Ítalski boltinn

Vill enginn ráða Lippi?
Ítalski þjálfarinn Marcello Lippi virðist ekki hafa fengið mörg símtöl undanfarið en hann er enn á ný að auglýsa sig á lausu í viðtölum við fjölmiðla. Lippi stýrði síðast ítalska landsliðinu til sigurs á HM í fyrra, en eina tilboðið sem vitað er að honum hafi verið boðið formlega til þessa er staða knattspyrnustjóra hjá Birmingham.

Emil fór meiddur af velli
Emil Hallfreðsson þurfti að fara út af í hálfleik leiks Sampdoria og Reggina í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Sampdoria vann leikinn, 3-0.

Hodgson ráðinn til Inter
Enski knattspyrnuþjálfarinn Roy Hodgson sem í dag sagði af sér sem landsliðsþjálfari Finna, hefur ráðið sig í vinnu sem aðstoðarmaður Massimo Moratti, forseta Inter á Ítalíu.

Kaka ætlar að læra til prests
Miðjumaðurinn strangtrúaði Kaka hjá AC Milan og brasilíska landsliðinu segir að sig langi að læra til prests þegar hann leggur skóna á hilluna.

Tekur við Palermo í fjórða sinn
Francesco Guidolin var í dag ráðinn þjálfari Palermo en þetta er í fjórða sinn sem hann tekur við liðinu.

Reggina af fallsvæðinu
Emil Hallfreðsson spilaði allan leikinn með liði sínu Reggina í dag þegar liðið gerði 0-0 jafntefli við Fiorentina í dag. Stigið nægði til að lyfta liðinu af fallsvæðinu og hefur það nú hlotið 10 stig í 13 leikjum, en Fiorentina er í 4. sæti deildarinnar.

Kaka fær gullknöttinn segja Ítalir
Ítalska blaðið Corriera della Sera segist hafa heimildir fyrir því að miðjumaðurinn Kaka hjá AC Milan verði sæmdur Gullknettinum þann 2. desember nk. Verðlaunin eru veitt besta knattspyrnumanni Evrópu árlega, en nú koma leikmenn frá löndum utan Evrópu líka til greina í valinu. Kaka mun hafa verið sagt að gera sig kláran til að mæta og taka við verðlaunum sínum í upphafi næsta mánaðar.

Adriano neitar að vera kominn í flöskuna
Brasilíski framherjinn Adriano segist ekki vera farinn að misnota áfengi á ný þrátt fyrir nokkrar fréttir af því að hann sé farinn að halla sér að flöskunni á ný þar sem hann er við æfingar í heimalandi sínu.

Öskubuskuævintýrið AlbinoLeffe
Smálið AlbinoLeffe situr sem stendur í efsta sæti ítölsku B-deildarinnar í knattspyrnu. Það verður að teljast afrek fyrir lið sem stofnað var af litlum efnum við samruna tveggja neðrideildarliða fyrir aðeins níu árum.

Adriano líklegastur til að hreppa ruslatunnuna
Ný styttist í að ítalska útvarpsstöðin Radio2 Catersport tilkynni hver hreppir hina árlegu Gullnu Ruslatunnu, sem eru verðlaun sem veitt eru þeim leikmanni sem þykir hafa verið lélegastur í A-deildinni á árinu.

Juventus sektað fyrir að kalla Zlatan skítugan sígauna
Ítalska knattspyrnufélagið Juventus var í dag sektað um 1,8 milljónir króna vegna framkomu stuðningsmanna A-deildarliðsins í garð fyrrum leikmanns félagsins, Zlatan Ibrahimovic, þann 4. nóvember sl.

Adriano lánaður til Arsenal?
Fregnir herma frá Ítalíu að Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sé á góðri leið með að landa lánssamningi við Inter vegna Brasilíumannsins Adriano.

Lögreglumaðurinn ákærður fyrir morð
Lögreglumaðurinn sem banaði stuðningsmanni Lazio í átökunum sem urðu á Ítalíu um síðustu helgi verður ákærður fyrir morð. Þetta staðfestir lögmaður hans í frétt á vef breska sjónvarpsins í kvöld.

Ánægður með að spila ekki á Ítalíu
Fabio Cannavaro, einn besti leikmaður heimsmeistaraliðs Ítalíu, segist hástánægður með að vera ekki að spila í heimalandinu. Ítalska deildarkeppnin hefur mikið verið í fréttunum síðustu ár, aðallega vegna neikvæðra mála.

Þjálfaraskipti á Ítalíu
Tvö lið í efstu deild á Ítalíu hafa skipt um þjálfara, það eru Cagliari og Siena. Nedo Sonetti er nýr þjálfari Cagliari sem rak Marco Giampaolo frá störfum fyrr í dag og þá er Mario Beretta tekinn við Siena á ný.

