Ástin á götunni
321 322 323 324 325 326 327 328 329 … 334 ›
Mutu skoraði Rúmenski landsliðsmaðurinn Adrian Mutu skoraði í fyrrakvöld sitt fyrsta mark fyrir Juventus sem sigraði Cesena naumlega í æfingaleik 1-0. Mutu skoraði sigurmarkið á 88.mínútu í leik sem fer ekki í sögubækurnar að öðru leyti. Mutu kom til Juventus í janúar á frjálsri sölu eftir að hafa afplánað leikbann vegna lyfjamisnotkunar. Sport 13.10.2005 19:35
Lyon reynir að halda í Essien Franska liðið Lyon ætlar að gera allt sem það getur til að halda Michael Essien innan sinna raða.Viðræður við Chelsea um leikmanninn standa nú yfir og má fastlega búast við því að ensku meistararnir muni greiða það fyrir hann sem Lyon vill fá. Sport 13.10.2005 19:35
Djurgarden tapaði fyrir Landskrona Efsta liðið í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, Djurgarden, tapaðí í gærkvöldi á heimavelli fyrir Landskrona 0-1. Kári Árnason var í liði Djurgarden sem er með 30 stig í deildinni, þremur meira en Helsingborg sem er í öðru sæti. Sport 13.10.2005 19:35
Schalke sigraði Werder Bremen Schalke sigraði Werder Bremen í undanúrslitum í þýsku deildabikarkeppninni 2-1 í kvöld að viðstöddum tæplega 60 þúsund áhorfendum á heimavelli sínum. Mörk Schalke gerðu Ebbe Sand og Zlata Bajramovic en mark Werder Bremen gerði Valdez. Schalke mætir Stuttgart í úrslitum deildabikarsins á laugardaginn. Sport 13.10.2005 19:35
Janft í Akureyrarslagnum Þór og KA gerðu 2-2 jafntefli í fyrstu deild karla í kvöld. Jóhann Helgason og Pálmi Rafn Pálmason gerðu mörk KA manna en þeir Dragan Stojanovic og Ibra Jagne gerðu mörk Þórs. KS og HK gerðu markalaust jafntefli á Siglufirði og þá sigraði Völsungur lið Hauka 1-0 með marki Hermanns Aðalgeirssonar. Sport 13.10.2005 19:35
Keflavík jafnaði Evrópumet Skagans Keflavík komst í gær áfram í 2. umferð Evrópukeppni félagsliða með 2-0 sigri á Etzella frá Lúxemborg og jafnaði um leið Evrópumet Skagans frá 1995 með því að vinna samanlagt með sex marka mun. Sport 13.10.2005 19:35
Keane spilaði einn hálfleik Roy Keane, fyrirliði Man. Utd, spilaði í 45 mínútur með C-liði liðsins í æfingaleik gegn utanddeildarliðinu Rossendale í gær, þrátt fyrir að vera sagður meiddur og þess vegna ófær um að fylgja aðalliðinu í æfingaferð til Asíu. Sport 13.10.2005 19:35
Woodgate meiddur enn og aftur Það á ekki af varnarmanninum Jonathan Woodgate að ganga. Nú hefur hann enn einu orðið fyrir meiðslum og er líklegur til að missa af fyrstu vikum komandi keppnistímabils á Spáni. Sport 13.10.2005 19:35
Gilardino leikur með Milan í kvöld Markahrókurinn Alberto Gilardino sem gekk til liðs við A.C. Milan frá Parma í síðustu viku fyrir 17.2 milljónir punda leikur sinn fyrsta leik fyrir félagið í kvöld. Milan mætir Chicago Fire í kvöld vestur í Bandaríkjunum þar sem liðið er í æfingaferð. Sport 13.10.2005 19:35
Barton sektaður um 8 vikna laun Joey Barton, leikmaður Manchester City, var síðdegis sektaður um samtals 8 vikna laun af félagi sínu vegna atviks sem átti sér stað í Tælandi í síðustu viku en þar var Manchester City í æfingaferð. Sport 13.10.2005 19:35
Venesúela svíkur KSÍ Knattspyrnusamband Venesúela hefur aflýst vináttulandsleik við íslenska karlalandsliðið sem fram átti að fara á Laugardalsvelli 17. ágúst n.k. Þetta kom fram á heimasíðu venesúelska knattspyrnusambandsins fyrir skömmu en þar segir að settur hafi verið á vináttuleikur gegn Ekvador þennan dag í ágúst. Sport 13.10.2005 19:35
