
Ítalski boltinn

West Ham kaupir hávaxinn ítalskan landsliðsframherja
Enska úrvalsdeildarliðið West Ham hefur gengið frá kaupum á hinum stæðilega ítalska framherja Gianluca Scamacca.

Anna Björk framlengir samning hinn hjá Inter
Anna Björk Kristjánsdóttir hefur framlengt samning sinn við Inter Milan en þetta kemur fram á Twitter-síðu félagsins í dag.

Mourinho reynir að bæta enn frekar við hópinn
José Mourinho, þjálfari Roma á Ítalíu, er hvergi nærri hættur á leikmannamarkaðnum. Hann reynir nú að fá fyrrum lærisvein sinn og fyrrum andstæðing.

Gustar um De Ligt: Var hann slakur eða Juventus?
Það gustar um hollenska miðvörðinn Matthijs De Ligt sem gekk nýverið í raðir Bayern München frá Juventus á Ítalíu. Nýr þjálfari hans Julian Nagelsmann segir æfingar hjá ítalska liðinu hafa verið slakar en fyrrum liðsfélagi hans gagnrýnir hugarfar kappans.

Fabregas á leið í ítölsku B-deildina
Cesc Fabregas, fyrrum leikmaður Arsenal, Chelsea, Barcelona og spænska landsliðsins, er á leið til ítalska B-deildarliðsins Como 1907.

Juventus leggur fram tilboð í Firmino
Forráðamenn Juventus hafa gert Liverpool tilboð í brasilíska landsliðsframherjann Roberto Firmino.

Bætti treyjusölumet Ronaldo
Skipti Paulo Dybala frá Juventus til Roma virðast hafa kveikt vel í stuðningsmönnum liðsins frá höfuðborginni. Aldrei hafa fleiri treyjur selst á einum degi á Ítalíu og þegar hann samdi við Roma.

Dybala orðinn lærisveinn Mourinho
Ítalska knattspyrnufélagið Roma kynnti í dag argentínska sóknarmanninn Paulo Dybala til leiks en félagið fékk hann ókeypis frá Juventus.

Bayern München styrkir hjarta varnarinnar
Þýska fótboltafélagið Bayern München hefur gengið frá kaupum á hollenska landsliðsmanninum Matthijs de Ligt en miðvörðurinn kemur í Bæjaraland frá Juventus.

Fertugur Zlatan framlengir við AC Milan
Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við Ítalíumeistara AC Milan.

Mourinho fagnar Evrópuafrekinu með húðflúri
Portúgalinn Jose Mourinho er einn allra sigursælasti þjálfari seinni ára í evrópskum fótbolta og hann veit það vel.

Stuðningsmaður AC Milan hótar að aflima sig ef þeir selja framherja
Rafael Leao, framherji AC Milan, gæti verið á förum frá félaginu. Það gæti þó haft alvarlegar afleiðingar ef hótanir stuðningsmanns liðsins reynast sannar.

Chelsea staðfestir komu Koulibaly
Senegalski miðvörðurinn Kalidou Koulibaly er formlega orðinn leikmaður Chelsea eftir að félagið tilkynnti um komu leikmannsins frá Napoli fyrr í morgun.

Lukaku: Mistök að fara til Chelsea
Romelu Lukaku, leikmaður Inter Milan, segir það hafa verið mistök að yfirgefa Inter til að ganga til liðs við Chelsea síðasta sumar.

Pogba segist vera kominn heim en hafa orðið að manni í Manchester
„Stundum tekur maður ákvarðanir sem falla ekki með manni en ég er ánægður með árin mín í Manchester, þar ólst ég upp, þar lærði ég og þar varð ég að manni,“ segir Paul Pogba en hann samdi á dögunum við Juventus eftir að samningur hans við Manchester United rann út.

Koulibaly í sigtinu hjá Chelsea
Forráðamenn Chelsea eru að sögn enskra fjölmiðla í viðræðum við kollega sína hjá Napoli um kaup á senegalska varnarmanninum Kalidou Koulibaly.