Leikjum frestað á Ítalíu
Öllum leikjum í B- og C-deildum á Ítalíu sem áttu að fara fram um helgina hefur verið frestað um óákveðinn tíma í kjölfar ofbeldis í tengslum við knattspyrnuleiki þar í landi síðastliðinn sunnudag.

Lögreglumaðurinn niðurbrotinn
Lögreglumaðurinn sem varð valdur að bana 26 ára stuðningsmanns Lazio á Ítalíu í gær segist vera niðurbrotinn maður.

Reggina af botninum eftir fyrsta sigurinn
Emil Hallfreðsson og félagar í Reggina unnu loks sinn fyrsta sigur í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið lagði Genoa 2-0 á heimavelli sínum. Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Reggina í dag og með sigrinum lyfti liðið sér úr botnsætinu.

Leik Atalanta og Milan hætt vegna óláta
Leikur Atalanta og Milan sem fara átti fram í ítölsku A-deildinni í dag var flautaður af eftir ólæti áhorfenda í upphafi leiks. Fregnir herma að stuðningsmennirnir hafi reiðst þegar þeir heyrðu af dauða stuðningsmanns Lazio sem féll fyrir voðaskoti lögreglu í dag.

Leikjum frestað eftir dauða stuðningsmanns
Leik Inter og Lazio í ítölsku A-deildinni í dag hefur verið frestað eftir að stuðningsmaður Rómarliðsins lét lífið í átökum sem brutust á veitingastað við hraðbraut í Toskana-héraði í dag.

Guðmundur framlengir við Keflavík
Guðmundur Steinarsson er búinn að framlengja samning sinn við knattspyrnudeild Keflavíkur um tvö ár. Guðmundur er 28 ára gamall og hefur verið lykilmaður í liði Keflavíkur síðustu ár, en átti við meiðsli að stríða á síðustu leiktíð. Þetta kom fram á vef Víkurfrétta í dag.

Adriano verður lánaður í janúar
Brasilíski framherjinn Adriano hjá Inter Milan verður að öllum líkindum lánaður frá liðinu þegar félagaskiptaglugginn opnast í janúar. Hann hefur alls ekki náð sér á strik með liðinu undanfarið og þjáist af þunglyndi.

Segja Kaka fá gullknöttinn
Ítalskir fjölmiðlar fullyrða í dag að þeir hafi öruggar heimildir fyrir því að Brasilíumaðurinn Kaka hjá AC Milan verði sæmdur gullknettinum þetta árið. Það er hið virta tímarit France Football sem veitir þessi eftirsóttu verðlaun ár hvert.

Emil spilaði vel í nýrri stöðu á vellinum
Ítalska liðið Reggina, sem Emil Hallfreðsson spilar með, stóð í stórræðum fyrir ekki margt löngu þegar knattspyrnustjórinn Massimo Ficcadenti var rekinn eftir að liðinu mistókst að vinna einn einasta leik af fyrstu tíu leikjunum í Serie A.

Gefst ekki upp á Adriano
Roberto Mancini, þjálfari Ítalíumeistara Inter, hefur enn trú á því að Adriano eigi sér framtíð hjá félaginu. Sífelld vandræði hafa umkringd þennan stóra og stæðilega brasilíska framherja.

Nedved biður Figo afsökunar
Luis Figo, miðjumaður Inter, verður frá í nokkurn tíma eftir að hafa brákað bein. Figo meiddist eftir tæklingu frá tékkneska miðjumanninum Pavel Nedved í gær og þurfti að fara af leikvelli.

Reggina nálægt því að vinna fyrsta leikinn
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn með Reggina sem gerði 1-1 jafntefli við Napoli á útivelli í dag. Liðið er í botnsæti deildarinnar og á enn eftir að vinna sinn fyrsta sigur.

Sevilla lagði Real Madrid
Brotthvarf Juande Ramos frá Sevilla hefur greinilega þjappað mönnum saman því liðið gerði sér lítið fyrir í gær og vann topplið Real Madrid.

Emil í byrjunarliðinu
Emil Hallfreðsson heldur sæti sínu í byrjunarliði Reggina í dag. Tveir leikir fóru fram á Ítalíu í gær.

Ulivieri tekur við Reggina
Emil Hallfreðsson og félagar í botnliði Reggina fengu í kvöld nýjan þjálfara eftir að Massimo Ficcadenti var rekinn. Sá heitir Renzo Ulivieri og er 66 ára gamall og var síðast hjá Bologna í B-deildinni. Hann er líka yfirmaður samtaka knattspyrnuþjálfara á Ítalíu.