ÍBV komið til Færeyja Knattspyrnulið ÍBV er mætt til Færeyja þar sem liðið leikur síðari leik sinn gegn B36 í fyrstu umferð forkeppni UEFA-bikarins í Þórshöfn á morgun. Fyrri leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli á Hásteinsvelli í Eyjum þar sem Pétur Óskar Sigurðsson skoraði mark heimamanna. Leikurinn hefst klukkan 17:30 að íslenskum tíma á morgun. Sport 13.10.2005 19:35
Baptista ekki til Arsenal Sókanarmiðjumaður spænska liðsins Sevilla, Julio Baptista hefur engan áhuga á að að ganga til liðs við enska liðið Arsenal. Baptista, sem er brasilískur vill vera kyrr á Spáni og fá spænskt vegabréf. Arsene Wenger, knattspyrnusjóri Arsenal er hins vegar sagður ekki vera búinn að gefa upp alla von. Sport 13.10.2005 19:35
Fimm í eins leiks bann Fimm leikmenn í Landsbankadeildinni voru í gær dæmdir í eins leiks bann. Davíð Þór Viðarsson FH og Sölvi Sturluson úr KR voru reknir af velli en Bjarnólfur Lárusson KR fær leikbann vegna 6 gulra spjalda og Eyjamennirnir Andri Ólafsson og Heimir Snær Guðmundsson vegna fjögurra gulra spjalda. Sport 13.10.2005 19:35
Helgi Sig lék gegn Barcelona Helgi Sigurðsson og félagar í danska knattspyrnuliðinu AGF Aarhus máttu þola 0-4 tap á mánudagskvöld gegn spænska stórliðinu Barcelona en leikurinn var liður í undirbúningsferð Barca í Danmörku. Helgi var ekki í byrjunarliði AGF í leiknum en kom inn á í síðari hálfleik. Sport 13.10.2005 19:35
Leikur við Venesúela í lausu lofti Knattspyrnusamband Venesúela segir á heimasíðu sinni að landsleik milli Íslands og Venesúela í knattspyrnu, sem fyrirhugaður var 17. ágúst, hafi verið aflýst.Geir Þorsteinsson, framkvæmadstjóri knattspyrnusambands Íslands, segir þessa tilkynningu ótímabæra Sport 13.10.2005 19:35
Kristinn dæmir í Meistaradeildinni Knattspyrnudómarinn Kristinn Jakobsson dæmir í kvöld leik í annarri umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn er heimaleikur albanska liðsins KF Tirana og CSKA Sofia frá Búlgaríu og hefst hann kl. 18:30 að íslenskum tíma. Aðstoðardómarar í leiknum verða Pjetur Sigurðsson og Sigurður Óli Þorleifson. Eigill Már Markússon er eftirlitsdómari. Sport 13.10.2005 19:35
Toppliðin unnu í 1. & 2. deild Breiðablik heldur áfram sigurgöngu sinni í fyrstu deild karla í knattspyrnu. Blikar lögðu Fjölni 2-3 á útivelli eftir að hafa komist 0-2 yfir og eru með 35 stig á toppi deildarinnar, 10 stigum á undan Víkingi R sem vann mikilvægan 0-4 útisigur á nöfnum sínum frá Ólafsvík. Toppliðin tvö í 2. deild karla unnu bæði leiki sína í kvöld. Sport 13.10.2005 19:35
Ronaldo með tvö fyrir Real Madrid Brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir Real Madrid sem vann 3-1 sigur á japanska liðinu Jubilo Iwata í æfingaleik í kvöld en spænska liðið er nú í æfingaferð niðri í Asíu. Fyrirliðinn Raul skoraði eitt mark þegar hann kom Real í 1-0 áður en heimaliðið náði að jafna. Sport 13.10.2005 19:35
Benitez sæmilega sáttur Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur lýst frammistöðu sinna manna gegn Kaunas frá Litháen í Meistaradeildinni í gær sem "ágætri." Sport 13.10.2005 19:35
