Verðlag
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 31 ›
Undirliggjandi verðbólga minnkar en telur „útilokað“ að vextir lækki strax Þrátt fyrir að varast beri að lesa of mikið í óvænta lækkun á vísitölu neysluverðs, sem mátti einkum rekja til sveiflubundinna liða, þá er afar jákvætt að undirliggjandi verðbólga virðist vera að dragast saman sem gefur tilefni til aukinnar bjartsýni, að mati greiningar Arion banka. Verðbólguálagið á markaði hefur hríðfallið frá því í gærmorgun en skuldabréfamiðlari telur hins vegar „útilokað“ að peningastefnunefnd muni lækka vexti strax í næstu viku, einkum þegar enn er ósamið á almennum vinnumarkaði. Innherji 31.1.2024 13:49
Minnsta verðbólga í tæp tvö ár Verðbólga hefur ekki verið minni frá því í mars fyrir tveimur árum og mælist nú 6,7 prósentustig. Þetta hljóta að teljast góð tíðindi inn í kjaraviðræður þar sem samningsaðilar stefna allir að gerð samninga sem leiði til minni verðbólgu og lækkun vaxta. Viðskipti innlent 30.1.2024 13:01
Sagan sýnir að annað eins bætist við kjarasamninga í formi launaskriðs Aðalhagfræðingur Kviku bendir á að þótt samið yrði um almenna krónutöluhækkun launa í yfirstandi kjarasamningum, sem gæti virst hófstillt, sýnir sagan að ofan á hana leggist síðan annað eins í formi launaskriðs. Hann telur jafnframt að jafnvel þótt kjarasamningar verði hófstilltir gæti Seðlabankinn viljað sjá skýr merki um hjöðnun verðbólgunnar áður en stóru skrefin verða stigin til að minnka vaxtaaðhaldið. Innherji 30.1.2024 11:52
Verðbólga komin niður í 6,7 prósent Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,16 prósent í janúar frá mánuðinum á undan. Vísitalan án húsnæðis lækkaði hins vegar um 0,5 prósent frá desembermánuði. Verðbólga síðastliðna tólf mánuði er nú komin niður í 6,7 prósent, en stóð í 7,7 prósentum í desember. Viðskipti innlent 30.1.2024 09:17
Verð á brauði frá Myllunni hækkaði mest Verð á brauði, kexi og kökum hækkaði á bilinu 0-7% frá októberlokum til janúarloka í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ. Verð hækkuðu ekki í Extra og Bónus, en hækkuðu um 7% í Iceland. Þar munaði mestu um Finn Crisp vörur, sem hækkuðu um fjórðung í Iceland á þessum þremur mánuðum. Neytendur 29.1.2024 16:04
Mögulegt að boða til verkfalla á fimmtudag Friðarskylda á almennum vinnumarkaði rennur út á fimmtudag. Formaður VR segir augljóst að gripið verði til aðgerða nálgist Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld ekki breiðfylkingu verkalýðsfélaga við samningaborðið. Hugmynd formanns Starfsgreinasambandsins um engar launahækkanir á þessu ári dragi opinberir aðilar gjaldskrárhækkanir til baka hafi ekki verið rædd í innan breiðfylkingarinnar. Innlent 29.1.2024 12:13
Næsti fasi að slíta viðræðum og ráðast í aðgerðir Kjaraviðræðum breiðfylkingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði og Samtaka atvinnulífsins hefur verið vísað til ríkissáttasemjara eftir árangurslausan fund í dag. Formaður VR segir grafalvarlegt mál að deilan sé nú komin í þennan farveg. Innlent 24.1.2024 21:35
Samningsviðræðum slitið og deilunni vísað til ríkissáttasemjara Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir að kjaraviðræðum breiðfylkingar ASÍ við Samtök atvinnulífsins hafi verið slitið og deilunni verði nú vísað formlega til ríkissáttasemjara. Frost er komið í viðræðurnar. Innlent 24.1.2024 16:51
Sólveig Anna segir ríkisstjórnina ekki getað fríað sig ábyrgð í kjarasamningum Formaður Eflingar segir kjarasamninga ríflega sjötíu prósenta fólks á vinnumarkaði ekki eitthvað verkefni sem stjórnvöld geti ýtt frá sér vegna atburðanna í Grindavík. Samningarnir skipti alla þjóðina máli. Innlent 23.1.2024 19:29
