Þýski boltinn

Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz
Manchester City er sagt hafa lagt fram tilboð í hinn 22 ára gamla Florian Wirtz, leikmann Bayer Leverkusen. Sá er talinn hinn fullkomni arftaki Kevin de Bruyne.

Fjölskylda Glódísar sá hana taka við meistaraskildinum
Glódís Perla Viggósdóttir lyfti í gær öðrum bikarnum á ellefu dögum. Hennar nánustu mættu til að sjá hana taka á móti þýska meistaraskildinum.

Sveindís Jane slapp við síðasta sætið á íslenska listanum
Ísland átti fjórar landsliðskonur í þýsku Bundesligunni í fótbolta á þessu tímabili og þær deildu allar titlinum að vera markahæsti íslenski leikmaður deildarinnar á 2024-25 tímabilinu.

Sveindís Jane skoraði og lagði upp í kveðjuleiknum
Lokaumferð efstu deildar kvenna í Þýskalandi fór fram í dag. Þar voru þónokkrar íslenskar landsliðskonur í aðalhlutverki.

Skjöldur á loft í Bæjaralandi
Bayern München er Þýskalandsmeistari karla í knattspyrnu. Það var vitað fyrir leik dagsins en eftir 2-0 sigur Bæjara á Gladbach fór Þýskalandsskjöldurinn á loft.

Ísak góður þegar Düsseldorf hélt voninni á lífi
Íslendingaliðið Fortuna Düsseldorf vann loksins sigur í þýsku b-deildinni í dag eftir allt of mikið af jafnteflum síðustu vikur.

Allt frágengið og Alonso fær þriggja ára samning hjá Real Madrid
Xabi Alonso hættir sem þjálfari þýska liðsins Leverkusen til að snúa aftur til Madridar og taka við spænska stórveldinu Real Madrid. Ítalinn Carlo Ancelotti verður kvaddur með virktum þann 25. maí.

Ásgeir Sigurvinsson sjötugur í dag
Einn fremsti fótboltamaður sem Ísland hefur alið, Ásgeir Sigurvinsson, fagnar stórafmæli í dag. Hann er sjötugur.

Sveindís kvödd á sunnudaginn
Þýska knattspyrnufélagið Wolfsburg hefur nú formlega tilkynnt að Sveindís Jane Jónsdóttir yfirgefi félagið í sumar, þegar samningur hennar rennur út.

Glódis Perla spöruð á bekknum
Glódís Perla Viggósdóttir sat allan tímann á varamannabekknum þegar Bayern München vann nauman útisigur á næst neðsta liði deildarinnar í þýsku Bundesligunni.

Kane fékk loksins að syngja sigurlagið
Harry Kane varð Þýskalandsmeistari í gær og vann þar með fyrsta alvöru titilinn á sínum langa ferli. Markahrókurinn mikli hefur ekki enn handleikið málm en fagnaði titlinum í gærkvöldi með því að syngja lagið „We are the champions“ með Queen.

Bayern varð sófameistari
Lið Bayern Munchen sat heima í sófa og horfði á Freiburg tryggja þýska meistaratitilinn fyrir sig með jafntefli gegn Bayer Leverkusen.

Markmaðurinn á batavegi eftir harkalegt höfuðhögg
Kevin Müller, markmaður Heidenheim í þýsku úrvalsdeildinni, fékk harkalegt höfuðhögg í leik liðsins gegn VFL Bochum í gær og var fluttur á spítala. Hann fékk heilahristing en er nú á batavegi, óvíst er hversu lengi hann verður frá keppni.

Leipzig jafnaði á elleftu stundu og Bayern þarf enn að bíða
Bayern München tókst ekki að tryggja sér þýska meistaratitilinn í dag. Yussuf Poulsen kom í veg fyrir það þegar hann skoraði jöfnunarmark RB Leipzig þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lokatölur 3-3.

