
Fasteignamarkaður

Toni setur ókláraða höll á Arnarnesi á sölu
Anton Kristinn Þórarinsson, einnig þekktur sem Toni, hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt á Arnarnesinu í Garðabæ á sölu. Húsið, sem er enn í byggingu, telur rúma 620 fermetra á tæplega 1500 fermetra lóð, en fasteignamat þess er 258 milljónir króna, og brunabótamat tæpar 138 milljónir.

Sjáðu norska kofann sem Þorsteinn Már keypti á 260 milljónir
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur fest kaup á 254 fermetra fjallakofa fyrir utan Lillehammer í Noregi. Fyrir kofann greiddi Þorsteinn 260 milljónir króna.

GDRN selur íbúðina
Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, þekkt sem GDRN, og kærasti hennar Árni Steinn Steinþórsson hafa sett fallega íbúð sína við Hraunbæ 196 til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 59,9 milljónir.

Guðjón hættir sem forstjóri í apríl
Guðjón Auðunsson, forstjóri fasteignafélagsins Reita, hefur tilkynnt stjórn félagsins að hann muni láta af störfum sem forstjóri félagsins 1. apríl næstkomandi. Hættir hann í framhaldi af aðalfundi félagsins sem fram fer 6. mars.

Lekker listamannaíbúð í Vestubænum
Glæsileg og mikið endurnýjuð sérhæð við Víðimel 58 í Vesturbæ Reykjavíkur er til sölu. Eignin er um 139 fermetrar að stærð með sérinngangi og bílskúr. Ásett verð er 115,9 milljónir.

Stórlax í stoðtækjum selur glæsivillu með sundlaug og bíósal
Össur Kristinsson, stofnandi stoðtækjafyrirtækisins Össur hf., hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt við sjávarsíðuna á Kársnesi í Kópavogi á sölu. Ásett verð er 260 milljónir.

Lára Jóhanna selur fallega hæð í Vesturbænum
Lára Jóhanna Jónsdóttir leikkona hefur sett fallega fjögurra herbergja hæð við Tómasarhaga 19 í Vesturbænum á sölu. Ásett verð er 118,9 milljónir.

Bein útsending: Metfjöldi umsókna um hlutdeildarlán
Alls bárust Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 73 umsóknir um hlutdeildarlán í október síðastliðinn. Lang flestar þeirra voru vegna kaupa á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu eða 58 umsóknir, fjórtán umsóknir voru á vaxtarsvæðum utan höfuðborgarsvæðisins og ein umsókn á landsbyggð utan vaxtarsvæða.

Georg í Sigur Rós selur slotið
Georg Holm bassaleikari hljómsveitarinnar Sigur Rós og eiginkona hans Svanhvít Tryggvadóttir framleiðandi hafa sett fallegt parhús sitt við Hávallagötu í Vesturbæ Reykjavíkur á sölu. Ásett verð er 158 milljónir.

Joey Christ og Alma selja bjarta hæð
Listamaðurinn Jóhann Kristófer Stefánsson, betur þekktu sem Joey Christ, og kærasta hans Alma Gytha Huntingdon-Williams jarðfræðingur, hafa sett fallega íbúð sína við Skeggjagötu í Reykjavík á sölu. Ásett verð er 63,8 milljónir.

Meira jafnvægi virðist að komast á fasteignamarkaðinn
„Merki eru um að meira jafnvægi sé að komast á fasteignamarkaðinn,“ segir í samantekt um nýja mánaðarskýrslu hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Kristín Tómas selur ævintýralega íbúð
Kristín Tómasdóttir, metsöluhöfundur og fjölskyldumeðferðarfræðingur hefur sett eign sína við Mávahlíð á sölu. Ásett verð fyrir fermetrana 101 eru 77,9 milljónir.

Sjarmerandi og litríkt heimili Steinunnar og Eiríks til sölu
Steinunn Knútsdóttir sviðslistakona og eiginmaður hennar Eiríkur Smári Sigurðarson, forstöðumaður Hugvísindastofnunar og rannsóknastjóri Hugvísindasviðs Háskóla Íslands, hafa sett íbúð sína við Klapparstíg á sölu.

Glæsihöll með steyptum potti og stórbrotnu útsýni
Við Vatnsendablett í Kópavogi má finna sannkallaða glæsihöll. Um er að ræða 340 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum með útsýni yfir Elliðavatn. Ásett verð fyrir eignina er 257 milljónir.

Bein útsending: Kynningarfundur um uppbyggingu íbúða í Reykjavík
Árviss kynningarfundur borgarstjóra um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík fer fram í Sjálfstæðissalnum á Hótel Parliament.

Arkitektahönnuð íbúð með stórbrotnu útsýni í Vesturbænum
Við Fálkagötu í Vesturbænum er falleg arkitektahönnuð 86,6 fermetra íbúð til sölu. Eignin er í eigu Helga Steinars Helgasonar arkitekts sem hefur búið sér einstaklega fallegt heimili. Ásett verð fyrir eignina er 84,9 milljónir.

