

Heilbrigðisráðuneytið samþykkti í dag undanþágubeiðni Körfuknattleiks- og Handknattleikssambands Íslands er varðar lið í 1. deildum karla og kvenna. Bæði sambönd gáfu frá sér tilkynningu þess efnis í dag.
Þjálfarar HK í handbolta, karla og kvenna megin, hafa töluverðar áhyggjur af ástandinu sem stendur. Ef karlaliðið fær ekki að hefja æfingar fyrr en 12. janúar hefur liðið ekki æft í fjóra mánuði og kvenna megin eru hátt í þrjátíu stelpur á aldrinum sextán til tuttugu ára sem geta ekkert æft.
Breytingar á sóttvarnareglum leggjast misvel í íþróttahreyfinguna. Hjá sumum félögum má meistaraflokkur karla æfa en ekki meistaraflokkur kvenna, og öfugt.
Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að mörgum spurningum sé enn ósvarað hvað varðar æfingar liða á Íslandi eftir nýjustu sóttvarnareglur sem tilkynnt var um í dag. Þær gilda frá 10. desember til 12. janúar.
Íþróttafólk í efstu deildum fékk góðar fréttir eftir ríkisstjórnarfund í dag.
Fyrrum handboltamaður segir að hann hefði líklega hætt í handbolta hefði hann lent í slíku æfinga- og keppnisbanni eins og nú stendur yfir.
FH mun ekki taka þátt í Evrópukeppninni eins og áætlað var því Handknattleiksdeild FH hefur neyðst til að draga lið sitt úr Evrópukeppninni.
Það þurfti enga framlengingu til að sjá hvaða lið bar sigur úr bítum í draumaliðs keppni sérfræðinga Seinni bylgjunnar. Ágúst Þór Jóhannesson [Gústi] vann yfirburðarsigur.
Í síðasta þætti Seinni bylgjunnar voru sérfræðingar þáttarins beðnir um að draga í draumalið sitt skipað leikmönnum sem hafa leikið efstu deildar karla í handbolta hér á landi.
Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að hljóðið í hreyfingunni sé ekki gott eftir tíðindi dagsins en þar var tilkynnt að æfinga- og keppnisleyfi verður áfram við lýði hér á Íslandi.
Gildandi sóttvarnareglur hafa verið framlengdar til 9. desember. Það þýðir m.a. áframhaldandi bann við æfingum og keppni hjá íslensku íþróttafólki.
Ómar Ingi Magnússon var hreint magnaður í liði Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Því miður dugði það ekki til sigurs. Þá lék Oddur Gretarsson með Balingen-Weilstetten sem tapaði á heimavelli.
Agnar Smári Jónsson var gestur Svövu Kristínar Grétarsdóttur í þættinum Lífið utan leiksins sem sýndur var á Stöð 2 í kvöld. Þar opnar hann sig um átröskun en hann hefur glímt við sjúkdóminn undanfarin sex ár.
Handboltafólk á Íslandi krossleggur nú fingur og vonast til að geta byrjað að æfa í næstu viku. Framkvæmdastjóri HSÍ segir að tímabilið sé undir.
Forstöðumaður lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans, sem COVID-göngudeildin er hluti af, telur að íþróttastarf hér á landi verði í skugga kórónufaraldursins fram eftir 2021.
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, var í viðtali í Sportpakka kvöldsins og ræddi þar um stöðuna í íþróttalífinu.
Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik er nú statt í Grikklandi þar sem það leikur í undankeppni EM. Mikið hefur gengið á sökum kórónufaraldursins og þá týndust töskur á leiðinni.
ÍR fór nýstárlegar leiðir í fjáröflunum fyrir tímabilið í Olís deild karla í handbolta. Mun nýjasta útspil þeirra þó toppa allt fram að þessu.
Alls voru þrír Íslendingar markahæstir hjá liðum sínum í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Enginn þeirra landaði þó sigri í kvöld.
Rúnar Sigtryggsson býst við að farið verði rólega í að leyfa íþróttaæfingar með snertingu á ný.
Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, ræddi við Gaupa í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld um undirbúning íslenska karlalandsliðsins fyrir leikinn gegn Litáen á miðvikudaginn. Það vantar fjölda lykilmanna í íslenska liðið enda erfitt að fljúga mönnum heim í þessu árferði.
Hákon Daði Styrmisson tekur sæti Odds Gretarssonar í íslenska handboltalandsliðinu sem mætir Litháen á miðvikudaginn.
Magnús Óli Magnússon, leikmaður Vals í Olís deild karla í handbolta, var í dag valinn í A-landsliðið í handbolta er tveir leikmenn þurftu að draga sig úr hópnum.
Guðmundur Guðmundsson hefur bætt tveimur leikmönnum við íslenska landsliðshópinn sem mætir Litháen í undankeppni EM í næstu viku.
Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri KSÍ, ræddi frestun á leik Íslands og Ísrael í Sportpakka Stöðvar í 2 kvöld. Hann gefur ekki mikið fyrir ástæður frestunarinnar.
Ásgeir Örn Hallgrímsson – fyrrum landsliðsmaður Íslands og sérfræðingur Seinni bylgjunnar – sem valdi bestu fimm örvhentu leikmenn Olís deildar karla.
Stefnt er að því að hefja leik á Íslandsmótinu á handbolta á ný 11. nóvember.
UMFÍ greindi frá því á heimasíðu sinni í kvöld að eftir fund sviðsstjóra íþrótta- og tómstundasviða sveitarfélaganna hafi verið ákveðið að gefa grænt ljós á hluta af æfingum íþróttafélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Hver mega æfa, hvað má æfa og hvar má æfa íþróttir á höfuðborgarsvæðinu í dag? Upplýsingar um það hafa verið misvísandi og staðan er óskýr.
HSÍ hefur sótt um undanþágu svo landsleikir Íslands í undankeppni Evrópumótsins 2022 geti farið fram. Fyrr í dag voru allar íþróttir með snertingu bannaðar en Ísland mætir Litáen og Lettum í byrjun nóvembermánaðar.