Landslið kvenna í fótbolta

Nýja auglýsingin fyrir EM: Ekkert stoppar íslenska kvennalandsliðið
Kvennalandsliðið fær stuðning úr öllum áttum í nýrri auglýsingu frá Icelandair fyrir EM kvenna.

Berglind Björg: Þetta er EM og það getur allt gerst
Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði mikilvæg mörk þegar Íslands tryggði sig inn á EM og skoraði einnig í eina undirbúningsleik liðsins fyrir Evrópumótið. Það bendir margt til þess að hún muni byrja fremst í fyrsta leik á móti Belgíu.

Einn dagur í EM: Titlaóð Sara Björk
Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins en Ísland hefur leik á morgun, þann 10. júlí. Næst í röðinni er fyrirliðinn sjálf, Sara Björk Gunnarsdóttir.

Love Island þátturinn vinsæll hjá íslenska landsliðinu og nú geta þær horft í beinni
Stelpurnar í íslenska kvennalandsliðinu láta sér ekki leiðast á milli æfinga og leikja á Evrópumótinu. Það er mikið hugsað um fótbolta en líka lögð mikil áhersla á að skemmta sér saman og þétta hópinn utan vallar.

Stundum áttavilltar í kastalanum en enginn hefur týnst ennþá
Það fylgja því kostir og gallar að búa í kastala. Því hafa stelpurnar okkar komist að í sveitahótelinu sínu frá því að þær komu til Englands þar sem fram undan er Evrópumótið í knattspyrnu.

Það er fjósalykt af þessu
„Það dugar ekkert minna fyrir drottningarnar okkar. Það er bara við hæfi að þær fái heilan kastala út af fyrir sig,“ sagði Svava Kristín þegar hún heimsótti stelpurnar okkar í smábænum Crewe sem er u.þ.b. 40 km frá Manchester.

EM í dag: Spurningakeppni og fyrirliðabandið
Svava Kristín Grétarsdóttir heldur áfram að fylgja á eftir íslenska landsliðinu á EM í Englandi. Í þætti dagsins keppa Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir í spurningakeppni fyrir framan kastalann sem liðið gistir í.

Gunnhildur Yrsa á því að ungu leikmennirnir geti líka hjálpað þeim eldri
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er mjög spennandi lið byggt upp á reynslumiklum kjarna og í viðbót er komin inn í liðið ein af flottari kynslóðum íslenska kvennafótboltans.

Myndir frá kastala drottninganna okkar í kvennalandsliðinu
Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu kvarta örugglega ekki mikið undan hótelinu sínu á meðan Evrópumótinu stendur. Þær hafa það nefnilega mjög gott á mjög sérstöku sveitahóteli rétt fyrir utan Crewe.

Pallborðið: EM ævintýrið að hefjast
Íslenska kvennalandsliðið hefur leik á Evrópumótinu í knattspyrnu á sunnudaginn þegar liðið mætir Belgum í fyrsta leik í riðlinum.

Með á öllum EM-mótum Íslands en bíður enn þolinmóð eftir fyrstu mínútunum
Markvörðurinn Sandra Sigurðardóttir er nú mætt á sitt fjórða stórmót og er þar í hópi þeim Söru Björk Gunnarsdóttur og Sif Atladóttur. Munurinn á þeim og Söndru er að Sandra hefur ekki enn fengið að spila einn einasta leik á EM.

Tveir dagar í EM: „Elti upp þjófa sem stálu takkaskónum okkar á Spáni árið 2006“
Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins en Ísland hefur leik þann 10. júlí. Næst á dagskrá er varnarjaxlinn og reynsluboltinn Sif Atladóttir.

Sif Atla: Þeirra skref eru miklu styttri en þau voru fyrir mína kynslóð
Margar af yngri leikmönnum íslenska kvennalandsliðið í fótbolta í dag voru komnar ungar út í atvinnumennsku og reynsluboltinn Sif Atladóttir er sannfærð um að það muni hjálpa þeim á stóra sviðinu á EM kvenna í Englandi.

Fá að heimsækja stelpurnar okkar í kastalann í dag
Það fer vel um íslensku stelpurnar í höfuðstöðvum kvennaliðsins í Englandi en þær gista á sveitahóteli nærri Crewe.

Gott að þær gátu núna aðeins kúplað sig út úr áreitinu heima á Íslandi
Það er mikill áhugi á íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta eftir gott gengi síðustu ár og þátttöku á Evrópumóti í mekka fótboltans fram undan.

