

Rosengård og Piteå gerðu 2-2 jafntefli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu kvenna en Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn fyrir Rosengård í dag.
Jón Daði Böðvarsson skoraði eitt mark fyrir Viking sem vann Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni, 2-0, en Jón skoraði annað mark Viking í leiknum í síðari hálfleik.
Ögmundur Kristinsson hélt hreinu í þriðja sinn í síðustu fimm leikjum þegar Hammarby gerði markalaust jafntefli við Kalmar á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Theodór Elmar Bjarnason lék allan leikinn fyrir AGF sem gerði markalaust jafntefli við Esbjerg í fyrsta leik 7. umferðar í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Eskilstuna United, lið Glódísar Perlu Viggósdóttur, komst upp að hlið Rosengård á toppi sænsku kvennadeildarinnar í fótbolta eftir 3-1 sigur á Örebro í kvöld.
Sif Atladóttir lék í gær sinn fyrsta leik með sænska liðinu Kristianstad síðan hún eignaðist sitt fyrsta barn í aprílmánuði. Sif var í viðtali hjá Hirti Hjartarsyni í Akraborginni á X-inu.
Íslendingaliðin Kristianstad og Rosengård gerðu í kvöld markalaust jafntefli í sænsku kvennadeildinni í fótbolta.
Hólmfríður Magnúsdóttir var heldur betur á skotskónum í kvöld þegar Avaldsnes tryggði sér sæti í undanúrslitum norsku bikarkeppninnar. Tvö Íslendingalið verða í undanúrslitunum því Lilleström-liðið vann einnig sinn leik í átta liða úrslitunum.
Íslendingaliðið Odense Boldklub tapaði illa á útivelli á móti AaB í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Norrköping vann dramatískan 3-2 sigur á Helsingborg í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Sundsvall tapaði á sama tíma á heimavelli.
Matthías Vilhjálmsson var hetja Rosenborg gegn Mjøndalen í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en Matthías skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri Rosenborg.
Íslendingarnir í Danmörku og Noregi voru ekki að hranna inn stigum fyrir sín lið í dag, en Theodór Elmar Bjarnason var í liði AGF sem náði í stig á Parken.
Eiður Aron Sigurbjörnsson og Hjörtur Logi Valgarðsson voru báðir í liði Örebro sem gerði 1-1 jafntefli gegn Halmstads BK á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Glódís Perla Viggósdóttir hafði betur gegn Elísu og Margréti Láru Viðarsdætrum í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en Eskilstuna vann 2-0 sigur á Kristianstad.
Viking Stavanger og Vålerenga töpuðu bæði leikjum sínum í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en bæði liðin töpuðu 1-0.
Haukur Heiðar Hauksson lagði upp sigurmark AIK í uppbótartíma gegn Gefle í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en markið kom í uppbótartíma. Lokatölur 2-1 sigur AIK sem er í öðru sæti deildarinnar.
Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði eitt og lagði upp tvö önnur í 4-1 sigri Avaldsnes á Kolbotn í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lilleström stefnir hraðbyri að titlinum.
Lærisveinar Rúnars Kristinssonar í Lilleström unnu nauman 1-0 sigur á Tromsö í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Nordsjælland komst af botninum í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir 2-1 útisigur á Hobro í kvöld í uppgjöri tveggja neðstu liða deildarinnar.
Klepp og Avaldsnes skildu jöfn, 1-1, í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Arnór Smárason skoraði seinna mark Helsingsborg í 2-0 sigri á Halmstads í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Lilleström glutraði niður tveggja marka forystu gegn Stabæk í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lilleström leiddi 2-0 í hálfleik, en lokatölur 3-2, Stabæk í vil.
Rosenborg vann enn einn sigurinn í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en liðið er með tíu stiga forskot á toppi deildarinnar. Hólmar Örn Eyjólfsson var á skotskónum.
Ari Freyr Skúlason skoraði eitt marka OB í 3-2 tapi gegn Randers í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. OB í fimmta sætinu eftir fimm leiki.
Glódís Perla Viggósdóttir spilaði allan leikinn í liði Eskilstuna United þegar liðið bar sigurorð af Umeå, 2-1, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Kjartan Henry Finnbogason tryggði AC Horsens 1-0 sigur á FC Roskilde í dönsku B-deildinni í knattspyrnu í dag, en þetta var annað mark Kjartans í deildinni.
IFK Gautaborg er á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 4-0 heimasigur á Håcken í dag, en Gautaborg er með tveggja stiga forystu.
Það gengur ekki né rekur hjá Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en liðið tapaði 2-1 gegn Esbjerg í dag. Einn sigur í fyrstu fimm leikjunum staðreynd hjá Nordsjælland.
Tveir Íslendingar voru í byrjunarliði Viking sem skaust upp í þriðja sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri á Bodø/Glimt.
Íslendingaliðin í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu unnu góða sigra í deildinni í dag; Malmö vann Gefle og Sundsvall vann Örebro, en Rúnar Már Sigurjónsson skoraði sigurmark Sundsvall.