Juventus staðfestir endurkomu Pogba
Paul Pogba er mættur aftur til Juventus á nýjan leik. Hann kemur á frjálsri sölu frá Manchester United.

Dybala gæti fyllt skarð Ronaldo hjá United
Paulo Dybala er laus allra mála hjá Juventus eftir að samningur hans við félagið rann út í maí. Talið var að Dybala myndi skrifa undir samning við Inter Milan en nú virðist Manchester United vera líklegari áfangastaður.

Di Maria semur við Juventus og Pogba á leiðinni
Ítalska liðið Juventus tilkynnti í kvöld að hinn argentínski Angel Di Maria væri búinn að skrifa undir eins árs samning við félagið. Stuttu síðar lenti Paul Pogba lenti í Tórínó til að ganga frá sínum samningi við liðið.

Þessir þurfa að sanna sig upp á nýtt
Stærstu knattspyrnufélög Evrópu eru byrjuð að æfa fyrir komandi leiktíð. Þó nokkur félagaskipti hafa vakið athygli en mögulega eru það helst leikmenn sem eiga enn eftir að staðfesta hvar þeir spila á komandi tímabili sem hafa mest að sanna.

Zlatan ekki á þeim buxunum að hætta
Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic mun framlengja samning sinn við AC Milan um eitt ár að sögn blaðamannsins Fabrizio Romano.

Pogba skrifar undir samning við Juventus
Franski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Paul Pogba, hefur samþykkt samningstilboð ítalska félagsins Juventus.

Eigendur Man City eignast ellefta fótboltafélagið
City Football Group frá Abú Dabí, sem á meðal annars Englandsmeistaralið Manchester City, heldur áfram að safna að sér fótboltafélögum út um allan heim.

Forseti serbneska sambandsins: Vlahovic er betri en Haaland
Erling Braut Haaland og Dusan Vlahovic eru tveir ungir og mjög frambærilegir framherjar sem eru nú komnir í tvö af þekktustu fótboltafélögum heims. Frægð annars þeirra er þó mun meiri en hins. Sá lítt þekktari á sér hins vegar góðan talsmann.

Ítalska úrvalsdeildin ræður fyrsta kvenkyns dómarann
Ítalska úrvalsdeildin í knattspyrnu, Serie A, hefur ráðið Maria Sole Ferrieri Caputi til starfa hjá deildinni á næsta tímabili, en hún verður fyrsta konan til að dæma í deildinni

Hér eftir úrslitaleikur um titilinn á Ítalíu ef efstu liðin enda jöfn
Forráðamenn Seríu A hafa gert róttæka breytingu á reglum sínum þegar lið enda með jafnmörg stig í efsta sæti deildarinnar.

Lukaku genginn í raðir Inter á nýjan leik
Belgíski framherjinn Romelu Lukaku er genginn í raðir Inter Milan á nýjan leik. Leikmaðurinn hefur verið lánaður frá Chelsea til Inter, aðeins tæpu ári eftir að hann fór í hina áttina fyrir metfé.

Sara er spennt fyrir uppbyggingunni hjá Juve: „Eitthvað sem ég vildi klárlega taka þátt í“
Landsliðskonana Sara Björk Gunnarsdóttir samdi í morgun við ítalska stórliðið Juventus til tveggja ára.

Af hverju er Sara númer 77?
Sara Björk Gunnarsdóttir hefur nýtt ævintýri á Ítalíu eftir Evrópumótið í júlí þegar hún byrjar að æfa og svo spila með fimmföldum meisturum Juventus. Það mun hún gera í treyju númer 77.

„Spurning hvort maður eigi einhverjar vinkonur þarna eftir EM“
„Mér fannst þetta alltaf vera ótrúlega áhugavert,“ segir Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðskona í fótbolta, sem í morgun var kynnt sem nýjasti leikmaður fimmfaldra Ítalíumeistara Juventus.