Sif Atla: Kvennaknattspyrnan er í dag sú íþrótt sem fólk á að hoppa á
Sif Atladóttir og félagar hennar í landsliðinu hafa nú byrjað æfingar á enskri grundu og hún var ein af fjórum reynsluboltum sem hittu íslenska blaðamenn í dag.

EM í dag: Sögulegt kvöld á Old Trafford þegar Evrópumótið byrjaði með stæl
Evrópumót kvenna í knattspyrnu hófst á miðvikudagskvöldið þegar rétt tæplega sjötíu þúsund manns troðfylltu Old Trafford á opnunarleik keppninnar.

Myndir: Mikið fjör á æfingu Íslands
Íslenskir fjölmiðlar eru mættir til Crewe í Englandi þar sem íslenska kvennalandsliðið er búsett á meðan Evrópumótið í fótbolta fer fram.

Sveindís sú tíunda verðmætasta í íslenska riðlinum
Sveindís Jane Jónsdóttir situr í tíunda sæti listans yfir verðmætustu leikmenn D-riðils á EM kvenna í knattspyrnu sem nú fer fram. Það var vefmiðillinn Soccerdonna sem tók listan saman.

Gunnhildur: Vissum alveg að hún myndi taka bandið til baka
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir missti fyrirliðabandið fyrir síðasta leik íslenska landsliðsins fyrir Evrópumótið í knattspyrnu í Englandi. Hún segir það ekki breyta sér neitt sem leikmaður hvort hún sé titlaður fyrirliði eða ekki.

Þrír dagar í EM: Elskar að pirra Dagnýju og borða bananabrauð en hatar banana
Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins en Ísland hefur leik þann 10. júlí. Þýskalandsmeistarinn Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Wolfsburg, er næst á dagskrá.

Allar töskur íslensku stelpnanna skiluðu sér í hús
Þessa dagana lenda margir í vandræðum á flugferðum sínum um Evrópu og fréttir um týndar töskur eru allt of algengar.

Þorsteinn sendir reynsluboltana fram fyrir skjöldu í dag
Það verða eflaust talsverð viðbrigði fyrir íslensku landsliðskonurnar í dag þegar þær mun í fyrsta sinn hitta fyrir íslensku fjölmiðlasveitina sem mun fylgjast með hverju fótmáli hjá þeim á Evrópumótinu í Englandi.

Stelpurnar hitta íslensku fjölmiðlasveitina í fyrsta sinn í dag
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er búið að flytja sig yfir til Englands eftir vonandi góðar og vel heppnaðar æfingarbúðir á meginlandi Evrópu síðustu vikuna og fram undan eru síðustu dagarnir fyrir fyrsta leik liðsins á Evrópumótinu í Englandi.

Stelpurnar okkar mættar til Manchester
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta lenti síðdegis í dag í Manchester en þaðan heldur liðið til Crewe þar sem liðið mun dvelja og æfa á milli leikja á Evrópumótinu sem hefst í dag.

Fjórir dagar í EM: Heldur því miður með Man Utd og elskar rautt kjöt
Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins en Ísland hefur leik þann 10. júlí. Markvörðurinn Telma Ívarsdóttir er næst í röðinni.

Stjörnur D-riðils: Fyrirliði Íslands og markaóðir framherjar
Vísir heldur áfram að telja niður í Evrópumót kvenna sem fram fer í Englandi. Ísland er að fara á sitt fjórða Evrópumót í röð en hér að neðan verður farið yfir bestu leikmenn landanna sem skipa D-riðil. Þau eru Belgía, Frakkland, Ísland og Ítalía.

Landsliðstreyjan loksins mætt til landsins
Landsliðstreyja íslenska landsliðsins í knattspyrnu er loksins mætt til landsins, aðeins nokkrum klukkustundum áður en EM kvenna í knattspyrnu hefst.

EM verður stærsti evrópski íþróttaviðburður kvenna frá upphafi
Evrópumót kvenna í knattspyrnu hefst í dag þegar gestgjafar Englands taka á móti Austurríki á heimavelli Manchester United, Old Trafford. Búist er við rúmlega 70 þúsund áhorfendum á leikinn, en aldrei hafa fleiri miðar verið seldir á EM kvenna.

Hægt að horfa á Stelpurnar okkar á Ingólfstorgi
Allir leikir íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta á EM í Englandi, sem er handan við hornið, verða sýndir á risaskjá og í topp hljóðgæðum á Ingólfstorgi.