
Grunnskólar

Unglingar í Reykjavík fá að sofa lengur
Reykjavíkurborg hefur tekið þá ákvörðun að skóladagur unglinga muni byrja í fyrsta lagi klukkan 8:50 á morgnana. Breytingin mun taka gildi í grunnskólum borgarinnar frá og með haustinu 2024.

Spreyttu þig á PISA-prófinu í stærðfræðilæsi
Fimmtán ára börn á Íslandi standa verr að vígi en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndunum þegar kemur að stærðfræðilæsi. Þetta er meðal niðurstaðna í PISA-könnun sem birt var í vikunni.

Stjórnmálamenn þurfi að hætta að „fikta í mikilvægustu innviðunum“
Sérfræðingar í menntavísindum segja vandann að baki niðurstöðum PISA könnunarinnar margþættan. Það hafi verið gerðar miklar og tíðar breytingar á menntakerfinu en einnig verði að líta til breytinga innan heimila. Þá sé ekki sé hægt að líta framhjá stöðu íslenskunnar.

Býður öllum grunnskólabörnum á fund
Borgarstjóri hefur boðað alla unglinga í grunnskólum Reykjavíkur á fund til að ræða mögulega seinkun á skólabyrjun á unglingastigi.

PISA könnun og menntamálin í Pallborðinu
Í Pallborðinu á Vísi í dag verður PISA könnunin og menntamálin í forgrunni. Þátturinn hefst klukkan 14.00 og verður í beinni útsendingu á Vísi og í sjónvarpinu á Stöð 2 Vísi.

Að draga lærdóm af PISA
Fólk er alls staðar fólk, við erum öll eins þótt menning, uppeldi og fleiri félagslegir þættir móti okkur hvert og eitt. Það er enginn eðlismunur á fólki eftir því hvar það fæðist. Þetta segi ég vegna niðurstaðna PISA könnunarinnar sem verða reglulega að þrætuepli í samfélaginu.

Loka grunnskólanum á Hólum
Grunnskólanum austan Vatna á Hólum verður lokað frá og með næsta skólaári. Þess í stað fara nemendur skólans á Hofsós í skóla. Einungis níu nemendur voru við skólann á síðustu önn.

Skiptum út dönsku fyrir læsi
Margt hefur verið sagt um Pisa og þar ýmislegt athyglis- og umhugsunarvert komið fram, enda er Pisa yfirgripsmikill samanburður milli Evrópuþjóða. Hér áður var þýðing á Pisa gagnrýnd, talið að samræmi milli frumtexta og þýðingar hefði brugðist (2015).

Pælt í PISA
PISA könnunin er stærsta alþjóðlega samanburðarrannsóknin á sviði menntunar og gefur mikilvægar vísbendingar um stöðu grunnmenntunar í landinu. Brýnt er að taka niðurstöður alvarlega og nýta á jákvæðan og uppbyggilegan hátt.

Skakkaföllin í PISA
Íslenskir grunnskólanemar standa höllustum fæti evrópskra nemenda þegar kemur að lestri, stærðfræði og náttúruvísindum, að grískum nemum undanskildum. Þetta er niðurstaða nýrrar PISA-könnunnar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), þar sem færni og þekking 15 ára barna er mæld. Námsárangur barna á Íslandi versnar mest af öllum 37 ríkjum OECD frá síðustu könnun frá árinu 2018.

Varar við því að hoppa á einfaldar lausnir við flóknum vandamálum
Full ástæða er til að hafa áhyggjur af stöðu menntamála í ljósi nýbirtrar PISA könnunar. Þetta segir Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ sem varar við því að hoppa á einfaldar lausnir við flóknum vandamálum.

Fimm sveitarfélög sektuð fyrir að nota Google skýjalausn í skólastarfi
Fimm sveitarfélög hafa verið sektuð af persónuvernd fyrir að nota skýjalausn Google með röngum hætti í grunnskólastarfi. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir málið alvarlegt og að margvíslega hafi verið brotið á persónuverndarlöggjöfinni.

„Ótrúlegt að menn horfist ekki í augu við þetta og axli ábyrgð“
„Það molnar stanslaust undan okkur. Hversu miklum lífsgæðum þurfum við að fórna og hversu mörgum tækifærum nemenda okkar þurfum við að fórna þar til við grípum í taumana og vöknum?“

Vinátta - óvænti ávöxtur kveikjum neistans
Allir vita að góður vinur er gulls ígildi og getur gert kraftaverk þegar á reynir. Vináttan er gríðarlega mikilvæg og margir eignast sínu bestu vini í grunnskóla. Þó ekki allir. Góður vinur getur haft jákvæð áhrif á vellíðan nemenda og því er félagsfærni mjög mikilvægur þáttur í lífi barna. Oft á tíðum er þetta mjög vanmetinn þáttur í skólagöngu og lífi barna almennt.

Leikjavæðing læsis: Hvernig við getum snúið við blaðinu með virkri foreldraþátttöku og tækninýjungum í lestrarkennslu
Nýlegar niðurstöður úr PISA könnuninni undirstrika mikilvægi þess að endurskoða nálgun okkar á menntun barna á Íslandi. Kennarar eru hornsteinn menntunar. Við þurfum að gera þeim kleift að efla sig í faglegri þróun til að tryggja að þeir séu vel í stakk búnir til að beita bestu fræðsluaðferðum og takast á við síbreytilelgar tækninýjungar.

