
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna

Aldrei spilað við „klikkaðri“ aðstæður en í Kópavogi og afmælisbarnið fékk blástur
Sænska knattspyrnustjarnan Kosovare Asllani virtist njóta sín vel á Kópavogsvelli í fyrrakvöld en hún segir aðstæður þar þó hafa verið þær „klikkuðustu og köldustu“ sem hún hafi prófað á sínum ferli.

Bayern á toppinn í D-riðli eftir stórsigur
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar er Bayern München vann 1-5 stórsigur gegn Häcken í D-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn af bekknum fyrir Bayern, en Diljá Ýr Zomers var ónotaður varmaður hjá Häcken.

Myndir frá snjóboltanum í Smáranum
Breiðablik mætti Real Madrid í síðasta heimaleik sínum í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gær.

Fékk gult spjald fyrir að buffa áhorfanda sem hljóp inn á völlinn
Ástralska fótboltakonan Sam Kerr fékk gult spjald fyrir nokkuð óvenjulegar sakir í leik Chelsea og Juventus í Meistaradeild Evrópu í gær.

Spilaði í stuttermatreyju í snjóbyl
Karítas Tómasdóttir lét snjóinn og kuldann í gær ekki á sig fá og spilaði í stuttermatreyju gegn Real Madrid í síðasta heimaleik Breiðabliks í B-riðli Meistaradeildar Evrópu.

Ásmundur eftir 0-3 tap Breiðabliks gegn Real Madríd: Verður jólagjöfin okkar í ár
Breiðablik tapaði 0-3 gegn Real Madrid í snjóþungum leik á Kópavogsvelli í Meistaradeild kvenna í kvöld. Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, segir úrslitin vera svekkjandi.

Umfjöllun og myndir: Breiðablik - Real Madrid 0-3 | Gestirnir létu smá snjó ekki á sig fá
Breiðablik fékk stórveldið Real Madrid í heimsókn á Kópavogsvöllinn í kvöld í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu. Flestir reiknuðu með erfiðum leik fyrir Blikastelpur sem varð raunin enda lið Real Madrid vel mannað. Leiknum lauk með 0-3 sigri Real Madrid.

Leik Atalanta og Villareal frestað vegna veðurs | Spilað í Kópavogi
Leikur Atalanta og Villareal í F-riðli Meistaradeildar Evrópu mun fara fram á morgun þar sem veðuraðstæður í Bergamo á Ítalíu leyfa einfaldlega ekki knattspyrnuiðkun sem stendur. Sömu sögu er ekki að segja úr Kópavogi þar sem hefur einnig snjóað gríðarlega í kvöld.

Stórsigrar hjá Wolfsburg og PSG
Tveimur af fjórum leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu kvenna er nú lokið. Wolfsburg og París Saint-Germain unnu bæði. stórsigra.

PSG að stinga af í riðli Blika | Chelsea heldur toppsætinu í A-riðli
Nú er öllum fjórum leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu kvenna lokið. Paris Saint-Germain er með sex stiga forystu á toppnum í B-riðli eftir 2-0 sigur gegn Real Madrid og Chelsea er enn með þriggja stiga forskot í A-riðili eftir 1-0 sigur gegn Servette.

„Herslumuninn vantaði“
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, sagði að fyrsta markið hefði skipt miklu í leiknum gegn Kharkiv í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

„Virkilega pirrandi og maður er fúll og svekktur“
Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, var að mörgu leyti sátt með frammistöðuna gegn Kharkiv í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Hún var hins vegar sár og svekkt með úrslitin. Blikar töpuðu 0-2 og eru áfram á botni B-riðils.

Umfjöllun: Breiðablik - Kharkiv 0-2 | Úkraínskur sigur í Smáranum
Breiðablik laut í lægra haldi fyrir Kharkiv, 0-2, í fjórða leik sínum í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Blikar eru því áfram með eitt stig í riðlinum og eiga enn eftir að skora mark.

Hraðprófin hafa haft áhrif á miðasölu fyrir Evrópuleik Blika
Miðasala á leik Breiðabliks og Kharkiv í Meistaradeild Evrópu í fótbolta stendur enn yfir. Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli í kvöld.

Hinn 99 ára afi Öglu Maríu mætir á alla leiki
Agla María Albertsdóttir og stöllur hennar í Breiðabliki mæta Kharkiv í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Eins og venjulega þegar Agla María spilar verður afi hennar í stúkunni að fylgjast með barnabarninu.

Verðum að eiga betri leik en síðast
Þjálfari Breiðabliks, Ásmundur Arnarson, og Agla María Albertsdóttur sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Kópavogsvelli í dag. Ástæðan er leikur Breiðabliks og úkraínska liðsins Kharkiv í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu á morgun.