Dapurlegt ef stjórnvöld ætla að draga í land í kjaraviðræðum vegna Grindavíkur Formaður VR segir dapurlegt ef stjórnvöld ætli að notfæra sér stöðuna í Grindavík til að draga í land með aðgerðir í tengslum við nýja kjarasamninga. Stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins virðist ekki hafa trú á að hægt sé að ná niður verðbólgu og vöxtum. Ef Seðlabankinn hækki vexti í byrjun febrúar sé þátttöku verkalýðshreyfingarinnar í þessari tilraun lokið. Innlent 23.1.2024 11:46
Staðan komi á óvart en samstaða ríki innan breiðfylkingarinnar Formaður VR segir stöðuna sem upp er komin í kjaraviðræðum breiðfylkingar stéttarfélaga við Samtök atvinnulífsins mjög alvarlega. Aðkoma stjórnvalda ætti að koma þeim sjálfum vel, enda sé markmið nýrra samninga að draga úr verðbólgu og vaxtastigi. Innlent 19.1.2024 11:01
Ræða að vísa deilunni formlega til ríkissáttasemjara Samninganefnd breiðfylkingar stéttarfélaga kemur saman klukkan tíu í dag til að ræða næstu skref í harðnandi kjaradeilu við Samtök atvinnulífsins. Formaður Starfsgreinasambandsins telur líklegt að niðurstaða fundarins verði að vísa deilunni formlega til ríkissáttasemjara. Innlent 19.1.2024 09:32
Viðræður breiðfylkingar ASÍ og SA í uppnámi Formaður VR segir Samtök atvinnulífsins hafa hleypt kjaraviðræðum í uppnám með kröfu um að tekið verði tillit til launaskriðs þeirra hæstlaunuðu í kostnaðarmati við kjarasamninga. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir markmið samningsaðila enn vera þau sömu, að ná niður verðbólgu og vöxtum. Innlent 18.1.2024 19:21
Kuldi í kjaraviðræðum vegna deilna um launaskrið Nú þegar hálfur mánuður er þar til friðarskylda rennur út á almennum vinnumarkaði ásamt gildandi skammtímasamningum, er mikil óvissa komin í viðræður breiðfylkingar stéttarfélaga og Samtaka atvinnulífsins. Verkalýðsforystan segir atvinnurekendur vilja minni krónutöluhækkanir vegna launaskriðs þeirra hærra launuðu. Innlent 18.1.2024 12:07
Segja þeim upp sem hækka verð verulega Samkaup, sem reka um sextíu verslanir á landinu á borð við Nettó og Krambúðina, segjast hafa fengið jákvæð viðbrögð frá ýmsum samstarfsaðilum um aðgerðir gegn verðbólgu. Á næstu misserum muni fyrirtækið ræða við alla sína birgja með það að markmiði að verðlækkanir skili sér í vöruverði til almennings. Hætt verði sölu á þeim vörum sem hækkað hafi óhóflega og ódýrari sambærilegar vörur valda til sölu. Neytendur 17.1.2024 13:01
Pallborðið: Hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? Viðvarandi verðbólga og vaxtahækkanir, húsnæðiskreppa, stöðugar jarðhræringar, óvinsæl ríkisstjórn, forsetakosningar framundan og hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? Heimir Már Pétursson fær leiðtoga stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 í dag. Innlent 17.1.2024 12:34
Karamelluskyrið rýkur upp í verði Verð á mjólkurvörum hækkaði í mörgum verslunum milli fyrstu og annarrar viku ársins samkvæmt niðurstöðum verðlagseftirlits ASÍ. Heildsöluverð á mjólk hækkaði um 1,6 prósent þann 8. janúar sem er strax farið að skila sér í meiri kostnaði fyrir neytendur. Áhugafólk um karamelluskyr finnur sérstaklega fyrir hækkun. Neytendur 17.1.2024 11:17
Milljarðamæringar vilja borga meiri skatta Rúmlega 250 milljarða- og milljónamæringar í dollurum talið hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þess er krafist að ríkisstjórnir heims hækki skattana þeirra. Erlent 17.1.2024 07:34
Andrés húðskammar Lyfjastofnun Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu gagnrýnir Lyfjastofnun fyrir 8,7 prósenta hækkun á gjaldskrá um áramótin. Allir verði að leggja sitt af mörkum í baráttu við verðbólgu og háa vexti, líka Lyfjastofnun. Viðskipti innlent 15.1.2024 15:02