Niðurstöður PISA og hvað svo?
Nú liggja fyrir nýjar niðurstöður úr alþjóðlega mælitækinu PISA. Þær kalla nú sem áður fyrr á aðgerðir í íslensku menntakerfi. Aðgerðir sem leiða til framfara og árangurs. Það verður að setja raunhæf markmið og það verða að vera til góð mælitæki sem sýna hvort þeim er náð.

Horfum í spegil
Í gær var kynnt um niðurstöður í PISA könnun á hæfni 15 ára barna. Niðurstöðurnar eru slæmar víðast hvar í heiminum og sýna hnignandi færni ungmenna miðað við fyrri ár. Þetta er þróun sem veldur áhyggjum um heim allan.

„Stórkostlegt áhyggjuefni“
Niðurstöður PISA-skýrslu, þar sem fram kemur að annar hver 15 ára drengur búi ekki yfir grunnfærni í lesskilningi, hafa vakið mikil viðbrögð. Íslenskuprófessor segir þróunina skuggalega og Andri Snær Magnason rithöfundur segir of litlu varið í þá sem búa til lesefni.

PISA sýnir aukna stéttaskiptingu á Íslandi: „Sitja ein uppi með vandamálin“
Annar hver 15 ára drengur á Íslandi býr ekki yfir grunnfærni í lesskilningi. Íslenskir nemendur er undir meðaltali OECD ríkjanna í öllum meginflokkum PISA könnunar. Börn með lakari félags- og efnahagslegan bakgrunn koma verr út í könnuninni.

Slök frammistaða í PISA: „Fær okkur til að velta fyrir okkur stöðu íslenskunnar“
Frammistaða íslenskra nemenda í PISA könnuninni 2022 er bæði lakari en í fyrri könnunum og undir meðaltali OECD ríkjanna í öllum þremur meginflokkunum sem undir eru. Lesskilningi hefur hrakað mest en forstjóri menntamálastofnunar segir stöðuna fá hana til að velta fyrir sér stöðu íslenskrar tungu.

Algjört hrap í lesskilningi íslenskra barna
Niðurstöður nýrrar PISA-könnunar sýna minni árangur nemenda í þátttökulöndum miðað við fyrri kannanir, meðal annars á öllum Norðurlöndum og árangurinn er minni á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum. Aðeins tvö af hverjum þremur fimmtán ára börnum búa yfir grunnhæfni í lesskilningi og aðeins 53 prósent pilta.

Svona var kynningin á niðurstöðum PISA-könnunar
Mennta- og barnamálaráðuneytið og Menntamálastofnun hafa boðað til blaðamannafundar í dag klukkan 10, þar sem nýjar niðurstöður PISA verða kynntar. Fjögur ár eru frá síðustu könnun en könnun OECD frestaðist um eitt ár vegna áhrifa heimsfaraldurs.

Óvinnufær eftir árás nemanda
Valgerður Þórunn Ásgeirsdóttir var nýbyrjuð að vinna sem iðjuþjálfi í grunnskóla þegar hún varð fyrir árás af hálfu nemanda og slasaðist illa. Afleiðingarnar voru þær að hún varð óvinnufær og datt út af vinnumarkaði.

Hent niður af svölunum af samnemanda
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fall nemanda í Garðaskóla af svölum inni í íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ í síðustu viku til rannsóknar. Nemandanum var hent niður af samnemanda.

Maður í dulargervi hafi fylgst náið með börnum við skóla
Íbúi í Norðlingaholti í Reykjavík tilkynnti stjórnendum Norðlingaskóla um grunsamlegar mannaferðir við húsnæði skólans. Maður klæddur ljósri hárkollu er sagður hafa fylgst grannt með ferðum nemenda.

Reglur um farsímanotkun barna í nær öllum grunnskólum
Meirihluti skóla hefur sett reglur um farsímanotkun barna. Oftast er hún háð takmörkunum og jafnvel staðsetningu. Algengara er að eldri börn megi vera með síma en þau yngri. Stundum þurfa börnin símann til að komast í almenningssamgöngur og fá því að hafa hann í töskunni.

Nemandi beitti kennara ofbeldi í Hörðuvallaskóla
Nemandi á miðstigi Hörðuvallaskóla í Kópavogi beitti í dag annan nemanda og kennara ofbeldi. Atvikið átti sér stað í kennslustund.

Grunnskólanemi féll niður af svölum í Ásgarði
Nemandi í Garðaskóla í Garðabæ féll niður af svölum inni í íþróttahúsinu Ásgarði í dag með þeim afleiðingum að hann fótbrotnaði. Lögreglan hefur málið til skoðunar.

Gott að geta gefið til baka: „Grindvíkingar tóku afskaplega vel á móti skrýtnum strák“
Skólastjóri Laugarlækjaskóla segir gott að geta gefið til baka til Grindvíkinga, en hann bjó sjálfur í Grindavík sem unglingur. Elstu bekkir grunnskólanemenda úr bænum fá aðstöðu til náms í skólanum. Nemendur ætla að taka vel á móti jafnöldrum sínum í Grindavík.

Dansandi skólaliði á Sauðárkróki með nemendum
Eitt af því allra skemmtilegasta sem nemendur í Árskóla á Sauðárkróki gera er að dansa út í frímínútum þar sem lög með Skagfirðingnum Geirmundi Valtýssyni þykja lang skemmtilegust að dansa við.