Körfubolti
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 216 ›
Giannis Antetokounmpo útilokar ekki að yfirgefa Bucks Giannis Antetokounmpo hristi aðeins upp í NBA heiminum á dögunum þegar hann var gestur í hlaðvarpinu 48 minutes. Þar lét hann þau orð falla að ef hann ætti betri möguleika á vinna titilinn annarsstaðar yrði hann að taka honum. Körfubolti 24.9.2023 09:57
Bið á félagaskiptum Damian Lillard Lítið virðist þokast í viðræðum um félagaskipti Damian Lillard frá Portland Trail Blazers en Miami Heat virðist ekki geta boðið neitt bitastætt til að koma skiptunum í kring. Körfubolti 23.9.2023 10:06
Stjarnan fær reynslumikinn leikmann fyrir baráttu vetrarins Miðherjinn Denia Davis-Stewart hefur samið við Stjörnuna og mun spila með liðinu í Subway-deild kvenna í körfubolta í vetur. Körfubolti 21.9.2023 15:30
Sjáðu frábæra flautukörfu Keiru sem tryggði bikarinn Valur tók á móti Haukum í Meistarakeppni KKÍ á Hlíðarenda í gærkvöld. Leikurinn var hin besta skemmtun en sigurkarfan kom þegar lokaflautið gall. Sigurkörfuna má sjá hér að neðan. Körfubolti 21.9.2023 13:00
Umfjöllun og viðtal: Valur - Haukar 77-78 | Haukakonur meistarar meistaranna eftir flautukörfu Haukakonur urðu í kvöld meistarar meistaranna í körfubolta þegar þær lögðu Íslandsmeistara Vals í Origo höllinni. Sigurkarfan kom í þann mund sem lokaflautið gall, flautukarfa frá Keiru Robinson sem tryggði gestunum úr Hafnarfirði sigurinn. Körfubolti 20.9.2023 18:30
Fékk að vera með á æfingu hjá Harlem Globetrotters Eitt þekktasta körfuboltalið heims kemur til með að leika listir sínar í Laugardalshöll á morgun. Fréttamaður tók forskot á sæluna og fékk að vera með á æfingu. Lífið 16.9.2023 21:00
Ný þjóðarhöll mun aldrei rísa árið 2025 Ljóst er að ný þjóðarhöll fyrir innanhúsíþróttir mun ekki rísa árið 2025 líkt og stefnt hafði verið að. Hægt hefur verið á verkefninu og segist Gunnar Einarsson, formaður framkvæmdanefndar um þjóðarhöll, nú vonast til að þjóðarhöll verði risin í fyrsta lagi í árslok 2026. Sport 13.9.2023 11:31
LeBron og stjörnurnar ætla á Ólympíuleikana í París LeBron James og flestar af stærstu stjörnum NBA-deildarinnar í körfubolta hafa gefið til kynna að þær vilji taka þátt á Ólympíuleikunum sem fram fara í París á næsta ári. Kemur tilkynningin skömmu eftir að Bandaríkin fóru heim af HM í körfubolta með skottið á milli fótanna. Körfubolti 11.9.2023 16:00
Djokovic heiðraði Kobe eftir sögulegan sigur Novak Djokovic skráði sig á spjöld sögunnar þegar hann bar sigur úr býtum á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis. Þetta var hans 24. sigur á risamóti en enginn karlmaður hefur unnið jafn marga risatitla í sögu íþróttarinnar. Hann tileinkaði Kobe Bryant heitnum sigurinn. Sport 11.9.2023 07:30
Tefldi í símanum frekar en að fylgjast með tónleikum Drake Körfuboltamaðurinn Derrick Rose virðist nægilega mikill aðdáandi tónlistarmannsins Drake til þess að gera sér ferð að sjá rapparann sem ættaður er frá Kanada en þó ekki nægilega mikill aðdáandi til að fylgjast með tónleikunum sjálfum. Körfubolti 8.9.2023 09:30
Breiðablik fær besta erlenda leikmanninn úr næstefstu deild Breiðablik hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Subway-deild karla í körfubolta. Í dag var staðfest að Keith Jordan Jr. sé á leiðinni í Kópavog eftir frábært tímabil í Borgarnesi á síðustu leiktíð. Körfubolti 7.9.2023 22:30
Nýr leikmaður Lakers gæti leyft Davis að færa sig um set á vellinum Christian Wood hefur skrifað undir tveggja ára samning við Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta. Það gefur Lakers svigrúm til að spila Anthony Davis í annarri stöðu á vellinum en Davis hefur gefið í skyn að hann vilji spila meira sem kraftframherji í vetur. Körfubolti 7.9.2023 18:00
Jón Axel um skiptin til Alicante: Eitt skref til baka til að taka tvö skref áfram Körfuboltamaðurinn Jón Axel Guðmundsson segist hafa ákveðið að taka eitt skref til baka á sínum ferli í von um að komast á hærra stig. Körfubolti 5.9.2023 07:01
Nýra fjarlægt eftir olnbogaskot á HM Fjarlægja þurfti nýra úr Boriša Simanić, kraftframherji serbneska landsliðsins í körfubolta, eftir að hann fékk hafa olnbogaskot í síðuna í leik Serbíu á HM í körfubolta sem nú fer fram í Filipseyjum, Japan og Indónesíu. Körfubolti 4.9.2023 23:31