Glódís Perla kom inn af bekknum er Bayern lagði Lyon | Ekkert vesen á Arsenal
Bayern München vann 1-0 sigur á Lyon í stórleik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Glódís Perla Viggósdóttir kom inn af bekk Bayern undir lok leiks. Þá vann Arsenal 3-0 sigur á HB Köge.

Diljá Ýr spilaði í grátlegu tapi gegn Benfica | Barcelona skoraði fimm
Tveimur leikjum í Meistaradeild Evrópu kvenna er nú lokið. Häcken mátti þola grátlegt tap gegn Benfica á heimavelli þar sem sigurmarkið kom í uppbótartíma. Þá vann Barcelona þægilegan 5-0 sigur á Hoffenheim.

Í leit að fullkomnun: Ekkert fær ofurlið Barcelona stöðvað
Hvernig má það vera að allt sé í hers höndum hjá karlaliði félags á meðan kvennalið þess blómstrar og er besta lið álfunnar og mögulega sögunnar? Þegar stórt er spurt er fátt um svör en hér að neðan verður kafað ofan í kvennalið Barcelona og ótrúlegan árangur þess undanfarið.

Minnir á mál Tonyu og Nancy Kerrigan: Myndaðar saman á Kópavogsvelli
Það er óhætt að segja að mál frönsku landsliðskvennanna hjá Paris Saint Germain minnir mikið á mál bandarísku skautadansaranna Tonyu Harding og Nancy Kerrigan.

Henry hetja Lyon | Íslensku landsliðskonurnar sátu á bekknum
Báðum leikjum D-riðils Meistaradeildar Evrópu er nú lokið. Segja má að D-riðill sé Íslendingariðill en þar leika Lyon, Bayern München, Häcken og Benfica.

Sjáðu glæsileg aukaspyrnumörk Arsenal og Barcelona er liðin unnu örugga sigra
Báðum leikjum C-riðils Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu er nú lokið. Evrópumeistarar Barcelona unnu öruggan 4-0 sigur á Hoffenheim á meðan Arsenal sóttu þrjú stig til Danmerkur.

Handtekin fyrir að fá grímuklædda menn til að meiða liðsfélaga sinn
Paris Saint-Germain hefur staðfest það að lögreglan hafi handtekið leikmann kvennaliðs félagsins í dag.

PSG valtaði yfir Real Madrid | Juventus bjargaði stigi gegn Wolfsburg
Franska stórveldið Paris Saint-Germain átti ekki í miklum vandræðum er liðið tók á móti Real Madrid í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Liðið vann 4-0 stórsigur og er nú með þriggja stiga forskot á toppi riðilsins, en liðin leika í sama riðli og Breiðablik.

Blikastúlkur sóttu fyrsta stigið til Úkraínu
Breiðablik sótti í kvöld sitt fyrsta stig í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu er liðið gerði markalaust jafntefli gegn Kharkiv frá Úkraínu.

Höfðu mikinn áhuga á stöðu veirunnar á Íslandi
Úkraínskir blaðamenn höfðu mikinn áhuga á stöðu kórónuveirufaraldursins á Íslandi og hvort leikmenn Breiðabliks voru bólusettir á blaðamannafundi fyrir leik liðsins gegn Kharkiv í Meistaradeild Evrópu.

Nokkuð bjartsýnn á Blikasigur í Úkraínu: „Öll tölfræði liðanna er mjög jöfn“
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, á von á jöfnum leik gegn Kharkiv í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Hann telur helmingslíkur á sigri Blika.

Kristianstad í Meistaradeildina annað árið í röð
Lærimeyjar Elísabetar Gunnarsdóttur tryggðu sér sæti í Meistaradeild Evrópu í lokaumferðinni í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Arsenal og Lyon með stórsigra í Meistaradeildinni
Öllum fjórum leikjum dagsins er nú lokið í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu. Í kvöldleikjunum unnu Arsenal 4-0 sigur gegn Hoffenheim í C-riðli, og Lyon 5-0 sigur gegn Benfica í D-riðli.

Umfjöllun, mörk og myndir: Real Madrid - Breiðablik 5-0 | Blikar áttu aldrei möguleika í hitanum í Madríd
Þrenna dönsku landsliðskonunnar Caroline Møller Hansen í fyrri hálfleik gerði út um leik Real Madríd og Breiðabliks í Meistaradeild Evrópu. Ekki hjálpaði mark strax í upphafi síðari hálfleiks, lokatölur 5-0 heimakonum í vil.