Forkeppni Meistaradeildar Evrópu Evrópumeistarar Liverpool áttu ekki í miklum vandræðum með að leggja Kaunas frá Litháen að velli í fyrri leik liðanna í 2. umferð forkeppni meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gærkvöldi. Kaunas skoraði fyrsta markið á heimavelli en Liverpool skoraði þrívegis og vann 3-1. Djibril Cisse, Jaime Carragher og Steven Gerard skoruðu mörkin. Sport 13.10.2005 19:35
Anderlecht burstaði Nefchi FH banarnir í Nefchi fengu slæman skell í Belgíu í kvöld er liðið tapaði 5-0 fyrir Anderlecht í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Seinni leikur liðanna verður í Azerbadjan eftir rúma viku. Þá sigruðu Árni Gautur Arason og félagar hans í norska liðinu Valerenga lið Haka frá Finnlandi 1-0 en leikurinn fór fram í Noregi. Sport 13.10.2005 19:35
Davids til Tottenham Hollendingurinn Edgar Davids, sem er á mála hjá Inter Milan gengur að öllum líkindum til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Tottenham síðar í vikunni. "Hann er mjög fjölhæfur miðjumaður, hann vinnur boltann, hann getur stjórna spili liðs, með frábært úthald og magnað persónuleika," sagði Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham um Davids. Sport 13.10.2005 19:35
Anderlecht 2-0 yfir gegn Neftchi Anderlecht frá Belgíu er komið 2-0 yfir eftir aðeins 23 mínútna leik gegn FK Neftchi frá Aserbaídjan í forkeppni Meistaradeildar Evrópu en það var einmitt FK Neftchi sem sló út FH-liðið 4-1 samanlagt í fyrstu umferðinni. Mörkin skoruðu Tihinen á 20. mínútu og Jestrovic á 23. mínútu. Sport 13.10.2005 19:35
Liverpool yfir í hálfleik Liverpool er yfir í hálfleik gegn Kaunas í Litháen 2-1 í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Baravicius kom Kaunas yfir en þeir Cisse og Carrager gerðu mörk Liverpool. Sport 13.10.2005 19:35
Inzaghi ætlar að hjálpa Gilardino Filippo Inzaghi, sóknarmaður AC Milan, segist ekki geta beðið eftir því að fá að spila við hlið Alberto Gilardino sem nýgenginn er í raðir félagsins. Gilardino var keyptur frá Parma fyrir 17,2 milljónir punda en hann er 23 ára. Inzaghi segist vera rétti maðurinn til að kenn honum enn meira. Sport 13.10.2005 19:35
Nýliðar Wigan fá Henchoz Wigan Athletic, nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni, hafa náð samkomulagi við svissneska landsliðsmanninn Stephane Henchoz. Þessi fyrrum varnarmaður Liverpool hefur undanfarna viku æft með Wigan og náði að sannfæra knattspyrnustjórann Paul Jewell um að hann sé vænlegur kostur. Sport 13.10.2005 19:34
Man Utd sigraði Peking Manchester United sigraði Peking Hyundai 3-0 í hádeginu í dag í Kína en liðið er statt þar í æfingaferð. Paul Scholes gerði tvö marka United en nýji maðurinn Park ji-sung frá Suður Kóreu gerði þriðja markið en það var hans fyrsta í United búningi. Sport 13.10.2005 19:35
Liverpool sigraði 3-1 Liverpool sigraði lið Kaunas frá Litháen 3-1 í Litháen í annarri umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Kaunas komst yfir með marki frá Baravicius en þeir Cisse, Carrager og Gerrard úr víti svöruðu fyrir Liverpool. Sport 13.10.2005 19:35
Hlutbréf í Newcastle rjúka upp Hlutabréf í enska úrvalsdeildarliðinu Newcastle hækkuðu um tæp 18% í dag eftir að orðrómur komst á kreik um að tveir fjárfestar hefðu hug á að kaupa 28,5% hlut Sir John Hall, eins aðaleigenda félagsins og fyrrverandi stjórnarformanns. Sport 13.10.2005 19:35
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent