Fósturfjölskyldur

Að bæta líf fósturfjölskyldna er markmiðið
Guðlaugur Kristmundsson og Anna Steinunn eru bæði í stjórn Félags fósturforeldra og hvetja öll sem eru áhugasöm um að taka börn í fóstur að skrá sig í félagið áður en barn er komið inn á heimilið.

Fékk barnið á heimilið 42 mínútum eftir að fá símtalið í Byko
Þegar fólk fær símtal um að það sé fósturbarn í leit að fósturforeldri þá breytist margt á skömmum tíma. Oftast fá fósturforeldrarnir smá undirbúningstíma en það er ekki alltaf tilfellið.

„Þessi börn eru fórnarlömb aðstæðna“
Það eru margar áskoranir fyrir fósturforeldra sem taka að sér barn í fóstur og einnig fyrir fósturbörnin sjálf. Fósturforeldrar upplifa oft fordóma frá fólki sem þekkir ekki hvernig fósturkerfið virkar.

Fósturforeldrar fá ekki fæðingarorlof og þurfa að redda sér
„Ekkert fósturbarn kemur í líf okkar án þess að hafa upplifað áföll,“ segir Hildur Björk Hörpudóttir. Það er því ekki óalgengt að fósturbörn séu að kljást við einhvers konar áfallastreituröskun þegar þau koma inn á heimilið.

Sá tengslamyndun í nýju ljósi sem fósturforeldri
„Það varð svo raunverulegt þegar námskeiðinu lýkur og þá koma þessir gestir inn. Fósturforeldrar og fósturbörn sem lýsa þeim aðstæðum sem þau eru eða voru í,“ segir Guðlaugur Kristmundsson um undirbúningsnámskeiðið sem hann tók áður en hann gerðist fósturforeldri.

Alltaf neyðarúrræði að setja barn í fóstur
„Það sem er kannski öðruvísi við þetta allt er að þetta eru svolítið þegar mótaðir einstaklingar. Þau koma til manns í líf manns með nafn, dásamlegt bros og alls konar tengsl,“ segir Hildur Björk Hörpudóttir um það að vera fósturforeldri.