Spotify

Spotify liggur niðri
Þjónusta Spotify hefur ekki verið aðgengileg síðan í hádeginu. Tónlistarstreymisveitan segist meðvituð um vandamálið sem unnið sé að því að leysa.

Þetta hlustaði heimsbyggðin á árið 2024
Espresso eftir Sabrinu Carpenter er það lag sem oftast var spilað af notendum streymisveitunnar Spotify á árinu. Patrik og Luigi eiga mest spilaða íslenska lagið á streymisveitunni en það er lagið Skína. Þá er Taylor Swift sá tónlistarmaður sem var með flestar hlustanir á árinu á streymisveitunni en Herra Hnetusmjör og Bubbi Morthens eiga metið meðal íslenskra höfunda.

Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál
Tveir íslenskir tónlistarmenn segjast hafa heyrt af því að fólk sem tengist þeim ekki kaupi svokallaðar gervispilanir á Spotify til að hafa áhrif á veðmál sem eru tengd útgáfum þeirra. Sjálfir kaupa þeir ekki gervispilanir og taka ekki þátt í umræddum veðmálum. Einn þeirra hefur sagt skilið við veðmálafyrirtækið Coolbet.

„Ég var rétta konan á réttum tíma“
„Það skiptir miklu máli að hafa breitt bak og geta staðið með sjálfri sér,“ segir framleiðandinn Alexandra Sif Tryggvadóttir, sem er búsett í New York og starfar hjá risanum Spotify. Alexandra er fædd í Los Angeles og hefur alla tíð haft annan fótinn úti en henni finnst mikilvægt að halda alltaf góðum tengslum við Ísland. Blaðamaður ræddi við hana um ævintýrin erlendis.

Gervispilanir tröllríða vinsældarlista Spotify
Gervispilanir á streymisveitum á borð við Spotify koma niður á tekjuöflun íslenskra tónlistarmanna. Vandamálið er áberandi á topplista Spotify á Íslandi, þar sem algjörlega óþekktir erlendir listamenn skjóta reglulega upp kollinum með grunsamlega mikið streymi.

Sló tvö Spotify-met með nýju plötunni
Stórsöngkonan Taylor Swift gaf út plötuna The Tortured Poets Department á föstudaginn. Sama dag hlaut platan flestar hlustanir sem fengist hafa á einum degi á streymisveitunni Spotify auk þess sem söngkonan hlaut flestar hlustanir sem listamaður hefur fengið á einum degi í sögu streymisveitunnar.

Þriðja hópuppsögnin á árinu hjá Spotify
Forsvarsmenn sænsku tónlistarveitunnar Spotify ætla að fækka starfsfólki sínu um sautján prósent. Daniel Ek, forstjóri fyrirtækisins, tilkynnti starfsfólki þetta í morgun. Það gera um 1500 starfsmanna.

Algjörir yfirburðir Hafdísar Huldar
Hafdís Huld Þrastardóttir er sá tónlistarmaður sem Íslendingar hafa hlustað mest á Spotify á árinu sem nú er að líða. Á eftir henni koma Bubbi Morthens og kanadíski rapparinn Drake. Einn annar Íslendingur kemst á topp tíu lista yfir þá tónlistarmenn sem voru vinsælastir á Íslandi, það er Friðrik Dór Jónsson.

Hæstánægð með metvinsældir sem þó komi mikið á óvart
„Ég er mjög ánægð. Það er mjög skemmtilegt að sjá svona tölur,“ segir tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir, innt eftir viðbrögðum við fréttum af því að hún hafi slegið stórstjörnum á borð við Tony Bennett og Lady Gaga við, með útgáfu djassplötu sinnar.

Laufey toppar Lady Gaga
Glæný plata tónlistarkonunnar Laufeyjar slær öll met á tónlistarveitunni Spotify. Fyrsta sólarhringinn var plötunni streymt 5,7 milljón sinnum, en það er langmesta spilun sem djassplata hefur fengið á tónlistarveitunni á fyrsta sólarhring eftir útgáfu.