Sveindís fékk langþráð tækifæri í byrjunarliðinu
Íslenska landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir var í byrjunarliði Wolfsburg sem rúllaði yfir Potsdam, 0-4, í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Þriðja jafntefli Düsseldorf í röð en umspilið enn í augsýn
Fortuna Düsseldorf jafnaði tvisvar gegn Eintracht Braunschweig þegar liðin áttust við í þýsku B-deildinni í dag. Lokatölur 2-2.

Karólína lagði upp sigurmark Leverkusen
Bayer Leverkusen vann 1-0 sigur á RB Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lagði eina mark leiksins upp.

Glódís Perla eftir að tvennan var tryggð: „Langt síðan síðast“
Glódís Perla Viggósdóttir varð í gær bikarmeistari kvenna í knattspyrnu þegar Bayern München tryggði sér tvennuna í Þýskalandi. Hún var eðlilega mjög ánægð þegar hún ræddi við fjölmiðla eftir leik. Sjá má mörkin úr leiknum hér að neðan.

Glódís bikarmeistari með Bayern
Bayern München vann 4-2 sigur á Werder Bremen í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í fótbolta í dag. Glódís Perla Viggósdóttir er fyrirliði Bayern sem vann bæði deild og bikar.

Glódís í hefndarhug getur náð sögulegum áfanga í dag
Eftir erfiða tíma getur Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Bayern Munchen, náð sögulegum árangri með liði sínu í dag takist þeim að tryggja sér tvennuna í Þýskalandi með sigri í bikarúrslitum.

Ten Hag líklegur til að taka við af Alonso
Sky Sports í Þýskalandi segir Bayer Leverkusen með auga á Hollendingnum Erik ten Hag. Hann sé ofarlega á lista til að taka við liðinu í sumar.

Fá loks að halda sigrinum sem þrjú lið mótmæltu
Bochum á enn von um að halda sér uppi í þýsku 1. deildinni í fótbolta nú þegar liðið er öruggt um þrjú stig úr leik fyrir fjórum mánuðum við Union Berlín sem reyndar endaði 1-1.

Glódís Perla innsiglaði sigur og meistaratitil Bayern
Íslenski landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir var á skotskónum í dag þegar Bayern München tryggði sér þýska meistaratitilinn.

Leikbann á versta tíma en Kane lofar því að fagna meira en allir í liðinu
Harry Kane mun missa af næsta leik Bayern München í þýsku deildinni eftir að hafa fengið gult spjald í sigrinum á Mainz í gær.

Varamennirnir sáu um ótrúlega endurkomu Ísaks og félaga
Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar hans í Fortuna Düsseldorf nældu í ótrúlegt stig er liðið gerði 3-3 jafntefli gegn FC Nürnberg í þýsku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Bayern kláraði sitt en Leverkusen seinkaði sigurhátíðinni
Bayern München og Bayer Leverkusen unnu bæði leiki sína í þýsku Bundesligunni í fótbolta í dag og Bæjarar urðu því ekki þýskir meistarar eins og þeir gátu orðið hefðu öll úrslit fallið með þeim.

Harry Kane getur unnið langþráðan titil í dag
Enski landsliðsfyrirliðinn Harry Kane hefur mátt heyra ófáar háðsglósurnar og athugasemdirnar um að hann hafi aldrei unnið titil á ferlinum. Biðin langa gæti loksins endað í dag.

Tók Karólínu Leu stundarfjórðung að komast á blað
Íslenska landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir þurfti aðeins fimmtán mínútur til að komast á blað í 3-1 útisigri Bayer Leverkusen á Potsdam í efstu deild þýska fótboltans.

Þýskt Íslendingalið gjaldþrota
Þýska knattspyrnufélagið KFC Uerdingen, sem hét Bayer Uerdingen þegar það var í hópi bestu liða Þýskalands, hefur óskað eftir því að verða tekið til gjaldþrotaskipta.

Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter
Ítalíumeistarar Inter, sem eru jafnframt topplið Serie A – efstu deildar knattspyrnu karla þar í landi, máttu þola 1-0 tap á útivelli gegn Bologna.