Ástin á götunni
Nýtt lið sem hleypur inn á völlinn
"Undirbúningurinn hefur ekki verið upp á það besta. Það vantar marga lykilmenn og nánast nýtt lið sem hleypur inn á völlinn. Flestir leikmannanna eru ungir að árum og að stíga sín fyrstu skref og oft ná þeir að spila upp fyrir sig í svona leikjum," sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari Íslands, við Fréttablaðið
Guðni hundfúll
"Ég fer ekki leynt með að ég er hundfúll með að koma þessu stórefnilega liði ekki í milliriðil," sagði Guðni Kjartansson, þjálfari U19 ára landslið Íslands í knattspyrnu sem tapaði fyrir Króatíu 3-2 í undankeppni Evrópumóts landsliða þegar liðin mættust í Sarajevo í Bosníu í gær og er þar með úr leik.

Ziege að hugsa um að hætta
Þýski varnarmaðurinn Christian Ziege óttast að þrálát ökklameiðsli sem hann hefur átt við að stríða lengi séu að neyða hann til að leggja skóna á hilluna. Ziege leikur með Gladbach í þýsku úrvalsdeildinni, en lék áður á Englandi, meðal annars með Liverpool og Tottenham.

Ferdinand heldur líklega sæti sínu
Varnarmaðurinn Rio Ferdinand mun að öllum líkindum halda sæti sínu í vörn enska landsliðsins þegar það mætir Austurríki á laugardaginn, en miklar vangaveltur hafa verið um það hvort Sol Campbell myndi taka sæti hans, eftir að Ferdinand hefur verið nokkuð frá sínu besta að undanförnu.

Warnock stjóri mánaðarins
Neil Warnock hjá Sheffield United hefur verið kjörinn knattspyrnustjóri septembermánaðar í ensku fyrstu deildinni. United hefur þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar og liðið vann m.a. fimm leiki í röð í mánuðinum.

Bent ætlar á HM
Framherjinn knái hjá Charlton, Darren Bent, segist gera sér grein fyrir að hann verði að halda áfram að skora grimmt ef hann ætli sér að komast í enska landsliðshópinn fyrir HM í Þýskalandi næsta sumar, en mikil samkeppni er meðal framherjanna sem koma til greina í liðið.
Hremmingar í Póllandi
Landsliðsframherjinn Heiðar Helguson, leikmaður Fulham, boðaði forföll af persónulegum ástæðum í vináttulandsleikinn gegn Pólverjum annað kvöld en hann verður hins vegar með gegn Svíum á miðvikudaginn. Hannes Þ. Sigurðsson, leikmaður Stoke, var kallaður inn í hópinn í hans stað.

Gunnar heiðar metinn á 250 millur
Verðmiði Gunnars Heiðars Þorvaldssonar, framherja Halmstad, sem slegið hefur í gegn í sænsku úrvalsdeildinni, er á bilinu 125 til 250 milljónir íslenskra króna. Þetta kemur fram í sænska blaðinu Aftonbladet í gær.

Rooney segist hafa þroskast
Hinn ungi en skapheiti framherji Wayne Rooney hjá Manchester United, heldur því fram að hann hafi þroskast mikið síðan hann gekk í raðir liðsins og segir að aukin ábyrgð sem fylgi því að spila fyrir stórliðið muni verða til þess að flýta fyrir þroska sínum.

James framlengir við Man. City
Markvörðurinn David James hefur framlengt samning sinn við úrvalsdeildarlið Manchester City um eitt ár og verður því hjá félaginu til loka keppnistímabilsins 2006-2007. James er dottinn út úr myndinni hjá landsliðsþjálfaranum í bili, en Stuart Pearce hefur fulla trú á honum.

Everton vill Gunnar Heiðar
Stuðningsmannasíða enska úrvalsdeildarfélagsins Everton greindi frá því nú skömmu undir hádegið að félagið hafi hug á að fá markamaskínuna Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Gunnar Heiðar sem leikur með Halmstad í Svíþjóð hefur skorað alls 23 mörk í 34 leikjum fyrir sænska liðið á tímabilinu og hefur sú frammistaða vakið mikla athygli víðsvegar um Evrópu.

Cissé ósáttur hjá Liverpool
Franski framherjinn Djibril Cisse hjá Liverpool segir að hann muni ekki sætta sig við að vera á varamannabekknum hjá liðinu í allan vetur og segist muni hugsa sér til hreyfings ef ástandið lagast ekki fljótlega.

Helena áfram með KR
Helena Ólafsdóttir hefur verið ráðinn þjálfari KR í Landsbankadeild kvenna. Helena, sem er KR-ingur í húð og hár tekur við liðinu af Írisi Björk Eysteinsdóttur en Helena hafði leyst hana af í sumar eftir að Íris Björk þurfti að fara í barneingnarfrí.

Þarf metnaðarfyllra starfsumhverfi
Jóhannes Karl Guðjónsson, knattspyrnumaður hjá Leicester City, segist tilbúinn til þess að gefa kost á sér í landsliðið á nýjan leik. "Ég er tilbúinn til þess að gefa kost á mér á nýjan leik þegar metnaðarfyllra starfsumhverfi skapast."