Spotify hækkar verðið
Nýir notendur tónlistarveitunnar Spotify munu frá deginum í dag greiða eina evru aukalega fyrir það að hlusta ekki á auglýsingar. Verð núverandi notenda hækkar eftir mánuð en forsvarsmenn Spotify tilkynntu í dag að verið væri að hækka verðið á öllum áskriftarleiðum fyrirtækisins.

Taylor Swift skellti skollaeyrum við boði Meghan Markle
Taylor Swift þáði ekki boð Meghan Markle, hertogaynjunnar af Sussex, um að mæta sem gestur í hlaðvarpsþátt hennar Archetypes. Hertogaynjan sendi henni skriflega beiðni um að mæta sem gestur, að því er breska götublaðið The Sun fullyrðir.

Stjórnandi Spotify illur út í Harry og Meghan
Bill Simmons, stjórnandi á sviði hlaðvarpsmála hjá sænsku tónlistarveitunni Spotify, var þungorður í garð hertogahjónanna Harry og Meghan í eigin hlaðvarpsþætti og kallaði hjónin eiginhagsmunaseggi. Spotify og hjónin komust að samkomulagi fyrir helgi um uppsögn á framleiðslusamningi hjónanna við tónlistarveituna.

Spotify segir upp hlaðvarpssamningnum við Harry og Meghan
Spotify hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við hertogann og hertogaynjuna af Sussex, Harry og Meghan. Síðustu misserin hefur parið framleitt hlaðvarpið Archetypes fyrir streymisveituna.

Miley Cyrus braut blað í sögu Spotify
Tónlistarkonan Miley Cyrus er mætt á Íslenska listann á FM með lagið sitt Flowers. Lagið var kynnt inn sem líklegt til vinsælda í síðustu viku og er nú komið í 16. sæti listans.

Fékk beinan stuðning frá Spotify
Rapparinn Emmsjé Gauti trónir á toppi Íslenska listans á FM aðra vikuna í röð með ástarlagið Klisja. Í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert var svo tónlistarmaðurinn Magnús Gunn mættur með nýjasta lagið sitt „I’ll Be Alright“ en lagið lenti inn á vinsælum lagalista hjá streymisveitunni Spotify.

Mest spiluðu lögin á Spotify árið 2022
Streymisveitan Spotify gaf á dögunum út yfirlit af tónlistarárinu 2022 hjá hverjum og einum og hafa tónlistarunnendur því verið duglegir að deila sínum mest spiluðu lögum á samfélagsmiðlum. Samhliða því birti Spotify lista yfir 50 mest spiluðu lög ársins á veitunni undir heitinu „Top Tracks of 2022“.

Íslendingar Evrópumeistarar í jólalögum og vögguvísum
Jólalög eru mætt á vinsældalista Íslands á Spotify. Tvö erlend jólalög eru á listanum en líklegt er að fleiri bætist við á næstu dögum. Írar eru eina Evrópuþjóðin sem einnig er komin með jólalag á sinn vinsældalista.

Fyrstu plötur Jóhönnu Guðrúnar komnar á Spotify
Fyrstu plötur Jóhönnu Guðrúnar eru komnar á Spotify. Netverjar virðast margir hverjir alsælir með viðbótina á streymisveituna og segjast upplifa nostalgíu við hlustunina. Jóhanna var aðeins tíu ára gömul þegar fyrsta platan hennar „Jóhanna Guðrún“ kom út, á sjálfan afmælisdaginn 16. október.

Harry Styles á toppnum
Harry Styles situr efstur á lista sumarsins frá streymisveitunni Spotify. Á honum eru streymistölur síðustu mánaðar settar saman í tuttugu laga lista en Kate Bush tók þó sigursætið, ef aðeins er horft á streymistölurnar frá Bandaríkjunum, 37 árum eftir að lagið kom upprunalega út.