Spáir hækkun vaxta og segir samninga um hóflegar launahækkanir ekki nóg Það er ekki nóg að semja aðeins um hóflega launahækkanir í yfirstandandi kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði eigi að ná niður verðbólgunni heldur þarf sömuleiðis að fylgja með aðhald í opinberum fjármálum og peningastefnu Seðlabankans, að mati forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Hann er svartsýnn á að vextir gangi niður í bráð og spáir því að meginvextir Seðlabankans muni þess í stað hækka um tvær prósentur á árinu samhliða áframhaldandi aukningu í straumi ferðamanna til landsins. Innherji 15.1.2024 14:17
Úrlausnarefni að samræma væntingar á almenna og opinbera vinnumarkaði Forsætisráðherra segir úrlausnarefni að sameina væntingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði annars vegar og opinbera markaðnum hins vegar. Hún leyfi sér hins vegar að vera bjartsýn á að takast muni að ganga frá kjarasamningum innan ekki langs tíma. Innlent 15.1.2024 13:21
Hafa tvöfaldað auð sinn á fjórum árum Fimm ríkustu menn í heimi hafa rúmlega tvöfaldað auð sinn frá árinu 2020. Á sama tíma hefur staða sextíu prósenta jarðarbúa versnað, en það eru næstum því fimm milljarðar manna. Erlent 15.1.2024 07:49
Gæti vantað „einhverjar vörur í hillur“ Haga vegna afstöðu gegn verðhækkunum Forstjóri Haga sagði að í verslunum samstæðunnar verði tekin afgerandi afstaða gegn verðhækkunum sem teljist umfram það sem innistæða væri fyrir eða ógni samningsmarkmiðum komandi kjarasamninga. „Það er mögulegt að það muni vanta einhverjar vörur í hillur sem fólk er vant að geta gengið að; það væri einfaldlega vegna þess að okkar mati hafa þær hækkað of mikið.“ Innherji 12.1.2024 13:53
Spá því að ársverðbólga verði 5,9 prósent í apríl Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga haldi áfram að hjaðna og verði komin í sex prósent í apríl. En til að það gerist þarf íbúðamarkaður „að vera til friðs“ og krónan að haldast stöðug. Þetta kemur fram í nýjustu spá deildarinnar sem birt var í dag. Viðskipti innlent 11.1.2024 11:16
Gjaldskrárhækkanir hafi numið tugum og jafnvel hundruðum prósenta Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir vel hægt að komast hjá gjaldskrárhækkunum sem tóku gildi hjá borginni nú um áramót. Standa þurfi öðruvísi að rekstrinum svo fjölskyldur súpi ekki seyðið af hækkunum. Innlent 8.1.2024 12:32
Samvinnuverkefni um lægri verðbólgu og vexti Jákvæður tónn var sleginn í kjaraviðræðum Samtaka atvinnulífsins og stærstu stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði þegar sameiginleg yfirlýsing var send út nú rétt fyrir áramót. Í yfirlýsingunni er sérstaklega tiltekið mikilvægi þess að semja til lengri tíma svo auka megi fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu. Skoðun 7.1.2024 06:31
Átján prósenta verðhækkun ólíðandi að mati bæjarstjóra HS veitur segja að skortur á raforku í landinu hafi leitt til 18 prósenta verðhækkunar á heitu vatni í Vestmannaeyjum. Bæjarstjóri segir ekkert í hendi um að ríkið komi til móts við Eyjamenn. Innlent 4.1.2024 16:44
Coca-Cola á Ísland fjárfesti fyrir 1,4 milljarða króna í nýrri framleiðslulínu Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi (Coca-Cola á Íslandi) fjárfesti fyrir 1,4 milljarða króna í nýrri framleiðslulínu á árinu. Hún tryggir áframhaldandi framleiðslu óáfengra drykkjarvara á Íslandi og „umbylti framleiðsluferlinu okkar í öllu sem snýr að sjálfbærni,“ segir forstjóri félagsins. Innherji 2.1.2024 08:39
Viðskiptafréttir ársins 2023: Sala áratugarins, vandræði Marel og heljarinnar gjaldþrot Árið sem líður var, eins og nánast öll ár, viðburðaríkt hvað varðar viðskiptin. Árið einkenndist af ítrekuðum stýrivaxtahækkunum, síhækkandi verðalagi og mikilli lækkun hlutabréfaverðs en einnig stórum sigrum í atvinnulífinu. Viðskipti innlent 29.12.2023 15:56
Samningsaðilar samstíga eftir fyrsta fundinn Fyrsti fundur nýrrar breiðfylkingar langflestra félaga ASÍ og Samtaka atvinnulífsins fór fram hjá ríkissáttasemjara í morgun. Samningsaðilar segja mikla samstöðu um að ná samningum, sem stuðla að hjöðnun verðbólgu, hratt og vel. Innlent 22.12.2023 12:55