverrisson, leikmaður Njarðvíkur, var algjörlega miður sín og hálf orðlaus í viðtali eftir 89-57 tap gegn erkifjendunum í Keflavík.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 89-57 | Sjóðheitir Keflvíkingar ljúka Reykjanesslagnum með eldgosi
Njarðvík voru lömb leidd til slátrunar í Sláturhúsinu í Keflavík í kvöld. Keflavík er því með örugga forystu á toppnum en Njarðvík hefur tapað átta af síðustu níu leikjum sínum.

„Ekki viss um að hann væri að spila ef hann væri uppalinn í Sandgerði“
Strákarnir í Domino’s Körfuboltakvöldi á föstudagskvöldið fóru yfir stöðuna á Njarðvík sem hefur verið í frjálsu falli að undanförnu.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Tindastóll 74-77 | Stólarnir komnir í 8. sætið en Njarðvík í veseni
Tindastóll vann nauman þriggja stiga sigur í Njarðvíkinni í kvöld í spennadi leik.

Logi kom sínum mönnum til bjargar í síðasta leik á móti Stólunum
Njarðvík og Tindastóll hafa bæði tapað þremur leikjum í röð og þurfa svo sannarlega á sigri að halda þegar þau mætast í stórleik kvöldsins.