Moyes hélt krísufund
David Moyes, stjóri botnliðs Everton í ensku úrvalsdeildinni, hélt krísufund með leikmönnum sínum í kjölfar tapsins gegn Manchester City um helgina. Everton er í neðsta sæti deildarinnar með aðeins þrjú stig og hefur aðeins náð að skora eitt mark í leikjunum sjö sem það hefur spilað.

Gerrard vill gleyma Belfast
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að hann og félagar hans í enska landsliðinu vilji gera allt sem í þeirra valdi stendur til að gleyma óförunum gegn Norður-Írum í Belfast á dögunum og til þess verði þeir að eiga góðan leik gegn Austurríkismönnum um helgina.

Bætt afkoma hjá Tottenham
Úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspurs lagði fram ársreikninga sína í morgun og þar sýndi félagið fram á bætta afkomu frá árinu þar á undan. Eftir að 2,7 milljóna punda halli var á rekstri félagsins á árinu 2003-04, hefur það nú sýnt fram á 4,1 milljón punda hagnað á síðasta reikningsári.

Hannes í landsliðið í stað Heiðars
Hannes Þ. Sigurðsson, leikmaður Stoke City, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn við Pólverja á föstudaginn í stað Heiðars Helgusonar hjá Fulham, sem hefur fengið að sleppa leiknum af persónulegum ástæðum.

Eriksson í vandræðum með bakverði
Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, á í mesta basli með að velja í bakvarðastöðurnar í liðinu fyrir leikinn gegn Austurríkismönnum um helgina, eftir að í ljós kom að Ashley Cole verður frá í nokkrar vikur vegna meiðsla.

Gunnar Heiðar með gegn Svíum
"Póllandsleikurinn á föstudaginn er úr sögunni en ég reikna fastlega með því að verða klár í slaginn gegn Svíum," sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson í samtali við Fréttablaðið eftir að hann kom úr læknisskoðun í gær. Hann meiddist í ökkla gegn Djurgården á mánudaginn og leist ekki á blikuna eftir leikinn.

Valur í vandræðum
Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður Vals í knattspyrnu hefur átt við erfið veikindi að stríða undanförnu og getur líklega ekki leikið með liðinu á Laugardalsvelli gegn Potsdam í 8 liða úrslitum Evrópukeppninnar í knattspyrnu á sunnudag. Sandra Sigurðardóttir markvörður Stjörnunnar mun líklega standa í marki Vals í fyrri leiknum í það minnsta.
Naumt tap fyrir Króatíu
Íslenska U-19 ára landslið Íslands tapaði 3-2 fyrir Króatíu í undankeppni EM í Sarajevo í dag og því eru möguleikar liðsin á því að komast í milliriðla í keppninni úr sögunni.

Ferdinand ósáttur við sjálfan sig
Varnarmaðurinn Rio Ferdinand segist ekki sáttur við frammistöðu sína það sem af er tímabilinu með Manchester United og enska landsliðinu og viðurkennir að hann hafi ekki staðið sig sem skyldi fram til þessa. Hann segist þó hafa skapgerð til að breyta því og koma sér í toppform á ný.

Fyrrum leikmaður Vals í fangelsi
Englendingurinn Mark Ward sem lék með Valsmönnum í efstu deild karla árið 1998 var í dag dæmdur í átta ára fangelsi, eftir að fjögur kíló af kókaíni fundust í íbúð hans í Liverpool í vor. Sigurbjörn Hreiðarsson fyrirliði Vals sem lék með honum á sínum tíma með Hlíðarendaliðinu lýsir Ward sem algjörum toppmanni.

Owen fer aldrei aftur frá Englandi
Framherjinn Michael Owen segir að hann muni aldrei leika annarsstaðar en á Englandi í framtíðinni, eftir að hann komst að því hvað það henti sér vel að leika í heimalandinu.

Keane hefur trú á arftaka sínum
Fyrirliði Manchester United, Roy Keane, segist hafa fulla trú á Alan Smith sem arftaka sínum í varnarhlutverkinu á miðjunni og segir að það eina sem Smith þurfi sé tími og alvöru leikir til að ná góðum tökum á nýju stöðunni.

Butt fær lengra bann
Miðjumaðurinn Nicky Butt hjá Birmingham hefur fengið leikbann sitt framlengt um einn leik fyrir að bölva dómara í leik gegn Portsmouth þann 17 september sl. Butt mun því missa af grannaslag Birmingham og Aston Villa þann 16 október, en lið Birmingham má illa við því.

Synd að Ívar sé ekki í hópnum
Brynjar Björn Gunnarsson, hetja Reading í uppgjöri efstu liðanna í ensku fyrstu deildinni, segir að samherji sinn Ívar Ingimarsson eigi heima í landsliðinu.

Real Madrid þénar mest
Spænska stórveldið Real Madrid hefur velt Manchester United af stalli og er nú það félag í heiminum sem þénar mestar tekjur, ef marka má nýjustu tölur frá spænska liðinu.

Stór stund fyrir Daða
"Ég hef þurft að svitna dálítið fyrir þessu landsliðssæti. Þetta hefur verið ótrúlegt ár. Fyrst Íslandsmeistaratitillinn, svo var ég valinn í lið ársins og svo landsliðssætið. Þetta er enn ein rósin í hnappagatið. Þetta verður auðvitað töluvert púsluspil gagnvart vinnunni og fjölskyldunni enda átta daga ferðalag framundan," sagði Daði sem vonast til þess að fá að spreyta sig í einhverjar mínútur í landsleiknum gegn Pólverjum