

Juventus hefur komið þeim skilaboðum áleiðis til Real Madrid að miðjumaðurinn Arturo Vidal sé ekki til sölu en Real hefur verið að sýna leikmanninum áhuga.
Fjölmargir leikir fóru fram í ítölsku úrvalsdeildinni í dag en toppliðin tvö, Juventus og AC Milan, unnu bæði sína leiki.
Það eru margar sögusagnir um Juventus þessa dagana enda er liðið talið ætla að styrkja sig umtalsvert í sumar. Nú er hermt að félagið ætli sér að næla í Edinson Cavani, leikmann Napoli.
Ellefu stuðningsmenn ítalska fótboltaliðsins Genoa létu afar ófriðlega á áhorfendapöllunum gegn Siena s.l. sunnudag og ítalska knattspyrnusambandið tók afar hart á hegðun þeirra. Stuðningsmennirnir fá ekki að stíga fæti inn á áhorfendasvæðin á ítölskum fótboltavöllum næstu fimm árin
Það varð uppi fótur og fit á leik Genoa og Siena í ítalska boltanum í dag þegar harðkjarnastuðningsmenn Genoa snéru baki við liði sínu í bókstaflegri merkingu.
Einstök uppákoma átti sér stað í leik Napoli og Novara þegar dómara tókst á einhvern ótrúlegan hátt að fara úr axlarlið við það eitt að dæma aukaspyrnu.
AC Milan missteig sig illa í toppbaráttu ítalska boltans í dag þegar liðið fékk Bologna í heimsókn. Lokatölur þar 1-1.
Möguleikar Inter á að komast í Meistaradeildina minnkuðu nokkuð í dag er liðið varð að sætta sig við markalaust jafntefli gegn Fiorentina.
Nýr búningur sem ítalska félagið Reggina notaði um daginn hefur vakið heimsathygli enda þykir hann einn sá ljótasti sem hefur verið hannaður.
Juventus náði í kvöld þriggja stiga forskoti á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar. Juve vann þá auðveldan sigur, 4-0, á Roma.
Emil Hallfreðsson og félagar í ítalska liðinu Hellas Verona töpuðu óvænt fyrir Crotone, 3-1, í ítölsku B-deildinni í dag.
Það hefur ekkert gengið hjá Diego Forlan í herbúðum Inter og búið er að orða hann við lið í Suður-Ameríku. Hann ætlar þó að vera áfram í herbúðum félagsins næsta vetur.
Þúsundir stuðningsmanna ítalska liðsins Livorno mættu í jarðarför knattspyrnumannsins Piermario Morosini en hann var borinn til grafar í dag.
Slóvakinn Marek Hamsik hefur endalega bundið enda á sögusagnir um framtíð sína með því að skrifa undir nýjan samning við hið stórskemmtilega lið Napoli.
Það verða hugsanlega asísk áhrif í leik AC Milan á næstu leiktíð því félagið er með Japanann Shinji Kagawa í sigtinu en leikmaðurinn hefur slegið í gegn hjá Borussia Dortmund.
Liðsfélagar Piermario Morosini og þúsundir stuðningsmanna Livorno minntust hans í dag þremur dögum eftir að hann fékk hjartaáfall og lést í miðjum leik Livorno og Pescara í ítölsku b-deildinni. Morosini verður jarðsunginn á morgun í heimabæ sínum Bergamo.
Hollenski landsliðsmaðurinn Wesley Sneijder hefur ekkert getað æft með Inter í mánuð vegna meiðsla en er loksins að verða klár í slaginn á nýjan leik.
Piermario Morosini lést í miðjum knattspyrnuleik á Ítalíu í gær eftir að hafa fengið hjartaáfall. Mikil sorg ríkir nú á Ítalíu en öllum leikjum helgarinnar í tveimur efstu deildunum var frestað.
Hræðilegt atvik átti sér stað í leik Livorno og Pescara í ítölsku B-deildinni í dag þegar Ítalinn Piermario Morosini, leikmaður Livorno, fékk hjartaáfall og var síðan úrskurðaur látinn stuttu síðar.
Alessandro del Piero var hetja Juventus í kvöld er liðið vann afar mikilvægan sigur Lazio í kvöld.
AC Milan komst aftur á topp ítölsku úrvalsdeildarinnar í kvöld er liðið vann fínan útisigur á Chievo.
Zlatan Ibrahimovic er ekkert hættur orðastríði sínu við Pep Guardiola, þjálfara Barcelona, þótt að Barcelona-liðið sé búið að slá Zlatan og félaga hans í AC Milan út úr Meistaradeildinni.
Juventus skellti sér á toppinn í ítölsku seríu A-deildinni í kvöld þegar liðið vann góðan sigur á Palermo 2-0 en leikurinn fór fram á Renzo Barbera, heimavelli Palermo.
Átta leikjum er lokið í ítölsku seríu A-deildinni í knattspyrnu en Fiorentina gerði sér lítið fyrir og vann toppliðið í AC Milan 2-1 á útivelli.
Hellas Verona tapaði mikilvægum stigum þegar að liðið mátti þola tap gegn Brescia, 2-1, í ítölsku B-deildinni í dag.
Ólánið leikur við Brasilíumanninn Alexandre Pato sem þurfti að fara af velli vegna meiðsla eftir aðeins 13 mínútna leik í viðureign AC Milan gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu í vikunni.
Það var glatt á hjalla í afmælisveislu elsta núlifandi stuðningsmanns Inter sem er níu árum eldri en félagið sjálft.
Rafael Benitez, fyrrum stjóri Liverpool, hefur verið atvinnulaus síðan að hann var rekinn frá Inter Milan í árslok 2010 og er hann jafnan orðaður við öll störf sem losna í bestu deildunum í Evrópu. Spánverjinn ætlar að bíða þolinmóður eftir rétta starfinu.
Antonio Cassano, framherji AC Milan og ítalska landsliðsins, má nú spila með liðinu á nýjan leik en hann hefur ekkert verið með síðan í lok október og hefur í millitíðinni gengist undir aðgerð á hjarta.
Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, er búinn að skrifa formanni ítalska knattspyrnusambandsins bréf þar sem hann kvartar yfir tveimur mikilvægum dómum sem hafa fallið gegn Mílanó-liðinu.