
Þýski boltinn

Klopp mættur aftur til Dortmund og mun þjálfa um helgina
Jürgen Klopp var mættur á æfingasvæði Borussia Dortmund, síns fyrrum félags, á föstudag. Hann mun stýra leik um helgina en er þó ekki farinn að þjálfa hjá félaginu á nýjan leik.

Glöð og stolt en mætir ekki á Ballon d'Or: „Hélt að þetta væri eitthvað grín fyrst“
Glódís Perla Viggósdóttir þakkar liðsfélögum sínum í íslenska landsliðinu og Bayern München, eftir þann gríðarlega heiður að hafa verið tilnefnd fyrst Íslendinga til Gullboltans, eða Ballon d'Or. Hún verður önnum kafin með landsliðinu þegar þetta virtasta hóf fótboltans fer fram.

Glódís Perla tilnefnd til Gullboltans
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins og þýska stórliðsins Bayern München, var í kvöld tilnefnd til Gullboltans, Ballon d’Or.

Reynsluboltarnir tryggðu Bayern þrjú stig
Bayern Munchen vann sinn annan sigur í þýsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið lagði Freiburg 2-0 á heimavelli. Bayern hefur unnið báða leiki sína í deildinni til þessa.

Jón Dagur lék sinn fyrsta leik og Davíð Kristján skoraði
Jón Dagur Þorsteinsson kom við sögu í liði Hertha Berlin sem vann 4-3 sigur á Kaiserslautern í dag. Þá átti Davíð Kristján Ólafsson góða innkomu af bekknum hjá liði Cracovia í Póllandi.

Fyrsta tap Leverkusen í 15 mánuði
Ótrúleg taplaus hrina Bayer Leverkusen er á enda eftir tap gegn RB Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Leverkusen komst í 2-0 en missti niður forskotið í síðari hálfleik.

Karólína Lea lagði upp tvö og Amanda vann fyrsta titilinn
Íslensku landsliðskonurnar Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Amanda Andradóttir áttu báðar góðan dag í Evrópufótboltanum.

Valgeir Lunddal til liðs við Ísak Bergmann hjá Düsseldorf
Valgeir Lunddal Friðriksson er genginn til liðs við Fortuna Düsseldorf, toppliðs þýsku B-deildarinnar í knattspyrnu. Hann kemur frá BK Häcken þar sem hann hefur spilað síðan 2021.

Sævar Atli kom inn af bekknum í fyrsta sigri Lyngby
Lyngby er komið á blað í dönsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu eftir sigur á Vejle í kvöld. Sævar Atli Magnússon kom inn af bekknum í fyrri hálfleik. Þá voru Íslendingar í eldlínunni á Ítalíu sem og Þýskalandi.

Glódís Perla og Bayern byrja á þægilegum sigri
Þýskalandsmeistarar Bayern München byrja tímabilið í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu á þægilegum 2-0 sigri á Potsdam.

Hertha Berlín staðfestir komu Jóns Dags
Landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson er genginn í raðir þýska félagsins Herthu Berlínar frá OH Leuven í Belgíu. Þetta staðfestir Hertha á heimasíðu félagsins.

Fullyrða að Jón Dagur sé á leið til Þýskalands
Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson er á leið til þýska félagsins Hertha Berlin ef marka má heimildir vefmiðilsins 433.is.

Glódís lyfti fyrsta titli tímabilsins
Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern München fögnuðu fyrsta titli tímabilsins er liðið vann 1-0 sigur gegn Wolfsburg í leiknum um þýska Ofurbikarinn í dag.

Naumur sigur í fyrsta deildarleik Kompanys
Bayern München þurfti að hafa mikið fyrir því að vinna Wolfsburg, 2-3, í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fyrsti deildarleikur Bæjara undir stjórn Vincents Kompany.

Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu Ísaki og félögum sigur
Fortuna Düsseldorf vann 1-2 endurkomusigur á Ulm í þýsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Christoph Daum látinn
Einn fremsti fótboltaþjálfari Þýskalands á sínum tíma, Christoph Daum, lést í gær, sjötíu ára að aldri. Banamein hans var lungnakrabbamein.

Þýskur blaðamaður hleypur til minningar um Atla Eðvalds
Í dag fer Reykjavíkurmaraþonið fram þar sem margir hlaupa í þágu góðs málefnis. Þýskur blaðamaður hleypur til minningar um einn dáðasta íþróttamann Íslands.

Byrjuðu þetta tímabil eins og þeir enduðu það síðasta: Sigurmark á 101. mínútu
Segja má að Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen hafi tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið á síðasta tímabili í upphafsleik þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Íslendingaliðið keypti markakóng þýsku deildarinnar
Tveir af þremur markahæstu leikmönnum þýsku bundesligunnar í handbolta á síðustu leiktíð spila með Magdeburg á komandi tímabili og annar þeirra er íslenskur.

Neuer leggur landsliðshanskana á hilluna
Manuel Neuer spilaði sinn síðasta leik fyrir þýska landsliðið gegn Spáni á EM í sumar. Markvörðurinn tilkynnti í dag að hann myndi ekki spila aftur fyrir landsliðið en verður áfram hjá Bayern Munchen.

Frönsku landsliðsmennirnir tryggðu PSG sigur í fyrsta leiknum án Mbappe
PSG lék í kvöld sinn fyrsta leik í frönsku deildinni síðan Kylian Mbappe hvarf á braut til Real Madrid. Þá var stórlið Bayern Munchen í eldlínunni í þýska bikarnum.

De Ligt grunaður um að keyra á kyrrstæðan bíl og flýja af vettvangi
Matthijs de Ligt, leikmaður Bayern München, er til rannsóknar hjá þýsku lögreglunni vegna gruns um að hafa keyrt á kyrrstæðan bíl og flúið af vettvangi.

Hross Müllers vann Ólympíugull og truflaði útsendingu
Fótboltamaðurinn Thomas Müller gat fagnað á Ólympíuleikunum í París en hestur í hans eigu vann gull í hestaíþróttum. Mistök í útsendingu í Þýskalandi sýndu þá kómískt myndband af Müller og hestinum.

Hummels í ensku úrvalsdeildina?
Miðvörðurinn reyndi Mats Hummels gæti verið á leið í ensku úrvalsdeildina. Hann er án félags í kjölfar þess að samningur hans við Borussia Dortmund rann út í sumar.

Füllkrug til West Ham
West Ham United hefur keypt þýska framherjann Niclas Füllkrug frá Borussia Dortmund.

Fjöldi spjalda og gróf brot í fyrsta leik tímabilsins
Fortuna Düsseldorf vann 2-0 útivallarsigur gegn Darmstadt í fyrstu umferð þýsku B-deildarinnar.

West Ham leitar að framherja og vill fá Füllkrug
West Ham hefur hafið viðræður við Borussia Dortmund um kaup á þýska landsliðsframherjanum Niklas Füllkrug.

Glódís Perla bætti meistaraskildinum við í ótrúlegt bikarsafn Bayern
Glódís Perla Viggósdóttir er fyrirliði Þýskalandsmeistara Bayern München í fótbolta og því við hæfi að hún hafi opinberlega bætt meistaratitlinum sem félagið lyfti í vor við ótrúlegt bikarsafn félagsins.

Alonso með augun á Matip
Xabi Alonso, þjálfari Bayer Leverkusen, er í leit að miðverði og sagður vilja reynslu í öftustu línu.

Enn ein stjarnan slítur krossband í hné
Þýska landsliðskonan Lena Oberdorf, miðjumaður Bayern München, missir af Ólympíuleikunum sem fram fara í París sem og meirihluta komandi tímabils eftir að slíta krossband í hné gegn Austurríki.