Kaldalón mætt á aðalmarkað Nasdaq Iceland
Viðskipti með hlutabréf í fasteignafélaginu Kaldalóni hófust á aðalmarkaði Nasdaq Iceland í morgun. Síðustu ár hefur síðustu ár verið á First North vaxtamarkaðnum.

Bílskúrsrækt og sólstofa í Skerjafjarðarhöll
Rúmlega fjögur hundruð fermetra einbýlishús er til sölu við Skeljanes í Skerjafirði. Eigendur þess eru Guðfinnur Stefánsson aðstoðarmaður Héraðsdómara Vesturlands og Linda Kristjánsdóttir læknir.

Benni Boga og Úlla selja einbýlið við Freyjugötu
Benedikt Bogason forseti Hæstaréttar og eiginkona hans, Úlla Káradóttir, hafa sett glæsilegt einbýlishús sitt við Freyjugötu 37 á sölu. Húsið var teiknað af Guðmundi H. Þorlákssyni byggingarmeistara árið 1933.

Bergsteinn og Vigdís selja í Vogunum
Bergsteinn Sigurðsson, sjónvarpsmaður á RÚV, og Vigdís Másdóttir, nýráðin kynningar- og markaðsstjóri menningarmála í Kópavogi hafa sett íbúð sína við Karfavog í Reykjavík á sölu.

Hönnunarperla úr smiðju HAF-hjóna til sölu
Við Sólvallagötu í Reykjavík stendur yfirmáta sjarmerandi íbúð í húsi sem byggt var árið 1944. Íbúðin var endurhönnuð af fyrri eigendum, Haf-hjónunum Karitas Sveinsdóttur og Hafsteini Júlíussyni, árið 2018 á afar glæsilegan máta.

Þrjátíu leiðir til að hækka söluverð um fimm til átta prósent
Það hafa mjög margir áhuga á fasteignamarkaðnum og eru Íslendingar reglulegir gestir inni á fasteignasíðu Vísis til að mynda.

Fiskútflutningsfólk keypti á 233 milljónir í Garðastræti
Jón Georg Aðalsteinsson og Hilma Sveinsdóttir, eigendur fiskútflutningsfyrirtækisins Ice-co, keyptu á dögunum 270 fermetra einbýlishús í Garðastræti. Kaupverðið var 232,5 milljónir króna.

Eigandi Mathúss Garðabæjar selur slotið á Arnarnesi
Jóhanna Bjargey Helgadóttir einn af eigendum Mathúss Garðabæjar hefur sett glæsilegt einbýlishús við Blikanes 16 í Garðabæ til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 275 milljónir.

Hver vill villu ömmu Villa Vill?
Gamalt og fallegt steinhús við botn Ísafjarðardjúps, þekkt sem Kastalinn er til sölu. Um er að ræða 94 fermetra hús á tveimur hæðum sem var reist árið 1928. Eignin stendur á 2500 fermetra lóð. Á lóðinni er 72 fermetra geymsluhús sem er hálfhrunið.

Húsnæðisverð hækki mest á Íslandi og fyrstu kaupendur í vanda
Fyrstu kaupendur eiga erfiðara með að kaupa sér húsnæði nú en eldri kynslóðir og fyrir einhverja hópa er það nánast vonlaust. Dósent við HÍ telur Seðlabankann bera ábyrgð á þessari þróun með vaxtaákvörðunum síðustu ár. Mannfjöldaþróun sé einnig stór áhrifavaldur.

Nýr fasteignavefur Vísis í loftið
Nýr fasteignavefur á Vísi er kominn í loftið en í ár eru fimmtán ár síðan að vefurinn fór fyrst í loftið. Fasteignavefur Vísis er vinsælasti fasteignavefur landsins.

Fasteignasali vildi fleiri milljónir en fékk 315 þúsund krónur
Sveitarfélagið Dalabyggð hefur verið sýknað að mestu leyti af kröfum fasteignasala vegna vinnu við sölu á Laugum í Sælingsdal, sem byggðarráð þess hætti við árið 2017. Fasteignasalinn krafðist sjö milljóna króna en honum voru dæmdar 315 þúsund krónur.

Óvenjuleg íbúð í stórborgarstíl
Í Listhúsinu við Engjateig í Laugardalnum er falleg og björt tveggja hæða íbúð til sölu. Eignin er í anda loft-íbúða erlendis sem einkennast af opnum og björtum rýmum með aukinni lofthæð. Ásett verð fyrir eignina er 142 milljónir.

Jakob Helgi og Stella selja 170 milljóna glæsihús í Garðabæ
Jakob Helgi Bjarnason, framkvæmdastjóri Modulus, og eiginkona hans, Bryndís Stella Birgisdóttir, innanhúshönnuður, hafa sett glæsilegt parhús við Stígprýði 4 í Garðabæ til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 169,9 milljónir.