Meghan Markle vinsælli en Joe Rogan á Spotify
Archetypes, nýtt hlaðvarp hertogaynjunnar Meghan Markle, steypti hlaðvarpinu The Joe Rogan Experience af stóli sem vinsælasta hlaðvarp streymisveitunnar Spotify í Bandaríkjunum. Aðeins tveir dagar eru liðnir síðan fyrsti þáttur Archetypes var gefinn út.

Sömdu söngleik um Samherja og slógu Íslandsmet í plötuútgáfu
Þrír ungir tónlistarmenn hafa í sumar gefið út átta plötur yfir átta vikna tímabil sem þeir segja vera Íslandsmet í plötuútgáfu yfir jafnlangt tímabil. Meðal platnanna átta er Samherji: The Musical sem inniheldur meðal annars lögin Kvótakóng og Arðrán.

Kínverjar herja á KK á Spotify: „Ég heyri bara í Jóni Gunnarssyni, hann er duglegur að henda útlendingum út“
Tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem KK, kannast ekkert við þrjú nýjustu lögin sem hann er skráður fyrir á Spotify. Kannski ekki skrítið, því lögin eru kínversk hiphop lög, ekki beint sá tónlistarstíll sem KK er þekktur fyrir.

Hrun í tekjuhlutdeild íslenskrar tónlistar
Samanlagðar tekjur íslenskra tónlistarrétthafa af plötusölu og streymi hækkuðu um 5% milli 2020 og 2021. Aukast þær nú fjórða árið í röð en fyrir það mældist sjö ára samfelldur tekjusamdráttur. Þrátt fyrir aukninguna hefur hlutdeild íslenskrar tónlistar minnkað á hverju ári og er nú lægri en nokkru sinni fyrr.

Framlög Úkraínu, Noregs og Hollands klífa alþjóðlegan vinsældarlista hjá Spotify
Lokakeppni Eurovision fer fram í Tórínó í kvöld og munu 25 lög keppa um gler hljóðnemann. Eins og vænta má eru lögin mörg hver orðin gífurlega vinsæl, bæði í Evrópu og sum um allan heim.

Gervi-Íslendingur græðir á tá og fingri á Spotify
Íslenska tónlistarmanninn Ekfat kannast fæstir við en þrátt fyrir það er hann að fá milljónir hlustana á streymisveitunni Spotify. Lögin Polar Circle og Singapore með Ekfat eru samtals með yfir 5 milljónir hlustana.

Alexandra Sif í tökum með lagahöfundi Beyoncé
Alexandra Sif Tryggvadóttir vinnur hjá stórfyrirtækinu Spotify og er búsett í sólríku Los Angeles. Hún er að gera öfluga hluti vestanhafs í ýmsum verkefnum og öðlaðist það eftirsótta tækifæri að fá að sækja sérstakan fjölmiðla dag fyrir Óskarsverðlaunahátíðina. Blaðamaður hafði samband við Alexöndru og tók púlsinn á stemningunni svona rétt fyrir Óskarinn.

Heimavöllur Barcelona fær nýtt nafn eftir risasamning við Spotify
Spænska knattspyrnustórveldið Barcelona hefur samþykkt nýjan styrktarsamning við streymisveituna Spotify sem hljóðar upp á 235 milljónir punda, sem samsvarar tæplega 41 milljarði íslenskra króna.

Spotify verður aðalstyrktaraðili Barcelona og kaupir nafnaréttinn á Nývangi
Barcelona er að semja við tónlistarveituna Spotify um að verða aðalstyrktaraðili félagsins. Talið er að Spotify borgi 237 milljónir punda fyrir samstarfið.

Rúmlega sjötíu þættir af hlaðvarpi Joe Rogan fjarlægðir af Spotify
Um sjötíu hlaðvarpsþættir Joe Rogan hafa verið fjarlægðir af Spotify. Bandarískir fjölmiðlar segja að Rogan hafi sjálfur valið að fjarlægja þættina. Forstjóri Spotify, Daniel Ek, segir í skilaboðum til starfsmanna að í umræddum þáttum hafi Rogan látið særandi orð falla sem endurspegli ekki gildi félagsins.