

Breiðablik mun leika í vínrauðum treyjum gegn Fylki er liðin mætast í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í dag. Er það gert í tilefni 70 ára afmæli Breiðabliks.
Breiðablik er með níu fingur á Íslandsmeistaratitlinum eftir 1-0 útisigur á Val að Hlíðarenda í kvöld. Vísir var á svæðinu og náði stórglæsilegum myndum úr leiknum.
Pétur Pétursson, þjálfari Íslandsmeistara Vals, var eðlilega ósáttur með 0-1 tap Vals á heimavelli gegn Breiðabliki í leik sem hefur verið kallaður „úrslitaleikur Íslandsmótsins.“
Agla María Albertsdóttir skoraði sigurmark Breiðabliks er liðið vann Val í óopinberum úrslitaleik Pepsi Max deildar kvenna að Hlíðarenda í dag.
Berglind Rós Ágústsdóttir, fyrirliði og óvæntur markaskorari Fylkis í dag, var ekkert alltof sátt með stigið sem liðið náði í gegn Stjörnunni í dag. Hún tekur þó stiginu og fagnar að fyrsta – og líklega eina – mark sumarsins sé komið.
Kórdrengir slátruðu Fjarðabyggð 6-1 í 2. deild karla í Fjarðabyggðahöllinni í dag. Með sigrinum eru Kórdrengirnir prúðu komnir langleiðina með að tryggja sæti sitt í Lengjudeildinni á næsta tímabili, sem er næstefsta deild á Íslandi.
Að venju er nóg um að vera á Stöð 2 Sport og hliðarrásum á þessum laugardegi.
Tindastóll tryggði endanlega toppsætið í Lengjudeild kvenna eftir sigur á ÍA í kvöld.
Stefán Teitur Þórðarson, einn besti leikmaður Pepsi Max deildarinnar í knattspyrnu, mun spila í Danmörku frá og með næstu helgi.
Rúnar Kristinsson, þjálfari Íslandsmeistara KR, var sáttur með sigur sinna manna gegn Víking eftir allt sem hefur gengið á undanfarið. Hann hrósaði Guðjóni Orra Sigurjónssyni sérstaklega en markvörðurinn varði víti í 2-0 sigri í kvöld.
Hilmar Árni Halldórsson bjargaði stigi fyrir Stjörnuna með marki í uppbótartíma er FH mætti í Garðabæinn í 14. umferð Pepsi Max deildar karla.
Leikið var í 14. umferð Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í kvöld. Breiðablik og KA skildu jöfn á Kópavogsvelli og markaskorari Blika var svekktur í leikslok.
Rúnar Kristinsson hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara KR til ársins 2023.
Ummæli tökumanns Gróttu TV í garð dómara kostuðu Gróttu 50 þúsund krónur.
Knattspyrnufélag Vesturbæjar og Reynir Sandgerði eru komin upp úr 2. deild karla í knattspyrnu þó enn séu þrjár umferðir eftir af mótinu. Bæði lið unnu leiki sína í kvöld.
Íþróttafélag Hafnafjarðar tryggði sér sæti í 3. deild karla í knattspyrnu með ótrúlegum 7-1 sigri á Kormáki/Hvöt í úrslitakeppni 4. deildarinnar í kvöld.
Gunnari Guðmundssyni og Srdjan Rajkovic eru ekki lengur þjálfarar meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Þrótti Reykjavík. Liðið er í bullandi fallbaráttu í Lengjudeild karla.
Birkir Már hefur átt frábært sumar í hægri bakverðinum hjá Val sem stefnir hraðbyr að Íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu. Hann segist tilbúinn ef kallið kemur frá landsliðsþjálfurum Íslands.
KR tapaði enn einum leiknum í Pepsi Max deild kvenna er liðið tapaði 2-1 gegn Selfyssingum á útivelli. KR komst yfir en tókst ekki að halda út og liðið er á botni deildarinnar sem stendur.
Selfoss er komið upp í 3. sæti Pepsi Max deildar kvenna eftir að endurkomu gegn KR á heimavelli í dag. Lokatölur 2-1 Selfyssingum í vil.
Lið KFS frá Vestmannaeyjum er komið upp í 3. deild karla í knattspyrnu eftir sigur á Hamri frá Hveragerði í dag. Gömlu brýnin Ian Jeffs, Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Matt Garner leika allir með liðinu.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir er ekki aðeins einn besti leikmaður Pepsi Max deildar kvenna þrátt fyrir ungan aldur heldur hefur hún einnig tekið að sér lýsingar í eFótbolta sem sýndur er hér á Vísi.
Leiknir Reykjavík vann ótrúlegan 0-7 sigur gegn Leikni Fáskrúðsfirði á útivelli í Lengjudeildinni. Þá er Magni Grenivík enn á lífi eftir sigur á Þrótti Reykjavík.
Keflavík er komið með annan fótinn í efstu deild karla í knattspyrnu að ári eftir sigur á ÍBV í dag. Þá vann Grindavík öruggan sigur á Víking Ó. og Þór Ak. gerði jafntefli við Aftureldingu.
Það er nóg um að vera á Stöð 2 Sport og hliðarrásum í dag. Fótboltinn er í fyrirrúmi en við sýnum frá leikjum í Keflavík, Lundúnum, Búdapest San Sebastian og úthverfum Madríd á Spáni.
Afturelding gerði jafntefli við Augnablik á heimavelli í Lengjudeild kvenna. ÍA sendi Fjölni niður í 2. deild og Keflvík valtaði yfir Víking Reykjavík.
Knattspyrnudeild Fylkis íhugar að leggja fram kæru á hendur KR og Rúnari Kristinssyni, þjálfara liðsins, vegna þeirra ummæla sem hann lét falla eftir 2-1 tap Íslandsmeistaranna í viðureign liðanna í gær.
Stjarnan vann dramatískan sigur í fimm marka leik þegar Garðbæingar heimsóttu HK-inga í Pepsi Max deildinni í kvöld.
Framganga Ólafs Inga Skúlasonar var helsti umræðupunkturinn eftir dramatískan sigur Fylkis á KR í Pepsi-Max deild karla í fótbolta í dag.
Arnar Gunnlaugsson var mjög sáttur með spilamennsku sinna manna er Víkingur náði 2-2 jafntefli gegn ÍA á Akranesi í dag. Honum fannst lið sitt spila frábærlega, sérstaklega í ljósi þess að það vantaði fjölda sterkra leikmanna en hann vill þó fækka mistökum.