Litáen skellti Bandaríkjunum í lokaleik J-riðils Litáen lagði Bandaríkin nokkuð örugglega í lokaleik J-riðils á Heimsmeistaramótinu í körfubolta í dag en þetta var fyrsta tap Bandaríkjanna í riðlakeppni á HM síðan 2002. Körfubolti 3.9.2023 22:11
Vilja sæti við borðið: „Gríðarlegt ósætti í öllum dómarahópnum“ Körfuboltadómarar á Íslandi hafa lagt niður störf og munu ekki dæma meistaraflokksleiki þangað til að Körfuknattleikssamband Íslands, KKÍ, mætir launakröfum þeirra. Körfubolti 3.9.2023 11:31
Skoraði tuttugu stig á innan við fjórum mínútum Jordan Clarkson fór hreinlega á kostum þegar Filipseyjar unnu Kína á HM í körfubolta fyrr í dag. Alls skoraði hann 34 stig, þar af 20 á rétt innan við fjögurra mínútna kafla. Körfubolti 2.9.2023 22:31
Jón Axel til Alicante Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður í körfubolta, er genginn í raðir Alicante sem spilar í spænsku B-deildinni. Körfubolti 30.8.2023 20:02
Helgi Rúnar Bragason fallinn frá Helgi Rúnar Bragason, fyrrverandi þjálfari og leikmaður í körfubolta, er látinn aðeins 47 ára að aldri. Körfubolti 28.8.2023 12:30
Hræddur við að fara heim eftir auðmýkjandi tap Frakka Einn reyndasti leikmaður franska karlalandsliðsins í körfubolta skóf ekki utan af því eftir að liðið féll óvænt úr leik á HM. Hann sagðist hreinlega vera hræddur að snúa aftur til Frakklands. Körfubolti 28.8.2023 10:01
Dennis Schröder hetja Þjóðverja í sigri á Ástralíu í háspennuleik Þjóðverjar eru komnir í kjörstöðu í E-riðli á heimsmeistaramótinu í körfubolta eftir góðan 85-82 sigur á Ástralíu í dag. Dennis Schröder, leikmaður Toronto Raptors, skoraði 30 stig fyrir Þjóðverja og leiddi liðið til sigurs. Sport 27.8.2023 11:58
Stjörnustrípað lið Bandaríkjanna ekki í vandræðum með Nýsjálendinga Líkt og stundum áður mæta Bandaríkin til leiks á HM án sinna stærstu NBA stjarna. Liðið er þó ekki skipað neinum aukvisum og vann öruggan sigur í sínum fyrsta leik á mótinu í dag þegar Bandaríkin mættu Nýja-Sjálandi. Körfubolti 26.8.2023 14:37
Luka Doncic sýndi úr hverju hann er gerður í fyrsta leik Slóveníu á HM Luka Doncic og félagar í landsliði Slóvenínu unnu nokkuð sannfærandi sigur í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í körfubolta í dag þegar liðið lagði Venesúela 100-85. Doncic fór mikinn í leiknum og skoraði 37 stig. Körfubolti 26.8.2023 13:28
Bikarmeistarar Hauka safna liði Bikararmeistarar Hauka hafa síðustu daga verið að bæta í leikmannahóp sinn fyrir komandi átök í Subway-deild kvenna en þær Rósa Björk Pétursdóttir og Rebekka Rut Hjálmarsdóttir eru báðar á leið í Hafnarfjörðinn. Körfubolti 26.8.2023 12:46
Dreymir um titla hjá nýju félagi Kristinn Pálsson sem samdi við Val í gær segist vera spenntur fyrir komandi tímabili. Hann dreymir um að vinna loksins titil hér á landi. Körfubolti 26.8.2023 09:30
Íslenska liðið spilaði mun betur í dag en mátti samt þola tap Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætti Svíþjóð ytra í tveimur æfingaleikjum um helgina. Fyrri leiknum lauk með 29 stiga sigri Svíþjóðar á meðan sá síðari tapaðist með 15 stiga mun. Körfubolti 19.8.2023 20:35
Sterk byrjun dugði skammt gegn Úkraínu Ísland beið lægri hlut fyrir Úkraínu í forkeppni Ólympíuleikanna í dag en leikið er í Istanbúl í Tyrklandi. Ísland byrjaði leikinn af krafti og leiddi 18-17 eftir fyrsta leikhluta en náðu ekki að fylgja góðri byrjun eftir. Körfubolti 13.8.2023 16:52
Tilfinningarnar báru Becky Hammon og Gregg Popovich ofurliði þegar Hammon var vígð inn í frægðarhöll NBA Gregg Popovich og Becky Hammon voru vígð inn í frægðarhöll NBA deildarinnar í gær. Hammon gat ekki haldið aftur af tárunum þegar hún þakkaði Popovich fyrir að hafa ráðið sig til starfa og Popovich átti einnig bágt með sig. Körfubolti 13.8.2023 11:42
Segir Beyoncé og fleiri listamenn ýta undir Satanisma AJ Griffin, leikmaður Atlanta Hawks í NBA deildinni, varaði fólk á Twitter við því að fara á tónleika með Beyoncé enda væri hún að ýta undir Satanisma. Af einhverjum ástæðum ákvað hann að eyða tvítinu. Körfubolti 12.8.2023 09:40
Mark Jackson sagt upp störfum hjá ESPN Mark Jackson var í gær sagt upp störfum sem lýsandi á ESPN stöðinni bandarísku. Miklar hrókeringar eru í gangi í starfsliði stöðvarinnar en Jeff Van Gundy var sagt upp störfum í lok júní eftir 16 ár hjá stöðinni. Körfubolti 1.8.2023 22:31